Morgunblaðið - 30.11.2003, Side 43
ar fréttir, okkur til mikillar ánægju.
Það er oft eins og ólánið bíði fær-
is, bíði þess að höggið svíði örugg-
lega, datt mér í hug, þegar ég frétti
að hann hefði við vont fall brotnað
illa og orðið óvinnufær í langan
tíma. Hann átti lengi í þessu og það
var eins og drægi fyrir sólu í lífi
hans upp frá þessu, líkt og mátt-
urinn hefði verið tekinn frá honum
líka.
Hann flutti aftur á okkar heima-
slóðir fyrir u.þ.b. einu ári, og hafði
með góðri aðstoð vinar síns, Stein-
þórs Guðmundssonar, bæði útvegað
sér tryggt húsnæði og fasta vinnu,
þegar okkur barst sú sorgarfregn
að hann væri látinn.
Að fjölskyldu okkar er mikill
harmur kveðinn, ljúfur vinur er
horfinn og hvílir nú í fögrum reit við
Bro kirkju í Upplands-Bro, þaðan
sem lítur yfir gula akra, græn engi
og skógarlundi.
Við vonum að hann hafi fengið
heimkomu góða í hinum hinsta
græna dalnum. Ég efast ekki um
það.
Guð blessi hann.
Bolli Eiðsson.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2003 43
á slíkum stað. Það mætti til sanns
vegar færa að þar var „gratís“ hótel.
Í þá daga var búskapur unninn
mest án véltækni fyrstu árin. Sú
vinna er háð veðrum og vindum og
því fátt um hvíldarstundir. Þó sér-
staklega hjá húsmæðrunum. Í kaup-
stað var ekki farið nema í örfá skipti,
allur matur unninn beint úr hráefn-
unum. Engin heimilistæki nema
kaffikvörn og handsnúin hakkavél.
Lífið var einfaldara. Guðbjörg var
einkar smekkleg og handlagin kona
og vil ég segja listræn. Hún sneið og
saumaði föt á fjölskylduna og mikið
voru börnin hennar alltaf smekklega
klædd.
Mikael og Guðbjörg voru góðir
gestgjafar og sérstaklega skemmti-
leg. Það var sem maður væri kominn í
aðra veröld stemmningar, húmors og
gleði.
Foreldrar Guðbjargar voru hug-
sjónafólk og þegar kom til tals, hjá
átthagafélagi Barðstrendinga, að
byggja hótel og greiðasölu í Reyk-
hólasveit, þá voru það Jón Brandsson
og Sesselja Stefánsdóttir sem gáfu 20
hektara land á fögrum stað við Beru-
fjarðarvatnið þar sem Hótel Bjarka-
lundur stendur nú.
Við Guðbjörg spjölluðum margt í
gegnum árin, hún var svo lífsreynd,
réttsýn, rökföst og fylgdist vel með
málefnum líðandi stundar til hins síð-
asta.
Þeim Guðbjörgu og Mikael hlotn-
aðist barnalán og samheldni fjöl-
skyldunnar var aðdáunarverð. Hvert
sinn sem ég hitti afkomendur Guð-
bjargar sé ég alltaf einhver einkenni
frá afa og ömmu, slíkt rifjar upp göm-
ul kynni.
Mér fannst Guðbjörg aldrei eldast
eins og títt er um fólk sem kallað er
gamalmenni, hún var síung í anda og
virkileg heimsdama.
Ég kveð kæra vinkonu með hjart-
ans þökk fyrir langa og sanna vináttu.
Aðstandendum Guðbjargar votta
ég samúð.
Ólína Kr. Jónsdóttir.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
hvaðan útförin verður gerð og
klukkan hvað. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Formáli minn-
ingargreina
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent
sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun
að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og
heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær
berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling
birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera
lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar).
Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri
grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and-
lát og útför ástkærs sonar okkar, stjúpsonar
og bróður,
VICTORS PÁLS JÓHANNSSONAR.
Auðbjörg Sigurbjörnsdóttir,
Jóhann Helgi Hlöðversson, Margrét Ormsdóttir,
Elísabet Ögn Jóhannsdóttir,
Sigurbjörn Hlöðver Jóhannsson,
Almar Yngvi, Daníel Aron
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÚN MARKÚSDÓTTIR MÖLLER,
Kópavogsbraut 1b,
áður til heimilis á Sólvallagötu 6,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi mánu-
daginn 24. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju mánu-
daginn 1. desember kl. 10.30.
Markús Möller, Júlía Ingvarsdóttir,
Jakob Möller, Sigrún Snævarr,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð vegna and-
láts elskulegrar móður okkar, ömmu, lang-
ömmu og tengdamóður,
ÁLFHEIÐAR LAUFEYJAR
GUÐMUNDSDÓTTUR,
Snorrabraut 58, Reykjavík,
áður til heimilis á Sogavegi 224,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur.
Theódóra Guðlaug Emilsdóttir,
Björn Emilsson,
Guðmundur Emilsson,
Álfheiður Emilsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og tengdabörn.
Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma
og langamma,
GUÐNÝ HREIÐARSDÓTTIR,
Þrastanesi 3,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðviku-
daginn 3. desember kl. 15.00.
Maj-Britt Kolbrún Hafsteinsdóttir, Hafsteinn Guðbjörnsson,
Auður Helga Hafsteinsdóttir, Karl Stefánsson,
Rannveig Kristín Hafsteinsdóttir, Haukur Ragnar Hauksson,
Hulda Fanný Hafsteinsdóttir, Kjartan B. Kristjánsson,
ömmubörn og langömmubörn.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýju vegna fráfalls ástkærrar
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁGÚSTU OLGU ÞORKELSDÓTTUR
frá Vestmannaeyjum,
áður til heimilis í Reykjahlíð 10,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við öllu því góða
fólki á 2. hæð Sólvangs í Hafnarfirði fyrir ein-
staka umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Helga G. Einarsdóttir,
Laufey Hrefna Einarsdóttir, Jóhann Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
KRISTÍN PÁLSDÓTTIR
fóstra,
fyrrverandi forstöðukona
Vistheimilis barna,
til heimilis á Ránargötu 42,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnu-
daginn 23. nóvember sl., verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju, mánudaginn 1. desember, kl. 13:30. Þeim, sem vilja
minnast hennar, er bent á að láta leikskóla KFUM & KFUK við Holtaveg
njóta þess. Sími 588 8899.
Steinunn Pálsdóttir, Þorkell G. Sigurbjörnsson,
Svandís Ólafsdóttir, Eyþór Einarsson,
Sigurður Pálsson, Jóhanna G. Möller,
Guðfinna Guðmundsdóttir,
systrabörn og bræðrabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við and-
lát og útför mannsins míns,
FRIÐRIKS PÉTURSSONAR,
Forsölum 1,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til ættingja og vina, starfsfólks
líknardeildar Landakotsspítala og Heimahlyn-
ningar Krabbameinsfélagsins fyrir hjartahlýja
umönnun.
Guð blessi ykkur.
Jónína Jónasdóttir.
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
Einstakir legsteinar
Sérhannaðar englastyttur
úti og inni
Verið velkomin
Legsteinar og englastyttur
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
Engl a s te ina r