Morgunblaðið - 13.03.2004, Síða 25
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 25
Á jörðinni eru rúmlega 20 ha ræktaðs lands og henni
fylgir hluti í óskiptu landi og beitarréttur á afrétti. Á
jörðinni er mjög gott 145 fm steypt einbýlishús
ásamt 50 fm bílskúr. Timbursólpallur er við húsið umkringdur skjólveggjum. 204,6
fm svínahús ásamt 53,6 fm aðstöðuhúsi er á jörðinni. Innréttingar eru boltaðar nið-
ur svo auðvelt er að fjarlægja þær og nýta húsið í annað. Einnig er á jörðinni 133,9
fm vélageymsla með stórri hurð og 51,1 fm flugskýli. Öll útihúsin á jörðinni eru
steinsteypt utan við flugskýlið sem er byggt úr timbri og eru útihúsin að stórum
hluta einangruð. Syðra-Fell er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Akureyri.
Upplýsingar í síma 898 9862.
TIL SÖLU SYÐRA-FELL Í EYJAFJARÐARSVEIT
Einstaklega glæsilegt 254 fm einbýlishús á frábærum stað. Húsið er
mikið endurnýjað og er í góðu ásigkomulagi. Eignin er að hluta á
tveimur hæðum, í því eru alls fimm svefnherbergi, stofur, tvö
baðherbergi auk geymslna. Staðsetning er einstök syðst í innbænum.
Nánari lýsing og myndir eru á www.byggd.is.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á Fasteignasölunni
Byggð sölumenn: Björn Guðmundsson, s. 462 1744, 897 7832,
Emelía Jóhannsdóttir, Jón Kr. Sólnes hrl. lg. fasteignasali,
s. 462 1744, fax 462 7746.
Til sölu Aðalstræti 82,
Akureyri
Verðbréf
Ávöxtun...
...fyrir þig og þína
12 mán. ávöxtun*
Skuldabréfasjóðurinn 9,8%
Úrvalssjóðurinn 78,9%
Alþjóðasjóðurinn 18,2%
Fjármálasjóðurinn 46,6%
Hátæknisjóðurinn 34,7%
Lyf- og líftæknisjóðurinn 37,0%
*Nafnávöxtun m.v. 01.03.2004
Ávöxtun í fortíð endurspeglar ekki nauðsynlega vænta framtíðarávöxtun
Reykjavík: Kringlan 6 • Stóri turn • Sími 550 2000 • www.sphverdbref.is
Hafnarfjörður: Strandgata • Reykjavíkurvegur Garðabær: Garðatorg
SP
H
R
ek
st
ra
rf
él
ag
h
f.
an
n
as
t
re
ks
tu
r
SP
H
V
er
ð
b
ré
fa
sj
ó
ð
si
n
s
3
3
2
.0
2
0
HEILBRIGÐISDEILD Háskólans
á Akureyri býður upp á þverfaglegt
nám til meistaragráðu í heilbrigð-
isvísindum. Umsóknarfrestur um
námið og einstök námskeið innan
þess er til 15. mars nk. Námið er 60
einingar, sex 5 eininga námskeið og
30 eininga meistararitgerð. Hægt er
að fá staðfestingu á því að hafa lokið
30 einingum í námskeiðum (diploma)
og skrifa ekki meistararitgerð. Sigr-
íður Halldórsdóttir, forstöðumaður
framhaldsnámsins við deildina, sagði
að margir þverfaglegir hópar hefðu í
vetur verið að þróa sex námskeið á
sviði heilbrigðisvísinda. Þessi nám-
skeið eru: „Heilbrigði og heilbrigð-
isþjónusta: Staða, stefnur og
straumar“. „Að eldast í íslensku
samfélagi“. „Endurhæfing, efling og
lífsgæði“ Krabbamein, alnæmi og
líknandi meðferð“. „Langvinnir
sjúkdómar og lífsglíman“ og „Fötlun
og samfélag“. Nemendur velja fjög-
ur af þessum námskeiðum og taka
síðan tvö aðferðafræðinámskeið, í
eigindlegum og megindlegum rann-
sóknum og rannsóknaraðferðum. Í
sumum starfshópum voru starfandi
allt að fimm sérfræðingar auk
þriggja sérfræðilegra ráðgjafa þann-
ig að allt að átta manns tóku þátt í að
skipuleggja hvert námskeið. „Við
leggjum mikla áherslu á þessa þver-
faglegu nálgun enda erum við heil-
brigðisdeild og viljum að allar heil-
brigðisstéttir finni sig velkomnar
innan okkar dyra,“ sagði Sigríður.
