Morgunblaðið - 21.02.2004, Side 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
fremur en hið opinbera. Einkafram-
kvæmd njóti sín best þegar hún nái
til sem flestra þátta verkefnisins,
byggingu húsnæðisins, reksturs þess
og þjónustunnar sem þar fer fram.
Þá séu dæmi um að útboðslýsing sé
mjög nákvæm og ítarleg og lítið svig-
rúm fyrir bjóðendur að koma fram
með sínar hugmyndir um hagkvæm-
ustu launsnirnar og slík útboð kæfi
kosti einkaframkvæmdar.
Fram kemur að skortur hafi verið
á verkefnum í einkaframkvæmd en
búast megi við umtalsverðri aukn-
ingu á næstu 5-7 árum og mikilvægt
að innkaupastefnu ríkisins sé fylgt og
einkaframkvæmd nýtt í auknum
mæli. Segir að augljós sparnaður hafi
áunnist með einkaframkvæmd og
meiri kröfur um gæði þjónustu og
viðhalds séu augljóslega gerðar til
einkaaðila. Menn virðist almennt
ánægðari með þessa þætti hjá einka-
aðilum og benda á að hið opinbera sé
gjarnan svifaseint þegar komi að við-
haldi fasteigna til dæmis.
Fram kemur að niðurstaða útboðs
HEILDARFJÁRHÆÐ vegna
samninga um einkaframkvæmd nem-
ur um 40 milljörðum kr. á verðlagi
þessa árs og er það vegna færri en
fimmtán verkefna. Fyrstu samningar
vegna einkaframkvæmda voru gerðir
árið 1996 og námu heildargreiðslur
vegna þessara verkefna innan við 500
milljónum króna árin 1998-2000, en
fara yfir einn milljarð króna á næsta
ári.
Þetta kemur meðal annars fram í
nýrri skýrslu Verslunarráðs Íslands
um einkaframkvæmd og er þar
fjallað um þann hluta hennar þar sem
einkaaðilar hafa staðið að byggingu
og rekstri mannvirkis og í sumum til-
vikum einnig því starfi sem þar fer
fram.
Fleiri verkefni
á næstu árum
Í skýrslunni segir að reynslan af
einkaframkvæmdarverkefnum hafi
verið góð og neytendur þeirrar þjón-
ustu sem um ræðir hafi ekki fundið
að því að eiga viðskipti við einkaaðila
vegna einkaframkvæmdar hafi nær
alltaf verið sú að lægsta tilboði hafi
verið tekið, sem sé sérkennilegt í ljósi
þess að verð hafi almennt verið á að
giska helmingur heildareinkunnar.
Þriðjungur
fjármagnskostnaður
Þá kemur fram að algengasti tími
einkaframkvæmdarverkefna sé 25 ár
og almenna reglan sé sú að um þriðj-
ungur kostnaðar við einkafram-
kvæmd sé fjármagnskostnaður.
Fjármögnun geti þannig ráðið úrslit-
um um hagkvæmni einkafram-
kvæmdar og þar sem samið sé til
langs tíma skipti vaxtastig miklu
máli.
Í skýrslunni er fjallað um einstök
einkaframkvæmdarverkefni, eins og
Hvalfjarðargöngin, Iðnskólann í
Hafnarfirði, Reykjaneshöllina,
hjúkrunarheimilið við Sóltún, leik-
skóla í Grindavík og í Hafnarfirði, Ás-
landsskóla og Lækjarskóla í Hafnar-
firði, íþróttamiðstöð í Grafarvogi og
Bjarkarhúsið í Hafnarfirði.
40 milljarða verðmæti
í einkaframkvæmdum
Verslunarráð telur reynsluna af einkaframkvæmd góða
Nýliðin þingvika var meðrólegra móti. Fátt merki-legt bar til tíðinda; júeinhverjar utan-
dagskrárumræður fóru fram, en að
öðru leyti fór lunginn af vikunni í það
að ræða þingmannamál. Ekki að þau
séu ómerkileg í sjálfu sér, en mörg
þeirra hafa verið lögð fram á Alþingi
áður, og litlar umræður urðu um þau
að þessu sinni. Í mörgum tilfellum
tók flutningsmaðurinn einn þátt í
umræðunni, þ.e. enginn kvaddi sér
hljóðs eftir að fyrsti flutningsmaður
hafði mælt fyrir málinu.
