Morgunblaðið - 21.02.2004, Blaðsíða 60
ÍÞRÓTTIR
60 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
GUÐMUNDUR Jónsson, bakvörð-
ur úr úrvalsdeildarliði Njarðvíkur,
verður frá næstu vikurnar en hann er
fingurbrotinn. Frá þessu er greint á
heimasíðu félagsins.
FYRRUM landsliðsmaður Skota í
knattspyrnu, John Collins, er ekki í
vafa um að Berti Vogts, landsliðþjálf-
ari Skota í knattspyrnu, eigi að taka
pokann sinn og hætta eftir 4:0 tap
liðsins gegn Wales í Cardiff sl. mið-
vikudag. Collins segir skoska liðið
áhugalaust og það sé greinilegt að
Vogts hafi ekki það góð tök á móð-
urmáli leikmanna liðsins að hann nái
til þeirra með sinn boðskap.
COLLINS lék stórt hlutverk í
skoska liðinu á HM í Frakklandi árið
1998 en hann lék með Hibernian,
Celtic og franska liðinu Mónakó á sín-
um ferli. „Í viðtölum fyrir og eftir leiki
er Vogts ekki sannfærandi og það
sést á leik liðsins að hann er ekki rétti
maðurinn í þetta starf. Hann nær
ekki til leikmanna og skoska liðið er
ekki í framför undir hans stjórn,“ seg-
ir Collins við BBC. „Á árum áður vor-
um við ávallt með á stórmótum og
menn lögðu sig fram sem lið. Það er
ekki þannig í dag hjá skoska landslið-
inu,“ segir Collins en Skotar hafa
fengið á sig 10 mörk í síðustu tveimur
landsleikjum. Vogts segir að hann
hafi ekki hug á því að hætta með liðið
að svo stöddu og markmiðið sé að ná í
úrslit á HM í Þýskalandi 2006.
FRANSKI landsliðsmaðurinn Zin-
edine Zidane hefur samið við
spænska liðið Real Madrid á ný og
verður hann í herbúðum liðsins fram
til loka keppnistímabilsins 2006–2007.
Zidane segir að sér líði vel á Spáni en
hann verður 35 ára gamall þegar
samningur hans rennur út. Zidane
var útnefndur knattspyrnumaður
ársins árið 2003 í þriðja sinn en hann
kom frá Juventus á Ítalíu árið 2001
fyrir rúmlega 6,5 milljarða ísl. kr.
KJETIL Andrè Aamodt og Lasse
Kjus, þekktustu skíðamenn Norð-
manna undanfarin ár, ætla báðir að
taka þátt í heimsbikarmótum á næsta
keppnistímabili en þeir munu ekki
keppa meira á yfirstandandi keppn-
istímabili vegna meiðsla. Aamodt er
að jafna sig eftir fótbrot og Kjus fór í
aðgerð á hné en honum hafði gengið
mjög vel á mótum vetrarins fram að
því. Í viðtölum að undanförnu hafa
þeir báðir gefið það í skyn að líklega
myndu þeir ekki keppa framar en í
viðtali á norsku sjónvarpsstöðinni
TV2 í gær sögðu þeir báðir að þeir
yrðu með í keppni þeirra bestu næsta
haust.
ÍSLANDSMEISTARALIÐ ÍBV í
kvennaflokki í handknattleik tek-
ur á móti franska liðinu Le Havre
á sunnudaginn í síðari leik lið-
anna í 16-liða úrslitum í Áskor-
endakeppni Evrópu. Staða ÍBV er
vænleg þar sem Vestmanna-
eyjaliðið vann fyrri leikinn í
Frakklandi um síðustu helgi með
átta marka mun, 30:22. Mögu-
leikar liðsins á því að komast í
átta liða úrslit keppninnar eru
því ágætir.
„Ég tel að við séum í betra lík-
amlegu ástandi enda náðum við
að skora 9 mörk gegn 3 á síðustu
átta mínútunum í fyrri leiknum.
