Morgunblaðið - 13.03.2004, Side 11

Morgunblaðið - 13.03.2004, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 11 ÍSLENSKA hagkerfið hefur tekið stakkaskiptum á síðasta áratug og ástæðurnar tengjast fyrst og fremst hinu breytta starfsumhverfi sem hefur fylgt EES-samningnum. Hagvöxtur hefur aukist og á rætur rekja til fjölbreyttari atvinnustarf- semi. Hins vegar er það verulegt áhyggjuefni að bankarnir berjist um völd og áhrif í stærstu fyr- irtækjum landsins og eins er miður að stækkun bankanna og hagræð- ing virðist fremur skila sér í aukn- um hagnaði þeirra sjálfra en lægri vöxtum og lægri kostnaði við- skiptamanna þeirra. Þetta kom fram í ræðu Vilmund- ar Jósefssonar, formanns Samtaka iðnaðarins, á Iðnþingi í gær, en samtökin fagna tíu ára afmæli, en samningurinn um Evrópska efna- hagssvæðið öðlaðist gildi um svipað leyti og samtökin voru stofnuð. Alröng mynd af íslensku samfélagi Vilmundur minnti á að hlutdeild einstakra atvinnugreina í verð- mætasköpun þjóðarbúsins hefði breyst mikið síðustu tíu árin; fimmtungur landsframleiðslunnar kæmi úr iðnaði og aðrar atvinnu- greinar á borð við verslun, ferða- og fjármálaþjónustu hefðu eflst mjög á sama tíma. „Þó að þessar staðreyndir blasi við,“ sagði Vil- mundur, „er eins og þeir sem ráða ferðinni í stjórnmálum og fjölmiðl- um vilji ekki trúa þeim. Viðfangs- efni stjórnmálamanna og fjölmiðla snúast fyrst og fremst um land- búnað og sjávarútveg og svo mjög að í huga flestra verður til alröng mynd af íslensku samfélagi.“ Vil- mundur minnti á að framlag fisk- veiða og vinnslu til landsframleiðsl- unnar væri 12,8% og að landbúnaðurinn skilaði 1,6% til landsframleiðslunnar. Hann sagði Íslendinga ofmeta hlut og mikil- vægi sjávarútvegs í efnahagslífinu stórkostlega. „Það er til dæmis harla sérkennilegt að þegar hugs- anlega aðild Íslands að ESB ber á góma er upphaf og endir þeirrar umræðu ávallt hagsmunir sjávarút- vegsins. Þetta er afleiðing þess að í hugum flestra er samasemmerki á milli þeirra hagsmuna og þjóðar- hagsmuna,“ sagði Vilmundur. Vilmundur vék einnig að EES- samningnum og sagði æ fleiri hafa sannfærst um að hann fullnægði ekki lengur þörfum Íslands og Noregs. „Íslendingar verða að horfast í augu við þá staðreynd að eina leið- in, sem er fær til þess að Íslend- ingar og íslenskt atvinnulíf njóti jafnstöðu í samfélagi Evrópuþjóða, er að ganga í ESB. Þessi leið er ekki eingöngu sú eina færa. Hún er einnig sú skynsamlegasta.“ Gagnrýnir valdabaráttu bankanna í fyrirtækjunum Þá taldi Vilmundur það vera verulegt áhyggjuefni að bankarnir berðust um völd og áhrif í stærstu fyrirtækjum landsins. Eðlilegt væri að þeir gripu í taumana þegar fyr- irtæki lenti í rekstrarvanda eða þegar umbreytingarverkefni væru annars vegar. „Hins vegar er óþol- andi þegar þeir berjast um yfirráð í stærstu fyrirtækjum landsins. Flestir fögnuðu einkavæðingu rík- isbankanna og útrás bankanna á erlenda markaði er afar ánægjuleg. Hitt er lakara að þessi stækkun bankanna og hagræðing virðist fremur skila sér í auknum hagnaði þeirra sjálfra en lægri vöxtum og lægri kostnaði viðskiptamanna þeirra,“ sagði Vilmundur. Formaður Samtaka iðnaðarins gerði einnig samkeppni og sam- þjöppun að umtalsefni og sagði samruna og stækkun íslenskra fyr- irtækja tvímælalaust vera af hinu góða og að í langflestum tilvikum væri engin hætta á samkeppnis- röskun af þeim sökum. „Samtök iðnaðarins hafa haft þá skoðun að stjórnvöld eigi ekki að stjórna því hvernig atvinnulífið þróast og inn- grip á borð við bann við samruna fyrirtækja eigi ekki að koma til greina nema í algerum undantekn- ingartilvikum þegar mikil hætta er á samkeppnisröskun.