Morgunblaðið - 30.11.2003, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Erfitt er að meta með nokk-urri vissu hve margar síð-ur eru á Netinu og ekkibætir úr skák að sú tala ersífellt að breytast, síður
koma og fara og ekki gott að segja
hvernig á að fara með gagnagrunns-
síður til að mynda. Þrátt fyrir það
reyna menn að meta slíkt, meðal
annars með því að telja virk lén en
þau eru ríflega 180 milljónir. Gera
má því skóna að meðalfjöldi vefsíðna
á hverju léni sé varlega áætlað um
100 síður og út frá því fáum við um 18
milljarða vefsíðna með mjög óvís-
indalegum útreikningi. Við þennan
fjölda bætast síðan um tíu milljón
síður á dag.
Köngurlær og róbótar
Svonefndar leitarvélar byggjast á
gagnagrunni með upplýsingum um
vefsíður sem sérstök leitarforrit
safna, svonefndar köngurlær eða
róbótar. Þau forrit eru alltaf á ferð-
inni ef svo má segja, lesa síður og
skipa niður í gagnagrunn fyrirtæk-
isins sem rekur leitarvélina en þegar
vefnotendur fara inn á vefsíðu leit-
arvélar og slá inn leitarorð er einmitt
leitað í þeim gagnagrunni.
Sú var tíðin að það eina sem skipti
máli með leitarvélar var hversu
margar síður þær voru með undir en
eftir því sem síðunum hefur fjölgað
hafa önnur viðmið komið til. Enn
leggja leitarvélarnar þó talsverða
áherslu á hversu margar síður þær
hafa skráðar í gagnagrunna sína og á
þeim mælikvarða hefur Google.com
vinninginn með ríflega þrjá milljarða
síðna, Alltheweb með rúmlega tvo
milljarða en AltaVista með 1,7 millj-
arða, Wisenut með hálfan annan
milljarð síðna. Eins og nefnt var má
áætla að um tíu milljón vefsíður bæt-
ist við á vefnum dag hvern, en leit-
arvélarnar eru langt frá því að halda
í það, sumir segja að þær nái að
halda í við um 10% af stækkuninni.
Gefur augaleið að bilið á milli síðu-
fjölda sem leitarvélar skrá og síðu-
fjöldans á Netinu á eftir að aukast
jafnt og þétt.
Hver er bestur, ekki stærstur
Þegar síðurnar eru orðnar svo
margar skiptir talsverðu að fljótlegt
sé að leita í gagnagrunninum og því
hafa þessi fyrirtæki ýmist þróað eig-
in reiknireglur fyrir leit, leitar-
algrími, og er í raun helstu verðmæti
þeirra.
Það er þó ekki nóg að vera fljótur
að leita í milljarðasafni af vefsíðum;
mestu skiptir að leitin skili gagnleg-
um upplýsingum. Tökum smá dæmi
leit að Jaguar, sem getur verið bif-
reiðategund, rándýr af kattarkyni
eða gömul gerð af leikjatölvu til að
mynda. Google skilar 3.950.000 síð-
um um Jaguar, AlltheWeb 3.381.416
og AltaVista 1.233.743. Þetta er ekki
mjög gagnleg niðurstaða enda sér
hver í hendi sér hvílíkt óðs manns
æði það væri að fara í gegnum þrjá
milljarða vefsíðna.
Keppikefli leitarvéla í dag er því
ekki lengur bara að vera með sem
flestar síður undir í leitinni, heldur
hvernig þær geti skilað sem bestum
og gagnlegustum niðurstöðum og í
því hefur Google vinninginn sem
stendur.
Ein af þeim leiðum sem menn nota
til að meta vefsíður er að nýta sér
vinnu þeirra sem setja upp vefsíður,
ef svo má taka til orða, taka mið af
vali þeirra sem vísa í aðrar síður á
sínum. Þannig reyna menn að finna
þá síðu um tiltekið efni sem flestir
vísa í því hún hlýtur þá að innihalda
gagnlegar upplýsingar, en einnig
tína þeir til þær síður sem vísa í
margar aðrar síður um tiltekið efni
því líklegt verði að teljast að þær séu
nokkurskonar lykilsíður um viðkom-
andi efnisflokk.
