Morgunblaðið - 02.12.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRN tryggingafélagsins
Skandia í Svíþjóð sat sleitulaust á
fundum um helgina þar sem farið
var yfir ítarlega skýrslu um innri
endurskoðun sem gerð var á fyr-
irtækinu, að sögn Aftenposten í Nor-
egi og Dagens Nyheter í Svíþjóð.
Undanfarnar vikur og mánuði
hafa fjölmiðlar skýrt frá miklum
fjárhæðum sem nokkrir af æðstu
ráðamönnum í Skandia hafa fengið
vegna árangurstengdra greiðslna og
starfslokasamninga sem sagðir eru
sýna að fégræðgi hafi ráðið ferðinni.
Fleiri dæmi hafa komið fram um
vafasamt hátterni og þykir ljóst að í
sumum tilfellum geti verið um laga-
brot að ræða og einhverjir for-
ystumenn félagsins geti jafnvel
hafnað í fangelsi.
Skýrt var frá því í gær að formað-
ur stjórnar Skandia, Bengt Braun,
hefði sagt eigendum og stjórn að
hann byði sig ekki fram til endur-
kjörs og hann hefði því, með „tilliti
til þess tímafreka langtímastarfs“
sem nú sé þörf á, talið eðlilegast að
hætta samstundis. Nýr bráðabirgða-
formaður verður Björn Björnsson
en stjórnin hefur ákveðið að kalla
eins fljótt og auðið er saman auka-
aðalfund vegna atburðanna síðustu
mánuði. Skandia er stærsta trygg-
ingafélag Svíþjóðar og viðskiptavin-
irnir eru vel á aðra milljón. Félagið
rekur ýmis dótturfyrirtæki og eru
sum þeirra í Bretlandi og Bandaríkj-
unum.
Skýrslan um innri rannsóknina,
sem lögfræðingurinn Otto Rydbeck
stjórnaði, var birt opinberlega í gær.
Í yfirlýsingu stjórnar Skandia er
farið hörðum orðum um nafngreinda
menn í forystu fyrirtækisins og með-
al annars sagt að yfirvöldum verði
afhent öll gögn um málið svo að þau
geti sjálf kannað hvort þeim finnist
ástæða til frekari rannsóknar eða
ákæru.
Sagt er að nokkrir ráðamenn fé-
lagsins hafi brotið reglur, hunsað
ákvarðanir stjórnarinnar og blekkt
umbjóðendur sína. Höfðað verður
skaðabótamál á hendur sumum
þeirra.
„Þeir hafa skaðað Skandia“
„Þeir hafa ekki hagað sér í sam-
ræmi við það siðferði og velsæmi
sem er grundvöllur að góðri stjórn-
un fyrirtækis,“ segir í yfirlýsingu
stjórnar Skandia. „Þeir hafa staðið
fyrir aðgerðum sem eru óheppileg-
ar, siðlausar og í sumum tilfellum
beinlínis ólöglegar. Þeir hafa ekki
gætt skyldu sinnar og hafa misnotað
sér traustið sem viðskiptavinir,
vinnufélagar, stjórn og eigendur
hafa sýnt þeim. Þeir hafa skaðað
Skandia og álit Skandia,“ segir í yf-
irlýsingunni í gær.
Stjórnin segir að höfðað verði
skaðabótamál á hendur Lars-Eric
Petersson, fyrrverandi forstjóra
Skandia og tveim öðrum háttsettum
mönnum, Ulf Spång og Ola Ram-
stedt. Hafi Otto Rydbeck verið falið
að semja kæruna og sækja málið af
hálfu Skandia. Ennfremur hafa Pet-
ersson og Spång verið reknir með
formlegum hætti. Verður því um-
deildur samningur við þá um starfs-
lokagreiðslur ógiltur. Kannað verð-
ur hvort hægt er að fá því framgengt
að nokkrir starfsmenn, sem fengu
með vafasömum aðferðum miklar
fjárhæðir greiddar vegna áætlunar
um árangurstengdar greiðslur, verði
látnir endurgreiða peningana. Einn-
ig verður kannað hvort hægt er að
krefja stjórn og einkum Jan Car-
endi, fyrrverandi stjórnarformann
eins af dótturfélögunum, Skandia
Liv, um skaðabætur. Carendi stjórn-
aði á sínum tíma útibúi Skandia vest-
anhafs og er sagður hafa fengið um
600 milljónir sænskra króna, nær
sex milljarða ísl. kr., í kaupauka.
