Morgunblaðið - 09.03.2004, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2004 45
MIÐVIKUDAGINN 10. mars verð-
ur kvöldstund á föstu í Fella- og
Hólakirkju. Sýning á íslenskum út-
gáfum passíusálmanna í eigu sr.
Ragnars Fjalars Lárussonar verður
í safnaðarheimilinu kl. 19–21.30.
Kvöldstund í kirkjunni hefst kl.
20 með forspili Lenku Mátéovu,
organista. Lilja G. Hallgrímsdóttir,
djákni fer með bænaorð. Þátttak-
endur leggja svo steina fyrir fram-
an altarið sem tákn um það að Jesús
sagði að við mættum skilja eftir all-
ar okkar áhyggjur og kvíða hjá sér
og við þurfum því ekki að láta
áhyggjur og mæðu stjórna okkur.
Kór kirkjunnar hefur æft sér-
staka dagskrá fyrir kvöldstundina
ásamt organista þar sem tónlistin
tengist föstunni og túlkar ákall
mannsins og tilbeiðslu til Guðs.
Lovísa Sigfúsdóttir, sópran og Sól-
veig Samúelsdóttir, alt, syngja ein-
söng og Laufey Haraldsdóttir leik-
ur á píanó. Flest eru verkin eftir 20.
aldar tónskáld eins og t.d. norrænu
tónskáldin Kjeld M. Karlsen, Knut
Nystedt og Thrond Kverno en einn-
ig verða flutt verk eftir Mendels-
sohn, John Rutter og John Steiner.
Í þrjár aldir hafa Íslendingar not-
ið passíusálma sr. Hallgríms Pét-
urssonar og sérstaklega lesið og
hlýtt á þá á föstunni. Jón Símon
Gunnarsson, leikari mun lesa
passíusálm eftir sr. Hallgrím á
kvöldstundinni.
Boðið verður upp á kaffi og
svaladrykk í safnaðarheimilinu.
Allir eru hjartanlega velkomnir til
kvöldstundarinnar til að minnast
föstunnar og eiga gott samfélag,
því Guð hefur gefið okkur náð til
þess að geta notið fegurðar og
skemmtunar svo hjörtu okkar verði
opin fyrir gæsku hans.
Þeir sem ekki komast til kirkju á
eigin vegum geta fengið akstur til
og frá kirkju og láti þeir sem þess
óska vita fyrir kl. 15 miðvikudaginn
10. mars í s. 557 3280.
Fella- og Hólabrekkusóknir.
Laugarneskirkja
Aðalsafnaðarfundur
AÐALSAFNAÐARFUNDUR Laug-
arneskirkju verður haldinn á
sunnudaginn 14. mars. Hann hefst í
raun með guðsþjónustu kl. 11 en í
henni munu margir af fyrirliðum
safnaðarstarfsins koma fram og
þjóna. Í lok guðsþjónustunnar
verða allir starfsmenn og sjálf-
boðaliðar safnaðarins kallaðir fram
þeir sýndir, fyrir þá þakkað og fyr-
ir þeim beðið. Aðalsafnaðarfund-
urinn hefst svo formlega kl. 12.30.
Stefnt er að frísklegum fundi þar
sem fluttar verða margar örstuttar
skýrslur. Með því er vonast til að
breidd safnaðarstarfsins og þungi
komi berlega í ljós. Að öðru leyti
verður um hefðbundin aðalfundar-
störf að ræða. Stefnt er að fundar-
slitum ekki síðar en kl. 14. Komið
og upplifið lifandi samfélag þar
sem hver grein á safnaðartrénu fær
að vaxa og þroskast á sinn hátt en
með hagsmuni líkamans alls í huga.
Jesús sagði: „Ég er vínviðurinn,
þér eruð greinarnar. Sá ber mikinn
ávöxt, sem er í mér og ég í hon-
um...“ (Jóhannes 14:5)
Fyrir hönd sóknarnefndar Laug-
arneskirkju,
Sigurbjörn Þorkelsson,
framkvæmdastjóri.
Kvöldstund á
föstu í Fella- og
Hólakirkju
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson
Fella- og Hólakirkja í Efra-Breiðholti.
