Morgunblaðið - 13.03.2004, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.03.2004, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 72. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Blómlegt leiklistarlíf Lesbók | Goðsögnin um Liszt  Don DeLillo á mörkum skáldsögu og menningarfræða Börn | Spriklað í sundi Vitneskja um vatnið Indíánadrengurinn Jakari Lesbók og Börn í dag RÚMAR átta milljónir manna söfnuðust saman á götum spænskra borga og bæja í gærkvöldi til að sýna samstöðu í baráttunni gegn hryðjuverkum og minnast þeirra sem biðu bana í sprengjutilræðun- um í Madríd í fyrradag. Voru þetta langfjölmenn- ustu útifundir í sögu Spánar, að sögn spænsku lög- reglunnar í gærkvöld. Fólkið lét í ljósi djúpa sorg og reiði yfir spreng- ingunum sem kostuðu að minnsta kosti 199 manns lífið. „Sameinuð þjóð verður aldrei sigruð,“ hrópaði fólkið einum rómi á útifundi í miðborg Madrídar. Að sögn lögreglunnar voru 2,3 milljónir manna á þeim fundi, 1,2 milljónir söfnuðust saman í Barcelona og alls rúmar átta milljónir í landinu öllu. Evrópskir ráðamenn meðal viðstaddra Margir evrópskir ráðherrar voru á útifundinum í Madríd til að votta Spánverjum samúð sína og stuðning, þeirra á meðal forsætisráðherrarnir Jean-Pierre Raffarin frá Frakklandi og Silvio Berl- usconi frá Ítalíu. Á meðal viðstaddra var einnig Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins. Spænska konungsfjölskyldan rauf þá hefð að taka ekki þátt í slíkum fjöldafundum á götunum með því að senda Felipe prins og prinsessurnar Elenu og Cristinu á fundinn í Madríd. Reuters Spánverjar ganga í rigningu í miðborg Madrídar þar sem 2,3 milljónir manna komu saman í gærkvöld til að mótmæla hryðjuverkunum í fyrradag. Rúmar átta milljónir Spánverja safnast saman til að sýna samstöðu gegn hryðjuverkum Langfjölmennustu úti- fundir í sögu Spánar Madríd. AFP, AP.  Mjög erfitt/16  „Ný leið“/18 AÐSKILNAÐARSAMTÖK Baska, ETA, neituðu því formlega í gær að þau hefðu staðið fyrir hryðjuverk- unum í Madríd í fyrradag, að sögn baskneskra fjölmiðla. Spænsk stjórn- völd sögðu þó að enn væri talið líklegt að liðsmenn ETA hefðu verið að verki. Baskneska dagblaðið Gara sagði að maður, sem kvaðst tala fyrir munn forystu samtakanna, hefði hringt í ritstjórnina og lagt áherslu á að þau bæru „alls enga ábyrgð“ á sprengju- tilræðunum í Madríd. Gara styður baskneska þjóðern- issinna og ETA hefur oft notað blaðið til að koma yfirlýsingum á framfæri. Baskneska sjónvarpsstöðin EITB kvaðst hafa fengið samskonar yfirlýs- ingu frá aðskilnaðarsamtökunum. Nýjar vísbendingar Angel Acebes, innanríkisráðherra Spánar, sagði að lögreglan í Madríd hefði fundið ósprungna sprengju sem gæfi nýjar vísbendingar um hverjir kynnu að hafa verið að verki. Fregnir hermdu að tíu kílógrömm af sprengi- efni og kíló af málmflísum hefðu fundist í bakpoka á lögreglustöð í Madríd. Pokinn var fluttur þangað vegna þess að talið var að hann væri í eigu eins af fórnarlömbum hryðju- verkanna. Útvarpsstöðin Cadena Cer sagði að í pokanum hefði verið plast- sprengiefni af tegund sem „ETA not- ar yfirleitt ekki“ heldur „önnur hryðjuverkahreyfing og hún