Vörnin var okkar aðalsmerki og
við munum halda áfram á sömu
braut á sunnudaginn. Það verður
ekki reynt að halda fengnum hlut
með einhverjum göngubolta,“
sagði Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálf-
ari ÍBV, í gær. Aðalsteinn átti
von á franska liðinu til Vest-
mannaeyja frá Þorlákshöfn með
Herjólfi í gærkvöld.
„Það væri ekki verra að fá
hvassa suðvestanátt á meðan á
siglingunni stæði,“ sagði hann í
léttum tón. „Það er ekki um ann-
að rætt hér í Eyjum og ég á von
á því að okkar stuðningsmenn
mæti á leikinn og það verður án
efa fjölmennt,“ sagði Aðalsteinn
en ekkert íslenskt kvennalið í
handknattleik hefur náð að kom-
ast í átta liða úrslit í Evr-
ópukeppni og þar með myndi
Eyjaliðið brjóta ákveðið blað í ís-
lenskum handknattleik takist því
að komst áfram. Til þess verður
það þó að halda rétt á spöðunum
gegn Le Havre sem er í þriðja
sæti frönsku 1. deildarinnar.
Leikurinn hefst kl. 14.00 á
sunndaginn en í liði Le Havre eru
tveir franskir landsliðsmenn sem
fögnuðu sigri á heimsmeist-
aramótinu í Króatíu í lok síðasta
árs. Að auki eru leikmenn frá
Póllandi, Kongó, Króatíu og tveir
leikmenn frá Rúmeníu. Mark-
vörður liðsins er rúmenskur og
er sagður vera einn af betri
markvörðum frönsku deild-
arinnar.
„Ætlum ekki að reyna að halda fengnum
hlut með göngubolta gegn Le Havre“
BJÖRGVIN Sigurbergsson lék á
pari fyrri níu holur Saujuna-
vallarins í Malasíu í fyrrinótt en
fresta varð leik vegna úrhellisrign-
ingar og hófst keppni að nýju á
miðnætti í gær. Björgvin átti þá eft-
ir að pútta á 10. braut vallarins en
hann hafði fengið einn örn, –2, á 7.
braut en líklega þarf Hafnfirðing-
urinn að leika á 7–8 höggum undir
pari það sem eftir er til þess að
komast í gegnum niðurskurðinn.
Colin Montgomerie frá Skotlandi
náði sér á strik rétt áður en leik var
frestað og segir hann við enska fjöl-
miðla að hann hafi fengið fuglaskít
yfir sig er hann var á leið af níundu
flöt og á tíunda teig. „Heimamenn
sögðu mér að slíkt boðaði gæfu en
mér fannst það ekki á þeirri stundu
enda með stórar skellur á buxunum
og bolnum. En kannski hafa þeir
rétt fyrir sér þar sem ég fékk fugl á
12. og örn á þeirri 13. en þá var
mótinu frestað,“ sagði Montgomer-
ie.
Úrhelli í Malasíu
Leikurinn er sérlega mikilvægurbáðum liðum, Arsenal til að
halda forskoti sínu í deildinni og
Chelsea til að vera með í toppbar-
áttunni en það er nú sex stigum á
eftir Arsenal í þriðja sæti.
„Við verðum að vinna til að
halda okkur í baráttunni á toppn-
um,“ segir Frank Lampard, leik-
maður Chelsea, og segir leikinn
gríðarlega mikilvægan fyrir félag-
ið.
Þegar liðin mættust í bikarnum
var markaskorarinn mikli, Thierry
Henry, ekki með Arsenal en hann
verður væntanlega með í dag og
það gerir verkefni Chelsea ekki
auðveldara.