Áskirkja: Opið hús fyrir alla aldurshópa
milli kl. 10 og 14 í neðri safnaðarsal kirkj-
unnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12.
Léttur hádegisverður að lokinni bæna-
stund. Allir velkomnir. Tólf spora fundur kl.
19 í neðri safnaðarsal.
Grensáskirkja: Kyrrðarstund í hádegi kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænastund. Léttur málsverður
á sanngjörnu verði að helgistund lokinni.
Hallgrímskirkja: Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldri borgara
starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja: Eldri borgarar, félagsvist
mánud. kl. 13, brids miðvikud. kl. 13.
Bridsaðstoð á föstud. kl. 13. Þátttaka til-
kynnist til Þórdísar í síma 511 5405.
Langholtskirkja: Kirkjuprakkarar kl. 16.
Fjölbreytt starf fyrir 7–9 ára börn. Umsjón
hafa Ólafur Jóhann og Þóra Guðbjörg.
Lestur Passíusálma kl. 18 í Guðbrands-
stofu í anddyri Langholtskirkju. Allir vel-
komnir.
Laugarneskirkja: Fullorðinsfræðsla Laug-
arneskirkju kl. 20. Vigfús Bjarni Alberts-
son, guðfræðingur, flytur seinni fyrirlestur
sinn um efnið: Viðhorf til dauðans í sam-
tímanum og áhrif þeirra á líf okkar. Á eftir
verður framhaldsvinna í formi verkefna.
Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Þorvaldur
Halldórsson leiðir lofgjörðina við undirleik
Gunnars Gunnarssonar á flygilinn og
Hannesar Guðrúnarsonar sem leikur á
klassískan gítar. Gengið er inn um aðaldyr
kirkju eða komið beint inn úr fullorðins-
fræðslunni. Kl. 21.30 fyrirbænaþjónusta
við altarið í umsjá bænahóps kirkjunnar.
Neskirkja: Fermingarfræðsla kl. 15. Vetr-
arnámskeið. Litli kórinn – kór eldri borg-
ara, kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Back-
man. Allir velkomnir. Foreldramorgunn
þriðjudag kl. 10–12.
Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl.
10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16. Starf fyrir
10–12 ára kl. 17.30.
Árbæjarkirkja: Kl. 10 foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf
með tíu til tólf ára börnum í safnaðarheim-
ilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára
börnum í Ártúnsskóla.
Breiðholtskirkja: Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum
má koma til sóknarprests í viðtalstímum
hans.
Digraneskirkja: Leikfimi ÍAK kl. 11.15 í
kapellu á neðri hæð kirkjunnar. Kl. 12 létt-
ur hádegismatur, helgistund. Heimsókn í
Þjóðarbókhlöðu, kaffi þar. Unglingakór
Digraneskirkju kl. 17–19. KFUM&KFUK
fyrir 10–12 ára börn kl. 17–18.15, húsið
opnað kl. 16.30. Alfa kl. 19. Hvernig get
ég staðið undir hinu illa? Fræðsla Halldór
Konráðsson (Sjá nánar: www.digranes-
kirkja.is.)
Fella- og Hólakirkja: Strákastarf 8–12 ára
kl. 17.
Grafarvogskirkja: Opið hús fyrir eldri borg-
ara kl. 13.30–15.30. Helgistund, söngur,
spil og spjall. Kaffi og alltaf eitthvað gott
með kaffinu. Kirkjukrakkar fyrir börn á
aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–18.30. Æsku-
lýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk í
Grafarvogskirkju kl. 20. Lestur Passíu-
sálma kl. 18.15 – 10. sálmur. Um það
fyrsta rannsak fyrir Kaífa, Kristján Guð-
mundsson varaborgarfulltrúi les.
Hjallakirkja: Prédikunarklúbbur presta kl.
9.15 í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyjólfs-
sonar. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Kópavogskirkja: Foreldramorgnar í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 10–12. Sam-
verustund kl. 14.30–16. Fræðandi inn-
legg í hverri samveru. Lagið tekið undir
stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur. Kaffi og
stutt helgistund. Allir hjartanlega velkomn-
ir. Starf með 8–9 ára börnum í Borgum kl.