tengist íslömskum öfgamönnum“. Þessi frétt var ekki staðfest og spænskir fjöl- miðlar sögðu í gærkvöldi að utanrík- isráðherra Spánar hefði sent öllum sendiherrum landsins fyrirmæli um að „staðfesta aðild ETA“ að hryðju- verkunum „til að eyða hvers konar efasemdum“. ETA neit- ar aðild að hryðju- verkunum Madríd. AFP, AP. BÆÐI fráfarandi stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna segja afkomu dótturfyrirtækis félagsins í Banda- ríkjunum, Icelandic USA, hafa verið óviðunandi undanfarin ár. Breytt stjórn SH valdi í gær nýjan formann, Gunnlaug Sævar Gunnlaugsson og sagði hann að sér litist ekki á að við- ræður um sameiningu við SÍF hæfust að nýju. „Í Bandaríkjunum er rúmlega helmingur eiginfjár samstæðunnar bundinn, tæplega tveir og hálfur milljarður króna. Icelandic USA er því sú eining sem mestu ræður um það hvort afkoma SH-samstæðunnar er ásættanleg eða ekki. Ég verð því miður að viðurkenna að á undanförn- um árum hefur rekstrarárangur okk- ar í Bandaríkjunum verið algjörlega óviðunandi. Mörg undanfarin ár hef- ur ávöxtun eiginfjár verið um og und- ir 5%. Til samanburðar má benda á að arðsemi eiginfjár samstæðunnar var síðustu þrjú árin á bilinu 13–19%,“ sagði Róbert Guðfinnsson, fráfarandi formaður stjórnar SH, í gær. Nýkjörinn formaður stjórnar SH, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, sagði ekkert ákveðið um hvort vænta megi breytinga á rekstri í Icelandic USA í ljósi óviðunandi afkomu félags- ins á síðasta ári. Gunnlaugur sagði einnig að sam- einingarviðræður við SÍF kæmu til greina af hans hálfu eins og hvað ann- að. Hann benti hinsvegar á að sam- einingarviðræður við SÍF hafi tvisvar farið út um þúfur í fyrra og miðað við það lítist sér ekki vel á slíkar viðræð- ur aftur. Hann segir breytt eignar- hald á SH ekki skipta höfuðmáli þar. „Nýir hluthafar hafa vonandi litið á SH sem vænlegan fjárfestingarkost. Fyrirtækið gengur vel og breytt eign- arhald hefur engin áhrif á það hvort teknar verða upp viðræður um sam- einingu eða samstarf við SÍF. Ég var sjálfur þátttakandi í sameiningarvið- ræðum við SÍF á síðasta ári. Ef nýjar viðræður eiga að byggjast á sömu for- sendum og lagt var upp með þá, er ég ekki bjartsýnn.“ Líst ekki vel á að viðræður um sameiningu við SÍF hefjist á ný  SH stofnar/12 Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson nýr formaður stjórnar Sölumiðstöðvarinnar ÁRATUGUM saman hafa Kínverjar haldið í þá sögu, að frægasta sköp- unarverk þeirra, Kínamúrinn, sé sjáanlegt utan úr geimnum. Enn þann dag í dag segir í kínverskum skólabókum að geimfarar á braut umhverfis jörðina geti séð þetta mikla mannvirki með berum aug- um. En nú verða þessar skólabækur leiðréttar, eftir að fyrsti kínverski geimfarinn, Yang Liwei, greindi frá því að þegar hann var úti í geimnum í fyrra hefði hann ekki getað komið auga á múrinn. Embættismaður í kínverska menntamálaráðuneytinu sagði, að útgefanda skólabókanna hefði verið fyrirskipað að hætta útgáfu þeirra. Skólabækur leiðréttar Peking. AP. Framhaldsskólarnir setja fjölda leik- sýninga á svið Fólk í fréttum 65
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.