Morgunblaðið - 07.01.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.01.2004, Blaðsíða 13
Í NÓVEMBERMÁNUÐI voru flutt- ar út vörur fyrir 16,8 milljarða króna og inn fyrir 16,2 milljarða króna fob. Vöruskiptin í nóvember voru því hag- stæð um 600 milljónir króna en í nóv- ember í fyrra voru þau hagstæð um 1,2 milljarða. Fyrstu ellefu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 169,7 milljarða króna en inn fyrir 183,4 milljarða króna fob. Halli á vöruskiptunum við útlönd nam því 13,7 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 14,2 milljarða. Vöru- skiptajöfnuðurinn var því 27,9 millj- örðum lakari en á sama tíma árið áður. Í hálf fimm fréttum KB-banka kemur fram að athygli veki að af- gangur hefur ekki verið á vöruskipt- um síðan í febrúar 2003. Fréttirnar af vöruskiptunum höfðu jákvæð áhrif á gengi krónunnar í gærmorgun en krónan styrktist umtalsvert í gær- morgun eftir að frétt barst frá Hag- stofu Íslands um vöruskiptin. Verðmæti vöruútflutnings fyrstu ellefu mánuði ársins var 11,5 millj- örðum eða 6% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 62% alls útflutnings og var verð- mæti þeirra 8% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti fiskimjöls, frysts fisks og saltfisks en á móti kom að aukning varð í verðmæti útflutts lýs- is. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara var 3% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Útflutningur á áli dróst saman en á móti kom aukning á útfluttu kísiljárni. Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu ellefu mánuði ársins var 15,6 millj- örðum eða 9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á fjárfesting- arvörum, fólksbílum, flutn- ingatækjum til atvinnurekstrar og neysluvörum en á móti kom að kaup á flugvélum, reiknuð á föstu gengi, urðu 5,8 milljörðum minni í ár en í fyrra.                                                   !      "   # $ %&&'    %&&%                        !    "!# $  %&  ! ' ( $! ' )!  *   %                                       +,+--./     +01/2.0        !"# $""$   %&' +1,1,//     +/..,23          () *+)#, $"")   %&'  Vöru- skiptin hagstæð í nóvember VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 13 Fjarnám allt árið Skráning stendur yfir á heimasíðu skólans www.fa.is Skólameistari ÞAÐ er markmið heimamanna á Akranesi að halda starfsemi HB að eins miklu leyti og unnt er í heimabyggð. Það er einnig vilji Eim- skipafélagsins að ganga til samninga við heimamenn um sölu á sjávarútvegsfyr- irtækjum sínum á viðkomandi stöðum, náist um það samkomulag. Þegar kostir þess fyrir heimamenn að starfa með Granda annars vegar að kaupum á HB úr Brimsamstæðunni og hins vegar öðrum félögum eins og til dæm- is Ísfélagi Vestmannaeyja eða Eskju á Eski- firði virðist ljóst að Grandi er bezti kosturinn. Aflaheimildir félaganna falla nokkuð vel saman eins og bent er á í umfjöllun KB banka á mánudag. Þar kemur fram að samanlagt yrðu félögin með 8,2% allra veiðiheimilda. Mestar yrðu heimildirnar í karfa, 30,7%, 17,4% í ufsa, 12,1% í grálúðu og 13,7% í loðnu og mun minna í öðrum tegundum. Samanlagt gera félögin út 5 frystiskip, 4 ís- fisktogara og þrjú skip til veiða á uppsjáv- arfiski. Þau reka samtals þrjár fiskimjöls- verksmiðjur og hvort um sig öfluga bolfiskvinnslu. Töluverð samlegðaráhrif Ljóst er að samlegðaráhrif gætu orðið tölu- verð í mjöl- og lýsisvinnslu, en verksmiðjan á Akranesi er ein sú bezt búna og afkastamesta á landinu. Verksmiðja Granda, Faxamjöl í Reykjavík, hefur aðeins vinnsluleyfi yfir há- veturinn 2 til 3 mánuði og verksmiðja Granda í Þorlákshöfn þarf nokkurra endurbóta við. Því mætti hugsa sér að vinnsla á uppsjáv- arfiski ykist á Akranesi eftir sameiningu. Fyrirtækin voru í verulegri samvinnu fyrir nokkrum misserum í landvinnslu og skiptingu á aflaheimildum auk sölu afurða. Fátt virðist koma í veg fyrir að slíktgeti verið tekið upp á nýju og að annað fyrirtækið sérhæfi sig til dæmis í karfa og hitt í annarri vinnslu. Þá stefnir í að stöðugt verði þrengt meira að sjávarútvegsstarfsemi við Reykjavíkurhöfn og þá liggur það ljóst fyrir að eignir við höfn- ina verða mjög seljanlegar. Það gæti leitt til enn frekari flutnings á fiskvinnslu upp á Akranes, enda er ekki nema hálftíma akstur þangað og því í raun um sama atvinnusvæði að ræða. Á hinn bóginn má telja það líklegt að félög í meiri fjarlægð, eins og Ísfélagið eða