Morgunblaðið - 09.03.2004, Page 53

Morgunblaðið - 09.03.2004, Page 53
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2004 53 Akrýl innimálning Gljástig: 3, 7 og 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. M ál nin gartilbo ð Allar Teknos vörur framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli SÍMI 530 1500 Laugavegi 32 sími 561 0075 STÓRSVEIT Reykjavíkur réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur á fyrstu tónleikum sínum á þessu ári. Stórsveitartónlist Dizzy Gillespie; hvorki meira né minna. Að flytja þessi verk er ekki minna afrek en þegar Sinfónían er að kljást við Sjostakóvíts. Þetta hefði aldrei tek- ist með þeim glæsibrag sem heyra mátti í Gyllta salnum á Hótel Borg ef ekki hefði verið stjórnandinn Greg Hopkins. Þetta er í fjórða skipti sem hann stjórnar Stórsveit- inni og hefur ekki tekist betur upp hérlendis – nema ef vera skyldi á Woody Herman-tónleikunum í Kaffileikhúsinu. Hann er líka fanta- góður trompetleikari einsog heyra má m.a. á Septet, diski Jóels Páls- sonar. Fyrsta stórsveit Dizzy, sem starfaði með hléum frá 1946 til 1949, var ein magnaðasta stórsveit djass- sögunnar. Hún var ólík öllu sem áð- ur hafði heyrst og naut ekki mikilla vinsælda, dýr í rekstri og bar sig ekki, en hver og einn sem sveitina skipaði var fullur eldmóðs og þegar best lét var krafturinn slíkur að það var einsog að listtrylltum villidýrum hefði verið hleypt úr búri: „One bass hite“, „Two bass hite“, „Manteca“, „Night in Tunisia“, „Cuban be“, „Cuban bop“ eru örfá meistaraverk- anna. Útsetjarar voru frábærir þótt hlutur Gil Fullers hafi verið mestur. Seinn var Dizzy oft með stórsveitir, en engin stóðst þeirri fyrstu stór- brotnu byltingarsveit snúning. Það var því við hæfi að Stórsveit Reykjavíkur hæfi leikinn á klassík: „Two bass hit“. Þetta var gamla góða útsetningin með trompetana í aðalhlutverki og svo heyrðist meir að segja í gítar, meira en sagt verður á gömlu RCA-upptökunum þar sem John Collins sló gítarinn með Dizzy. Snorri Sigurðarson blés lipran trompetsóló og Sigurður Flosason lét blúsinn skína í altósóló sínum. Eftir þennan kraftbirting var haldið nær nútímanum þegar Benny Gol- son skrifaði fyrir Dizzy og lék band- ið meistaraverk hans: „Whisper not“. Það hljómar að vísu alltaf best með djasssendiboðum Art Blakeys, en hér blésu Sigurður og Ólafur Jónsson fimlega. Greg hvíldi stór- sveitina í næsta ópus, „Salt pea- nuts“, og lék með hrynsveitinni, Flosasyni og Pálssyni. Reyndi hann að virkja tónleikagesti í að syngja viðlagið „Salt peanuts“ tvítekið en tókst það ekki frekar en Dizzy sjálf- um í Háskólabíói fyrir rúmum ald- arfjórðungi. Íslendingum lætur best að hlusta án þátttöku. Smásveitin lék líka „Night in Tunisia“ og Greg blés ótrúlega fallega meistaraverk Monks, sem Dizzy blés óteljandi sinnum bæði með og án stórsveitar, „Round midnight“. Það var ekki allt jafngott á þess- um hljómleikum. Fyrsti ópus eftir hlé skrifaður af Dizzy-geggjaranum Jon Faddis var heldur sviplaus og ópusinn „Quincey’s tune“ eftir sam- nefndan trompetleikara Dizzys og útsetjara, seinna frægastur fyrir kvikmyndatónlist og Michael Jack- son, voru