Morgunblaðið - 21.02.2004, Page 63
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 63
DÓMSTÓLL á Írlandi hefur kveð-
ið upp þann úrskurð að golf-
klúbbnum Portmarnok sé óheim-
ilt að banna konum að leika á
vellinum. Konur hafa ekki fengið
að leika á vellinum en nú er útlit
fyrir að þær geti sýnt listir sínar
þar á næstunni. Raunar hafa for-
ráðamenn klúbbsins verið svo
strangir að þeir hafa bannað kon-
um að koma inn í klúbbhúsið.
Lögfræðingar golfklúbbsins,
sem er í einkaeigu, eru þó ekki
vissir enda telja þeir að lög þau
sem dómurinn byggði á standist
ekki stjórnarskrána og ætla að
áfrýja niðurtöðunni. Það getur
því liðið einhver tími þar til kon-
ur fá að leika á Portmarnok, sem
er einn frægasti völlur Írlands.
Eigendur klúbbsins voru jafn-
framt dæmdir í sekt yrðu þeir
ekki við tilmælum dómsins. Þá
yrði tekið af klúbbnum vínveit-
ingaleyfið og annað í þeim dúr en
eigendur geta farið í kring um
það með því að bjóða þeim sem
leika völlinn upp á drykk, áfeng-
an ef þannig vill til.
Samkvæmt reglum klúbbsins er
aðeins ein kona meðlimur í hon-
um, Mary McAleese, forseti
landsins.
nnar frægur völlur á Írlandi,
Royal Dublin, heimilar konum
ekki að spila en ekki hefur enn
verið höfðað mál á hendur hon-
um.
Konur fá loks að leika á
Portmarnok-golfvellinum
FÓLK
KENENISA Bekele, sem er 21 árs
frá Eþíópíu, setti í gærkvöld heims-
met innanhúss í 5.000 metra hlaupi
karla á móti í Birmingham í Eng-
landi. Hann hljóp vegalengdina á
12.49,60 mín. og bætti met landa síns
Haile Gebrselassie um tæpa sek-
úndu. Bekele fékk 30 þúsund banda-
ríkjadali fyrir metið.
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson stóð
í marki Kronau/Östringen í gær-
kvöldi þegar liðið tapaði 26:22, fyrir
Hamborg á heimavelli. Kronau/
Östringen er í neðsta sæti þýsku 1.
deildarinnar með 9 stig en Hamborg
lyfti sér upp í þriðja sætið með sigr-
inum.
INGÓLFUR Axelsson KA-maður
kom inn á í leiknum á móti HK í gær
eftir að hafa verið talsvert lengi frá
vegna meiðsla. Honum tókst aðeins
að spila í nokkrar sekúndur áður en
hann meiddist á ökkla og þurfti að
fara af velli.
TVEIR leikmenn HK, þeir Atli Þór
Samúelsson og Ólafur Víðir Ólafs-
son, fengu rautt spjald fyrir brot á
leikmönnum KA. Talsverður hiti var
á bekk HK eftir þessa dóma Ingvars
Guðjónssonar og Jónasar Elíassonar
og fékk Árni Stefánsson þjálfari gult
spjald fyrir að mótmæla fyrri dómn-
um og tveggja mínútna brottvísun
eftir kröftugleg mótmæli þegar Ólaf-
ur var sendur í sturtu.
OLE Gunnar Solskjær verður í
leikmannahóp Manchester United
gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni í
dag en það eru fimm mánuðir frá því
að norski landsliðsfyrirliðinn lék síð-
ast með Man. Utd. vegna hnémeiðsla.
Solskjær lék með varaliðinu gegn
Liverpool á fimmtudaginn þar sem
liðin skildu jöfn, 1:1.
ROY Keane fyrirliði enska úrvals-
deildarliðsins Manchester United
segir við AFP-fréttastofuna að hann
hafi áhuga á því að leika með írska
landsliðinu á ný. Keane hefur ekki
leikið landsleik frá því að hann var
sendur heim frá æfingabúðum írska
liðsins rétt áður en heimsmeistara-
keppnin í S-Kóreu og Japan hófst ár-
ið 2002.
ÞAR gagnrýndi Keane harkalega
Mick McCarthy þáverandi landsliðs-
þjálfara og þær aðstæður sem stóðu
liðinu til boða. „Það er ekki svo einfalt
að ég geti sagt að mig langi til þess að
leika á ný með landsliðinu. Það er að-
eins einn maður sem ræður því, Brian
Kerr, landsliðsþjálfari. Eflaust eru
margir leikmenn enn ekki sáttir við
mig og það gæti verið erfitt fyrir þá
að fá mig til baka. Hinsvegar tel ég að
Kerr sé að gera betri hluti en forveri
hans í starfinu,“ segir Keane.
STEPHANE Stoecklin leikur ekki
með franska landsliðinu í handknatt-
leik á Ólympíuleikunum í Aþenu í
sumar. Hann sleit krossband í kapp-
leik á dögunum. Stoecklin hafði ætlað
að ljúka ferlinum með landsliðinu í
Aþenu en hefur nú afskrifað það.