En í einhverjum tilvikum tók ekki
einu sinni flutningsmaðurinn sjálfur
til máls. Forseti Alþingis segir, í slík-
um atvikum, eitthvað á þessa leið:
„Nú er tekið fyrir sautjánda mál á
dagskrá. Enginn hefur kvatt sér
hljóðs og er umræðu lokið en at-
kvæðagreiðslu verður frestað.“
Í fljótu bragði finnst manni þessi
niðurstaða hálf sorgleg; þ.e. að eng-
inn taki til máls í umræðunni um
málið - ekki einu sinni flutningsmað-
urinn sjálfur. Við nánari eft-
irgrennslan skilst mér þó að þetta
geti t.d. komið fyrir í málum sem
margoft hafa verið lögð fram á Al-
þingi en ekki hafa náð fram að ganga.
Flutningsmaðurinn hefur í slíkum
tilfellum áður mælt fyrir málinu, eða
sambærilegu máli og þyki því ekki
tiltökumál þótt hann geti ekki eða
hafi ekki tíma til að mæla fyrir því
enn og aftur. Honum þyki mikilvæg-
ast að koma málinu í nefnd þar sem
það fái frekari umfjöllun meðal þing-
manna og viðkomandi hags-
munaaðila.
Guðjón Ólafur Jónsson, vara-þingmaður Framsókn-arflokksins, vakti athygli á
því í nýlegum pistli sínum á hrifla.is
að þingmenn stjórnarandstöðunnar
notuðu oft tækifærið í upphafi þing-
fundar til að vekja athygli á sér og
sínum málum. „[...]og þar hamast
þingmennirnir sem ólmir séu í því
skyni að ná sínum 10 sekúndum í
fréttatíma ljósvakamiðlanna um
kvöldið,“ segir hann.
Í þingsköpum segir að í upphafi
fundar, áður en gengið er til dag-
skrár, geti þingmenn gert at-
hugasemdir er varði störf þingsins. Í
gegnum árin hafa forsetar þingsins
túlkað þetta ákvæði ýmist þröngt eða
rúmt. Halldór Blöndal, forseti þings-
ins, hefur til dæmis túlkað þetta með
síðari hættinum, þ.e. hann hefur leyft
þingmönnum að nota þennan dag-
skrárlið til að fjalla um ýmis þau mál-
efni sem hæst ber í þjóðfélaginu
hverju sinni, þótt þau tengist kannski
ekki beint störfum þingsins.
Stjórnarandstæðingar nýta sér oft
þetta tækifæri, í upphafi þingfundar,
eðlilega, til að gera athugasemdir um
ýmis mál og eflaust er „leikur“ þeirra
af og til gerður til að ná athygli fjöl-
miðlanna. Stundum er það reyndar
frekar augljóst. Þá reynir hins vegar
á okkur þingfréttaritarana að meta
hvort málið eigi erindi í fjölmiðilinn
eða ekki. Að sjálfsögðu vill maður
ekki ganga í vatnið þótt ekki skuli
útilokað að það hafi einhvern tíma
gerst.
Íþingsköpum er einnig kveðið áum að þingmenn geti gert at-hugasemdir við störf forseta
þingsins, séu þeir ósáttir við eitthvað
sem tengist fundarstjórn þeirra.
