Morgunblaðið - 21.02.2004, Síða 16

Morgunblaðið - 21.02.2004, Síða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 16 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ SKULDIR Ingvars Helgasonar hf. og Bílheima ehf. nema tæpum 2.700 milljónum króna eftir fjárhagslega endurskipulagningu í tengslum við eigendaskipti fyrirtækjanna. Nýr framkvæmdastjóri segir að skuldir fyrirtækjanna séu ekki lengur íþyngjandi fyrir reksturinn og nú muni fara í hönd endurskipulagning hans. Fjórir aðilar hafa keypt fyrirtæk- in og tekið við rekstri þeirra. Einn af nýju eigendunum er Eignarhalds- félagið 3X, sem er í eigu Baldurs Guðnasonar, framkvæmdastjóra Sjafnar, Róberts Wessmann, for- stjóra Pharmaco og Steingríms Pét- urssonar, aðstoðarforstjóra Sjafnar, og á 31,25% hlut. Á hluthafafundi sem ætlunin er að halda á næstu dögum verður félaginu kjörin ný stjórn og mun Baldur Guðnason verða stjórnarformaður. Aðrir eig- endur eru Eignarhaldsfélagið Ás- kaup, sem á 31,25% hlut og er að meirihluta í eigu Vátryggingafélags Íslands, Jón Pálmason, sem á 31,25% hlut og bílaleigan AVIS, sem á 6,25% hlut. Nýir stjórnendur fyrirtækjanna tveggja verða Kristinn Þ. Geirsson, framkvæmdastjóri, áður fram- kvæmdastjóri Skjás eins, Ólafur Steinarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs, áður fram- kvæmdastjóri framleiðslusviðs Ís- fells, og Haukur Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs, áður fjármálastjóri JB Byggingafélags. Þess má geta að fjórir þeirra sem hér hafa verið nefndir og koma að kaupum fyrirtækisins og stjórnun þess störfuðu saman í Samskipum á árunum 1997-2000. Þetta eru Baldur Guðnason, Róbert Wessman, Krist- inn Þ. Geirsson og Ólafur Steinars- son. Í fréttatilkynningu vegna kaup- anna segir að reksturinn hafi verið tryggður með nýju hlutafé, samning- um við lánardrottna og samningum við fjármálastofnanir um endurfjár- mögnun fyrirtækjanna. Í tilkynning- unni segir að helstu ráðstafanir séu í stórum dráttum þær, að nýtt hlutafé að fjárhæð 1.000 milljónir króna komi inn í fyrirtækin, að skuldir séu felldar niður um 500 milljónir króna og að 1.700 milljónir króna séu end- urfjármagnaðar með sambankaláni Íslandsbanka og Landsbanka. Krist- inn Þ. Geirsson segir að eftir þá fjár- hagslegu endurskipulagningu sem farið hafi fram séu skuldir fyrirtækj- anna tæpar 2.700 milljónir króna og greiðslufyrirkomulagið sé með þeim hætti að skuldirnar séu ekki lengur íþyngjandi fyrir félagið. Kristinn segir að fyrirtækin hafi verið orðin illa stödd, en þau séu gamalgróin með góð umboð. Áfram verði byggt á því og ætlunin sé ekki að umturna rekstrinum. Nýir eig- endur hafi séð tækifæri í fyrirtækj- unum og vilji meðal annars efla þjón- ustuímyndina og tryggja arðsemina. Nú þegar fjárhagsleg endurskipu- lagning hafi farið fram þurfi nýir stjórnendur að hefjast handa við að snúa við rekstrinum. Áhersla verði lögð á kostnaðaraðhald og sókn í markaðsmálum. Starfsmenn fyrirtækjanna eru rúmlega 80 og aðspurður segir Kristinn að engin ákvörðun hafi ver- ið tekin um breytingar í starfs- mannahaldi, fyrst þurfi nýju stjórn- endurnir að kynna sér reksturinn vel, gera ferlagreiningu og áætlanir um framhaldið. Skuldir Ingvars Helgasonar og Bílheima 2,7 milljarðar Morgunblaðið/Sverrir Fjórir aðilar hafa keypt Ingvar Helgason hf. og Bílheima ehf. SAMNINGUR um kaup alþjóðlegra fjárfesta á 65% hlut í búlgarska símafyrirtækinu Bulgarian Tele- communications Company, BTC, var undirritaður í Sófíu, höfuðborg Búlgaríu, í gær. Eins og greint hef- ur verið frá áður eru Carrera, eign- arhaldsfélag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar og fleiri, og Advent International leiðandi í hópi fjár- festanna. Samkvæmt fréttatilkynningu greiddu kaupendur 20% tryggingu við undirritun kaupsamningsins í gær en auk þess voru nýir stjórn- endur ráðnir til fyrirtækins. Greiðsla kaupverðs er háð skilyrð- um kaupsamnings um eignastöðu, uppgjör og fjarskiptaleyfi. Gangi allt að óskum verða hlutabréfin af- hent í lok apríl og kaupverðið greitt að fullu. Kaupverð 65% hlutar í BTC er samtals um 24 milljarðar ís- lenskra króna. Fyrir utan Carrera og Advent International eru Þróunarbanki Evrópu, National Bank of Greece og Swiss Life ásamt fjórum öðrum meðal fjárfesta. Segir í fréttatil- kynningunni að Björgólfur Thor hafi verið einn helsti forsvarsmaður fjárfestanna enda sé reynsla hans af einkavæðingu og fjárfestingum í Búlgaríu og Austur-Evrópu mikil. Björgólfur Thor á meirihluta í Carrera en nokkrir íslenskir fjár- festar eiga einnig hlut í félagsinu, þar á meðal Straumur, Síminn og Burðarás. „Carrera mun hafa mann í stjórn BTC og verður jafnframt virkur þátttakandi í þeim verkefnum sem fram undan eru. Markmið fjárfesta er að BTC verði leiðandi í fjarskipt- um í Suð-Austur Evrópu og að fé- lagið verði rekið samkvæmt vest- rænum kröfum. Sérstök áhersla verður lögð á að nýta þekkingu og reynslu Íslendinga á sviði fjarskipta í verkefninu og er þátttaka Símans mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni,“ segir í fréttatilkynningunni. Í frétt frá AP-fréttastofunni í gær segir að kaupendur 65% hlutarins í BTC hafi fallist á að hækka upp- haflegt tilboð sitt um 20 milljón evr- ur, jafnvirði um 1,7 milljarða króna, og jafnframt að fjárfesta fyrir um 700 milljónir evra á næstu fimm ár- um, til að nútímavæða fyrirtækið. Þá hafi kaupendurnir einnig sam- þykkt að segja upp færri en fjórum þúsundum af 24 þúsund starfs- mönnum fyrirtækisins á næstu þremur árum. Upphaflegar áætlanir kaupendanna hafi miðað að því að segja upp um átta þúsund starfs- mönnum. BTC er öflugasta símafélag Búlg- aríu með grunnnet sem nær til allra landsmanna og er kerfið um þrjár milljónir lína. Gengið frá kaupum á BTC í Búlgaríu BAKKAVÖR Group stefnir að því að tekjur félagsins verði orðnar um 200 milljarðar ís- lenskra króna á árinu 2013. Tekjur félagsins á síðasta ári námu um 17 milljörðum króna. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Ágústar Guð- mundssonar, stjórnarfor- manns Bakkavarar Group, á aðalfundi fé- lagsins í gær. Sagði hann að starfsmenn Bakkavar- ar Group, sem eru um tvö þúsund talsins nú, verði vænt- anlega um tólf þúsund er kemur fram á árið 2013. Ágúst sagði að árið 2003 hafi ver- ið enn eitt árið sem rekstur Bakka- varar Group hafi gengið vel. Gengi hlutabréfa félagsins hafi hækkað um 56% á árinu og hagnaður eftir skatta hafi aukist um 23% frá fyrra ári. Fjögur stig í sögunni og framtíðinni Fram kom í máli Ágústar að langtímasjónarmið hafi ávallt verið höfð að leiðarljósi í rekstri Bakka- varar Group, en þannig náist mest- ur árangur í rekstrinum. Sagði hann að skipta mætti sögu félags- ins og framtíðaráætlunum í fjögur mismunandi stig. Fyrsta stigið hafi verið tímabilið frá stofnun Bakka- varar árið 1986 til ársins 1996. Á þessum tíma hafi fyrirtækið breyst frá því að vera lítið þriggja manna fyrirtæki, sem útvegaði matvæla- hráefni, í fyrirtæki sem framleiddi matvörur með 500 milljóna króna veltu og 65 starfsmenn. Annað stig- ið í sögu Bakkavarar hafi verið tímabilið frá árinu 1997 til 2002. Þetta tímabil hafi einkennst af út- rás á erlenda markaði auk þess sem fyrstu skrefin hafi verið tekin í framleiðslu kældra matvara. Félag- ið hafi haslað sér völl í