Morgunblaðið - 21.02.2004, Síða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 17
DÝRALÆKNIR í Bangkok í
Taílandi skýrði í gær frá því að
H5N1-afbrigðið af fuglaflensu,
sem er lífshættulegt mönnum,
hefði greinst í tveim heimilis-
köttum og hvítu tígrisdýri ná-
lægt Bangkok. Afbrigðið hefur
ekki fyrr greinst í köttum en
sérfræðingar segja að því fleiri
dæmi sem finnist um að veiran
fari á milli tegunda þeim mun
meiri verði hættan fyrir menn.
Alls hafa nú með vissu 22
menn dáið úr veikinni í Taí-
landi og Víetnam. Kettirnir
voru í eigu manns sem býr ná-
lægt hænsnabúi þar sem smit
hefur greinst.
Þróa nýja
eldflaug
NÆSTÆÐSTI maður rúss-
neska landhersins, Júrí Balúj-
evskí, sagði í gær að Rússar
væru nú að þróa nýja gerð af
hraðfleygri, langdrægri eld-
flaug með búnaði sem gerði
henni kleift að brjótast í gegn-
um öll hugsanleg eldflauga-
varnarkerfi. Tilraunaskot hefði
þegar farið fram og gengið vel.
Sagði Balújeskí að milli 2010
og 2015 yrðu Rússar færir um
að sigrast á hvaða varnarkerfi
sem væri.
Ferð Clark-
son aflýst
LANDSTJÓRI Bretadrottn-
ingar í Kanada, Adrienne
Clarkson, hefur aflýst fyrir-
hugaðri ferð
sinni til
Noregs, Sví-
þjóðar, Dan-
merkur og
Grænlands í
apríl, að
sögn Bill
Grahams
utanríkis-
ráðherra.
Ætlunin var
að nota ferðina til að treysta
samskipti við norðlæg grann-
ríki Kanadamanna. Clarkson
heimsótti í fyrra Rússland,
Finnland og Ísland en hörð
gagnrýni kom fram vegna þess
að kostnaðurinn varð fimm
sinnum meiri en áætlað hafði
verið.
STUTT
Fugla-
flensa í
köttum
Adrienne
Clarkson
FYRRVERANDI yfirmaður kjarn-
orkuáætlunar Pakistans, Abdul Qa-
deer Khan, sendi auðgað úran til
Líbýu fyrir þremur árum og seldi
Írönum hluti í kjarnaskilvindur um
miðjan síðasta áratug, að því er
lögregla í Malasíu greindi frá í
gær.
Hefur lögreglan eftir Buhary
Syed Abu Tahir, sem Bandaríkja-
menn segja hafa verið milligöngu-
mann í kjarnorkusmyglhring sem
Khan hafi stjórnað, að Khan hafi
beðið sig að sendi skilvindurnar frá
Pakistan til Írans 1994 eða 95.
Tahir er í Malasíu og hafa yf-
irvöld þar yfirheyrt hann vegna
starfa hans þar í landi fyrir Khan.
Birti lögreglan gögn um yfirheyrsl-
una í gær. Hún er fyrsta frásögn
innanbúðarmanns í smyglhring
Khans, sem stjórnaði uppbyggingu
kjarnorkuáætlunar Pakistans og
játaði í síðustu viku að hafa látið
Írönum, Líbýumönnum og
Norður-Kóreumönnum í té kjarn-
orkutækni.
Tahir sagði malasísku lögregl-
unni að hann hefði haft umsjón
með flutningum á tveimur gámum
með kjarnaskilvinduhlutum frá
Dubai til Íran. Voru gámarnir
fluttir með írönsku fraktskipi. Í
gögnum lögreglunnar segir að
ónafngreindur Írani hafi greitt sem
svarar rúmlega 200 milljónum
króna fyrir innihald gámanna.
„Komið var með peningana í
tveimur skjalatöskum sem hafðar
voru í íbúð sem pakistanski kjarna-
vopnasérfræðingurinn gisti jafnan í
þegar hann var í Dubai,“ segir í
gögnum malaísku lögreglunnar, og
tekið er fram að umræddur sér-
fræðingur sé Khan.
Tahir sagði að Khan hefði sagt
sér að flogið hefði verið með „til-
tekið magn“ af auðguðu úrani til
Líbýu frá Pakistan í pakistanskri
flugvél árið 2001, og að „tiltekinn
fjöldi“ af skilvindum – háþróuð
tæki sem nota má til að auðga úran
til notkunar í vopn, m.a. – hefði
verið fluttur flugleiðis frá Pakistan
til Líbýu 2001–02.