Mörður Árnason, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, er einn þeirra sem
ekki hafa verið „feimnir“ við að nýta
sér það ákvæði. Gerði hann m.a. at-
hugasemdir undir þessum lið í vik-
unni. Svo virtist hins vegar sem Hall-
dóri Blöndal, sem stýrði þingfundi,
hafi fundist sem þingmaðurinn héldi
sig ekki alveg við málefnið og greip
fram í fyrir honum og sagði: „Ég vil
biðja háttvirtan þingmann að vera
ekki með efnisumræður um einstök
þingmál.“ Mörður gerði sig hins veg-
ar líklegan til að halda áfram en þá
greip Halldór aftur fram í fyrir hon-
um, sló í þingbjölluna og sagði:
„Háttvirtur þingmaður hefur lokið
máli sínu.“ Við þetta hikaði Mörður
stundarkorn en yfirgaf síðan ræðu-
stólinn. Hann gekk þó aftur upp að
honum, benti í átt að forseta og sagði
stundarhátt: „Ég mótmæli.“
Skömmu áður en þetta gerðist
hafði orðið nokkuð skondið atvik þeg-
ar rigning af þaki hússins tók að
drjúpa niður í þingsalinn, beint fyrir
framan ræðustólinn, þegar Halldór
Ásgrímsson var að tala. Er hann sté
úr pontu sagði hann: „Það rignir í
ræðustólinn.“ Þá heyrðist í ein-
hverjum þingmanni utan úr sal:
„Verður ekki að útvega manninum
regnhlíf?“ Mörður bætti um betur og
sagði: „Það rignir bæði á réttláta og
rangláta, ágæti forseti.“
Verður ekki að útvega manninum regnhlíf?
EFTIR ÖRNU SCHRAM
ÞINGFRÉTTAMANN
arna@mbl.is
MÖRÐUR Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar, vakti máls á
því í fyrirspurnartíma á Alþingi í
vikunni að áfengisauglýsingum
hefði fjölgað mjög í samfélagi okk-
ar undanfarin misseri. Hann sagði
í fyrsta lagi um að ræða duldar
auglýsingar í formi umfjöllunar
sem borgað væri fyrir í blöðum og
öðrum fjölmiðlum. Í öðru lagi væri
um að ræða bjórauglýsingar undir
því yfirskyni að verið væri að selja
léttbjór eða einhvers konar pilsn-
erútgáfu af bjórtegundinni. Og í
þriðja lagi væri um að ræða beinar
og óduldar auglýsingar „þar sem
ekki virðist hirt um neins konar
dulbúning eða útúrsnúning í þeim
krafti að menn megi þetta með ein-
hverjum hætti,“ sagði hann.
Þingmaðurinn sagði að skv. 20.
gr. áfengislaga væru áfengisaug-
lýsingar bannaðar og spurði dóms-
málaráðherra Björn Bjarnason,
hvort hann teldi
að sú grein væri
með einhverj-
um hætti fallin
úr gildi. Dóms-
málaráðherra
sagði svo ekki
vera. „Með
dómi Hæsta-
réttar Íslands
hinn 25. febrúar
1999, í máli nr. 415/1998, var því
slegið föstu að sú lagagrein sem
hér er spurt um væri í fullu gildi,“
sagði hann og vísaði í umræddan
dóm Hæstaréttar þar sem segir:
,,Þau rök sem þannig búa að baki
20. gr. áfengislaga eiga sér efnis-
lega stoð í 3. mgr. 73. gr. stjórn-
arskrárinnar og 2. mgr. 10. gr.
mannréttindasáttmála Evrópu.“
Ráðherra sagði að síðan þessi
dómur hefði verið kveðinn upp
hefði lagagreininni ekki verið
breytt. Heldur ekki æðri réttar-
heimildum, þ.e. stjórnarskránni.
