Morgunblaðið - 09.03.2004, Side 60

Morgunblaðið - 09.03.2004, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. www.sveit.is erlenda r sÉrferÐ ir NÚ ER verið að ganga frá sölu útgerðarfélags- ins Festar til þriggja aðila. Þeir kaupa misstór- an hlut af eignum Festar; Grandi kaupir 1,5% loðnukvótans, Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði 0,5% og Skinney-Þinganes það sem eftir stend- ur. Áætlað söluverð gæti verið um tveir millj- arðar króna. Festi var fyrst í eigu Kers og Sigmars Björns- sonar í Grindavík og fleiri. Síðan sameinaði Örn Erlingsson útgerð sína við Festi en Ker keypti síðan hlut hans og síðar aðra hluthafa út og er nú að selja. Helztu eignir Festar eru um 5% loðnu- kvótans, 3,5 síldarkvótar og um 5.000 tonn í norsk-íslenzku síldinni miðað við aflaheimildir nú. Þá á Festi skipin Örn KE og Þórshamar og fiskimjölsverksmiðju á Djúpavogi. Verðmæti Festar liggur fyrst og fremst í afla- heimildum. Erfitt er að meta verðið, þar sem lítil sem engin viðskipti hafa lengi verið með afla- hlutdeild í síld og loðnu. Þó má ætla að verð á 1% af loðnukvótanum gæti verið allt að 300 milljónir króna, þegar ekkert annað fylgir með. Síldar- kvótinn gæti verið á 150 milljónir króna og hver þúsund tonn í norsk-íslenzku síldinni gætu lagt sig á um 60 milljónir króna. Auk aflaheimilda mun Skinney-Þinganes kaupa skipin tvö og fiskimjölsverksmiðjuna á Djúpavogi. Þau kaup gætu sett starfsemi Vísis í Grindavík á Djúpa- vogi í uppnám, því starfsemin þar hefur að stórum hluta byggzt á vinnslu á síld í samvinnu við Festi. Auk þess hefur Vísir verið með tölu- verða bolfiskvinnslu á staðnum. Ekki liggur fyr- ir hvort samstarf verður milli Vísis og Skinn- eyjar-Þinganess, en er fréttirnar voru bornar undir Aðalstein Ingólfsson, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, sagði hann að ekkert hefði verið ákveðið um kaup á Festi. Útgerðarfélagið Festi selt í þremur hlutum Skinney-Þinganes, Grandi og Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði greiða samtals um tvo milljarða fyrir skip, bræðslu og aflaheimildir  Kollvarpar/14 ÞRIÐJI hver karl- maður sem fer í fæðingarorlof nýt- ir sér ekki allan sinn þriggja mán- aða orlofsrétt og þurfa lög um fæð- ingarorlof að draga hina „svifa- seinu“ feður inn í nútímann að mati Sigríðar Lillýjar Baldursdóttur, fyrrverandi skrifstofustjóra í félagsmálaráðuneytinu, sem flutti erindi í gær á fundi undir yfirskriftinni: Hvernig aukum við jafnrétti á vinnumarkaði? Tilefni fundarins var alþjóðlegur bar- áttudagur kvenna, 8. mars. Sigríður Lillý sagði reynsluna af lögunum um fæðingarorlof hafa verið betri en nokkurn grunaði. „Þetta er mjög jákvætt og var í raun- inni óviðbúið. Menn trúðu því ekki að feður myndu svo fljótt nýta þennan rétt sinn en al- veg frá 2001 hafa ríflega 80% karla tekið fæð- ingarorlof,“ sagði Sigríður Lillý við Morg- unblaðið. „En það sem vekur athygli þegar skoðað er hversu lengi þeir eru í fæðing- arorlofi er að þriðji hver maður nýtti ekki all- an sinn rétt árið 2003, þegar fæðingarorlofs- rétturinn var orðinn þrír mánuðir.“ /6 Þriðji hver faðir nýtir ekki allt fæð- ingarorlofið FRAKKARNIR tveir, sem leitað hefur verið á Sprengisandsleið, voru ekki í skálanum í Nýja- dal þegar björgunarsveitarmenn frá Hellu og Hvolsvelli komu þangað í gærkvöldi og engin ummerki voru um að þeir hefðu verið þar. Ákveðið var að stefna björgunarsveitunum inn að Háöldu, en talið er að leið þeirra hafi átt að liggja þar um. Björgunarsveitarmennirnir lögðu af stað laust eftir hádegi í gær til að svipast um eftir Frökkunum tveimur sem lögðu af stað frá Ak- ureyri á þriðjudag og ætluðu að ganga yfir Sprengisand. Þeir voru vel útbúnir, á göngu- skíðum. Í gærkvöldi og nótt hringdu þeir ítrek- að í tengilið sinn og reyndu að gefa honum upp staðsetningu sína en símtölin slitnuðu alltaf áð- ur en möguleiki var að greina staðsetningu þeirra eða hvort þeir væru í hættu staddir. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélag- inu Landsbjörg hefur nokkrum sinnum verið hringt í mennina í dag og ná þeir að segja eitt eða tvö orð áður en símtalið rofnar. Líklegt er talið að sími þeirra sé bilaður. Búið er að bæta við snjóbíl frá Hellu við leit- ina og hefur björgunarsveitin Súlur á Akureyri sent vélsleða og snjóbíl sem eiga að fara eftir áætlaðri leið mannanna frá Akureyri. Afleitt veður er á þessum slóðum, erfitt gönguskíða- færi og 15–16 metra meðalvindur á sekúndu. Frakkarnir voru ekki í skál- anum í Nýjadal NÝ TÆKNI, svonefnt holsjárhylki, sem er ís- lenskt heiti yfir örsmáa myndavél, gerir kleift að rannsaka smáþarmana eða mjógirnið, um 6 metra langan hluta meltingarvegarins, þar sem hefðbundnar röntgenrannsóknir og speglanir eru ekki nægilega nákvæmar. Sjúklingurinn gleypir hylkið, sem er 2,5 sm að lengd, og þarf ekki að leggjast á sjúkrahús meðan það myndar innviði þarmanna og sendir í upptökutæki sem sjúklingurinn ber á sér. „Þetta er ný tækni sem gefur okkur möguleika á að skoða mjógirnið myndrænt en segja má að það hafi verið í algjöru myrkviði þar til nú,“ seg- ir Ásgeir Theodórs, yfirlæknir meltingar- sjúkdómadeildar St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. „Þetta gefur okkur möguleika á að skoða mein- semdir sem við höfum ekki getað skoðað áður og staðsetja þær með meiri nákvæmni.“ Í því sambandi má nefna blæðingarstaði, ým- iskonar fleiður og sár og æxli sem erfitt hefur verið að greina og því miður oft mjög seint þar sem ekki hefur áður verið hægt að skoða mjó- girnið með þessum hætti. Tæknin er einföld. Að morgni kemur viðkomandi á meltingar- sjúkdómadeildina þar sem hol- sjárhylkið er gleypt og nemar, auk upptökutækis sem nemur myndir frá hylkinu, eru festir við sjúklinginn. Hylkið tekur tvær myndir á sekúndu og sendir þær í upptökutækið. Sjúklingurinn skil- ar tækinu að átta tímum liðnum og síðan eru upplýsingar frá því færðar í tölvu og greindar af sér- fræðingi. „Fólk þarf ekki að leggjast inn á sjúkrahús, það get- ur þess vegna farið í vinnuna meðan rannsóknin fer fram,“ útskýrir Ásgeir. Hylkið er einnota og skilast út með hægðum. Þörf á 50–70 rannsóknum á ári Talið er að þörf sé á 50–70 rannsóknum á ári með þessari aðferð og þegar hafa verið gerðir nokkrir tugir rannsókna frá því tæknin var tekin í notkun sl. haust. Rannsóknirnar beinast fyrst og fremst að blæðingum frá melting- arvegi sem ekki hefur fundist nein skýring á með hefðbundnum hol- sjárrannsóknum. Ásgeir segir hol- sjárhylkið kærkomna viðbót við þær rannsóknaraðferðir sem fyrir eru en það komi ekki í stað ristil- og magaspeglunartækninnar og læknar þurfi að vanda mjög valið á því hverjir eru sendir í rannsókn- ina. Hylkið er í stöðugri þróun og segir Ásgeir að viðbætur sem gera kleift að gera ýmar mælingar séu á döfinni. Þessi tækni getur fækkað öðrum rann- sóknum hjá sjúklingum t.d. með langvinnar blæðingar og óskýrða kviðverki, að sögn Ás- geirs. „Við teljum að þegar fram líða stundir sé verulegur sparnaður af þessari tækni.“ Örsmátt holsjárhylki notað á St. Jósefsspítala til að mynda mjógirnið Í algjöru myrkviði þar til nú Holsjárhylkið er aðeins 2,5 sm að lengd og því auðvelt að gleypa. ÞAÐ ER fátt skemmtilegra en þegar rignir og pollar myndast um allt. Í það minnsta er það skoðun flestra barna, sem njóta þess að leika sér í litríkum regngöllum þegar votviðrasamt er. Börnin kippa sér heldur ekki upp við að blotna svolítið í fæturna og láta rok eins og það sem réð ríkjum á höfuðborgarsvæðinu í gær ekki á sig fá, ólíkt mörgum þeim sem eldri eru. Morgunblaðið/Ásdís Börn í bleytunni JÓN Garðar Viðarsson sigraði eistneska stór- meistarann Jan Ehlvest í annarri umferð Reykjavíkurskákmótsins sem fram fór í gær. Norska undrabarnið Magnus Carlsen tapaði fyrir hollenska stórmeistaranum Jan H. Timman, Sigurður Páll Steindórsson náði aftur góðum árangri og gerði jafntefli við ísraelska stórmeistarann Sergey Erenburg og hefur nú 1½ vinning þrátt fyrir að hafa mætt tveimur stórmeisturum. Helgi Ólafsson, Jón Viktor Gunnarsson og Stefán Kristjánsson gerðu allir jafntefli og hafa einnig 1½ vinning. Jón Garðar sigraði Ehlvest  Reykjavíkurskákmótið/12/47 ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.