Morgunblaðið - 21.02.2004, Qupperneq 32
DAGLEGT LÍF
32 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Halló Norðurlönd - vinur í vanda
Ertu að hugsa um að flytja til
annars Norðurlands?
Hefur þú siglt í strand í
kerfinu eftir flutning?
Halló Norðurlönd
er upplýsingaþjónusta
Norrænu
ráðherranefndarinnar.
Skoðaðu heimasíðuna
www.hallonorden.org,
þar finnur þú mikilvæg
netföng og símanúmer.
1 4 4 4
Ertu að leita
þér að nýjum
skóm?
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
Ég elska að vera í eldhús-inu, handfjatla ferskthráefni, anda að mér ilmiþess og spá í hvernig ég
geti matreitt það þannig að það njóti
sín til fullnustu,“ segir Jody Adams
en hún er gestakokkur á Grillinu á
hótel Sögu nú á Food and Fun dög-
unum sem standa yfir í Reykjavík.
Jody, sem er bandarísk, rekur sitt
eigið veitingahús, Rialto, í Cam-
bridge í Massachusetts og annað í
Boston sem ber nafnið blu.
Rialto hefur þegar skapað sér
nafn í Bandaríkjunum, verið kosið af
tímaritinu Bon Appetit eitt af 25
bestu veitingahúsum þar í landi,
fengið hæstu stjörnugjöf hjá dag-
blaðinu Boston Globe og Jody sjálf
verið valin matreiðslumeistari ársins
hjá tímaritinu Boston Magazine, svo
dæmi séu tekin. Þá hefur mat-
reiðslubókin hennar, „In the hands
of a Chef “, fengið mikið lof vestra
en hana skrifaði hún ásamt eig-
inmanni sínum, rithöfundinum Ken
Rivard.
Jody segist hafa verið svo lánsöm
að alast upp hjá móður sem hafði
áhuga á matargerð og var frábær
kokkur sem hafði gaman af því að
prófa sig áfram í eldhúsinu.
„Mamma hafði unun af elda-
mennsku og lagði sig fram um að
kaupa hráefni af bændunum í kring
þegar við vorum á ferðalögum og
njóta þess sem var á boðstólum af
heimaræktuðu hverju sinni.
Ég hef sjálf lagt mig fram um að
gera það sama, kaupa ferskt hráefni
úr mínu nánasta umhverfi hverju
sinni. Ferskt og gott hráefni skiptir
sköpum í matargerð.“
Þegar ég spyr hana hvernig hún
eldi segir hún að þó hún geti ekki
rakið ættir sínar til Miðjarðarhafs-
ins hafi hún leitað mikið til Ítalíu,
Spánar og Frakklands í matargerð-
inni enda segist hún alin upp í
ítölsku umhverfi í Bandaríkjunum.
„Matur frá þessum löndum heillar
mig og þá aðallega sveitamaturinn.
Þar gefur fólk sér nægan tíma til að
elda og það er ekki síst það sem hef-
ur dregið mig að þessari tegund
eldamennsku. Ég vil leyfa matnum
að malla í rólegheitum og svo finnst
mér atriði að fólk borði saman og
hafi það notalegt.
Jody hefur haldið námskeið í
mörg ár og hún segist finna fyrir því
núorðið að fólk vilji fara aftur í eld-
húsið og gefa sér tíma. „Ég hef
kennt á tímum þar sem spurning-
arnar gengu út á það hversu fljót-
legt væri að elda réttina og hvort
það mætti frysta þá. Núna heyri ég
ekki svona spurningar og fólk hefur
áhuga á hráefninu og því að gefa sér
tíma.
Bandaríkjamenn fylgjast mjög vel
með straumum og stefnum í mat-
argerð, þeir eru búnir með skyndi-
bitafæðið, þeir hafa minnkað fitu í
mataræði og nú eru þeir mjög upp-
teknir af kolvetnasnauðri fæðu.
Uppskriftin sem hér fylgir er úr
bók hennar In the hands of a Chef.
Hún segir að uppskriftirnar séu héð-
an og þaðan, flestar með innblæstri
frá Ítalíu, Frakklandi og Spáni.
MATARKISTAN
Morgunblaðið/Sverrir
Mæðgur: Jody Adams hafði lítinn
hjálparkokk með sér til landsins,
dótturina Roxanne.
Tómatsúpa: Eggaldinsamlokur gera útslagið.
gudbjorg@mbl.is
Rialto
One Bennett Street
Cambridge,
Massachusetts 02138
Bandaríkin
Sími 001 617 661 5050
Vefur: www.rialto-restaur-
ant.com
Sveitamaturinn heillandi
Hún rekur veitinga-
húsið Rialto í Cam-
bridge og blu í Boston,
hefur haldið fjölda mat-
reiðslunámskeiða og
gefið út matreiðslubók
sem hlotið hefur frá-
bæra dóma.
Húsgögn
Ljós
Gjafavara
Mörkinni 3, sími 588 0640
www.casa.is
Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15.
Tómatsúpa
með eggaldinsamloku
½ bolli extra virgin ólífuolía
2 meðalstórir laukar, saxaðir
í litla teninga
4 hvítlauksrif, smátt söxuð
salt og nýmalaður svartur pipar
2 kg þroskaðir plómutómatar,
saxaðir gróft
1 tsk. sykur
1 fallegt eggaldin (250 g) skor-
ið í átta 2 ½ sm sneiðar
2 bollar vatn
½ bolli ferskt saxað basil og 4
lauf til skrauts
½ bolli pestó
4 ½ sm þykkar sneiðar af
mozzarella-osti
4 ½ sm þykkar sneiðar af
sveitabrauði sem eiga að vera
álíka stórar og eggald-
insneiðarnar.
Hitið 2 msk. af ólífuolíu í potti
við meðalhita og bætið í lauk og
hvítlauk, kryddið með salti og
pipar og eldið í 7–8 mínútur.
Bætið við tómötum og sykri,
lækkið hitann og eldið í 25 mín-
útur.
Meðan tómatarnir eru að
malla eru eggaldinsneiðarnar
kryddaðar með salti og pipar.
Hitið 2 msk. af ólífuolíu á pönnu
við meðalhita. Bætið eggald-
insneiðum á pönnuna og steikið
báðum megin þangað til þær
eru fallega brúnaðar. Takið af
hita og kælið.
Bætið vatni á tómatana og
sjóðið í um 5 mínútur við vægan
hita. Setjið svo í matvinnsluvél
og síið tómatsúpuna svo í fínu
sigti í pottinn að nýju. Bætið
basil í og látið malla í 5 mínútur.
Hitið ofninn í 180 gráður.
Smyrjið eggaldinsneiðarnar
með pestói og setjið mozzarella-
sneiðar ofan á fjórar sneiðar.
Búið svo til samlokur með því að
setja hinar eggaldinsneiðarnar
ofan á ostinn. Smyrjið brauð-
sneiðarnar með ólífuolíu og setj-
ið á bökunarplötu. Ristið í ofni
uns þær eru gylltar. Setjið þá á
topp hverrar brauðsneiðar egg-
aldinsamloku og hitið uns ost-
urinn fer að bráðna. Gætið þess
að súpan haldist heit á meðan
samlokurnar eru að hitna. Setj-
ið eggaldinsamloku á botn
hverrar skálar og hellið tómat-
súpu yfir. Setjið nokkra dropa
af olíu á hvern disk og basillauf
til skrauts. Berið fram strax.