Reynt að friðþægja?
Fréttaskýrandi Dagens Nyheter
segir að Petersson og fleiri ráða-
menn hafi blekkt stjórnina og endur-
skoðendurna en ljóst sé að hinir síð-
astnefndu hafi ekki staðið sig vel.
„Það er meira að segja svo að í
skýrslunni [um innri endurskoðun]
segir að einn af aðalendurskoðend-
unum, Jan Birgersson hjá Ernst &
Young, hafi vitað að stjórnendurnir
hunsuðu samþykktir stjórnarinnar
en ekkert gert í málinu,“ segir í
blaðinu. Einnig er bent á að fyrrver-
andi stjórnarformaður, Lars Ram-
qvist, sé gagnrýndur fyrir að hafa
ekki sinnt starfi sínu nógu vel og
minnt á að hann hafi farið fram á að
sonur sinn fengi eina af umdeildum
leiguíbúðum sem Skandia keypti og
úthlutað var til nokkurra ráðamanna
og ættingja þeirra.
Varpað er fram þeirri tilgátu að
með afsögn Brauns sé verið að reyna
að friðþægja fyrir gamlar syndir
stjórnarinnar til þess að ekki verði
farið að grafa meira. Einnig er sagt
að fjárhæðirnar sem ef til vill fáist
endurgreiddar skipti nánast engu
máli fyrir svo stórt fyrirtæki en end-
urgreiðsla geti orðið til að slá á
gagnrýni hluthafa og viðskiptavina á
sukkið.
Nokkrir ráðamenn
Skandia sagðir geta
hafnað í fangelsi
AP
Nýr stjórnarformaður Skandia, Björn Björnsson (t.v.), ásamt forvera sínum,
Bengt Braun, á blaðamannafundi í Stokkhólmi. Braun sagði af sér í gær.
Svört skýrsla um innri endurskoðun
staðfestir frásagnir af græðgi og
spillingu æðstu ráðamanna
FILIPPSEYINGAR kveikja á
kertum til minningar um fólk
sem dáið hefur af völdum alnæm-
is. Milljónir manna tóku þátt í
ýmsum athöfnum og göngum í til-
efni af alþjóðlega alnæmisdeg-
inum í gær. Sameinuðu þjóðirnar
kynntu áætlun um að sjá þremur
milljónum alnæmissjúklinga í
þróunarlöndum fyrir lyfjum við
sjúkdómnum ekki síðar en árið
2005.
Reuters
Fórnarlamba
alnæmis minnst
HARALDUR Noregskonungur er með krabba-
mein í þvagblöðru, að sögn vefsíðu norska blaðs-
ins Aftenposten. Mun hann gangast undir að-
gerð í næstu viku og er
vonast til að með því verði
komist fyrir meinið. Trygve
Talseth, prófessor við
Rikshospitalet, Håkon
Wæhre, yfirlæknir á geisla-
lækningadeild sjúkrahúss-
ins, Lars Petter Forberg,
starfsmannastjóri konungs-
hallarinnar, og Anstein
Bergan, prófessor á Riksho-
spitalet, skýrðu frá þessu á
blaðamannafundi í konungshöllinni í gær.
Haraldur mun gangast undir aðgerðina 8.
desember og verður síðan í veikindaleyfi í 2–3
mánuði. Hákon krónprins mun gegna skyldum
föður síns á meðan.
Þvagblaðra konungs verður fjarlægð en ekki
er talið að krabbameinið hafi breiðst út. Grædd
verður í konung eins konar gerviblaðra úr vef
sem tekin verður úr smáþörmunum. Haraldur
var lagður inn á sjúkrahúsið í fyrradag til rann-
sókna vegna þess að blóð var í þvaginu. Blæð-
ingin var stöðvuð og var konungur útskrifaður í
gærmorgun.
