Morgunblaðið - 09.03.2004, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.03.2004, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ „SALAN á Festi kollvarpar allri þeirri uppbyggingu sem við höfum staðið fyrir á Djúpavogi. Áætlanir okkar miðuðust við að þessi félög störfuðu þarna saman og þær eru nú brostnar. Það má því segja að þeir fjármunir sem við lögðum í starf- semina séu foknir út í vindinn,“ segir Pétur H. Pálsson, framkvæmda- stjóri Vísis hf., sem starfrækir m.a. síldarvinnslu á Djúpavogi. Vísir hóf uppbyggingu síldar- vinnslu á Djúpavogi fyrir um fimm árum og hefur átt í nánu samstarfi við Festi sem starfrækir fiskmjöls- verksmiðju á staðnum. Hefur Vísir m.a. lagt uppsjávarveiðiskipi Festar, Erni KE, til veiðiheimildir gegn því að aflanum sé lagt upp og hann unn- inn á Djúpavogi. Vísir er stærsti at- vinnuveitandinn á Djúpavogi. Hann segist aðspurður ekki sjá fyrir sér samskonar samstarf við annað sjáv- arútvegsfyrirtæki en vill þó ekki taka svo djúpt í árinni að Vísir hætti allri starfsemi á Djúpavogi. „Það er hins vegar ljóst að það sem við höf- um verið að gera á Djúpavogi til þessa er fyrir bí. Þetta er að mínu mati versta niðurstaðan fyrir bæði okkur og byggðarlagið,“ segir Pétur. „Okkur hefur verið kunnugt um þessi viðskipti í tiltölulega skamman tíma og erum núna að vinna í þessum málum. Það er því lítið hægt að segja um stöðuna enn sem komið er. Þó má segja að allar breytingar frá því sem verið hefur veki hjá okkur ákveðinn ugg,“ segir Björn Hafþór Guð- mundsson, sveitarstjóri á Djúpavogi. Ætla má að fiskmjölsverksmiðja Festar á Djúpavogi skapi 15–20 heilsársstörf í byggðarlaginu en Björn Hafþór segir að ekkert sam- ráð hafi verið haft við sveitarfélagið í aðdraganda sölunnar á Festi. „Okk- ur virðist að einhver breyting geti orðið á starfsemi fyrirtækisins á Djúpavogi. Við höfum rætt við ýmsa aðila sem tengjast málinu, enda skiptir þetta fyrirtæki verulegu máli fyrir sveitarfélagið, rétt eins og öll atvinnutækifæri sem hér eru,“ segir Björn Hafþór. Kollvarpar allri upp- byggingu á Djúpavogi TÖLUVERÐAR breytingar verða á stjórn SH eftir aðalfund félagsins sem haldinn verður næstkomandi föstudag. Af sjö núverandi stjórnar- mönnum hverfa fjórir úr stjórninni, þeirra á meðal Róbert Guðfinnsson, formaður stjórnarinnar. Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er runninn út og eru eftirtaldir í framboði: Árni Tómasson, Hraun- braut 20, Kópavogi; Baldur Örn Guðnason, Hjarðarlundi 11, Akur- eyri; Eiríkur Jóhannsson, Eikar- lundi 21, Akureyri; Guðmundur Kristjánsson, Granaskjóli 64, Reykjavík; Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, Blikanesi 23, Garða- bæ; Hjörleifur Jakobsson, Heiðarási 25, Reykjavík; Þórður Már Jóhann- esson, Mánalind 5, Kópavogi. Eftir kaup SÍF á ríflega 23% hlut af Íslandsbanka og Sjóvá-Almenn- um, tilnefndi SÍF þá Árna Tómasson og Hjörleif Jakobsson til stjórnar- setu. Gunnlaugur Sævar og Þórður Már sitja áfram, en Guðmundur og Hjörleifur koma nýir inn. Úr stjórninni hverfa nú Róbert Guðfinnsson, formaður, Guðbrandur Sigurðsson, Haraldur Sturlaugsson og Rakel Olsen. Gera má ráð fyrir að viðræður um samruna félaganna hefjist nú á nýj- an leik, en síðustu tilraunir til að sameina félögin runnu út í sandinn síðastliðið haust. Í kjölfar þeirra náði S-hópurinn svokallaði yfirhöndinni í SÍF, en hann var á móti sameiningu þá. Ólafur Ólafsson, stjórnarformað- ur SÍF, hefur lýst áhuga sínum á að kaupa hlut Landsbankans í SH, en hann er annar stærsti hluthafinn á eftir Burðarási með 26,7%. Tilraunir til sameiningar síðastliðið haust voru að frumkvæði Landsbankans og því ætti fátt að vera því til fyrirstöðu að SÍF geti eignast hlut hans. Væri SÍF þá komið með ríflega 49% og skylt til þess að bjóða eftirstandandi hluthöf- um að kaupa hlut þeirra á sama gengi og keypt yrði á af Landsbank- anum. Landsbankinn á töluverðra hagsmuna að gæta í SÍF vegna mik- illa viðskipta og hefði það getað ýtt undir sölu til SÍF. Miklar breyting- ar á stjórn SH               !  " # !$    %%  $& '())) # "*  +( $ ! # , +( $ % ") -.  .+ "* $&              "!# $ %& '   Fjórir af sjö núverandi stjórnar- mönnum hætta, þar á meðal núverandi stjórnarformaður ÚR VERINU KRISTJÁN Ragnarsson, fráfarandi formaður bankaráðs Íslandsbanka, gagnrýndi viðvaranir og ábendingar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeft- irlitsins, á fjölmennum aðalfundi Ís- landsbanka sem haldinn var í gær. Hann sagði að þessar stofnanir ættu ekki að setja fram almennar að- finnslur um fjármálafyrirtæki, held- ur að beina þeim að þeim fjármála- fyrirtækjum sem aðfinnslurnar ættu við. Hann sagði ennfremur að ef hafa ætti virkt fjármálaeftirlit þyrfti aðgerðir í stað orða. Kristján, sem setið hefur í banka- ráði Íslandsbanka í fjórtán ár og þar af verið formaður bankaráðsins í tólf ár, gaf ekki kost á sér til áframhald- andi setu í bankaráðinu að þessu sinni. Hann kom víða við í ræðu sinni, fór meðal annars yfir stöðu efnahagsmála og sagði horfur í ís- lensku efnahagslífi gefa tilefni til bjartsýni um framtíðina. Vegna hættu á þenslu í tengslum við stór- iðjuframkvæmdir yrði aðhald í op- inberum fjármálum ríkis og sveitar- félaga hins vegar sérstaklega mikilvægt og úr hagþróun síðasta árs mætti lesa ákveðna vantrú á hagstjórninni, sem lýsti sér meðal annars í gengisþróun krónunnar. Kristján sagði afkomuþróun hafa verið afar mismunandi eftir atvinnu- greinum að undanförnu og þetta kynni að leiða til ójafnvægis í hag- kerfinu, sem erfitt gæti verið að leið- rétta án þess að til kæmi rýrnun kaupmáttar, aukið atvinnuleysi og í versta falli stöðnun og jafnvel sam- dráttur. Í hratt vaxandi viðskipta- halla undanfarið mætti því miður sjá ákveðnar vísbendingar í þessa átt. Kristján ræddi afkomu og fjár- hagsstöðu bankans, sem hann sagði hafa verið einstaklega góða í fyrra, þegar hagnaður eftir skatta hefði verið 5.835 milljónir króna. Hann ræddi útlánaaukningu bankans, sem hefði verið veruleg, og í árslok hefði um þriðjungur útlánanna verið til erlendra fyrirtækja. Hann tók sér- staklega fram að útlán bankans væru mjög vönduð og ekki ástæða til að ætla að til óvæntra útlánatapa þyrfti að koma í næstu framtíð. Í ræðu Bjarna Ármannssonar, forstjóra bankans, kom fram að framlag í afskriftareikning hefði hækkað um 31% milli ára og aukin framlög mætti rekja til mikils vaxtar útlána og væntra útlánatapa vegna rekstrarerfiðleika viðskiptavina. Hann sagði einnig að vanskil í bank- anum hefðu haldið áfram að lækka og þau væru nú hlutfallslega mun minni en almennt í bankakerfinu. Gagnrýni á eftirlit Í ræðu sinni setti Kristján Ragn- arsson fram gagnrýni á viðvaranir Seðlabankans og ábendingar Fjár- málaeftirlitsins. Kristján sagði Seðlabankann hafa séð ástæðu til að vara íslensk fjármálafyrirtæki við því að taka of mikil erlend lán og að Seðlabankinn hefði bent á að hann teldi að erlend lán bankanna væru til of skamms tíma. „Telja verður óeðli- legt að slíkar viðvaranir séu settar fram með almennum orðum í stað þess að beina þeim til þeirra fjár- málastofnana sem hann telur hafa þörf fyrir þessar viðvaranir. Nær væri að Seðlabankinn gripi til þeirra ráðstafana sem hann hefur að lögum til að koma í veg fyrir að þessi mál þróist með óeðlilegum hætti. Ekki er ástæða fyrir Íslandsbanka að taka þessar viðvaranir til sín, því þessum málum er vel skipað í bankanum,“ sagði Kristján, og bætti því við að al- þjóðlega matsfyrirtækið Moody’s, sem metur lánshæfi allra stóru bankanna hér á landi, mæti lánshæfi Íslandsbanka hærra en hinna bank- anna. Kristján gagnrýndi einnig að Fjármálaeftirlitið hefði látið það álit í ljós að þörf væri á að gera kröfur til þess að lögbundið eiginfjárhlutfall væri hærra hjá einstökum fjármála- fyrirtækjum en almennt gerist til að mæta áhættu á töpuðum útlánum. „Það hefur þó ekkert aðhafst í þessu sambandi,“ sagði Kristján. „Ábend- ingar eins og þessar koma að litlu gagni ef þeim er ekki beint til þeirra fjármálafyrirtækja, sem eftirlitið telur hafa þörf fyrir að hafa hærra eiginfjárhlutfall en almennt er kraf- ist. Ef við ætlum að hafa virkt fjár- málaeftirlit þarf aðgerðir í stað orða.