Kæri til lögreglu
Ráðherra sagði einnig aðspurð-
ur að kærum um refsiverð brot og
beiðnum um rannsóknir ætti að
beina til lögreglu eða ríkissaksókn-
ara. Þá sagði hann, aðspurður
hvort til stæði að skýra umrædd
lög eitthvað betur, að sú vinna
stæði ekki yfir í dómsmálaráðu-
neytinu. „Og ráðuneytið hefur ekki
sérstaklega í hyggju að hefja hana
á næstunni.“ Undir lok umræðunn-
ar sagði ráðherra að ef Mörður
hefði dæmi um það að lögin hefðu
verið brotin þá ætti hann að kæra
það til lögreglunnar. „Þannig á
hinn löghlýðni borgari að ganga
fram. Ef hann sér að það er verið
að fremja lögbrot eða hann telur að
verið sé að fremja lögbrot á hann
að láta rétt yfirvöld vita um það.“
Mörður Árnason
Segir að áfengisaug-
lýsingum hafi fjölgað
Mörður Árnason, alþingismaður Samfylkingar
BANDARÍSKI kokkurinn Jeff
Tunks bauð nokkrum heppnum
áskrifendum Morgunblaðsins upp
á lambafille í Hagkaupum í Smára-
lind í gær í tengslum við Food and
Fun-hátíðina. Jeff er margverð-
launaður kokkur og var á síðasta
ári valinn besti kokkur Wash-
ington en þar rekur hann þrjá
veitingastaði. Í keppninni eldaði
hann einmitt íslenskt lamb. Hann
hefur í tengslum við þemadaga ís-
lenskra matvæla vestra boðið upp
á lambakjöt á sínum veit-
ingastöðum, auk bleikju, lax og
skyrs.
„Íslenska lambið er mjög gott
hráefni,“ sagði Jeff í samtali við
Morgunblaðið. „Lambinu er slátr-
að ungu þegar það er enn létt,
þetta er alvöru „vorlamb“ og það
hentar vel fyrir veitingahús.“
Jeff segir Washingtonbúa njóta
góðs af því að flogið sé beint til
Baltimore frá Íslandi og því auð-
velt að nálgast ferskt og gott ís-
lenskt lambakjöt.
Hann segir neytendur í Banda-
ríkjunum sífellt meira vera að
huga að því sem þeir láta ofan í
sig. „Fólk er farið að borða heilsu-
samlegar og því skiptir máli að af-
urðirnar séu ferskar og hreinar.
Þegar maður kemur til Íslands og
sér tæra sjóinn og finnur hreina
loftið veit maður að hráefnið sem
héðan kemur er hreint. Þetta eru
neytendur í Bandaríkjunum stöð-
ugt að verða meðvitaðri um.“
Jeff er að koma í þriðja sinn til
Íslands á Food and Fun. Í fyrra
keppti hann í matreiðslukeppni á
hátíðinni en í ár er hann dómari.
Hann segir alltaf gaman að koma
hingað og kynnast því sem aðrir
matreiðslumeistarar eru að gera.
Baldvin Jónsson, sem unnið hef-
ur að markaðssetningu íslenska
lambakjötsins í Bandaríkjunum um
árabil, segir vinsældir Food and
Fun-hátíðarinnar sífellt að aukast
og í ár hafi matreiðslumeistarar
beðið í röðum eftir að fá að taka
þátt í hátíðinni.
Íslenskt lamb
er gott hráefni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bandaríski kokkurinn Jeff Tunks (t.v.) hafði íslenskan starfsbróður, Hjör-
leif Árnason af veitingastaðnum Vox, sér til aðstoðar í Smáralind í gær.
BÍLL valt á Suðurlandsvegi, í
brekkunni ofan við Litlu kaffistof-
una, um sexleytið síðdegis í gær.
Fjórir voru í bílnum og voru þeir
fluttir á slysadeild Landspítalans í
Fossvogi til aðhlynningar. Að sögn
lögreglunnar á Selfossi urðu óveru-
leg meiðsl á fólkinu, en nokkur hálka
var á veginum er óhappið átti sér
stað. Þá varð annað bílslys í Norður-
árdal í Borgarfirði um klukkustund
eftir banaslysið við Bifröst í gær.
Engin slys urðu á fólki, að sögn lög-
reglunnar í Borgarnesi, en hálka
myndaðist einnig á Vesturlandsvegi
líkt og á Suðurlandsvegi.
Sluppu ómeidd úr bílveltu
við Litlu kaffistofuna