“ Vilmundur tók þó fram að að augljóst væri að samþjöppun á ýmsum sviðum verslunar og þjón- ustu væri orðin meiri en góðu hófi gegndi. „Eftir á að hyggja má segja að þarna hafi menn sofið á verðinum. Það getur verið bæði rétt og skynsamlegt að setja sér- stakar reglur um markaðsráðandi fyrirtæki og hindra þau í að mis- nota markaðsráðandi stöðu sína. Það hefur ekki verið gert en er löngu tímabært. Við megum ekki búa svo um hnútana að íslensk fyr- irtæki megi ekki verða stór af því að íslenskur markaður er lítill.“ Stórfyrirtæki hafa samfélags- legu hlutverki að gegna Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráðherra ræddi um breytingar sem hefðu orðið á fjármálamarkaðinum undanfarin tíu ár sem sæjust af þeim gríðarkrafti sem hefði verið leystur úr læðingi við einkavæð- ingu bankanna og þeirri útrás sem henni hefði verið samfara. „Auðvitað hefur þessi þróun ekki verið án vaxtarverkja,“ sagði iðn- aðarráðherra, „og þeir eru ófáir sem óttast að samþjöppun á til- teknum sviðum viðskiptalífsins geti leitt til tímabundins óhagræðis fyr- ir neytendur. Þær áhyggjur eru ekki ástæðulausar. Ég tel þó að all- ir sjái að vextir og önnur almenn viðskiptakjör verða að vera sam- bærileg við það sem gerist í ná- grannalöndunum og að ekki geti ríkt skefjalaus ásókn í hámarks- gróða án samfélagslegrar ábyrgð- ar.“ Samtök iðnaðarins meta áhrif samningsins um Evrópskt efnahagssvæði á tíu ára afmæli sínu Bankar berjast um völd í stærstu fyrirtækjunum Morgunblaðið/Ásdís Á iðnþingi var farið yfir áhrif samningsins um Evrópskt efnahagssvæði, en 10 ár eru liðin frá gildistöku hans. Vilmundur: „Íslendingar verða að horfast í augu við þá staðreynd að eina leiðin, sem er fær til þess að Íslendingar og íslenskt atvinnulíf njóti jafn- stöðu í samfélagi Evrópuþjóða, er að ganga í ESB.“ FÉLAGSMENN í Samtökum iðn- aðarins (SI) skiptast í jafnstórar fylkingar þegar spurt er hvort þeir séu hlynntir aðild að ESB eða and- vígir henni, 43% í hvorri fylkingu. Hins vegar segjast tveir af hverjum þremur félögum í SI telja að taka eigi upp aðildarviðræður en hlut- fallið er aðeins lægra meðal almenn- ings eða 63%. Þá reyndust 55% fé- lagsmanna í SI vera hlynnt því að taka upp evru en 37% sögðust vera andvíg því. Þetta kemur fram í viðhorfs- könnun sem Gallup gerði fyrir SI í upphafi ársins. Um 72% Íslendinga telja að áhrif EES-samningsins á íslensk samfélag hafi verið jákvæð og rúm 65% telja þau hafa verið jákvæð á eigin lífs- kjör. Aðeins 11% telja áhrif samn- ingsins á eigin lífskjör vera neikvæð. Könnunin var gerð í janúar og febrúar og náði til 1.350 manna slembiúrtaks úr þjóðskrá. Svarhlut- fall var 63%. Rúm 60% telja að fara eigi í aðildarviðræður við