Leikmenn Breiðabliks komu veltilbúnir í leikinn og fullir sjálfs-
trausts eftir sigur-
leik gegn Njarðvík í
síðustu umferð. Þeir
gáfu toppliðinu eng-
an grið og voru betri
aðilinn í fyrri hálfleik – höfðu
tveggja stiga forskot þegar komið
var í þann síðari. Spilamennska
Snæfellinga batnaði heldur í seinni
hálfleik og stoppuðu þeir í götin í
vörninni. Tóku Kyle Williams nánast
úr umferð og við það riðlaðist leikur
heimamanna. Jafnt var í byrjun
fjórða leikhluta, 67:67, gestirnir
spiluðu þá agaðan leik – spiluðu síð-
ustu fimm mínúturnar vel og sigr-
uðu sem áður segir 87:84.
„Við þurftum að hafa mikið fyrir
þessum sigri og bjuggumst við því –
þeir nýbúnir að sigra Njarðvík og ef
þeir geta unnið þá, geta þeir unnið
okkur. Við vorum slakir framan af,
spiluðum lélega vörn en hún hefur
einmitt verið lykilatriði hjá okkur í
vetur. Fengum svo verðskuldaða
ræðu í hálfleik, ákváðum að vera
ekki með þennan aumingjaskap og
það svona gekk nokkurn veginn
upp,“ sagði Hlynur Bæringsson,
leikmaður Snæfells.
Það er engin pressa á okkur, ætti
frekar að vera pressa á hinum lið-
unum – tapandi fyrir smáliði utan af
landi. Við erum bara að hafa gaman
af þessu,“ bætti Hlynur við að lok-
um.
Þórsarar ætla ekki
að gefast upp
Þór frá Þorlákshöfn sigraði KR íhörkuspennandi leik á heima-
velli sem varð að
framlengja til þess
að knýja fram úrslit,
86:85. Staðan eftir
venjulegan leiktíma
var 73:73 en KR
hafði forystu lengst af leiknum.
Þessi sigur glæðir aðeins vonir Þórs-
ara um að geta á lokasprettinum
forðað sér frá falli úr úrvalsdeildinni
en liðið er sem fyrr í neðsta sæti.
Í lið KR vantaði þeirra aðal stiga-
skorara, Josh Murray, en hann er
slasaður á hendi, var það skarð fyrir
skildi. Leikurinn fór rólega af stað
og var jafnræði með liðunum þar til í
lok fyrsta fjórðungs en þá tóku gest-
irnir sprett og náðu 6 stiga forskoti.
Gestirnir héldu uppteknum hætti í
upphafi annars leikhluta meðan
heimamenn settu ekki körfu í þrjár
mínútur, þá voru gestirnir komnir
með 13 stiga forskot og var farið að
fara um áhorfendur. Aðeins höfðu
heimamenn lagað stöðuna þegar
gengið var til búningsklefa og var
munurinn þá sjö stig, 42:33. Þórs-
liðið fékk aðeins á sig þrjár villur all-
an fyrri hálfleikinn og segir það
nokkuð um vörnina sem þeir
spiluðu. Magnús J. Guðmundsson,
aðstoðarþjálfari Þórs, hélt þrumu-
ræðu yfir sínum mönnum í hálfleik
og skipaði þeim að taka á í vörninni
og það skilaði sér í seinni hálfleik.
Smátt og smátt minnkaði munurinn
og undir lokin þegar 25 sekúndur
voru eftir náðu heimamenn að jafna í
70:70 en að bragði skoraði Jesper
Sörensen þriggja stiga körfu og
þaggaði niður í áhorfendum sem nú
voru að tryllast af æsingi og aðeins
voru 15 sek. eftir. Adam var þó ekki
lengi í Paradís því örfáum sekúndum
síðar, eða þegar um sjö sekúndur
voru eftir, jafnaði Nate Brown með
þriggja stiga körfu og nú voru 7 sek.
eftir. Á þeim fáu sekúndum sem eft-
ir voru töpuðu gestirnir boltanum og
Nate misnotaði skot rétt áður en
tíminn var úti og framlenging var
staðreynd. Framlengingin var
geysispennandi en heimamenn
höfðu þó lengst af forustuna og
stóðu uppi í lokin sem sigurvegarar
og var fögnuður þeirra mikill. Ingi
Þór Steinþórsson, þjálfari KR, sagði
eftir leikinn að það hefði verið sárt
að tapa en í svona spennuleik gæti
sigurinn lent hvorum megin sem
væri. „Heppnin var með Þórsurum
að þessu sinni og þeir eru vel að
sigrinum komnir. Við spiluðum
ágætan leik þannig að það verður
ekkert af Þórsurum haft. Það er
greinilegt að þeir eru á bullandi upp-
leið og eru til alls líklegir. Við spil-
uðum á níu mönnum en Þórsarar á
sjö og á því ætluðum við að vinna
leikinn en það munar mikið um að
hafa Josh Murray ekki,“ sagði Ingi.
