Morgunblaðið - 09.03.2004, Side 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2004 41
✝ Hjördís Gunn-arsdóttir fæddist
að Hrafnagili í Lax-
árdal í Skagafirði 4.
ágúst 1919. Hún lést
á lyflækningadeild
St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði 2. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru
Gunnar Guðmunds-
son, f. á Hóli í Skaga-
firði 27. júní 1898, d.
30. júlí 1976 og Guð-
rún Jónsdóttir, f. í
Bakkakoti í Vestur-
dal í Skagafirði 28.
september 1883, d. 11. júlí 1973.
Systkini Hjördísar sammæðra eru:
Sigurjón Sveinsson, f. 13. júní
1908, Helga Guðrún Sveinsdóttir,
f. 29. apríl 1911, d. ungbarn,
ber 1916. Foreldrar hans voru Sig-
mar Þorleifsson, f. að Hrauni í
Unadal í Skagafirði 15. október
1890 og Kristjana S. Guðmunds-
dóttir, f. í Svínavallakoti í Unadal í
Skagafirði 14. september 1888.
Börn þeirra Hjördísar og Finn-
boga eru: 1) Birgir kennari og eig-
andi Súfistans, f. 18. september
1948, kvæntur Hrafnhildi Blomst-
erberg kórstjóra, f. 22. október
1956. Börn þeirra eru a) Valgerð-
ur líffræðingur, f. 6. september
1976, sambýlismaður Davíð Smári
Jóhannsson flugstjóri, f. 7. janúar
1976, og b) Hjördís, f. 20. janúar
1982. 2) Lilja María kennari, f. 15.
júní 1952, gift Árna Baldurssyni
flugumferðarstjóra, f. 9. ágúst
1960. Börn þeirra eru Elva, f. 5.
júní 1985 og Finnbogi, f. 14. des-
ember 1988.
Hjördís og Finnbogi bjuggu alla
sína tíð að Garðavegi 15 í Hafn-
arfirði.
Útför Hjördísar verður gerð frá
Víðistaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Hjálmar Sveinsson, f.
14. janúar 1913, Helga
Guðrún Sveinsdóttir,
f. 3. júní 1914, d. 12.
júlí 2002, Jónas
Björnsson, f. 14. jan-
úar 1924, Hilmar
Björnsson, f. 31. jan-
úar 1926, d. 7. apríl
1996, Sigurður
Björnsson, f. 3. ágúst
1927, d. 4. febrúar
1993 og Guðrún
Björnsdóttir, f. 23.
mars 1929. Systkini
Hjördísar samfeðra
eru: Helgi Guðmund-
ur, f. 2. desember 1921 og Árni, f.
9. september 1936.
Hjördís giftist 12. janúar 1946
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Finnboga Sigmarssyni, f. 31. októ-
Hjördís móðursystir mín var
uppáhaldsfrænka mín. Það var mik-
ill samgangur á milli heimila okkar
og á ég góðar minningar um sam-
verustundirnar. Það var alltaf
spennandi að fá að fara í heimsókn á
Garðaveginn, hvað þá að að gista
sem ég fékk æði oft. Seinna var það
svo stolt stelpa sem gat farið ein með
strætó frá Garðahreppi til Sjónar-
hóls og labbað þaðan niður á Garða-
veg. Og ekki sakaði að Hjördís átti
alltaf til brúntertu!
Meðan ég stundaði nám í Reykja-
vík átti ég mér herbergi hjá Hjördísi
og Finnboga, og það var komið fram
við mig eins og ég væri „litla systir“
Lilju og Bigga. Þar sem Hjördís var
hláturmild og hress kona var oft
glatt á hjalla hjá okkur á Garðaveg-
inum. Þá var helst setið upp á borð-
um í eldhúsinu og margt spjallað.
Alltaf gátum við fengið Hjördísi til
að hlæja. Ekkert var eins skemmti-
legt og að segja henni einhverja
„krassandi“ sögu og heyra hana svo
hlæja hjartanlega og „jesúsa“ sig af
hneykslun inn á milli.
Hjördís elskaði að spila vist og ár-
um saman var það besta skemmtun
hennar, Boggu, Sillu og mömmu.