Malasískir embættismenn segja
að Tahir verði ekki hnepptur í
varðhald þar sem ekki sé útlit fyrir
að hann hafi brotið nein malasísk
lög, en hann verði áfram undir eft-
irliti. George W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur sagt að Tahir hafi
verið „fjármálastjóri og helsti pen-
ingaþvottamaður“ smyglhringsins
sem Khan stjórnaði, en það var
hann sem sá íslamska heiminum
fyrir fyrstu kjarnorkusprengjunni.
Að sögn malaísku lögreglunnar
verða gögn um yfirheyrsluna yfir
Tahir afhent Alþjóðakjarnorku-
málastofnun Sameinuðu þjóðanna í
Vín, sem hefur umsjón með al-
þjóðlega samningnum um bann við
útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Seldi auðgað úran til Líbýu
Tæki til kjarnavopnasmíðar til Írans
Kúala Lúmpúr. AP, AFP.
Buhary Syed
Abu Tahir
Abdul Qadeer
Khan
EF fólk heldur að því muni líða betur
við að taka ákveðið lyf þá er afar lík-
legt að sú verði raunin – jafnvel þótt
um lyfleysu sé að ræða. Vænti mann-
eskja þess að henni muni líða betur
af einhverjum ástæðum fara nefni-
lega svæði í heilanum í gang sem
hafa áhrif á þá hluta heilans sem
skynja sársauka. Þetta eru niður-
stöður nýrrar bandarískrar rann-
sóknar þar sem áhrif lyfleysu voru
könnuð. Þær voru birtar í tímaritinu
Science sem kom út í gær.
Sjálfboðaliðar voru látnir liggja
inni í segulómtæki þar sem þeir
fengu hita- og rafstraum í handlegg-
inn. Sársaukaboð komu fram í öllum
þeim svæðum heilans sem búist hafði
verið við. Því næst var áburði smurt
á handlegginn sem þátttakendum
var sagt að myndi deyfa verkina, en
þeir vissu ekki að um var að ræða
venjulegt húðkrem.
Er þeim var aftur gefinn straumur
sögðust þeir finna talsvert minni
verki auk þess sem boð í svæðum
heilans sem tengjast sársauka gáfu
til kynna að sársaukinn væri raun-
verulega minni. Svæðin sem um ræð-
ir eru þau sömu og verkjalyf hafa
áhrif á. Vísindamennirnir smurðu
síðan aftur kremi á handlegginn en í
þetta sinn sögðu þeir þátttakendun-
um að það væri einungis lyfleysa. Þá
fundu þeir mikinn sársauka aftur.
Áður talið að áhrifin
væru einungis sálræn
Áhrif lyfleysu hafa lengi verið
þekkt innan læknisfræðinnar enda
er það ein ástæða þess að læknar tala
gjarnan um góð áhrif lyfja þegar þeir
ávísa þeim. Áður fyrr var þó talið að
áhrifin væru eingöngu sálræn, að
sögn dr. Jon Levine, sérfræðings í
verkjameðferð við Kaliforníuháskóla
í San Francisco, en hann stjórnaði
rannsókninni.
Einn sérfræðinganna í rannsókn-
inni, dr. Kenneth Casey, segir nið-
urstöðurnar vera skilaboð til lækna.
„Ef þú ert að veita sjúklingi meðferð
er mikilvægt að þú látir hann vænta
þess að hún virki, með því eykurðu
áhrif hennar,“ segir Casey sem er
prófessor við Michiganháskóla.
Sannað að lyfleysa
hefur líkamleg áhrif
! "
Washington. AP.
JAPANSKAR konur takast hér á
við spænska keppinauta sína á
heimsmeistaramótinu í reiptogi
sem lauk í borginni Glasgow í Skot-
landi í gær. Spænska liðið vann
gullverðlaun en japönsku kon-
urnar, sem hér sjást í miklum ham,
hrepptu silfrið.
AP
Kraftakonur takast á
SÝNING hefur verið opnuð á
Netinu á tillögum þeim sem
fram komu um minnismerki til
að heiðra minningu þeirra sem
fórust í árás hryðjuverkamanna
á World Trade Center í New
York 11. september 2001.
Alls kom fram 5.201 tillaga
frá 63 þjóðlöndum. Frá Banda-
ríkjunum bárust alls 4.392 til-
lögur. Ein tillaga barst frá Ís-
landi.
Þetta mun vera stærsta hönn-
unarsýning sögunnar en verð-
launatillagan var valin í liðnum
mánuði.
Vefslóð sýningarinnar er:
www.wtcsitememorial.org.
WTC-tillögur til
sýnis á Netinu