Google á einmitt rætur sínar í slík-
um pælingum því stofnendur fyrir-
tækisins, Larry Page og Sergey
ár, rætt um vélbúnaðinn sem er
býsna sérstakur, að mestu heima-
smíðaður úr ódýrum búnaði, auglýs-
ingaþjónustu Google og vefsetrin
sem fyrirtækið hefur komið upp,
safn umræðuhópa, verslunarvélina
og fréttaveituna. Fátt hefur mönn-
um þó þótt eins áhugavert og höf-
uðstöðvarnar, Googleplex, enda er
margt þar með öðrum hætti en menn
eiga að venjast í stórfyrirtækjum. Í
aðalvinnuaðstöðu starfsfólks voru til
að mynda engin skilrúm og í stað
stóla voru stórir æfingaboltar úr
gúmmíi notaðir. Tölvur og annar raf-
eindabúnaður var fyrsta flokks, en
borðin tréhurðir sem stóðu á tré-
smíðabúkkum. Lava-lampar voru
um allt, en það eru lampar með
vökvafylltum lokuðum glervasa með
seigfljótandi endi sem flýtur í þynnri
vökva og ummyndast í sífellu, og
hundar gengu lausir um vinnusvæð-
ið.
Allt var þetta til þess fallið að ýta
undir vinnusemi og hugmyndaflæði
sem skilaði sér í miklum endurbótum
á leitaralgríminu og uppbyggingu
Google-vefjanna sem leiddi síðan til
þess að Google varð stærsta leitar-
vélin á Netinu í júní 2000. Sá árangur
ýtti undir áhuga annarra fyrirtækja
að nýta sér tækni frá fyrirtækinu, en
Google hefur ekki síst náð svo langt
sem raun ber vitni fyrir það að fyr-
irtækið hefur verið iðið við að koma
uppgötvunum sínum og tækniþróun
í verð. Að búa til varning sem hægt
er að selja í stað þess að treysta að-
eins eða aðallega á auglýsingar eins
og margar aðrar leitarvélar. Meðal
annars hefur fyrirtækið selt fyrir-
tækjum þá þjónustu að stýra leit á
vefsetrum þeirra fyrir viðskiptavini
viðkomandi fyrirtækis sem skilað
hefur drjúgum tekjum. Um mitt ár
2000 var reksturinn farinn að skila
hagnaði, en í júní skilaði Google 18
milljón leitarniðurstöðum á dag.
Þá um haustið kynnti fyrirtækið
Google-tækjastikuna, viðbót við Int-
ernet Explorer sem skeytir leitar-
stiku við Explorer og gerir notend-
um að auki kleift að slökkva á
skotgluggum, popup gluggum, sem
notið hefur mikilla vinsælda, en
milljónir manna hafa sótt sér tækja-
stikuna sem er ókeypis. Stjórar Go-
ogle hafa reyndar verið naskir á
hvað á að gefa á Netinu, nokkuð sem
vefst gjarnan fyrir ráðsettari fyrir-
tækjum, enda hugsa þeir til lengri
tíma, koma leitarvélinni alstaðar að
og nýta sér það hvernig Netið getur
stóraukið markaðshlutdeild á ör-
skömmum tíma ef rétt er farið að.
Þannig hefur fyrirtækið til að mynda
gefið háskólum vestan hafs leitarvél-
Leitarvélin mikla
Sífellt fjölgar vefsíðum, um tíu milljón síður á
dag að mati margra, og erfitt að leita í öðru eins
flóði. Árni Matthíasson rekur hér sögu Google-
leitarvélarinnar sem skotið hefur öðrum slíkum
fyrirtækjum ref fyrir rass.
Morgunblaðið/Þorkell
’ Hinar gríðarleguvinsældir Google
hafa gefið fyrirtæk-
inu færi á að fylgjast
með því að hverju
fólk er að leita, raða
því í gagnagrunna
fyrirtækisins. ‘
Brin, þá 25 ára og 24 ára, lögðu drög
að leitarvél sem þeir kölluðu Back-
Rub í janúar 1996, en sú byggðist á
því að greina hvaða síður vísuðu í til-
teknar vefsíður. Þeir tóku snemma
ákvörðun um að treysta alfarið á eig-
in vélbúnaðarlausnir, sem fyrirtækið
gerir reyndar enn þann dag í dag, og
byggja á ódýrum vélbúnaði, enda lít-
ið í buddunni.