Það var ótrúlegt hvað þær skemmtu
sér vel, hlátrasköllin heyrðust langt
að, fyrir utan að það var náttúrulega
barið í borðið til að leggja áherslu á
„sögnina“, ekki síst þegar „al-
slemma“ var á ferðinni. Henni
fannst einnig mjög gaman að dansa
og fylgdist alltaf vel með okkur Lilju
dansa „jive“ heima í stofu með til-
þrifum svo ég tala nú ekki um „læra-
dansinn“ fræga sem hún grenjaði af
hlátri yfir. Kynni mín af Hjördísi
hafa alltaf verið góð og ánægjuleg og
þeim gleymi ég aldrei.
Hún var alltaf fín, hávaxin og
grönn og hélt reisn sinni þrátt fyrir
erfið veikindi árum saman. Ég kveð
frænku mína með þakklæti, virðingu
og miklum hlýhug. Elsku Finnbogi,
Birgir, Lilja og fjölskyldur, ég færi
ykkur mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Jensína Waage.
Ör var lundin, örlát höndin
úrræði jafnan stóðu’ á verði
hægri vissi’ ei haukaströndin
hvað sú vinstri stundum gerði,
sem fjöður lipur léttu geði
lífgaðirðu upp þín heimakynni
fór þar saman festa og gleði
fagnaðarbót var að návist þinni.
(Fornólfur.)
Hjördís móðir æskuvinkonu minn-
ar Lilju hefur kvatt þetta líf. Mér er
þakklæti, innilegt þakklæti efst í
huga allt frá fyrstu kynnum til síð-
asta dags.
Hjördís var af þeirri kynslóð sem
varð algjörlega að treysta á mátt
sinn og megin í lífinu, fór barnung að
vinna fyrir sér að hætti þess tíma. Þá
reyndi á það veganesti sem hún hafði
hlotið, mikla glöggskyggni, umburð-
arlyndi, heiðarleika og heilbrigt gild-
ismat fólgið í andúð á hræsni og yf-
irborðsmennsku. Þessir eiginleikar
mótuðu alla tíð allt hennar umhverfi.
Heimili hennar og Finnboga stóð
að Garðavegi 15 í Hafnarfirði. Í hug-
um okkar vina barna hennar Birgis
og Lilju, var Garðavegurinn fé-
lagsmiðstöð okkar á unglingsárun-
um.
Við vinkonurnar hittumst þar áð-
ur en farið var út að skemmta sér,
höfðum okkur til með aðstoð Hjör-
dísar sem hjálpaði til við hár-
greiðslu, festa tölur, gera við
saumsprettur, færði okkur mat og
drykk og hrósaði okkur stöðugt á
meðan á þessum mikilvæga undir-
búningi stóð.
Þar voru líka haldnar ófáar veisl-
urnar þar sem var sungið, spilað og
dansað.
Hjördís og Finnbogi tóku þátt í
gleðskapnum með okkur sem vinir
okkar og félagar án nokkurra for-
dóma. Þarna var ekki til kynslóðabil.
Oft á tíðum var heill skari af vinum
Lilju sem og handboltalið FH enda
Birgir landskunnur markmaður liðs-
ins um langt skeið. Allir voru vel-
komnir og rúm fyrir alla hvenær
sem var.
„Til góðs vinar liggja gagnvegir“
og var ég nánast daglegur gestur á
Garðaveginum öll mín unglingsár.
Hvergi var brúntertan betri sem og
kanilsnúðarnir og annað bakkelsi.
Þegar síðar úthöfin skildu að um
tíma sendi hún með Lilju minni
tertu, kanilsnúða og líka pönnuköku-
pönnuna.
Hjördís hafði konungshjarta og
var höfðingi í lund. Það stóð bæði af
henni „gustur geðs og gerðarþokki“.
Hún mátti ekkert aumt sjá, var ein-
staklega gjafmild og hreinskiptin í
öllum samskiptum.
Hún lá ekki á skoðunum sínum
enda bráðgreind, minnug og glögg á
menn og málefni. Það var fróðlegt að
hlusta á hana segja frá uppvaxtarár-
um sínum í Skagafirði, kynlegum
kvistum og skemmtilegum uppá-
komum. Rík kímnigáfan var aldrei
langt undan sem og hennar hnyttnu
tilsvör. Allar stundir með Hjördísi
voru gleðistundir.