sjö löndum, veltan hafi aukist úr 500 milljónum króna í 17 milljarða og starfsmönn- um hafi fjölgað úr 65 í 2.000. Þá hafi hagnaður félagsins aukist úr 20 milljónum króna í 1,4 milljarða. Sagði Ágúst að Bakkavör Group væri nú í upphafi þriðja stigsins í þróun félagsins, sem næði yfir tímabilið frá 2003 til 2013. Fyrir- tækið sé lítið meðalstórt á sínu sviði, en stefni að því að verða stórt innan þess hóps sem inniheldur meðalstór fyrirtæki. Fjórða stig Bakkavarar Group sagði Ágúst að væri tímabilið frá 2013 til 2026. Þá muni félagið þróast í að verða alþjóðlegt fyr- irtæki og eitt af þeim stærstu sinn- ar tegundar í heiminum. Þó þessi framtíðarsýn virðist stórtæk þá sé hún í raun raunsærri þegar mið sé tekið af því að velta félagsins hafi náð að verða 17 milljarðar króna á aðeins 17 árum. Fram kom í máli Ágústar að um 80% af hluthöfum í Bakkavör Group væru langtímafjárfestar. Sagði hann þetta mjög mikilvægt og auðvelda félaginu að gera áætl- anir til langs tíma. Stjórnarformaður Bakkavarar Group á aðalfundi félagsins Stefnt að 200 milljarða tekjum eftir áratug Morgunblaðið/Sverrir Ágúst Guðmundsson stjórnarformaður. MISTÖK áttu sér stað við mat á álagningu, sem liggur í eigin vörum í birgðum dótturfélaga Medcare Flögu erlendis. Þessi mistök komu ekki í ljós fyrr er farið var að ganga frá ársreikningi samstæðunnar fyr- ir síðasta ár. Þetta segir Svanbjörn Thoroddsen, forstjóri Medcare Flögu, að sé ástæðan fyrir því að félagið hafi í fyrradag sent frá sér afkomuviðvörun vegna ársins 2003, einungis þremur mánuðum eftir að það var skráð á aðallista Kauphall- ar Íslands. „Álagning á birgðum dóttur- félaganna var vanmetin, sem þýðir að matið á sjálfum birgðunum var of hátt,“ segir Svanbjörn. „Þetta kom ekki fram fyrr en við frágang ársupp- gjörsins fyrir síðasta ár og við höfðum eng- ar vísbendingar um þessi mistök fyrr en að því kom. Við stjórn- endur fyrirtækisins berum alfarið ábyrgð á því mati sem lagt var á birgðir dótturfélag- anna.“ Svanbjörn segir að vegna þeirra mistaka sem átt hafi sér stað við mat á álagningunni á eigin vörum hafi væntingar um áfram- haldandi framlegð af vörusölu á fjórða árs- fjórðungi síðasta árs ekki gengið eftir. Þess vegna geri stjórnend- ur Medcare Flögu nú ráð fyrir að allt að 1,5 milljóna dollara tap verði af rekstri félags- ins á árinu 2003 í stað hagnaðar eins og áætlað hafði verið og birt í útboðslýsing- unni sem gefin var út í tengslum við skrán- ingu félagsins í Kaup- höll Íslands í nóvem- ber síðastliðnum. Ástæður afkomuviðvörunar Medcare Flögu hf. Mistök komu fyrst fram við frágang ársuppgjörs Svanbjörn Thoroddsen EGLA hefur selt 4,05% af hlut sínum í KB banka og er eignarhlutur Eglu eftir viðskiptin 10,78% í bankanum. Viðskiptin voru á genginu 265 og er söluverðið því rúmir 4,7 milljarðar króna. Er það þýski bankinn, Hauck & Aufhäuser Privatbankiers KGaA, sem átti 50% hlut í Eglu sem er að selja af hlut sínum. Hauck & Auf- häuser átti 50% hlut í Eglu en aðrir hluthafar í Eglu eru Ker sem átti 49,5% og VÍS sem á 0,5%. Með söl- unni í gær hefur Hauck & Aufhäuser selt um 55% af eignarhlut sínum í KB banka og hefur hlutur hans í Eglu minnkað sem því nemur. Hefur hlutur Kers í Eglu aukist að sama skapi. Egla selur 4,05% í KB banka EIGNARHALDSFÉLAG í eigu Ei- ríks Tómassonar forstjóra Þorbjarn- ar Fiskaness, Gunnars Tómassonar, Gerðar Sigríðar Tómasdóttur og Tómasar Þorvaldssonar, á orðið ríf- lega 88% hlut í Þorbirni Fiskanesi. Frá þessu var greint í tilkynningu til Kauphallar Íslands í gær. Þorbjörn Fiskanes Fjölskyldan með rúm 88% ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.