17–18 í umsjón Dóru Guðrúnar og Bóasar.
Starf með 10–12 ára börnum á sama stað
kl. 18–19 í umsjón Dóru Guðrúnar og
Bóasar.
Lindakirkja í Kópavogi: Mömmumorgnar í
Safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum
3, kl. 10–12.
Seljakirkja: Mömmumorgnar kl. 10–12.
SELA, yngri deild, kl. 20–22.
Hafnarfjarðarkirkja: Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja: Dagskrá fyrir 8–9 ára í
dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–12
ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmtilegar
stundir fyrir hressa krakka. Æskulýðs-
félagið (Megas) heldur vikulegan fund kl.
19.30–21 í kvöld. Umsjón með starfi
þessara hópa hafa Anna Hulda Einarsdótt-
ir og Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: Kl. 16.30–18 er
opið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 20–22 er
opið hús fyrir unglinga 13–15 ára.
Vídalínskirkja: Opið hús kl. 13–16.30 í
safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Karlar og
konur, yngri sem eldri, eftirlaunafólk, ör-
yrkjar og atvinnulausir eru velkomnir. Spil-
að, spjallað og kíkt í blöðin. Samverunni
lýkur með helgistund kl. 16. Umsjónar-
maður Nanna Guðrún djákni. Þorlákur
sækir þá sem vilja og ekur þeim heim.
Sími 869 1380.
Grindavíkurkirkja: Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Borgarneskirkja: Helgistund í kirkjunni kl.
18.30–19.
Þorlákskirkja: Bænastund kl. 9.
Landakirkja í Vestmannaeyjum: Kl. 15
Kirkjuprakkarar Landakirkju, 6–8 ára
krakkar í kirkjunni. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson
og leiðtogarnir. Kl. 16 kóræfing Litlu læri-
sveinanna, yngri hópur. Kl. 17.10 kóræf-
ing Litlu lærisveinanna, eldri hópur. Kór-
stjóri Joanna Wlasczcyk og umsjónarmað-
ur Kristín Halldórsdóttir.
Keflavíkurkirkja: Alfahópur kemur saman
í Kirkjulundi kl. 12–15. Léttur málsverður,
samfélag og fræðsla um kristna trú. Einn-
ig verður komið inn á stöðu atvinnulausra.
Umsjón María Hauksdóttir. Styrktaraðilar
eru Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavík-
ur og nágrennis, Verslunarmannafélagið
og Iðsveinsfélagið, ásamt Keflavíkur-
kirkju. Allir velkomnir.
Krossinn: Almenn samkoma kl. 20. 30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas: Bænastund kl. 20.30. Nánari upp-
lýsingar á www.kefas.is.
AD KFUK: Fundur í kvöld kl. 20. Biblíulest-
ur. Allar konur velkomnar.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Fermingarfræðsla kl. 15. Hópur 2 (Lunda-
skóli)
Glerárkirkja: Kyrrðarstund í kapellu kl.
18.10.
Hjálpræðisherinn, Akureyri: Kl. 17.30
Mannakorn fyrir 6. og 7. bekk. Kl. 19.15
Alfanámskeið.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF FRÉTTIR
SIGRÍÐUR Kristjánsdóttir fagott-
leikari heldur burtfarartónleika frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík í
Salnum í kvöld kl. 20. Undirleikari
á píanó er Guðríður St. Sigurðar-
dóttir.
Á efnisskránni er Sónata í C-dúr
eftir Johann Friedrich Fasch,
Kvartett í d-moll eftir Georg Phil-
ipp Telemann, Sónata eftir Mikhail
Ivanovich Glinka, Sónata op. 71 eft-
ir Charles Koechlin og Récit, Sicili-
enne et Rondo eftir Eugéne Bozza.
Aðrir flytjendur eru Berglind
Stefánsdóttir, flauta, Þóra Gísla-
dóttir, flauta, Stina Ekdahl, selló,
og Guðbjörg Sandholt, píanó.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigríður Kristjánsdóttir fagottleik-
ari á æfingu í Salnum.
Nýr fagottleik-
ari í Salnum
Grensásvegi 5
Pöntunarsími
588 8585
Heill grillaður
kjúklingur
688 kr.
