Morgunblaðið - 21.02.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Gjörið svo vel, nú ætlar iðnaðarráðherrann að sýna ykkur hvað baðfötin hennar verða
tandurhrein eftir þvott með nýju baðvörulínunni.
Nýtt útibú Borgarbókasafnsins
Lestur er göldr-
um gæddur
Ársafn, nýtt útibúBorgarbókasafns,verður opnað á
morgun, sunnudaginn 22.
febrúar. Opnunin er hluti
af Vetrarhátíð í Reykjavík
dagana 19.–22. febrúar.
Sunnudaginn 22. febrúar
verður Árbærinn sérstak-
lega í sviðsljósinu og teng-
ist opnunin dagskránni
þann dag. Að lokinni form-
legri opnunarathöfn, sem
hefst kl. 14, verður safnið
opnað og eru allir vel-
komnir að skoða það.
Regluleg starfsemi hefst
síðan strax daginn eftir.
Óskar Guðjónsson verður
bókavörður í hinu sýja
safni og af því tilefni
ræddi Morgunblaðið við
Óskar, lagði fyrir hann
nokkrar spurningar og fara svör
hans hér á eftir.
Segðu okkur fyrst eitthvað
nánar frá safninu nýja ...
„Safnið er á 2. hæð í Hraunbæ
119, í húsi Sparisjóðs vélstjóra.
Húsnæðið er um 550 fermetrar.
Það er rúmgott og bjart og hent-
ar vel fyrir safnið auk þess að
vera vel í sveit sett í Árbænum.
Áætlað er að í safninu verði 25–30
þúsund eintök, bækur, tímarit,
mynddiskar, myndbönd, snældur,
tónlistardiskar o.fl. Safnið verður
opið frá kl. 11–19 virka daga,
nema á miðvikudögum, en þá er
lokað, og frá kl. 12–17 á sunnu-
dögum.“
Hvað eru þá söfn Borgarbóka-
safnsins orðin mörg?
„Auk aðalsafns í Grófinni
stendur Borgarbókasafn að
rekstri 6 útibúa víðs vegar um
borgina auk bókabíls sem hefur
um 40 viðkomustaði í borginni.“
Hvaða hverfum þjónar þetta
safn?
„Árbæingar hafa þolinmóðir
beðið eftir bókasafni í áratugi og
mun Ársafn fyrst og fremst telj-
ast þeirra heimasafn. Grafar- og
Norðlingaholt verða einnig á
þjónustusvæði Ársafns. Bóka-
söfnin eyrnamerkja sér reyndar
ekki hverfi, heldur vinna þau sem
ein heild að sameiginlegum mark-
miðum Borgarbókasafns sem
leiðandi upplýsinga- og menning-
arstofnun. Hvaða Reykvíkingur
sem er getur nýtt sér þjónustu
Ársafns. Þannig rennum við t.d.
hýru auga yfir Vesturlandsveginn
til stærsta iðnaðar- og þjónustu-
hverfis landsins. Þangað sækja
daglega vinnu þúsundir borgar-
búa úr öllum hverfum borgarinn-
ar og eru þeir jafnvelkomnir í
safnið og aðrir. Einnig má geta
þess að Borgarbókasafn Reykja-
víkur, Bókasafn Mosfellsbæjar og
Bókasafn Seltjarnarness hafa
gert með sér samstarfs- og þjón-
ustusamning, sem gerir íbúum
þessara sveitarfélaga auðvelt að
nýta þjónustu safnanna sem væru
þau í þeirra heimabyggð. Aukin-
heldur má nefna að safnkostur
Borgarbókasafn mun í næsta
mánuði ganga inn í landskerfi
bókasafna og þar með
gera áratuga draum
um sameiginlega skrá
allra bókasafna í land-
inu að veruleika.“
Eru borgarbúar
duglegir að nýta sér bókasöfnin?
