Morgunblaðið - 02.12.2003, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir heiðarleika,
krafti og metnaði og hefur yf-
irleitt mikil áhrif á umhverfi
þitt. Nánustu sambönd þín
skipa óvenju stóran sess í lífi
þínu á komandi ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er hætt við að þú farir yfir
strikið í tilraunum þínum til að
sannfæra aðra um skoðanir
þínar. Þú þarft ekki að sann-
færa neinn. Það er nóg að þú
trúir á þær.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það gæti komið þér á óvart
hvað þú laðast sterkt að ein-
hverjum í dag. Þú ert í leit að
ævintýrum annað hvort til að
flýja raunveruleikann eða til að
gera hann meira spennandi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er hætt við að þú sýnir
fjölskyldu þinni of mikla eft-
irlátssemi í dag. Þú gætir líka
farið yfir strikið í innkaupum
til heimilisins. Reyndu að rata
hinn gullna meðalveg.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Kappsemi þín í vinnunni smit-
ar út frá sér í dag. Þú vekur
glaðværð hvar sem þú ferð og
hvað sem þú tekur þér fyrir
hendur. Þetta er dásamlegt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú vilt gera hlutina með glæsi-
brag en reyndu þó að standast
löngun þína til að eyða pen-
ingum í skemmtanir. Það er
einnig hætt við að þú eyðir of
miklu í börn þín og aðra ást-
vini.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur rétta hugarfarið til að
leysa deilur innan fjölskyld-
unnar. Þú átt auðvelt með að
sýna örlæti og því er hætt við
að þú eyðir of miklu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert í óvenju góðum
tengslum við þinn innri mann.
Þú þarf eftir sem áður að gæta
hófs. Það er hætt við óhófi á
flestum sviðum lífsins í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú munt líklega eyða pen-
ingum í vini þína í dag. Þú ert
áhyggjulaus og örlát/ur en ætt-
ir að minna þig á að það getur
verið gott að spara.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert kraftmikil/l og jákvæð/
ur í dag. Þér mun ganga næst-
um því allt í haginn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Trú þín gæti á einhvern hátt
dýpkað í dag. Ferðaáætlanir
vekja áhuga þinn. Þér finnst
þú eiga allan heiminn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það ríkir gagnkvæmur velvilji
á milli þín og annarra í dag.
Þér verða hugsanlega færðar
gjafir auk þess sem þú munt
deila eigum þínum með öðrum.
Þetta er af hinu góða.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú getur tekist á við hvað sem
kemur upp á í dag. Þú ert sátt-
fús og reiðubúin/n til að leita að
málamiðlunum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 2. des-
ember, er fimmtug Guðný
Dóra Ingimundardóttir,
Vallartröð 1, Kópavogi.
Eiginmaður hennar er
Gunnar Sigfinnsson. Hún
er að heiman á afmælis-
daginn.
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 12. júlí sl. í Grafarvogs-
kirkju þau Líney Óladóttir og Sigurbjörn Kristjánsson.
SAGT er að lítil þúfa velti
stundum þungu hlassi.
Eins er það í brids: smá-
vægilegur áherslumunur í
sagnstíl getur stundum
gjörbreytt framvindunni
og skapað óvæntar sveifl-
ur.
Vestur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ Á10
♥ 10
♦ Á8653
♣Á9874
Vestur Austur
♠ KD985 ♠ 7
♥ G54 ♥ K862
♦ D2 ♦ KG107
♣K106 ♣DG53
Suður
♠ G6432
♥ ÁD973
♦ 94
♣2
Spilið er frá undan-
úrslitum HM og varð ekki
tilefni til stórtíðinda í leik
Ítala og Norðmanna. En í
viðureign bandarísku
sveitanna mótaðist at-
burðarásin af fyrstu sögn
vesturs. Wildavsky pass-
aði, en Rodwell opnari á
einum spaða:
Vestur Norður Austur Suður
Wildavsky Hamman Doub Soloway
Pass 1 tígull Pass 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 2 tíglar
Pass Pass Pass
Hér er mikil værð yfir
sögnum og vörnin var líka
laus við alla hörku. Út-
spilið var hjarta, sem gerði
Hamman kleift að trompa
lauf tvisvar í borði og
hjarta tvisvar heima. Það
gaf átta slagi og 90 í NS.
Á hinu borðinu setti
spaðaopnun vesturs
Bobby Wolff í nokkurn
vanda:
Vestur Norður Austur Suður
Rodwell Wolff Meckstr. Morse
1 spaði 2 grönd * Dobl Pass
Pass 3 lauf Dobl 3 tíglar
Pass Pass Dobl Allir pass
Hann valdi að sýna lág-
litina með tveimur grönd-
um og lenti í mikilli dobl-
drífu, sem endaði í þremur
tíglum í suður.
