Morgunblaðið - 21.02.2004, Qupperneq 22
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Það hillir undir betri tíð í menningar-
málum Þórshafnarbúa og bókaunnendur
geta bráðlega sinnt lestrarþörfinni. Bóka-
safn hreppsins hefur mánuðum saman legið
innpakkað í kössum í geymsluhúsnæði eftir
að húsakynni þess voru seld síðastliðið sum-
ar og þykir mörgum biðtíminn orðinn of
langur. Bókaormar byggðarlagsins taka nú
gleði sína á ný því þetta olnbogabarn hrepps-
ins fer loks í prýðisgott húsnæði sem áður
hýsti skrifstofur sveitarfélagsins og síðan
tónlistarskólann. Endurbætur standa nú yfir
á húsnæðinu, sem er í viðbyggingu við Fé-
lagsheimilið Þórsver og allt verður sniðið þar
að þörfum bókasafns.
Vorblíða hefur tekið við af vetrarhörkunni
og snjórinn hverfur hratt. Óveðrið sem gekk
yfir fyrir stuttu var kannski þörf áminning
um að þetta er nú einu sinni Ísland og betra
að vera viðbúinn því að skjótt skipast veður í
lofti. Þeir sem geymdu snjóskófluna sína ut-
andyra , þar sem hana fennti á bólakaf á
svipstundu, hafa væntanlega lært sína lexíu.
Þórshafnarbúar eru þó orðnir sólarþyrstir
og hafa nú unnvörpum flykkst til Kanarí þar
sem þeir geta dýrkað sólguðinn í næði, fjarri
vinnu og svölum vindum Íslands. Veð-
urspámenn hér um slóðir telja þó vetr-
arhörkur að mestu liðnar, aðeins nokkur
„skot“ verði í mars og apríl en meinhægt eft-
ir það.
Þórshafnarhreppur hefur unnið og sam-
þykkt símenntunaráætlun fyrir starfsmenn
sveitarfélagsins og gildir hún fyrir árin 2004
til 2006. Líklega er Þórshafnarhreppur eitt
af fyrstu sveitarfélögum landsins til að vinna
slíka áætlun sem nær til allra starfsmanna
sveitarfélagsins.
Fyrsta námskeiðið samkvæmt símennt-
unaráætluninni var haldið í janúar síðast-
liðnum en við gerð hennar voru annars vegar
hafðar að leiðarljósi lagalegar og kjara-
bundnar skyldur sveitarfélagsins og hins
vegar löngun starfsmanna og sveitarstjórnar
til að efla hæfni og starfsánægju þeirra sem
vinna hjá sveitarfélaginu. Unninn var listi yf-
ir námskeið sem henta öllum og einnig sér-
tæk námskeið sem henta starfsmönnum
einnar deildar en ekki annarra. Út úr því
kom afar fjölbreytt úrval námskeiða.
Úr
bæjarlífinu
ÞÓRSHÖFN
EFTIR LÍNEYJU SIGURÐARDÓTTUR
FRÉTTARITARA
SJÓMENN og iðnaðarmenn nota tækifærið þeg-
ar skipin koma til hafnar að lagfæra eitt og annað í
búnaði þeirra. Frystiskip Granda hf., Venus
HF-519, fékk slíka meðhöndlun þegar það kom til
hafnar á dögunum með verðmætan afla. Skipið
stoppaði fimm daga og er nú aftur farið á veiðar.
Morgunblaðið/Heiðar Þór
Unnið að lagfæringum
Í höfn
Blönduós | Kaffihúsið Við Árbakkann hlaut
jafnréttisverðlaun Blönduósbæjar 2003.
Voru verðlaunin afhent við upphaf fundar
bæjarstjórnar í vikunni, að því er fram kem-
ur á vef Blönduósbæjar.
Erla Björg Evensen og Guðmundur Har-
aldsson, eigendur kaffihússins, tóku við við-
urkenningunni úr hendi Jófríðar Jónsdótt-
ur, formanns jafnréttisnefndar bæjarins.
Við sama tækifæri var lesið upp bréf frá
Jafnréttisstofu þar sem lýst er ánægju með
það framtak jafnréttisnefndar Blönduóss að
veita jafnréttisviðurkenningu og kaffihús-
inu óskað til hamingju með viðurkenn-
inguna.
„Kaffihúsið Við árbakkann er dæmi um
fyrirtæki þar sem samheldnir einstaklingar
koma saman og vinna að sameiginlegu
markmiði sínu án þess að þættir eins og
kynferði skipti þar máli. Kaffihúsið Við ár-
bakkann er vel að verðlaununum Jafnrétt-
isverðlaun Blönduósbæjar 2003 komið,
framsýni en ekki þröngsýni er sýn þess fyr-
irtækis,“ sagði Jófríður við afhendinguna.
Kaffihúsið Við árbakkann verður fimm
ára á þessu ári. Erla Björg og Guðmundur
hafa frá upphafi stjórnað rekstrinum.