„Miðað við hve bókaeign og
-kaup eru almenn á Íslandi furðar
maður sig oft á því hve bóka-
safnsnotkunin okkar er þó mikil.
Þannig hefur útlánum og heim-
sóknum borgarbúa á Borgar-
bókasafn t.d. fjölgað ár frá ári
undanfarin ár. Athygli vekur að á
tímum Netsins og margmiðlunar-
og hátæknivæðingar minnkar
áhuginn ekki. Skýringin liggur
e.t.v. í því að nútíma bókasöfnin
hafa svarað kröfum tímans og í æ
ríkara mæli tileinkað þér tæknina
og bjóða upp á fagmannlega og
fjölbreytta bókasafnsþjónustu í
tæknivæddu umhverfi.“
Er ástæða til að glæða áhug-
ann enn meira?
„Tvímælalaust. Lestur er þeim
göldrum gæddur að þú týnir hon-
um ekki svo auðveldlega eftir að
þú hefur einu sinni tileinkað þér
hann. Rannsóknir benda til að
meðal þróaðra þjóða fari lestrar-
áhugi og lestrageta barna minnk-
andi. Aftur hefur verið bent á að
almennur lestraráhugi hafi þvert
á móti farið vaxandi en beinist
ekki lengur að bókinni, heldur að
hinu rafræna formi. Rætt hefur
verið um að bókin og þar með
bókasöfn, eigi sem sagt undir
högg að sækja.
Heimsókna- og útlánatölur
Borgarbókasafns benda ekki til
þess að þessi krísa hafi náð hing-
að. Bókasöfn hafa upp á margt að
bjóða fyrir unga sem aldna. Þau
snúast ekki eingöngu um útlán á
bókum. Margmiðlunarefni af
ýmsu tagi, jafnt fyrir börn sem
fullorðna, með fjölbreytilegu
fræðslu- og afþreyingarefni eru
sjálfsagður safnkostur í nútíma
almenningsbókasafni. Ýmiss kon-
ar menningarviðburðir eru fastir
liðir í starfsemi Borg-
arbókasafns. Nýjasta
dæmið er Glæpasögu-
ganga á Vetrarhátíð.
Lifandi barnstarf er í
öllum söfnum Borgar-
bókasafns, safnið heldur úti
glæsilegasta bókmenntavef
landsins, www.bokmenntir.is, og
svo mætti lengi telja. Á þessu
sviði er stefna Borgarbókasafns
skýr, til þess er ætlast að það
standi jafnfætis bestu almenn-
ingsbókasöfnum heimsins hvað
varðar búnað, þjónustu og eflingu
menningar í alþjóðlegu um-
hverfi.“
Óskar Guðjónsson
Óskar Guðjónsson er fæddur í
Reykjavík 10. júní 1952. Stúdent
frá MR 1972, BA í bókasafns- og
upplýsingafræði og bókmennta-
fræði frá HÍ 1978 og Master of
Library Science (MLS) frá Rutg-
ers: the State University of New
Jersey 1980. Starfaði 1980–1985
sem bókasafnsfræðingur hjá
Rala og Búnaðarfélagi Íslands.
1985–1995 bókasafnsfræðingur í
Tómstundadeild Varnarliðsins
og frá 1995–2004 sem deild-
arstjóri Tónlistardeildar á sama
stað. Hefur kennt bókasafns- og
upplýsingafræði við HÍ og Uni-
versity of Maryland. Maki er
Konný Rannveig Hjaltadóttir,
börn eru Sigurður Heiðar og
Edda Ósk.
Þau snúast
ekki eingöngu
um útlán
NÝI hafstraumurinn sem Hafrann-
sóknastofnun hefur sýnt fram á
kemur úr Íslandshafi og flæðir suður
eftir Grænlandssundi í Grænlands-
haf. Þar sekkur hann til botns og
fylgir honum suður um Atlantshaf.
Straumurinn, sem var ekki þekktur
áður, uppgötvaðist í kjölfar mælinga
sem Hafrannsóknastofnun hefur
stundað frá Hornbankasniði síðast-
liðin þrjú ár.