ESB ÞEIM brá í brún, viðskiptavinum Nóatúns í gær, þegar þeir urðu þess áskynja að óvenju háttsettur kjötafgreiðslumaður bauð fram að- stoð sína. Þarna var á ferðinni eng- in önnur en Valgerður Sverr- isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem opnaði Ís- lenska daga verslunarinnar í gær, og létti undir með afgreiðslufólki kjötborðsins í kjölfarið. Þetta er í annað sinn sem Nóatún stendur fyrir Íslenskum dögum en að sögn Sigurðar Markússonar, rekstrarstjóra Nóatúns, er vel á fjórða tug fyrirtækja sem vinnur með versluninni að verkefninu. „Viðtökurnar eru alveg frábærar og enn betri en í fyrra,“ segir hann. „Við erum með fjöldann allan af alls konar vörum og það er gaman að því hvað fólk virðist þurfa að láta minna sig á hversu mikið er til af góðri íslenskri framleiðslu.“ Sérstök áhersla er lögð á íslenska lambakjötið á dögunum og af því tilefni stóð Valgerður á bak við kjötborðið og afgreiddi um stund. „Sumir áttuðu sig ekki á því að það væri hún sem væri að afgreiða,“ segir Sigurður. „Ég sá eitt slíkt til- vik þar sem viðskiptavinur kipptist skyndilega við þegar hann sá hver var byrjaður að afgreiða hann. Enda er það ekki daglegt brauð að hafa svona hátt settan kjöt- afgreiðslumann í versluninni.“ Ráðherra í kjötafgreiðslu Má bjóða þér lambakjöt? Viðskiptavinum Nóatúns brá nokkuð í brún þegar Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra bauð fram aðstoð sína. Íslenskir dagar hafnir í Nóatúni SJÖFN Ingólfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar, segist ekki hafa orðið vör við óánægju innan félagsins með samkomulag við Reykjavíkurborg um hæfnislaun og starfsmat, líkt og Svanur Pálsson, vagnstjóri hjá Strætó bs. hélt fram í Morgun- blaðinu á fimmtudag. Sagði Svanur marga borgar- starfsmenn standa í stað í launum eða fá aðeins greiddan hluta af þeim hæfnislaunaflokkum sem þeir töldu sig hafa unnið sér inn. Gagnrýndi Svanur það enn fremur að í sam- komulaginu við borgina hefði staðið að hæfnislaun samkvæmt eldra fyr- irkomulagi féllu niður frá gildistöku nýrra hæfnislauna. Sjöfn segir Svan hafa tjáð þessa skoðun á aðalfundi félagsins nýlega. Hún telur þessa óánægju ekki al- menna. „Engin hæfnislaun hafa verið felld niður. Hins vegar er verið að tengja nýja reglu við eldri reglu og síðan fer endanlegt uppgjör fram í haust þegar starfsmatið liggur fyr- ir. Þá verða endanlega afgreidd starfslaun og þar með þeir launa- flokkar sem inni í þeim eiga að vera. Ofan á þau koma starfsald- urstengd hæfnislaun hjá starfs- mönnum Reykjavíkurborgar,“ segir Sjöfn. Hún segir samkomulagið hafa snúist um framkvæmd gildandi kjarasamnings. Þegar einu fyrir- komulagi ljúki taki annað við en fyrri hæfnislaun falli ekki niður. Samkvæmt kjarasamningum eigi enginn starfsmaður að lækka í laun- um og því hafi engin laun fallið nið- ur sem áður hafi verið greidd. Sjöfn segir það ennfremur liggja fyrir að samkomulagið komi misjafnlega út hjá borgarstarfsmönnum, allt eftir starfsaldri þeirra, sumir hækki meira í launum en aðrir en kjörin eigi hvergi að versna. Formaður Starfsmannafélagsins Segir ekki óánægju með samkomulagið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.