Hlutu
jafnréttis-
viðurkenningu
Blönduósbæjar
Hveragerði | Hafin er í tilraunagróður-
húsi Garðyrkjuskólans á Reykjum tilraun
með ræktun á kúrbít. Markmið tilraunar-
innar er að efla
þekkingu á
ræktun kúrbíts
og kanna
möguleikana á
ræktun hans
hér á landi.
Innfluttur
kúrbítur hefur verið á markaði hér í nokk-
ur ár. Hann er ein tegund graskerja og er
náskyldur gúrkum og melónum. Uppruna-
leg heimkynni hans eru líklega í Mið-Am-
eríku, rétt eins og margra annarra teg-
unda af þessari plöntuætt.
Kúrbíts er neytt á ýmsan máta. Hann
er borður hrár og matreiddur á marg-
víslegan hátt. Garðar Árnason sér um til-
raunina.
Kúrbítur rækt-
aður í fyrsta sinn
♦♦♦
Skagaströnd | Gunnar Þór Gunn-
arsson, einn af fimm fulltrúum í
hreppsnefnd Höfðahrepps, ákvað
að víkja úr
hreppsnefnd-
inni í tengslum
við sölu á
Skagfirðingi
hf. Hrepps-
nefnd sam-
þykkti lausn
Gunnars Þórs
frá störfum á fundi í fyrradag.
Fiskiðjan Skagstrendingur á
Sauðárkróki keypti Skagstrending
hf. af Eimskipafélaginu í síðasta
mánuði og í framhaldi af því seldi
Höfðahreppur hlutabréf sín í Eim-
skip.
Í bókun á fundi í fyrradag þar
sem óskað er eftir lausn frá störf-
um í hreppsnefnd vísar Gunnar Þór
Gunnarsson til afstöðu sinnar í
tengslum við sölu Skagstrendings
sem bókuð hafi verið sem trún-
aðarmál. Telur hann að sér hafi
mistekist að gæta hagsmuna
Skagastrandar í þessu máli. Þar
sem hagsmuna staðarins verði best
gætt með einingu innan hrepps-
nefndar hafi hann ákveðið að víkja
úr hreppsnefnd.
Hreppsnefndarmenn þökkuðu
Gunnari Þór fyrir samstarfið og
óskuðu honum velfarnaðar.
Segir sig úr
hreppsnefnd
Höfðahrepps
Mínstund frett@mbl.is
Bæjarráð Akranes-kaupstaðar hefursent frá sér yf-
irlýsingu þar sem mót-
mælt er hækkun á raf-
orkuverði á Akranesi.
Bókunin er gerð í tilefni
af lokatillögum meirihluta
nítján manna nefndar iðn-
aðar- og viðskiptaráð-
herra. Ráðið styður jöfnun
raforkuverðs en telur að
slíkar félagslegar aðgerðir
eigi að greiðast úr rík-
issjóði en ekki að leggjast
þyngst á atvinnulíf og
barnafjölskyldur í öðrum
landshlutum. „Ríkisvald-
inu er í lófa lagið að jafna
lífskjörin í landinu með
öðrum aðgerðum en þeim
að rýra búsetuskilyrði á
einu svæði í þágu annars.“
Bæjarráð telur að flutn-
ingskerfið eigi að vera tak-
markað við 132 kV og
hærri spennu en ekki við
66 kV eins og tillögur
meirihluta nítján manna
nefndar gera ráð fyrir.
Mótmæli
Þórshöfn | Hafnar-
framkvæmdir eru farnar
að setja mikinn svip á
þorpsmyndina á Þórshöfn
en segja má að heilt fjall
sé komið inn á hafn-
arsvæðið. Dæluskipið
Scandia hefur verið í
höfninni síðan í desember
og lýkur trúlega dælingu
á uppfyllingu við nýja
stálþilskantinn innan
fárra daga.
Stefnt er að því að ljúka
hafnarframkvæmdum á
næsta ári með end-
urbyggingu loðnulönd-
unarkants og er þá óhætt
að segja að höfnin upp-
fylli vel allar þær kröfur
sem til hennar eru gerðar
sem þjónustu- og haf-
skipahafnar auk þess að
vera til fyrirmyndar hvað
aðstöðu fyrir smærri báta
viðkemur.
Heilt fjall í höfninni
Morgunblaðið/Líney
Hreiðar Karlssonhefur máls á þvíað það sé allt á
einn og sama veg. Í haust
hafi þingmenn lekið, nú
sé það þinghúsið:
Allir sem búa við ágjöf slíka
úrlausnar vænta senn
Alþingishúsið lekur líka
líkt og alþingismenn.
Þorkell Guðbrandsson
bætir við:
Hart er orðið heims um ból
Heljar magnast plottin
ef ráðherra í ræðustól
refsar sjálfur Drottinn.
Þá Hallmundur Krist-
insson:
Um það blaði engu fletti;
augljóst táknið stóra:
Æðri máttur óvænt setti
ofaní við Dóra.
Loks yrkir Jakob Sig-
urjónsson og segir að enn
og aftur virðist sem ekki
rigni jafnt á réttláta og
rangláta:
Hvessir um dalinn og hólinn,
himinn við alþingi talar.
Það rignir í ræðustólinn,
ráðherra votur galar.
Leki í þinginu
pebl@mbl.is