ekki athyglisverðir. En sem betur fer var fleira flutt frá gullaldardögunum: „Manteca“, meistaraverkið magnþrungna, þar sem Pétur Grétarsson og Jóhann Hjörleifsson léku listilega saman og Stefán S. Stefánsson blés fínan bari- tonsaxsóló með gullínskum blæ. „Cuban be“, „Cuban bop“ eftir George Russell var líka á dagskrá, en dálítið breytt því engin var Chano Pozo söngurinn. „One bass hite“ var leikin og Birgir Bragason í hlutverki Ray Browns þótt tónninn væri ólík- ur. Þar blés Björn R. Einarsson bás- únusóló og er það makalaust að þessi meistari skuli enn blása af því- líkum eligans einsog þarna mátti heyra. Þetta var líka söguleg stund því örfáum árum eftir að Dizzy hafði frumflutt helstu verk sín með stór- sveit sinni var Björn R. farinn að spila þau í Reykjavík í útsetningu fyrir átta manna hljómsveit og er sumt varðveitt á lakkplötum – og trúlega hljómuðu þau einhverntíma í Gyllta salnum. Síðasta verkið á efnisskránni var syrpa sem Greg Hopkins hafði sett saman úr frægum Dizzy-ópusum; „Hot house“ (eftir Tad Dameron), „Con Alma“ og „Things to come“ og í því síðastnefnda blómstraði gamla stórsveitarútsetningin og Jóel Páls- son og Ólafur Jónsson stórkostlegir í samleik sínum, hvort það voru 8/8 með hrynsveit, 4/4 með slagverki eða bara þeir tveir. Þessir tónleikar færðu sönnur á það að Stórsveit Reykjavíkur er fær um að fást við það erfiðasta sem stórsveitarbókmenntir djassins hafa upp á að bjóða þegar góðir menn eru við stjórnvölinn. Kveðjulag Dizzys var leikið í lokin, „I wait for you“, og óhætt er að segja að beðið verður með eftirvæntingu eftir að Greg Hopkins komi aftur með nýja efnis- skrá. Hann hefur stjórnað hér verk- um af efnisskrá Dizzy, Woody Her- mans og Buddy Rich. Hvernig væri að fá Thad Jones næst? Vonandi sjá tónvís stórfyrirtæki tækifærið mikla til að styrkja slíka tónleika. Trylltur Dizzy á Borginni Tónleikar Hótel Borg Einar St. Jónsson, Eiríkur Örn Pálsson, Kjartan Hákonarson, Snorri Sigurðarson og Örn Hafsteinsson trompetar; Edward Frederiksen, Björn R. Einarsson og Sig- urður Þorbergsson básúnur; David Bobr- off bassabásúnu; Sigurður Flosason, Stefán S. Stefánsson, Ólafur Jónsson, Jó- el Pálsson og David Tompkins saxófónar, flautur og klarinettur; Ástvaldur Trausta- son píanó, Birgir Bragason bassi, Jóhann Hjörleifsson trommur og Pétur Grét- arsson kongótrommur. Stjórnandi Greg Hopkins sem einnig blés í trompet og flygilhorn. Sunnudaginn 29.2. 2004. Stórsveit Reykjavíkur og Greg Hopkins Vernharður Linnet Fyrirsætan Tyra Banks segir að keppinautur hennar fyr- irsætan Naomi Campell sé ill- gjörn. Tyra, sem er þrítug, segir að Naomi, sem er 33 ára, hafi gert henni svo margan grikkinn að hún hafi íhugað að gefast upp og hætta í fyrirsætubransanum. „Hún fór illa með mig á margan hátt, eins og með því að láta reka mig úr sýningum af því hún var frægari en ég. Þetta varð svo slæmt að ég hringdi í mömmu mína og sagði henni að mig langaði mest til að gefast bara upp,“ segir Tyra. Þá segist hún svo þreytt á prímadonnustælum Naomi að hún þoli ekki að vera nálægt henni. Frásagnir af ósætt- inu á milli fyrirsætnanna tveggja komu fyrst fram í ævisögu