Næstu tvö ár fóru í að þróa þessa
hugmynd þeirra og 1998 settu þeir
upp fyrstu gagnamiðstöð Google í
heimavistarherbergi annars þeirra,
en vélbúnaðurinn var samtengdar
ódýrar PC-tölvur með ódýrum hörð-
um diskum, en meðal tölvufróðra er
Google ekki síst í metum fyrir það að
fyrirtækið fer enn þá leið að kaupa
ódýran vélbúnað, oftar en ekki í
gegnum netverslanir eins og hver
annar einstaklingur.
Þegar hér var komið sögu var allt
fé á þrotum og nauðsynlegt fyrir þá
félaga að koma hugmyndum sínum í
verð, en þeir ætluðu sér ekki að
stofna eigin fyrirtæki, vildu leigja
mönnum aðgang að búnaðinum. Þótt
hug- og vélbúnaðurinn sem þeir voru
búnir að þróa hafi verið bráðgagn-
legur var lítill áhugi almennt fyrir
honum, forsvarsmenn þeirra fyrir-
tækja sem rætt var við sýndu leit á
Netinu lítinn áhuga. Á endanum gáf-
ust þeir Page og Brin
upp á að sannfæra aðra
um leitavélina sína og
fyrir hvatningu félaga síns,
David Filo, sem stofnaði Yahoo! á
sínum tíma, ákváðu þeir að stofa eig-
in fyrirtæki.
BackRub var komið með nýtt nafn
og ævintýralegra, Google, en Google
er útúrsnúningur á tölunni googol,
álíka borin fram og Google, og er
upphæðin 1 með 100 núllum aftan
við.
Rætt við fjárfesta
Þá var kominn tími til að ræða við
fjárfesta og þeim fyrsta sem þeir
leituðu til, einn stofnenda Sun-tölvu-
fyrirtækisins, leist svo vel á kynn-
ingu sem þeir sýndu honum að hann
var til í að eiga með þeim fund þar
sem þeir myndu kynna hugmyndina
betur. Þegar þeir mættu til fundar-
ins með búnað fyrir almennilega
kynningu var hann aftur á móti að
flýta sér á annan fund og tók á móti
þeim með orðunum: „Eigum við ekki
að sleppa því að ræða smáatriðin –
ég skrifa bara ávísun.“ Ávísunin var
upp á rúmar sjö milljónir króna og
var stíluð á Google inc. Það kallaði
svo á vandræði því fyrirtækið Google
inc. var ekki til og ávísunin beið ofan
í skúffu næstu daga á meðan þeir
stofnuðu fyrirtæki sem
gæti leyst hana út. Fleiri
komu svo til sögunnar
sem fjárfestar og þegar upp var
staðið höfðu þeir safnað um 75 millj-
ónum króna sem dugði til að koma
þeim af stað.
Varla þarf að taka fram að Google
byrjaði starfsemi sína í bílskúr, til-
heyrir sögunni um bandaríska
drauminn ekki satt, og það í bílskúr í
Menlo Park (höfuðstöðvar Edisons
voru í Menlo Park á sínum tíma).
Eftir að þangað var komið óx leit-
arvélin hratt, var snemma komin í
yfir 10.000 leitir á dag, og tölvublöð
tóku að gefa starfseminni gaum; PC
Magazine valdi þannig Google sem
eitt af 100 bestu vefsetrum 1998. Í
febrúar leituðu 500.000 manns á dag
í gagnagrunni Google og fyrirtækið
þurfi að flytja sig um set, nú til Palo
Alto, og fékk til liðs við sig fleiri fjár-
festa í kjölfarið. Ekki leið á löngu að
plássið í Palo Alto var fullnýtt og nú
var flutt til Mountain View í nýjar
höfuðstöðvar sem fengu heitið
Googleplex. Þetta var haustið 1999
og um það leyti skilaði Google
3.000.000 leitarniðurstöðum á dag.
Tréhurðir á búkkum
Blöð vestan hafs og netmiðlar hafa
mikið fjallað um Google undanfarin