Morgunblaðið - 09.03.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 09.03.2004, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2004 11 króli ehf, Jökulhæð 2, 210 Garðabæ, S: 515 9503, kvöldsími 565 6315, Gsm 660 9503 - tölvup: koh@kroli.is www.kroli.is Léttar en sterkar flotbryggjur og annar búnaður fyrir skemmtibáta. Auðveldar í flutning og til uppsetningar á sjó og vötnum. FLOTBRYGGJUR - LANDGANGAR - FINGUR SAMSTAÐA var um það innan verkalýðshreyfingarinnar að standa saman að ákveðnum atriðum. Starfs- greinasambandið tók ákvörðun um að rifta því sam- komulagi. Þeir hafa vitanlega fullt frelsi til þess að semja eins og þeim sýnist en þar með eru öll hin samböndin al- gerlega óbundin af því samkomulagi sem nú liggur fyrir. Þetta segir Guðmundur Gunnars- son, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, en félagið mun funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun, miðvikudag. Guðmundur segir það misskilning ef menn telji að í reynd sé búið að ganga frá samningi fyrir Rafiðnaðarsambandið. Sambandið sé með sína kröfugerð og viðræður um hana eigi eftir að fara fram. Breytir engu um okkar áætlanir „Þetta sem gerðist nú um helgina breytir í raun engu um okkar áætl- anir,“ segir Guðmundur en hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig efnis- lega um að hvaða leyti Starfsgreina- sambandið hafi vikið frá umræddu samkomulagi. Á vef Rafiðnaðarsambandsins kemur fram að sambandið hafi um nokkurt skeið óskað eftir fundum en samningamenn SA hafi verið upp- teknir í samningum við Starfs- greinasambandið og það hafi valdið pirringi í röðum annarra. Guðmundur Gunnarsson, formaður RSÍ SGS rifti sam- komulagi innan verkalýðshreyf- ingarinnar FORMAÐUR VR segir ljóst að kjarasamningur Flóabandalagsins og Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnu- lífsins (SA) marki að verulegu leyti stefnu VR í samningum við atvinnurekendur. Boðaður var samningafundur milli VR og SA í gær en samn- ingar félagsins runnu út um síðustu mánaðamót. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segist frekar eiga von á því að samningaviðræður VR við atvinnu- rekendur geti tekið skamman tíma. Ólíklegt sé að samningar klárist í þessari viku en það geti þó orðið strax í næstu viku. Gunnar tekur þó fram að menn séu rétt að byrja að ræða saman. „Það er ljóst að við er- um komin á enda í fjölmörgum af okkar kröfum og við munum stilla þeim upp sambærilegt við það sem kom út úr þessum samningi.“ Margar kröfur samhljóða Gunnar segir margar kröfur VR vera samhljóða kröfum Starfs- greinasambandsins og Flóabanda- lagsins og sá samningur marki því svolítið stefnuna fyrir VR. „Þarna er búið að loka ýmsum málum sem ég held að við séum tilbúin að sættast á. En það eru einhver önnur mál sem við vorum með frábrugðin sem við munum vinna í,“ segir Gunnar. Hann nefnir í þessu sambandi hugmyndir VR um að launþegar fengju meira valfrelsi um það hvern- ig þeir taki út umsamdar kjarabæt- ur, þ.e. hvort þeir taki þær alfarið út í launum, lengra orlofi o.s.frv. Þá hafi VR verið með kröfur um leng- ingu á uppsagnarfresti hjá þeim sem hafa langan starfsaldur. Einnig hafi VR viljað fest mark- aðslaunakerfið betur í sessi, þ.e. að skýr niðurstaða fáist úr launavið- tölum innan ákveðins tíma o.s.frv. Þá hafi VR verið með hugmyndir um svokallaða menntareikninga, sem ekki séu inni í samningnum, þ.e. sjóðsöfnun í reikning svo menn með mjög langan starfsaldur geti tekið eitthvert námsorlof til þess að end- urmennta sig. „Það er þó ljóst að þessi samn- ingur einfaldar hlutina að verulegu leyti hjá okkur,“ segir Gunnar Páll. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR Markar að verulegu leyti stefnu VR FINNBJÖRN Hermannsson, for- maður Samiðnar segist ósáttur við framlag ríkisins inn í kjarasamning milli Flóa- bandalagsins, Starfsgreina- sambandsins og Samtaka atvinnu- lífsins. Hann seg- ir að framlagið sé ansi rýrt og miklu minna en Samiðn hafi átt von á og sé tekið mið af skerðingu um áramótin sé ríkið að- eins að bæta við 0,05%. Samningar Samiðnar voru lausir frá 1. febrúar og ætlar félagið að óska eftir fundi með atvinnurekendum innan skamms þegar búið er að fara yfir ákveðna útreikninga í tengslum við forsendur samningaviðræðna. Ríkið leggur fram nánast það sem það tók um áramótin „Við lögðum upp með kröfum um jöfnun lífeyrisréttinda og hluti af launafólkinu, sem er með ríkið sem atvinnurekenda, er með verðtryggða sjóði og ábyrgð ríkisins á þeim og við ætluðumst til þess að ríkið kæmi myndarlega að okkar sjóðum líka. En það sem ríkið er að leggja inn í sjóðina er nánast það sem þeir tóku af okkur núna um áramótin,“ segir Finnbjörn. „Okkar gleggstu reikni- meistarar hafa fundið það út að það er 0,05% sem þeir eru að bæta í. Og það er ekkert stórkostlegt.“ Finnbjörn minnir á í þessu sam- bandi að mótframlag ríkisins á móti séreignasparnaðinum, sem tekið hafi verið af tryggingargjaldi, hafi verið tekið af um áramótin. „Við er- um því að fara í gegnum fyrstu samninga þar sem í rauninni er kjararýrnun við lok samningstíma- bils og þetta eru þeir að koma með til baka. Við teljum það ansi rýrt.“ Sérákvæði um erlenda starfs- menn dugar Samiðn ekki Spurður um áhrif kjarasamnings- ins segir Finnbjörn að hann þrengi aðeins rammann sem Samiðn hafi til ráðstöfunar; atvinnurekendur taki að sjálfsögðu mið af því sem þeir hafi samið um við Starfsgreinasamband- ið og Flóabandalagið. „En við erum með allt öðruvísi uppbyggingu á okkar kröfugerð þannig að það bindur atvinnurek- endur ekkert. Þessi samningur hjálpar okkur að því leyti að þarna voru menn að leggja í vinnu varð- andi taxtabreytingar og það eru ná- kvæmlega sömu kröfur og við erum með uppi, þ.e. að færa taxtana nær greiddum launum. Við lítum því björtum augum á að við fáum svip- aðar trakteringar og Starfsgreina- sambandið hvað það varðar. Að öðru leyti semjum við á eigin forsendum,“ segir hann. Spurður um sérákvæði um erlenda starfsmenn segir hann það ákvæði hafa verið sameiginlegt hjá öllum. „Það dugar okkur ekki en það bindur okkur ekki heldur. Við munum bara byggja ofan á það.“ Finnbjörn Hermannsson, formaður Samiðnar „Framlag ríkis- ins ansi rýrt“ AÐ mati Starfsgreinasambandsins mun nýundirritaður kjarasamningur skila félagsmönnum sínum 1–2% kaupmáttaraukningu á samnings- tímanum en heildarlaunahækkanir á samningstímanum eru 14%. Samtök atvinnulífsins telja að heildarkostn- aðaráhrif samninganna séu u.þ.b. 15,2% á samningstímanum en Starfsgreinasamabandið telur þau vera 15,7%. Sameiginlegt mat samningsaðila á kostnaðaráhrifum nýrrar launatöflu er að frá gildistöku samninganna nemi kostnaður 1,0% og aftur 1,0% hinn 1. janúar 2006 en meðal þeirra breytinga sem koma til fram- kvæmda við gildistöku samninganna og aftur 1. janúar 2006 er tilfærsla úr hvers konar bónus- og álags- greiðslum í taxtakaup. Aðilar innan verkalýðshreyfingarinnar segja fjár- málaráðuneytið meta kostnað sinn vegna samninganna „ákaflega rúmt“ en fjármálaráðherra hefur sagt kostnaðinn vera 2,5–3 milljarða á ári. „Við reiknum með 1–2% í kaup- máttaraukningu á launin að meðal- tali að ári að gefnum forsendum,“ segir Kristján Bragason hjá Starfs- greinasambandinu. „Við erum að tala um að upphafshækkun launa í dag sé á bilinu 3,25% og allt upp í 7%.“ Kristján segir menn meta kaupmáttaraukninguna á bili þar sem það sé misjafnt hvað samningar skili fólki miklum hækkunum. „Það er launataflan sem gerir það og inn- færsla í hana. Þetta 1% sem er verið að tala um núna í töflunni getur verið að koma á einstaklinga sem 0% og upp í 3% en meðaltalið er 1%.“ Morgunblaðið/Ásdís Kaupmáttur talinn aukast um 1 til 2%                      ! "# "# # # $$#   % & $# $# #$ '( % # # $#$ !) ( *+  # #$ #$  (    #$ #$ ) )  #", "# "#- #- $# ( ! !  * )   $.   $. * .  $. * .  $. * .  $.  $".  $.  $-.  &   / &    &    &    &    "-.  ",.  .  $.-  / $.   $.   $.   $.   $.$  $.-  .  ".  &      0 1  2 332+ 4  332+ /

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.