“ Ásælni Landsbankans Kristján fjallaði einnig um vær- ingar á íslenskum fjármálamarkaði, sem hefðu meðal annars komið fram í ætlaðri yfirtöku KB banka á Spari- sjóði Reykjavíkur og nágrennis. Við- brögð Alþingis við þessu hefðu verið óvenjuleg og ástæða væri til að efast um að löggjöfin yrði sparisjóðunum eða viðskiptavinum þeirra til fram- dráttar til lengri tíma litið. Þá sagði Kristján að ásælni Landsbankans í hlutabréf í Íslands- banka nýlega, og síðar ráðstöfun bréfanna, hefði vakið athygli. „Látið er að því liggja að þeir kjósi sam- starf við okkur á einhverjum óljós- um sviðum, en af þeirri reynslu sem við höfum af samstarfi við forsvars- menn Landsbankans tel ég heppi- legast að við vinnum að okkar mark- miðum án tengsla við þá,“ sagði Kristján. Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís- landsbanka, tók til máls að lokinni ræðu formanns bankaráðs og nefndi meðal annars að auk þess sem nú væri unnið að samþættingu banka- og vátryggingaþjónustu væri unnið að útvíkkun á fjárfestingarbanka- starfseminni hér á landi og erlendis. Hann sagði mikilvægt fyrir Íslands- banka að halda áfram að vaxa og nýta sem best þekkingu sína á helstu fagsviðum, svo sem í fiskiðn- aði víða um heim. „Að sama skapi þarf að huga að öðrum tækifærum, sem í ákveðnum tilvikum kunna að þýða meiri áhættutöku en að sama skapi meiri möguleika á ávinningi. Með öðrum orðum, það er ekki nóg að hafa sterka stöðu, það þarf jafn- framt að nýta hana til frekari sókn- ar,“ sagði Bjarni. Hann sagði að í kjölfar sölunnar á fjórðungshlut bankans í Straumi Fjárfestingarbanka væri rökrétt að bankinn legði aukna áherslu á upp- byggingu innan samstæðu Íslands- banka á starfsemi sambærilegri við þá sem Straumur sinnir. Fráfarandi formaður bankaráðs Íslandsbanka gagnrýndi Seðlabanka og Fjármálaeftirlit á aðal- fundi bankans í gær  Forstjóri bankans boðar aukna áherslu á fjárfestingarbankastarfsemi Aðgerðir í stað orða Morgunblaðið/Jim Smart Kristján Ragnarsson, fráfarandi formaður bankaráðs Íslandsbanka, segir að af fenginni reynslu sé heppilegast að Íslandsbanki vinni að markmiðum sínum án tengsla við Landsbankann. Á myndinni eru, frá hægri, Kristján Ragn- arsson, Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, og Einar Sveinsson, nýkjörinn formaður bankaráðsins. Á FUNDI bankaráðs Íslandsbanka, sem haldinn var í kjölfar aðal- fundar bankans í gær, var Einar Sveinsson kjörinn formaður banka- ráðsins, en hann tilkynnti jafnframt í gær að hann hygðist láta af störf- um sem forstjóri Sjóvár Almennra. „Ég von á að það öfluga starf sem hefur verið unnið innan Íslands- banka haldi áfram á svipuðum nót- um og verið hefur, en með nýjum mönnum koma nýjar áherslur. Ég lít björtum augum til framtíðar og tel að bankinn eigi alla möguleika á að vera öflugur sem hingað til,“ sagði Einar Sveinsson í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að framundan væru talsverð tímamót. Hann hefði verið forstjóri Sjóvár Almennra í 20 ár og starfsmaður þar í 32 ár. „Mér finnst eðlilegt að standa upp úr stólnum nú þegar félagið er orðið dótt- urfélag Íslandsbanka.“ Í bankaráð Íslandsbanka voru auk Einars kjörnir Guðmundur B. Ólafsson, Helgi Magnússon, Jón Snorrason, sem var kjörinn vara- formaður, Karl Wernersson, Orri Vigfússon og Víglundur Þor- steinsson. Varamenn voru kjörnir Bjarni Finnsson, Guðmundur Ás- geirsson, Halldór Björnsson, Hall- dóra Þórðardóttir, Hilmar Pálsson, Jón Bjarni Gunnarsson og Vil- mundur Jósefsson. Einar Sveinsson kjörinn formað- ur bankaráðs – hættir hjá Sjóvá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.