Rodwell kom út með lít-
inn tígul frá Dx. Sem er
frábært útspil og tryggir
vörninni sex slagi. En
Morse var ekki sáttur við
að spila upp á tvo niður og
fór mikla fjallabaksleið
sem endaði langt út í móa.
Hann fór fjóra niður, sem
skilaði AV 1100 og 15
IMPum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Lágafellskirkju þau Rósa
Viggósdóttir og Emil Magnússon. Með þeim á myndinni eru
Edvard og Líney.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 a6 5. Bd3 Rc6 6.
Rxc6 dxc6 7. Rd2 e5 8. Rc4
Be6 9. O-O Bxc4 10. Bxc4
Rf6 11. Df3 Bc5 12. b4 Be7
13. Bb2 b5 14. Bb3 Bd6 15.
Df5 O-O 16. f4 g6 17. Dh3
Db6+ 18. Kh1 Rxe4 19. fxe5
Be7 20. Hxf7 Hxf7 21.
Bxf7+ Kg7 22. e6+ Bf6 23.
Bxf6+ Rxf6 24. Dc3 Df2 25.
Dxc6 Rg4
Ingvar Ásmundsson
(2321) stóð sig eins og hetja
á heimsmeistaramóti öld-
unga sem lauk fyrir
skömmu í Þýskalandi. Hann
náði sínum öðrum áfanga að
alþjóðlegum meist-
aratitli og var hárs-
breidd frá því að
hampa heimsmeist-
aratitlinum. Í þess-
ari skák hafði hann
svart gegn lettneska
stórmeistaranum
Janis Klovans
(2462) og hafði fram-
an af staðið höllum
fæti. Með síðasta
leik sínum veitti
hann Lettanum færi
á að hirða hrókinn
sinn enda eina vonin
til að geta veitt hvít-
um skráveifu. 26. h3? Hvít-
ur átti að taka hrókinn þar
eð eftir 26. Dxa8! Dd4 27.
Dg8+ Kh6 28. Df8+ Kg5
29. Dc5 verður hvítum hróki
yfir. Í framhaldinu náði
svartur að snúa taflinu sér
ívil. 26... Df6! 27. c3 Rf2+
28. Kg1 Hd8 29. Hf1?! 29.
Dc5 hefði verið ákjós-
anlegra. 29...Hd2 30. Dc5
Df4! 31. Dxf2 Hxf2 32. Hxf2
De3 33. Kf1 Dc1+ 34. Ke2
Dxc3 35. Hf3 Db2+ 36. Kf1
Db1+ 37. Kf2 Dxb4 38. He3
De7 39. a3 a5 40. sKe2 b4
41. axb4 axb4 42. Kd2 Kf8
43. g3 Dd6+ 44. Ke2 Da6+
45. Kf2 Ke7 46. Bg8 Da2+
47. He2 Da8 48. Bxh7 Dh8
49. He4 b3 50. Hb4 Db2+
51. Kf1 Dc1+ 52. Kg2 Dd2+
og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Ljósmynd/Sissa
Ljósmynd/Sissa
Handklæði & flíshúfur
.
Fáið sendan
myndalista
Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is
Jólatilboð
Flíspeysur,
& flísteppi
Í þessari viku eru tvö ár síðan
starfsemi hófst í Alþjóðahúsi
Af því tilefni efnir Alþjóðahús til nokkurra viðburða
Þriðjudagur 2. desember kl. 21:00
Alþjóðleg fiðla
Szymon Kuran spilar tónlist víðs vegar að úr heiminum
auk eigin verka.
Fimmtudagur 4. desember kl. 21:00
Afmælisveisla og Pub Quiz Pub Quiz
er vel þekkt fyrirbæri frá Bretlandi þar sem gestir á kaffihúsi
mynda lið í spurningakeppni. Spurningarnar verða með
alþjóðlegu sniði (á ensku og íslensku) þannig að sem flestir geti
tekið þátt, óháð uppruna.
Sunnudagur 7. desember kl. 21:00
Upplestrarkvöld
Fjórir rithöfundar lesa upp úr nýútkomnum bókum:
Gísli Pálsson Fægð og firnindi
Ólafur Gunnarsson Öxin og jörðin
Ævar Örn Jósepsson Svartir Englar
Sölvi Björn Sigurðsson Radió Selfoss.
s. 5 88 44 22
www.hm.is
TÍSKA GÆÐI BETRA VERÐ
Náttsloppar
„Mjúk Fleece“
kr. 1.890
Stærðir 34/38, 40/42, 44/48
Á NÓTTU
Hver eru ljósin
logaskæru,
er ég lít um ljóra?
munu það blikandi,
blíðmálugar,
heimasætur himins?
Eigi er það; –
en annað fegra
svífur mér að sjónum:
það eru augu
unnustu minnar,
þau í svartnætti sjást.
Jón Thoroddsen
LJÓÐABROT