Eskja, myndu vilja færa töluverðan hluta af starf- semi HB, skip eða veiðiheimildir til sín eftir að hafa lagt milljarða króna í það og styrkja þannig eigin starfsemi. Því yrði meiri hætta á því að atvinna og umfsvif á Akranesi drægj- ust saman, en ykjust á móti á hinum stöð- unum. Það virðast því mikil rök fyrir þeirri ákvörðum heimamanna og stjórnenda HB að vinna frekar með Granda en hinum félögun- um. Erfitt verðmat? Bankinn telur erfitt að átta sig á því hversu mikið ráðandi eigendur Brims vilji fá fyrir HB, en líklegast verði að telja að þeir vilji hærra verð en Eimskipafélag Íslands keypti það á á sínum tíma. Þá var talið að um nokk- urt yfirverð væri að ræða, en verðmætið þá var 7,3 milljarðar króna miðað við gengið sem keypt var á. Á sama hátt var verðið á Skags- trendingi um 2,4 milljarðar og á ÚA tæplega 8 milljarðar. „Grandi hefur losað frá sér nokkrar órekstrartengdar eignir á árinu og átti í lok september um 2,2 milljarða króna í handbæru fé auk þess sem eignir félagsins í félögum námu um 4,7 milljörðum og félagið á tæplega 10% hlut í eigin bréfum. Bréf Granda hækk- uðu um 2% í viðskiptum dagsins og enduðu í genginu 6,85 sem þýðir að markaðsverðmæti Granda er nú rúmir 10,1 milljarður. Líklegt má því telja að Grandi hafi alla burði til að kaupa HB en sameiginlegt félag, Grandi og HB, gæti því orðið eitt verðmætasta sjáv- arútvegsfyrirtæki landsins, en Samherji er nú metinn á tæpa 15 milljarða í Kauphöll Ís- lands,“ segir í umfjöllun bankans. Fréttaskýring Grandi bezti kosturinn? Sameining HB og Granda virðist að mörgu leyti góður kostur og, að mati Hjartar Gísla- sonar, til þess ólíklegri en aðrir að raska eða draga úr starfsemi HB á Akranesi. FJÖLSKYLDA Ingvars heitins Helgasonar hefur selt meiri- hluta hlutafjár í bílainnflutn- ingsfyrirtækinu Ingvari Helga- syni/Bílheimum Jóni Snorra Snorrasyni og hópi sem hann er í forsvari fyrir. Ekki er fullljóst um hversu stóran eignarhlut er að ræða þar sem ekki hefur náðst til allra hlutahafa. Kaup- verðið er sagt trúnaðarmál en kaupin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun sem lýkur 24. janúar. Jón Snorri Snorrason, sem er fyrrum forstjóri Bifreiða og landbúnaðarvéla, segist sjá mikil tækifæri í Ingvari Helga- syni/Bílheimum. Þar sé fyrir- tæki með gott orðspor og sem hefur á að skipa hæfu starfs- fólki. „Það má segja að ég hafi kynnst þessum markaði hjá B&L og gripið tækifærið þegar þessi möguleiki kom upp.“ Hann kemur sjálfur til með að stýra fyrirtækinu en gerir ekki ráð fyrir miklum breyting- um á því með nýjum eigendum. Þó segir hann óhjákvæmilegt að ákveðnar „kúltúrbreytingar“ verði innan fyrirtækisins við umskiptin frá því að vera stórt fjölskyldufyrirtæki yfir í að fyr- irtæki í eigu nokkurra fjárfesta. Jón Snorri segir ekki búið að ganga frá endanlegum hópi kaupenda og vill því ekki tjá sig þar að lútandi en Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að for- svarsmenn eignarhaldsfélagsins Kers hafi komið að málinu. Ingvar Helga- son seldur Fyrrverandi forstjóri B&L kaupir og mun stýra fyrirtækinu HELMINGSLÆKKUN færslu- gjalda debetkorta viðskiptavina KB banka þýðir að því er fram kemur í samtali Morgunblaðsins við Friðrik Halldórsson framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs bankans, að tekjur KB banka af þessum lið verða á ársvísu tugum milljóna króna minni en ella. KB banki tilkynnti helmings- lækkun á færslugjöldum debet- korta nýlega. Jafnframt var til- kynnt að í ljósi góðrar afkomu bankans hefði verið ákveðið að end- urgreiða einstaklingum í við- skiptum við KB banka helming af færslugjöldum debetkorta síðasta ár. Tekjur af færslu- gjöldum tugmilljónum króna minni BRESKU verslunarfyrirtækin Somerfield, Co-op og Bestway, sem er fjölskyldufyrirtæki, hafa slegist í hóp þeirra sem vilja eign- ast hverfisverslanakeðjuna Lond- is. Í Morgunblaðinu í gær segir frá því að verslunarfyrirtækin Big Food Group, sem Baugur á um 11% hlut í, og hið írska Musgrave ætli sér að ná yfirráðum yfir Londis. Alls hafi sex aðilar sýnt Londis áhuga, þ.á m. Somerfield og Co-op. Einnig hefur verslunar- fyrirtækið Nisa Today, sem rekur Spar-verslanirnar og Costcutter, verið nefnt í þessu sambandi. KPMG hefur verið falið að yf- irfara og meta tilboð sem berast í Londis og er niðurstöðu að vænta í lok febrúar. Fleiri sækjast eftir Londis ÚR VERINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.