Straumurinn kom í ljós yfir land-
grunnshlíðinni, að því er segir á
www.hafro.is, og hann er talinn ein
af ástæðum þess að heitur og seltu-
ríkur sjór dregst inn í Norðurhöf í
yfirborðslögum og geri það að verk-
um að sjórinn við norðanverða Evr-
ópu, þar með talið Ísland, er mun
hlýrri en annars væri.
Fannst eftir
þriggja ára
mælingar
ÖKUMAÐUR slapp án teljandi
meiðsla þegar hann ók inn í hrossa-
stóð á Biskupstungnabraut í fyrra-
kvöld. Bíll hans gereyðilagðist og sex
hross drápust. Dimmt var orðið þeg-
ar óhappið varð og sá bílstjórinn allt
í einu um tuttugu hross á veginum
ofan við Reykholt, skammt frá bæn-
um Heiði. Hann náði ekki að stöðva
bílinn, sem var bandarískur pallbíll,
og ók inn í stóðið. Ekki var hálka á
veginum.
Ók inn í
hrossahóp
FIMMTUGASTA ríkið fullgilti al-
þjóðlegan samning um þrávirk lífræn
efni í vikunni og þar með er ljóst að
samningurinn mun ganga gildi 17.
maí nk. Í tilkynningu frá umhverf-
isráðuneytinu segir að þessi áfangi sé
sérstaklega ánægjulegur fyrir Ísland
þar sem íslensk stjórnvöld höfðu
frumkvæði að því að gera tillögu um
samninginn á Ríó-ráðstefnunni árið
1992 og hafa unnið að því síðan að
skapa alþjóðlega samstöðu um málið.
Þess má geta að mikilvæg skref í
undirbúningi samningsins voru tekin
á alþjóðlegum fundi um varnir gegn
mengun hafsins sem íslenska ríkis-
stjórnin bauð til í mars 1995.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra undirritaði samninginn fyrir
Íslands hönd í maí 2001 ásamt
fulltrúum 90 ríkja heims en Ísland
fullgilti samninginn í maí 2002 fyrst
Norðurlanda.
Markmið samningsins er að
vernda heilsu manna og umhverfið
gegn þrávirkum lífrænum efnum.
Samningurinn tekur til 12 mann-
gerðra efnasambanda sem sýnt er að
geta valdið mjög alvarlegum áhrifum
í náttúrunni, ekki síst á heilsufar
fólks. Farið var að nota þrávirk líf-
ræn efni um og eftir seinni heims-
styrjöldina og hafa þau tilhneigingu
til að flytjast um langan veg frá upp-
runa sínum og safnast upp á kaldari
svæðum. Efnin geta haft alvarlegar
afleiðingar fyrir dýraríkið í heild
sinni, en ekki hvað síst á kaldari
svæðum því efnin safnast fyrir í fitu-
lagi dýranna. Áhrifin magnast þegar
ofar dregur í fæðukeðjunni svo sem
hjá sjávarspendýrum og ísbjörnum.
Einna alvarlegast er talið að efnin
geta líkt eftir hormónum og valdið
með því verulegu raski á hormónabú-
skap lífveranna. Þá geta sum þessara
efna valdið krabbameini eða örvað
vöxt þess.
Hlutfall þrávirkra lífrænna efna
sem mæld hafa verið hér í umhverf-
inu er vel undir hættumörkum og er
styrkur þessara efna í íslensku sjáv-
arfangi með því lægsta sem gerist á
Norðaustur-Atlantshafi.
Samningur um þrá-
virk efni að taka gildi
♦♦♦
edda.is
Upp úr fertugu fara í
hönd miklar breytingar í
lífi fólks og ýmis tækifæri
myndast í einkalífi og
starfi.
Einstök bók um
spennandi æviskeið.
Óvænt og glæsileg
konudagsgjöf