Naomi sem hún hafði ekki samþykkt að yrði gefin út. Naomi er alþekkt fyrir að gera fá- ránlegar kröfur auk þess sem hún heimtar alltaf að vera síðust inn á pallinn og út af honum á tískusýn- ingum. Nú síðast hætti hún á síð- ustu stundu við að vera kynnir á bresku tónlistarverðlaunahátíðinni fyrir skömmu, er hún komst að því að hún átti að deila búnings- herbergi með annarri manneskju. Þá var hún eitt sinn handtekin eftir að hafa tek- ið aðstoðarkonu sína hálstaki og ráðist á hana með síma … Madonna und- irbýr nú tón- leikaferð um heiminn og segja breskir fjöl- miðlar að ferðin muni hefjast í Slane-kastala á Írlandi. Þessi kast- ali, sem stendur á bakka árinnar Boyne, hefur verið vinsæll áfanga- staður heimsfrægra poppstjarna en tónleikasvæðið þar rúmar um 100 þúsund áhorfendur. Til þessa hefur mikil leynd hvílt yfir áformum Madonnu um tón- leikaferð, en dagblaðið Daily Star hefur eftir heimildarmönnum að á tónleikunum ætli Madonna að flytja mörg af sínum þekktustu lögum og búningarnir verði byggð- ir á tísku síðustu aldar. Madonna hefur ekki farið í tón- leikaferð síðan árið 2001 þegar hún hélt 48 tónleika undir yfir- skriftinni Drowned World. Hún hefur á síðustu árum einbeitt sér að uppeldi barna sinna, þeirra Lourdes og Rocco en Madonna er gift leikstjóranum Guy Ritchie … Lögregla í New York handtók söngvarann Dav- id Crosby eftir að pakki sem innihélt mari- júana, hníf og skammbyssu fannst í farangri hans. Crosby hafði skilið farangurinn eftir á hót- eli, en starfsfólk fann pakkann sem var talinn grunsamlegur. Lögreglu var gert viðvart og kom þá efnið, hnífurinn og skamm- byssan í ljós. Söngvarinn, sem er 62 ára, var handtekinn þegar hann hugðist ná í farangur sinn, en sleppt úr haldi gegn tryggingu. Crosby, sem átti þátt í stofnun The Byrds og Crosby, Stills, Nash and Young, á yfir höfði sér sjö ára fangelsi verði hann fundinn sekur um ólöglega vopnaeign. Hann hefur nú þegar þurft að dúsa í fangelsi fyrir vörslu fíkniefna … Nicole Kidman mun ef til vill leika í nýrri kvikmynd sem gera á eftir skáldsögunni Ljónið, nornin og skápurinn eftir C.S. Lewis. Kidman fór nýlega í þyrlu að skoða fyrirhugaða tökustaði mynd- arinnar á Nýja-Sjálandi. Heimild- armenn segja að hún muni taka að sér hlutverk hvítu nornarinnar illu sem notar krafta sína til að halda ævintýralandinu Narníu í helj- argreipum svo þar ríkir eilífur vet- ur. Sagt er að börnin hennar tvö sem eru níu og ellefu ára hafi hvatt hana til að taka að sér hlut- verkið en þau eru miklir aðdá- endur bókanna um Narníu. Leikkonan Sarah Jessica Parker er að skrifa bók. Eftir að hafa leikið í lokaþætti sjónvarpsþátta- raðarinnar Beð- mál í borginni, ákvað hún að gerast rithöf- undur. Er hún þar með að feta í fótspor Carrie Bradshaw, aðal- persónunnar sem hún leikur í þáttunum vinsælu. Hún er hálfnuð með bókina sem að sögn hennar fjallar um sjónvarpsstjörnu sem mátt hefur muna fífil sinn fegri en fær allt í einu tækifæri til að kom- ast í sviðsljósið á ný. Parker er einnig í óðaönn við að undirbúa kvikmyndina sem byggð er á Beð- málum í borginni … FÓLK Ífréttum flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.