Morgunblaðið - 02.12.2003, Síða 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2003 21
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík
Sími 520 3000 • www.sminor.is OD
D
I H
Ö
N
N
U
N
J
51
33
Stálu bíl úr skúrnum | Lögreglan
vinnur að rannsókn innbrotsmáls í
Keflavík. Einn maður hefur verið
handtekinn vegna málsins.
Um hádegisbil á laugardag var til-
kynnt um innbrot í íbúðarhús við
Baugholt í Keflavík. Húsráðendur
eru erlendis en sonur þeirra til-
kynnti um atburðinn. Kom í ljós að
farið hafði verið inn um glugga á
húsinu og kvaðst tilkynnandi sjá í
fljótu bragði að búið væri að stela
bifreið úr bílskúrnum. Bifreiðin er
af gerðinni Chrysler Town &
Country, brún að lit, og er skráning-
arnúmer hennar EP-711. Þá kvaðst
hann sjá að búið væri að taka tvö
sjónvörp, myndbandstæki, skart-
gripi, myndir, áfengi og fleira. Til-
kynnandi kvaðst hafa komið síðast á
staðinn fyrir sex dögum svo inn-
brotið hefur átt sér stað á þeim tíma.
Fundað með geðfötluðum | Fjöl-
skyldu- og félagsþjónusta Reykjanes-
bæjar, Svæðisskrifstofa málefna fatl-
aðra á Reykjanesi og Sjálfsbjörg á
Suðurnesjum hafa samvinnu um að
skoða möguleikann á því að koma á
fót athvarfi fyrir geðfatlaða á svæð-
inu.
Til þess að fá sem besta mynd af
þörf fyrir þjónustuna hefur verið boð-
að til fundar með geðfötluðum, þeim
sem búa við geðraskanir og aðstand-
endum. Fundurinn verður haldinn í
húsi Sjálfsbjargar við Fitjabraut 6 í
Njarðvík, miðvikudaginn 3. desem-
ber klukkan 20. Sigursteinn Másson,
formaður Geðhjálpar, verður sér-
stakur gestur fundarins.
Grindavík | Á síðasta ári voru
framleidd um 28 þúsund þorskseiði
hjá tilraunaeldisstöð Hafrann-
sóknastofnunar á Stað við Grinda-
vík. Sú framleiðsla fór fram úr
björtustu vonum en í ár voru öll
met slegin og það ríflega. Tvö
hundruð og fimmtíu þúsund seiði
eða tæplega tíföldun á fjölda seiða
er staðreynd en stefnan var sett á
að framleiða hundrað þúsund seiði
á þessu ári.
Þegar fréttaritara bar að garði
hjá Hafrannsóknastofnun á Stað
var verið að flytja síðustu seiðin á
tankbíl til Icecod ehf. en það fyr-
irtæki tók á móti 160 þúsund seið-
um. Er það tilraunafyrirtæki á
þessu sviði sem starfar á vegum
Stofnfisks hf. en auk þess eiga
Fiskeldi Eyjafjarðar, Hafrann-
sóknastofnun og Þorskur á þurru
landi í Vestmannaeyjum aðild að
því. Seiðin verða alin í stöð Stofn-
fisks í Höfnum til vors en fara eftir
það í áframeldi í sjókvíum víða um
land.
„Já þetta er mikil aukning en ég
tel það ekki síður mikilvægt að
gæði seiðanna hafa einnig aukist.
Við stefndum á að framleiða 100
þúsund seiði á þessu ári. Þau seiði
sem fóru hér í tankbílinn rétt í
þessu eru ættuð að sunnan, koma
úr þorski sem veiddur var rétt und-
an Ingólfshöfða. Þau koma mun
betur út en seiði úr fiski sem veidd-
ur var fyrir Norðurlandi því seiðin
að sunnan eru um 30 grömm að
meðaltali en seiðin af norðursvæð-
inu eru um 15 grömm. Það eru því
sterkar vísbendingar um svæðis-
bundinn mun á vaxtargetu á milli
svæðanna. Það er þó ekki ráðlegt
að draga of víðtækar ályktanir af
þessu á þessum tímapunkti en eftir
er að ala þessi seiði áfram í eld-
isstöðvum og sjókvíum og þá fást
betri upplýsingar um vaxtarhrað-
ann og fleiri þætti,“ sagði Agnar
Steinarsson, sjávarlíffræðingur hjá
Hafrannsóknastofnun á Stað.
Efniviður í 1.000 tonn
Þessi seiði sem nú eru flutt með
tankbíl komu úr hrognum sem
kreist voru úr villtum þorski á
ákveðnum svæðum við landið. Betri
lifun seiðanna er í ár en áður og
lifðu um 10% seiðanna sem klöktust
út þetta árið. Þá er unnið að þétt-
leikaprófun á 15 –20 þúsund seiðum
af þeim 50 þúsund sem verða eftir í
stöðinni í vetur en skiptar skoðanir
hafa verið á því hve þéttur þorsk-
urinn í eldiskerum eigi að vera. Þau
seiði sem framleidd voru í ár er
hægt að segja að séu efniviður í
1000 tonn af matfiski þannig að
ljóst er að eftir miklu er að slægj-
ast. „Þorskurinn er torfufiskur og
finnur líklega til öryggis við það að
vera í stórri torfu. Við ætlum að ala
seiðin sem eftir eru upp í mismun-
andi þéttleika í kerunum,“ sagði
Agnar.
Framleiða 250 þúsund þorskseiði í tilraunastöð Hafró
Sunnlensku seiðin
sprækari en þau
norðlensku
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Verðmæt afurð: Matthías Oddgeirsson stöðvarstjóri og Agnar Steinarsson
sjávarlíffræðingur háfa þorskseiði sem verið er að afgreiða frá stöðinni.
Njarðvík | Kveikt var á jólatré við
Njarðvíkurskóla síðastliðinn föstu-
dag að viðstöddum nemendum,
kennurum og öðru starfsfólki
Njarðvíkurskóla. Allir gengu í
kringum jólatréð við undirleik
Lúðrasveitar Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar. Jólatréð er gjöf
frá vinabæ Reykjanesbæjar, Pand-
rup í Danmörku.
Sören P. Mortensen, fyrrverandi
borgarstjóri í Pandrup, afhenti
tréð en hann er nú skólastjóri þar
og jafnframt formaður skóla- og
félagsmálaráðs sveitarfélagsins
Pandrup og bæjarfulltrúi. Fyrir
hönd Reykjanesbæjar tók Jóhann
Geirdal, varaforseti bæjarstjórn-
ar, formlega á móti gjöfinni. Hann
notaði tækifærið til að lýsa yfir
þakklæti og kvað það gott að eiga
jafn góða vini í Pandrup og raun
bæri vitni, en margvísleg tengsl
hefðu verið á milli Reykjanesbæjar
og Pandrup í gegnum tíðina.
Sagði Jóhann að ekki væri á
neinn hallað þótt hann teldi að
mestan heiðurinn af þessum sterku
og góðu tengslum ættu þeir Gylfi
Guðmundsson, skólastjóri í Njarð-
víkurskóla, og Sören P. Morten-
sen.
Lauk athöfninni með því að
Sören kveikti á jólatrénu.
Ljósmynd/Guðni B. Kjærbo
Dansað í kringum jólatréð: Gylfi, Sören og Jóhann eftir að kveikt var á jólatrénu frá Pandrup.
Kveikt á jólatrénu
frá Pandrup