Morgunblaðið - 07.01.2004, Blaðsíða 34
MINNINGAR
34 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
I.O.O.F. 18 184178 Á.S.
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
I.O.O.F. 9 184178½ R.
Njörður 6004010719 II
GLITNIR 6004010719 I
I.O.O.F. 7 184010771/2 Á.S.
HELGAFELL 6004010719 VI
FÉLAGSLÍF
Í dag fylgjum við til
grafar frænda okkar og
vini Þorsteini Gísla-
syni, málarameistara.
Hann varð snemma
þjóðsagnapersóna.
Ungur hóf hann að iðka hnefaleika
og varð kunnur keppnismaður og
margfaldur meistari í þeirri íþrótt.
Jafnframt var hann ötull kennari í
hnefaleikum allt til þess dags, er
hnefaleikar voru bannaðir um miðja
síðustu öld. Sem slíkur var hann vel
þekktur sem Steini box.
Þorsteinn nam málaraiðn, fór til
framhaldsnáms í Danmörku til þess
að sérhæfa sig í húsgagnalökkun og
stundaði iðn sína samhliða rekstri
hnefaleikaskóla. Hann var góður
fagmaður, kunni verk sitt til fulls og
rak lengi vel málningarverkstæði í
Vesturbænum.
ÞORSTEINN
GÍSLASON
✝ Þorsteinn Gísla-son fæddist í
Reykjavík 1. október
1913. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 25. desem-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Fossvogskirkju
6. janúar.
Þorsteinn lagði
gjarnan leið sína suður
í Garð og um Suðurnes-
in þar sem hann átti
stóran frændgarð.
Hann bjó yfir miklum
sannfæringarkrafti og
gerði tilboð í að mála
báta og hús og hvað
sem til féll. Eftir góða
vertíð 1943 kom hann
með flokk vaskra
manna og málaði flesta
báta úr Garðinum og
Keflavík. Það er eftir-
minnilegt hvernig bát-
arnir breyttust, og flot-
inn varð nánast eins og lystisnekkjur
eftir að hann hafði farið höndum um
bátana.
Þorsteinn stofnaði heildverslun
1968 og fyrirtækið Málarameistar-
ann 1971, og þá urðu þáttaskil í lífi
hans í atvinnulegu tilliti. Frá þeim
tíma og allt fram þess að fyrirtækið
var selt fyrir um tveimur árum var
hann umsvifamikill innflytjandi og
kaupmaður með málningarvörur.
Þorsteinn var frekar lágvaxinn
maður, en snarpur og hraustur allt
fram á háan aldur. Hann var fremur
hægur í fasi, en léttur í lund og hafði
næmt auga fyrir skoplegum hliðum
lífsins. Ekki síst henti hann gaman
að því sem að honum sjálfum sneri.
Þorsteinn var ættrækinn og stolt-
ur af því að bera nafn afa okkar, Þor-
steins Gíslasonar, útvegsbónda, sem
kenndur var við Meiðastaði í Garði
og hélt því gjarnan fram á seinni ár-
um, að það gæfi honum tilkall til þess
að vera ættarhöfðinginn.
Það má með sanni segja að hann
væri vel að þeim titli kominn, því að
hann var áhugasamur um að koma
þessum stóra ættboga saman og
vann að því ötullega, m.a. með tveim-
ur stórum ættarsamkomum í Húsa-
felli í Borgarfirði, en þangað rekur
Meiðastaðaættin uppruna sinn.
Þorsteins Gíslasonar verður sakn-
að af stórum hópi ættmenna og vina
og minnst með þakklæti og virðingu.
Eftirlifandi eiginkonu hans, dætr-
um og ástvinum öllum vottum við
okkar dýpstu samúð.
Gísli Steinar Jóhannesson,
Ingvi Þór Þorsteinsson,
Valur Páll Þórðarson.
Kveðja frá KR
Þorsteinn Gíslason var borinn og
barnfæddur Vesturbæingur og KR-
ingur. Lék knattspyrnu með yngri
flokkum félagsins og var Íslands-
meistari með félaginu. En áhugi Þor-
steins beindist fljótt að hnefaleikum.
Hann byrjaði að æfa hnefaleika tíu
ára gamall og var með þeim fyrstu ef
ekki fyrstur til að keppa fyrir hönd
KR árið 1929 og hélt áfram keppni
og þó einkum þjálfun á árunum 1930
til 1956, þegar hnefaleikar voru
bannaðir með lögum. Á þeim tíma
rak hann sérstakan hnefaleikaskóla
bæði í ÍR-húsinu og á Garði, þar sem
margir stúdentar nutu leiðsagnar
hans. Fékk hann viðurnefnið Steini
box og var stoltur af. Þorsteinn var
lágvaxinn en þéttbyggður, léttur á
fæti og snar í snúningum. Hann var
heilsteyptur drengskaparmaður,
ræðinn og glettinn, góður félagi og
mikill KR-ingur. Hann var sæmdur
gullmerki KR, einn af þeim fyrstu
sem það merki hlutu.