Alltaf reyndist Hjördís mér sami
góði, heilsteypti vinurinn. Mér
mætti alla tíð sama ástúðin, hlýjan,
góðvildin og einstök umhyggja fyrir
mér og mínum. Hvað er mikilvægara
en vinátta sem hvorki mölur né ryð
fær grandað?
Nú er komið að kveðjustund og
mitt er að þakka fyrir kærleiksríka
samfylgd.
Elsku Finnbogi minn, Lilja, Birg-
ir og fjölskyldur. Þakklæti og virð-
ing hvílir yfir minningu Hjördísar.
Lilja Hilmarsdóttir.
HJÖRDÍS
GUNNARSDÓTTIR Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og amma,
HALLA HERSIR,
elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
áður Miðtúni 3,
Reykjavík
sem andaðist þriðjudaginn 2. mars, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtu-
daginn 11. mars kl. 13.30.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á Grund fyrir hlýju og umhyggju.
Ágústa Edda Sigurjónsdóttir,
Viðar Sigurjónsson, Selma Abasy,
Ómar Sigurjónsson,
Sveinn Sigurjónsson
Andri Örvar Jónasson,
Eirný Halla Ingadóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
FRÍÐAR JÓHANNESDÓTTUR,
sem lést þriðjudaginn 24. febrúar sl.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahlynning-
ar og lyfjadeildar Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri.
Gunnar B. Jóhannsson,
Jóhanna Gunnarsdóttir, Ólafur Þór Kristjánsson,
Karólína Gunnarsdóttir, Gísli Sigurður Gíslason,
Sædís Gunnarsdóttir, Haraldur Þór Egilsson,
Hrönn Haraldsdóttir, Gunnar Björn Ólafsson,
Már Gíslason, Gunnar Breki Gíslason,
Una Haraldsdóttir, Eik Haraldsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför hjartkærs bróður okkar,
RAGNARS JÓNS JÓNSSONAR,
Miðtúni 14,
Tálknafirði.
Halldóra Jónsdóttir,
Ólafur Bárður Jónsson,
Kristín Jónsdóttir.
Lokað
verður í dag, þriðjudaginn 9. mars frá kl. 13, vegna útfarar
RÖGNVALDAR SIGURJÓNSSONAR, píanóleikara og fyrrum
kennara við Tónlistarskólann í Reykjavík.
Tónlistarskólinn í Reykjavík,
Skipholti 33, 105 Reykjavík.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÚLÍANA ÁRNADÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
áður til heimilis
á Kleppsvegi 76,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 10. mars kl. 13.30.
Guðrún Eygló Magnúsdóttir, Hafliði Jónsson,
Bergþór Magnússon, Helga Hákonardóttir,
Auðunn Sigurjónsson,
Ingveldur Jóna Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför systur
minnar,
SVANDÍSAR ELIMUNDARDÓTTUR
frá Dvergasteini,
Hellissandi.
Sérstakar þakkir til Bryndísar og Helga hjá
heimahlynningu, starfsólks DAS, Reykjavík
og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi.
Fyrir hönd ættingja,
Hallbjörn Elimundarson.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför ástkærs fósturföður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
BJARNA GUNNARSSONAR
vélstjóra,
Framnesvegi 63,
Reykjavík.
Oddný Aldís Óskarsdóttir,
Guðný Marta Óskarsdóttir, Hannes Jónsson,
barnabörn og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HAUKUR TRYGGVASON,
Sæbóli,
Dalvík,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
laugardaginn 6. mars, verður jarðsunginn frá
Dalvíkurkirkju þriðjudaginn 16. mars kl. 13.30.
Þuríður María Hauksdóttir, Sigurgeir Söebech,
Gunnlaug Jóhannesína Hauksdóttir, Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Stella Bára Hauksdóttir, Gunnar Gunnarsson,
Hjördís Sigurbjörg Hauksdóttir, Pálmi Björnsson,
Bryndís Anna Hauksdóttir, Stefán Georgsson,
Sigurjóna Hauksdóttir, Ólafur Georgsson,
Kristín Elsa Hauksdóttir, Coloníal W. Robinson,
Hallfríður Jóna Hauksdóttir, Haraldur Gunnþórsson,
Hafliði Jón Hauksson,
Pálína Hauksdóttir, Billi Ronald Lee,
Þórir Magnús Hauksson, Þórunn K. Sigurðardóttir,
afa- og langafabörn.