Lampard, sem lék sinn 17.
landsleik á miðvikudaginn þegar
Englendingar gerðu 1:1 jafntefli
við Portúgal í Faro, óttast Henry
samt ekki sérstaklega. „Hann er
frábær leikmaður og það verður
örugglega ekki létt verk að halda
aftur af honum. Við komum hins
vegar mjög einbeittir til leiks, töp-
uðum fyrir Arsenal í bikarnum og
vitum um mikilvægi þessa leiks
fyrir okkur. Í bikarnum hættum
við hreinlega að spila eftir að Ars-
enal jafnaði og slíkt gengur auðvit-
að ekki gegn jafn sterku liði. Við
verðum að sækja í dag til að eiga
möguleika, ekki liggja til baka og
hanga of mikið á boltanum á mið-
svæðinu.
Við verðum helst að fá þrjú stig
annars er munurinn orðinn níu
stig og það yrði efitt að brúa það
bil. Það er auðvitað hægt því Ars-
enal á eftir að tapa einhverjum
stigum, en við verðum að halda
okkar striki og ná í þrjú stig, eitt
stig er samt betra en ekkert og
heldur okkur inni í myndinni,“
sagði Lampard.
Þó svo Henry komi væntanlega
inn í lið Arsenal á nýjan leik þá er
ljóst að Ashley Cole verður vart
með en hann meiddist í landsleikn-
um í Portúgal. Miðjumaðurinn Gil-
berto Silva verður líklega einnig
fjarri góðu gamni en hann meidd-
ist á ökla með Brasilíu gegn Ír-
landi á miðvikudaginn.
Verður Ljungberg með?
„Það er ekki alveg útséð um
Silva, við verðum að sjá til hvernig
hann verður í dag og í fyrramálið,“
sagði Arsene Wenger um meiðsli
Brasilíumannsins. Sol Campbell
verður væntanlega í liðinu og einn-
ig er möguleiki að Svíinn Freddie
Ljungberg verði búinn að ná sér.
Tölfræðin er ekki með Eiði
Smára Guðjohnsen og félögum í
Chelsea því liðið hefur ekki unnið
Arsenal í nokkurri keppni síðustu
fimm árin, eða síðan Arsenal lá 5:0
í Worthingtonbikarnum (deildabik-
arnum) 11. nóvember 1998. Síðan
þá hefur Arsenal unnið tíu leiki
gegn Chelsea og fimm sinnum hef-
ur orðið jafntefli hjá félögunum.
Thierry Henry verður með Arsenal gegn Chelsea á „Brúnni“
„Ekki létt verk að
halda aftur af honum“
STÓRLEIKUR helgarinnar í ensku knattspyrnunni er viðureign
Chelsea og Arsenal á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea í Lund-
únum. Liðin áttust við í bikarnum á dögunum og þá hafði Arsenal
betur, 2:1. Arsenal er í efsta sæti deildarinnar með 61 stig en
Chelsea í því þriðja með 55 stig, stigi á eftir Manchester United
sem er í öðru sæti og mætir Leeds í dag.
ÍT ferðir - Laugardal
sími 588 9900 -
itferdir@itferdir.is - www.itferdir.is
Einstök fótbolta- og fjölskylduferð
til Manchester 29. maí-6. júní
Takmarkað
sætaframboð!
5 daga námskeið í Knattspyrnuskóla Bobby Charlton
+ Ísland-Japan 30/5, England-Japan 1/6 og England-Ísland 5/6
Verð aðeins frá kr. 80.500 kr.
Innifalið:
Flug til London, flugv.sk. góð gisting í 8 nætur með morgunmat,
5 daga námskeið í Bobby Charlton-skólanum með akstri og hádegismat, .
Foreldraverð: Frá kr. 63.500 * Fjölskylduafsláttur!
Ekki innifalið: Miðar á landsleikina (verð ekki komið )
Akstur milli London og Manchester (fer eftir fjölda).
ATH. Verð miðað við gengi og flugvallarskatta 17. feb. 2004
Knattspyrnuskóli Bobby Charlton og 3 landsleikir!