KR kveður nú góðan félaga og
þakkar honum fyrir mikið og merki-
legt starf fyrir félagið. KR sendir að-
standendum samúðarkveðjur.
F.h. Knattspyrnufélags Reykja-
víkur,
Guðjón Guðmundsson,
formaður.
Steini box er allur.
Það var á annan í jólum að Kiddý
hringdi í mig og sagði mér lát hans.
Ég hóf störf í Málarameistaranum
í janúar 1977 og vann þar með litlum
hléum þar til Þorsteinn seldi fyrir-
tækið 1. júní 2001 og ber það því vitni
að ekki hafi hann verið mér slæmur
vinnuveitandi. Hann lét sér alla tíð
annt um mig og mína. Steini var sér-
stakur karakter, fastur fyrir og lá
ekki á skoðunum sínum. Hann
treysti mönnum og innheimti helst
ekki vexti af skuldum (fannst það
held ég dónaskapur) og skildi síðan
ekkert í því þegar þeir létu hans
reikninga sitja á hakanum. Þor-
steinn hélt góðri heilsu þar til síð-
ustu þrjú til fjögur árin, sem hafa
verið honum erfið. Það er sjónar-
sviptir að Steina box.
Ég kveð hann með þakklæti fyrir
samveru liðinna ára og sendi Ellu og
fjölskyldunni allri mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Kristrún.
Maðurinn minn elskulegur, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
AXEL WILHELM EINARSSON,
Rauðalæk 14,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju föstu-
daginn 9. janúar kl. 15.00.
Guðrún Erna Jónsdóttir,
Guðrún Þórdís Axelsdóttir, Tómas Jónsson,
Jón Sturla Axelsson,
Einar Rúnar Axelsson, Gunnhildur Mannfreðsdóttir,
afabörn og langafabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna
andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður,
bróður, afa og langafa,
MAGNÚSAR HELGA ÞÓRÐARSONAR
loftskeytamanns,
frá Vík í Mýrdal,
sem lést þriðjudaginn 2. desember sl.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki deildar
3-B á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Guðlaug Magnúsdóttir, Þorsteinn Helgason,
Solveig María Magnúsdóttir, Kristján Guðmundsson,
Þórður Magnússon, Sigríður Bjarnadóttir,
Unnur Magnúsdóttir, Valgeir Kristinsson,
Guðlaugur Pálmi Magnússon, Þorgerður Einarsdóttir,
Gerður Magnúsdóttir,
Borghildur Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og vinarhug við and-
lát og útför elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
HELGU PÁLSDÓTTUR
frá Höfða, Grunnavíkurhreppi,
húsmóðir,
Hlíð, Eskifirði.
Jenny G. Leifsdóttir,
Ásgeir Leifsson,
Páll Leifsson,
Helgi Leifsson,
Guðrún H. Leifsdóttir,
Óðinn Leifsson
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
vinarhug, samúð og hlýju vegna andláts og út-
farar
ÁRSÆLS OTTÓS VALDIMARSSONAR,
Espigrund 15,
Akranesi.
Guð blessi ykkur öll.
Aðalheiður María Oddsdóttir,
Guðný Ársælsdóttir,
Helga Jóna Ársælsdóttir, Þráinn Ólafsson,
Sigþóra Ársælsdóttir, Björn Björnsson
og aðrir ástvinir.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför föður
okkar,
ARA GUNNARSSONAR,
Skútagili 7,
Akureyri.
Gunnhildur Aradóttir,
Einar Arason,
Edda Aradóttir,
Helgi Þór Arason.
Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
ÞÓRUNNAR EIRÍKSDÓTTUR,
Kaðalsstöðum,
Stafholtstungum,
fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn
10. janúar kl. 13.00.
Rútuferð verður frá BSÍ kl. 10.30.
Sigrún Ólafsdóttir, Bjarni G. Ólafsson,
Unnur Ólafsdóttir, Guðmundur Kr. Guðmundsson,
Björk Ólafsdóttir, Kristján Zophoníasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín og fósturmóðir,
HULDA WEICHENHAIN,
Holbæk, Danmörku,
lést á heimili sínu mánudaginn 5. janúar.
Gunnar Ragnars,
Ólafur Ragnars
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRHILDUR ÞÓRÐARDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, mánudaginn 5. janúar.
Áslaug Kristinsdóttir, Bragi Jóhannsson,
Grétar Þór Kristinsson, Sæunn M. Sæmundsdóttir,
Ágústa Björnsdóttir,
Guðrún Kristín Kristinsdóttir, Dag Laumann,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
UNNAR SIGURLAUGAR GÍSLADÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
þjónustudeild Hlífar og Fjórðungssjúkrahúsinu
á Ísafirði fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Sverrisdóttir,
Hallsteinn Sverrisson, Anna Eygló Antonsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.