Haraldur
konungur með
krabbamein
Haraldur
Noregskonungur
FORSTJÓRI og stjórnarformaður Boeing, Phil
Condit, sagði af sér í gær, nokkrum dögum eftir
að fyrirtækið rak fjármálastjóra fyrirtækisins
og annan stjórnanda fyrir
„brot á siðareglum“ í
tengslum við samninga við
bandaríska varnarmálaráðu-
neytið.
Talsmaður fyrirtækisins
neitaði því að stjórnin hefði
vikið Condit frá og sagði að
hún hefði fallist á afsagnar-
beiðni hans „með mikilli
sorg“.
Ekki var ljóst hvort Cond-
it hefði sagt af sér vegna máls fjármálastjórans
sem hafði ráðið eldflaugasérfræðing til starfa
hjá fyrirtækinu þótt hann væri enn starfsmaður
varnarmálaráðuneytisins og í aðstöðu til að hafa
áhrif á samninga þess við Boeing.
Forstjóri Boeing
segir af sér
Chicago. AP.
Phil
Condit
STJÓRN George W. Bush
Bandaríkjaforseta hefur
ákveðið að afnema flesta tolla,
sem lagðir voru á innflutt stál
fyrir tuttugu mánuðum, að
því er The Washington Post
hafði í gær eftir heimildar-
mönnum í Hvíta húsinu og
stáliðnaðinum. Stjórnin
hyggst þannig afstýra við-
skiptastríði sem kæmi niður á
efnahag sambandsríkja sem
talin eru geta ráðið úrslitum í
forsetakosningunum í
Bandaríkjunum á
næsta ári.
Heimildarmennirn-
ir sögðu líklegt að
Bush myndi tilkynna
ákvörðunina síðar í
vikunni. Embættis-
menn í Washington
sögðu að hugsanlega
yrðu gerðar einhverj-
ar breytingar á
áformunum en einn
heimildarmannanna sagði að
þau væru nánast fullfrágeng-
in.
ESB hótaði refsitollum
Heimsviðskiptastofnunin
hafði úrskurðað að tollarnir
væru ólöglegir og Evrópu-
sambandið hótaði að leggja
refsitolla að andvirði 2,2 millj-
arða dollara, tæpra 170 millj-
arða króna, á bandarískar út-
flutningsvörur frá og með 15.
desember. Stjórn Japans hót-
aði einnig svipuðum aðgerð-
um á miðvikudag.
Heimildarmenn The Wash-
ington Post sögðu að ráðgjaf-
ar Bush hefðu komist að
þeirri niðurstöðu að ekki væri
hægt að taka þá áhættu að
Evrópusambandið stæði við
hótunina um að leggja refsi-
tolla á bandarískan útflutn-
ingsvarning á borð við ávexti,
grænmeti, vefnaðarvörur,
skó, bifhjól og landbúnaðar-
tæki.
Eitt erfiðustu
úrlausnarefnanna
Ráðgjafar Bush sögðust
gera sér grein fyrir því að af-
nám stáltollanna gæti veikt
stöðu forsetans í
nokkrum stálfram-
leiðsluríkjum, meðal
annars Pennsylvaníu,
Vestur-Virginíu og
Ohio. Búist er við að
mjótt verði á munum
í þessum ríkjum í
kosningunum.
Heimildarmenn-
irnir lýstu ákvörðun-
inni sem einu af erf-
iðustu pólitísku
úrlausnarefnum forsetans til
þessa í innanríkismálum.
Ráðgjafar Bush hefðu komist
að þeirri niðurstöðu að „það
að halda tollunum myndi hafa
alvarlegri afleiðingar fyrir
efnahaginn í heild en afnám
tollanna fyrir stáliðnaðinn“.
Bush forseti ákvað í mars í
fyrra að leggja 8–30% tolla á
innflutt stál frá Evrópu, Asíu
og Suður-Ameríku í þrjú ár
til að hjálpa bandaríska stál-
iðnaðinum.
Mörg ríki heims mótmæltu
tollunum sem sættu einnig
harðri gagnrýni margra
bandarískra hægrimanna sem
segja forsetann hafa vikið frá
stefnu sinni um frjáls heims-
viðskipti.
Bush ætlar
að afnema
stáltollana
Vill ekki hætta á viðskiptastríð
The Washington Post.
George W.
Bush
♦ ♦ ♦