ÞRÓUNIN hefur orðið eins og
margir reiknuðu með í sambandi við
áhuga á nýju fyrirkomulagi á Ís-
landsmótinu í handknattleik karla.
Á undanförnum árum hafa oft
farið fram umræður um hvernig
best væri að auka áhugann á innan-
hússíþróttum – handknattleik og
körfuknattleik, til að fá fleiri áhorf-
endur til að koma á leiki. Flestir
hafa verið á þeirri skoðun að til að
auka áhugann verði að fækka leikj-
um og þá sérstaklega leikjum þar
sem munurinn er mikill á liðum og
fáir hafa áhuga á að horfa á. Til þess
að fækka leiðinlegum leikjum liggur
beint við að fækka liðum í deildum.
Þvert á skoðanir manna að best
væri að fækka liðum í efstu deild, þá
fjölgaði handknattleiksforustan lið-
um í efstu deild í fjórtán. Enn eitt
fyrirkomulagið var tekið upp í vet-
ur, sem hefur ruglað handknatt-
leiksunnendur enn meira í ríminu.
Fyrst var leikið í tveimur deildum
– norður- og suðurdeild í forkeppni,
nú er hafin keppni í úrvalsdeild og
1. deild, sem er undankeppni fyrir
úrslitakeppni átta liða.
Undirritaður hefur skrifað fjöl-
margar greinar á undanförnum ár-
um um mótafyrirkomulag og marg-
oft bent á að það kæmi niður á
handknattleiknum að hafa mótafyr-
irkomulag ruglingslegt.
Handknattleiksforustan bar ekki
gæfu til að byrgja brunninn. For-
keppni með fjölmarga lítt spennandi
leiki hefur tekið hátt í sjö mánuði og
áhorfendum hefur enn fækkað. Fyr-
ir síðasta ársþing HSÍ, skrifaði und-
irritaður:
„Ársþing Handknattleiks-
sambands Íslands fer fram um
helgina. Þar verður lögð fram til-
laga um enn eina breytinguna á
keppnisfyrirkomulagi, sem ég tel að
geri handknattleiknum ekki gott,
heldur skaði hann enn frekar.
Það er ekki lengur hægt að hunsa
vilja handknattleiksunnenda,
margra þjálfara og leikmanna, sem
vilja fá átta liða úrvalsdeild. Það
yrði gæfuspor fyrir handknattleik á
Íslandi ef komið yrði á úrvalsdeild
átta liða.
Þá fyrst geta lið farið að byggja
upp heimavallarstemningu allt
keppnistímabilið – laða að áhorf-
endur, koma á föstum leikdögum
þar sem öll liðin leika leiki sína. Með
því að ná að laða að áhorfendur er
hægt að byggja upp stemningu.
Aðalatriðið er að það verður að
gefa liðum tækifæri og grundvöll til
að ná upp góðri heimavallarstemn-
ingu. Það verður aðeins gert með
því að bjóða upp á leiki sem hafa
mikla þýðingu. Leiki sem leikmenn
leggja sig alla fram í og njóta að
leika fyrir fullu húsi áhorfenda.“
Það var ekki mikill áhugi fyrir
keppninni í norður- og suðurriðl-
inum. Heldur ekki þegar keppni
hófst í ÚRVALSDEILD fyrir tveim-
ur vikum. Fyrsta keppniskvöldið
voru 112 áhorfendur á leik Vals og
Gróttu/KR að Hlíðarenda, 128 á leik
Fram – ÍR í Framhúsinu – þar af 22
ÍR-ingar, 160 áhorfendur sáu leik
Stjörnunnar og KA í Garðabæ.
Já, það var lítil stemning fyrir
leikjum sem hafa enga þýðingu.
Í síðustu viku léku Valur og Fram
í undanúrslitum bikarkeppninnar
að Hlíðarenda. Þá var boðið upp á
leik sem hafði þýðingu. Rúmlega
500 áhorfendur mættu á leikinn og
var mikið fjör á áhorfendabekkjum.
Á villigötum