VW Passat 1,6 árg. '99, ek. 72
þús. km. Topplúga, mp3 spilari,
300w hátalarar og tweeterar,
litað gler, 17" felgur, á nýjum
heilsársdekkjum, samlitur, reyk-
laus, þjónustubók o.m.fl. 1.250 þ.
Tilboð 1.130 þ. S. 899 1178.
Toyota Celica Vvti, árg. '00, ek.
43 þús. Glæsilegur og vel farinn
bíll. Reyklaus, með topplúgu, ál-
felgum og Carcept spoilerkitti.
Uppl. í s. 869 1359 eða halldor-
h@simnet.is. Athuga öll skipti.
Scania R114 CB 8x4
Árg 4/2003, ekinn 25.800 km.
Verð 8.490,000 + vsk.
Uppl gefur Bóas í síma
0045 40110007, www.bilexport.dk
Fallegur bíll til sölu, Volkswagen
Polo árg. '96. Ek. 80 þ. Tilboð
óskast. Uppl. í s. 467 1740/
860 8420.
Pajero árg. '88, 7 manna, ný 33"
nagladekk. Góður jeppi, lítur
þokkalega vel út. Verð 150 þús.
Sími 698 9696.
Bryngljái á bílinn!
Endist árum saman - verndar
lakkið - auðveldar þrif.
Mössun - blettun - alþrif.
Yfir 20 ára reynsla!
Litla Bónstöðin, Skemmuveg 22
sími 564 6415 - gsm. 661 9232.
Ökukennsla
Ökukennsla, endurhæfing,
akstursmat og vistakstur.
Upplýsingar í símum 892 1422 og
557 6722, Guðbrandur Bogason.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Wolksvagen Passat,
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Laugavegi 12b, sími 552 1220
Öðruvísi flísfatnaður.
Þarftu fjárhagsmeðferð?
Fáðu aðstoð FOR!
1. Viðskiptafræðingur semur við
banka, sparisjóði og lögfræðinga
fyrir fólk og fyrirtæki í fjármálum.
2. Greiðsluþjónusta í boði.
FOR Consultants Iceland,
14 ára reynsla, tímapantanir
í s. 844 5725. www.for.is .
Sparibaukur til sölu. Nissan
Micra '98, 3ja dyra, beinsk., ekinn
77.600 km. Allar nánari upplýsing-
ar í síma 695 838/695 9250 eða
bjorgsaem@hotmail.com.
www.midlarinn.is Óskum eftir
notuðum bátavélum, 10-100 hö,
siglingatækjum, netaspilum, net-
um ásamt öllu fyrir smábáta.
Sími 892 0808.
Tölvup. midlarinn@midlarinn.is
Þarftu að auglýsa bílinn þinn?
Mundu tilboð til áskrifenda í Bíla-
blaðinu á miðvikudögum. Auglýs-
ing með mynd á kr. 995.
Pantanafrestur er til kl. 12 á
þriðjudögum.
Auglýsingadeild Morgunblaðsins,
sími 569 1111.
Netfang: augl@mbl.is
SAMTÖK Psoriasis og exem sjúk-
linga, Spoex, tóku í gagnið nýtt vef-
svæði á dögunum, www.psoriasis.is.
Félagsmálaráðherra, Árni Magnús-
son, opnaði vefsvæðið en þar má
finna ýmiss konar fróðleik um félag-
ið og meðferðarúrræði fyrir þá sem
þjást af psoriasis eða hafa exem.
Við opnunina ritaði Valgerður
Auðunsdóttir, formaður Spoex, und-
ir styrktarsamning við lyfjafyrir-
tækið Novartis sem hyggst styrkja
samtökin til uppbyggingar vefsvæð-
isins.
Þá var kynntur samstarfssamn-
ingur við Bláa lónið og afhenti Grím-
ur Sæmundsen framkvæmdastjóri
félaginu fartölvu til afnota næstu ár-
in. Innihald samstarfssamnings Spo-
ex við Bláa lónið verður kynntur ít-
arlega á næstu vikum.
Spoex opnar
nýtt vefsvæði