Grétar Ingi Erlendsson sem hefur
leikið vel fyrir Þórsliðið í undanförn-
um leikjum, sagði eftir leikinn að
hann vissi ekki hvort hann ætti að
gráta eða hlæja, þetta væri alveg
yndisleg tilfinning. Hann sagði að
gott hefði verið að heyra hvatning-
arorð stuðningsmanna þegar mest
gekk á.
Snæfellingar
halda sínu striki
SIGURGANGA Snæfellinga heldur áfram í Intersportdeild karla og í
gærkvöldi unnu þeir tíunda deildarleikinn í röð þegar þeir lögðu
Breiðablik af velli í Smáranum, 87:84, í hörkuspennandi leik. Leik-
urinn var hnífjafn fram í miðjan síðasta leikhluta – þá náðu gestirnir
góðum leikhluta og gerðu snögglega út um leikinn. Snæfell situr því
sem fyrr á toppi deildarinnar á meðan Blikarnir berjast enn fyrir
sæti sínu í deildinni.
Andri Karl
skrifar
Grindvíkingar byrjuðu leikinn áþví að spila svæðisvörn og gekk
hún ágætlega framan af fyrri hálf-
leiks. Grindvíkingar
áttu í miklum vand-
ræðum að stíga Kefl-
víkinga út í fráköst-
um enn það er mun
erfiðara að gera það ef spiluð er svæð-
isvörn heldur en maður á mann-vörn.
Á tíma í fyrri hálfleik myndaðist of
mikið af glufum í svæðisvörn Grinda-
víkur þar sem skyttur Keflavíkur
nýttu sér og skoruðu meðal annars
fjórar þriggja stiga körfur á stuttum
tíma. Grindavík tók þá leikhlé og
breyttu þá leik sínum yfir í maður á
mann-vörn og allt var á leiðinni að
smella hjá Grindavík. Spiluðu þeir
boltanum hratt og vel og áttu auðvelt
með að finna leið í gegnum vörn
Keflavíkur. Leikurinn var mjög jafn
nær allan fyrri hálfleikinn en staðan í
leikhléi var 43:45 Grindvíkingum í vil.
Í byrjun seinni hálfleiks var mikið
óðagot hjá leikmönnum beggja liða og
litu út sem byrjendur í íþróttinni. Eft-
ir þessa gloppóttu byrjun kom sann-
kölluð flugeldasýning hjá Keflvíking-
um, spiluðu þeir frábæra vörn og
skoruðu ellefu stig án þess að Grinda-
vík náði að svara fyrir sig og breyttu
stöðunni úr 59:58 í 59:69. Grindvík-
ingar tóku þá leikhlé og endurskipu-
lögðu sinn leik. Mikill hiti var í mönn-
um í þriðja leikhluta, litlu munaði að
syði upp úr milli Péturs Guðmunds-
sonar og Derrick Allens. Í fjórða leik-
hluta komu Grindvíkingar ákveðnir
til leiks og skoruðu sjö stig í röð og
jöfnuðu leikinn 69:69. Bæði lið skipt-
ust á að halda forystunni allt til loka
leiks. En þegar um þrjár mínútur
voru til leiksloka fékk Darrel Lewis
sína fimmtu villu og þurfti að yfirgefa
völlinn, en hann var búinn að vera að-
altromp Grindvíkinga í sókninni og
fóru nær allar þeirra aðgerðir í gegn-
um hann. Þegar um tvær mínútur
voru til leiksloka skoraði Nick Brad-
ford úr góðu gegnumbroti og stálu
Keflvíkingar boltanum alvg um hæl
aftur, og stilltu aftur upp í sókn sem
endaði á góðri körfu frá Derrick Al-
len. Juku þá Keflvíkingar forskotið
uppí fjögur stig og héldu þeir því til
leiksloka. Bestu menn Keflavíkur
voru Nick Bradford og Derrick Allen
ásamt Sverri Sverrissyni sem stal
boltanum þrisvar sinnum á lokakafla
leiksins. Hjá Grindavík var það Darr-
el Lewis og Páll Axel Vilbergsson
sem voru bestir.
Davíð Páll
Viðarsson
skrifar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blikinn Pálmi Freyr Sigurgeirsson í baráttu við Hólmarann Edward Dotson í Kópavogi í gærkvöldi.
Jón H.
Sigurmundsson
skrifar
KEFLAVÍK kom í veg fyrir að
Grindavík renndi sér upp að hlið
Snæfells í efsta sæti í úrvals-
deildar karla í körfuknattleik í
gærkvöldi þegar þeir lögðu
gesti sína, 94:90. Grindvíkingar
voru tveimur stigum yfir í hálf-
leik. 45:32.
Grindavík
missti af
efsta sætinu