Tvö námskeið á haustmisseri
Sérstaklega þarf að sækja um að
komast inn í meistaranámið og þarf
þá m.a. 1. einkunn á háskólaprófi, en
meistaranámskeiðin sjálf eru öllu há-
skólafólki opin meðan fjöldamörk
leyfa. Í haust verða tvö námskeið í
boði, námskeið í eigindlegum rann-
sóknaraðferðum og námskeiðið
„Heilbrigði og heilbrigðisþjónustan:
Staða, stefna og straumar.“
„Við viljum vanda
vel til meist-
aranámskeiðanna en
hverju námskeiði
stýrir þverfaglegur
hópur þriggja sér-
fræðinga. Þá leggj-
um við áherslu á að
hafa góð tengsl við
aðila sem eru í lyk-
ilstöðum innan heil-
brigðisþjónustunnar
og innan hins ís-
lenska samfélags og
tengja þá kennsl-
unni.“ Engin próf
eru í umræddum
námskeiðum en
þeirra í stað eru hag-
nýt verkefni sem
ætluð eru til að
kenna fólki fagleg vinnubrögð. Eig-
indlega ráðstefnan sem verður hluti
af eigindlega námskeiðinu í haust
verður samræðuráðstefna þar sem
áhersla er á umræður um að-
ferðafræði. „Prófessor Steiner Kvale
verður aðalfyrirlesari ráðstefn-
unnar. Hann er mörgum að góðu
kunnur hér á landi, enda afkastamik-
ill fræðimaður, og finnst mér frá-
bært að geta boðið nemendum okkar
upp á það besta í umræðu um að-
ferðafræði og vinnubrögð,“ ítrekar
Sigríður.
Hún nefndi að frá árinu 1997 hefði
háskólinn boðið meistaranám í
hjúkrunarfræði í tengslum við Royal
College of Nursing/Manchester-
háskóla og hefði það gengið ein-
staklega vel. „Við nýtum okkur að
sjálfsögðu margt sem við höfum lært
af Bretum enda eru þeir mjög fram-
arlega í menntamálum í heiminum.
Þeir eru í senn hagsýnir og fram-
sýnir, en ekki síst mjög alþjóðlegir í
hugsun í besta skilningi þess orðs.
Ég er mikill aðdáandi Breta eftir að
hafa starfað með þeim í meir en sjö
ár og hefði ekki viljað missa af þessu
gefandi samstarfi.
Það sem við erum að
gera núna er hins
vegar að nýta okkur
að innan Háskólans á
Akureyri vinnur fólk
af mismunandi
fræðigreinum hlið
við hlið og stöðugt er
að aukast rannsókn-
arsamstarf milli
ólíkra fræðasviða og
er ég ekki í vafa um
að slíkt vinnulag
mun aukast í fram-
tíðinni. Segja má að
styrkur okkar við
Háskólann á Ak-
ureyri sé m.a. að við
erum svo nálægt
hvert öðru. Það er í
þessu skemmtilega spjalli á sameig-
inlegum kaffistofum og matstofum
sem við uppgötvum sameiginleg
áhugasvið innan fræðasviða sem
ganga jafnvel þvert á alla deildar-
múra.
Þverfagleg nálgun
Þorsteinn Gunnarsson rektor hef-
ur frá upphafi ferils síns við háskól-
ann verið talsmaður samstarfs þvert
á deildarmúra og tel ég að sú áhersla
hans hafi verið að skila sér á ein-
staklega skapandi máta í rannsókn-
arsamstarfi innan háskólans og í
menntunaráherslum. Þverfaglegt
meistaranám í heilbrigðisvísindum
er einmitt í þeim anda. Ég var sjálf í
doktorsnámi við Linköping-háskóla í
Svíþjóð þar sem nemendur voru frá
ólíkum fræðasviðum og fannst mér
það auka víðsýni og í ljósi þeirrar
reynslu er ég sannfærð um mik-
ilvægi þess að auka þverfaglega
nálgun í viðleitni okkar og verk-
efnum,“ sagði Sigríður.
Allar upplýsingar um námið er að
finna á slóð Háskólans á Akureyri,
www.unak.is
Háskólinn á Akureyri ætlar að auka námsframboð skólans
Sigríður Halldórsdóttir, for-
stöðumaður heilbrigðisdeild-
ar Háskólans á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri hefur lagt mikla vinnu í að und-
irbúa námið en fyrirhugað er að það hefjist næsta haust
Býður meistaranám
í heilbrigðisvísindum
Fáðu fréttirnar
sendar í
símann þinn