Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 43 eldrum sínum eða forráðamönnum, og þiggja altarissakramenti. Nú höfum við lært það í fermingarfræðslunni hvaða merkingu altarisgangan hefur og gott að æfa sig fyrir ferminguna. Prestar sr. Þor- valdur Víðisson og sr. Fjölnir Ásbjörnsson. Kl. 20:30 Æskulýðsfundur í Landakirkju. Ester Bergsdóttir æskulýðsfulltrúi, sr. Fjölnir Ásbjörnsson og leiðtogarnir. LÁGAFELLSKIRKJA: Messa kl. 11.00 Prófastur Kjalarnesprófastdæmis, sr. Gunnar Kristjánsson, setur sr. Ragnheiði Jónsdóttur inn í embætti prests í Mos- fellsprestakalli. Einsöngur. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Anna Sigríður Helgadóttir og Hanna Björk Guð- jónsdóttir. Fiðluleikur: Hjörleifur Valsson. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti: Jón- as Þórir. Altarisþjónusta: Sr. Gunnar Kristj- ánsson, Sr. Ragnheiður Jónsdóttir, Þórdís Ásgeirsdóttir, djákni og sóknarprestur Sr. Jón Þorsteinsson. Kirkjukaffi í safnaðarheimilinu, Þverholti 3. Athugið að sunnudagaskólinn fellur nið- ur þennan dag. Sóknarprestur, sóknar- nefnd HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl.11.00. altarisganga. Báðir prestar þjóna. Aðalsafnaðarfundur eftir messu í Hásölum. Gerð grein fyrir rekstri kirkjunnar. Sunnudagaskólar á sama tíma í Kirkju, Strandbergi og Hvaleyrarskóla. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna- guðsþjónusta kl. 11:00. Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna. Tónlistarguðs- þjónusta kl. 14:00 Kór Víðistaðasóknar syngur létta söngva undir stjórn Úlriks Ólasonar. Undirleikur: Fróði Oddsson, gítar. Björn Erlingsson, bassi.www.vidistada- kirkja.is FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnasam- koma kl. 11, umsjón hafa Hera, Sigríður Kristín og Skarphéðinn. Kvöldvaka kl. 20, yfirskrift hennar að þessu sinni er Mann- réttindi. Kór kirkjunnar leiðir léttan og fal- legan söng undir stjórn Arnar Arnarsonar. ÁSTJARNARKIRKJA: Ástjarnarsókn, sam- komusal Hauka á Ásvöllum, Barnastarf á sunnudögum kl. 11.00 - 12.00. Djús, kex og kaffi ásamt föndri og söngstund, að vanda. KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í Stóru- Vogaskóla á laugardögum kl. 11.15– 12.00. Messa í Kálfatjarnarkirkju sunnu- daginn 14. mars 2004 kl. 11.00, ath. breyttan messutíma sem er vegna beinn- ar útsendingar í útvarpi. VÍDALÍNSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Rann- veig Káradóttir leikur á þverflautu, ásamt organistanum, Jóhanni Baldvinssyni, en kirkjukórinn leiðir almennan safnaðar- söng. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Eftir messuna verður boðið upp á kaffi og kök- ur í safnaðarheimilinu, en umsjón þess þáttar er að þessu sinni í höndum Æsku- lýðsfélags Garðasóknar. Prestarnir. BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskólinn í sal Álftanesskóla kl. 11.00. Ásgeir Páll og Kristjana leiða skemmtilegt starf fyrir börnin. Foreldrarnir eru velkomnir með börnunum, en allir eru hvattir til að mæta. Prestarnir. BESSASTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.00. Álftaneskórinn leiðir safnaðar- sönginn, en organisti er Hrönn Helgadótt- ir. Sr. Friðrik J. Hjartar og Gréta Konráðs- dóttir, djákni, þjóna. Kirkjuganga er heilsubót. Fjölmennum til kirkjunnar. Allir velkomnir. Prestarnir. GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11:00 með Rútuferð til Keflavíkur. Mæting til kirkju kl. 10:30 Messa kl. 14:00. Altarisganga Kaffihúsastemming í safnaðarheimilinu að lokinni athöfn í um- sjón fermingarbarna og foreldra þeirra. Kaffiveitingar seldar á vægu verði. Sókn- arnefnd og sóknarprestur ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11:00. Sóknarprestur NJARÐVÍKURKIRKJA Sunnudagaskóli kl.11. og fer hann fram í Ytri-Njarðvíkur- kirkju. Börn sótt að safnaðarheimili kl. 10.45. Síðasta skiptið á þessum vetri. Aðalsafnaðarfundur Innri-Njarðvíkur- sóknar fer fram í safnaðarheimili kirkj- unnar fimmtudaginn 18. mars. kl. 18. Dagskrá; Venjuleg aðalfundarstörf. Íbúar sóknarinnar eru hvattir til að mæta. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudaga- skóli kl.11. Umsjón Ástríður Helga Sigurðardóttir, sóknarprestur og Natalía Chow Hewlett. Siðasta skiptið á þessum vetri. KIRKJUVOGSKIRKJA (HÖFNUM): Sunnu- dagaskóli sunnudaginn 14. mars kl.13. Umsjón Margrét H. Halldórsdóttir og Gunnar Þór Hauksson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11 árd. (í síðasta skipti á þessu vori vegna ferminganna). Starfsfólk sunnudagaskólans: Elín Njáls- dóttir, Margrét H. Halldórsdóttir, Arnhildur H. Arnbjörnsdóttir, Einar Guðmundsson og Sigríður Helga Karlsdóttir.Guðsþjón- usta kl. 14 í stærri sal Kirkjulundar. Texta- röð A, Sak. 12.10, Ef. 5. 1-9, Lk. 11. 14- 28 Prestur: Ólafur Oddur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti: Hákon Leifsson. Kirkjukaffi eftir messu. Sjá Vef- rit Keflavíkurkirkju: keflavikurkirkja.is ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa og altaris- ganga kl. 11:00. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu. Arndís Ólafs- dóttir predikar. Kór Ísafjarðarkirkju syngur. Organisti er Hulda Bragadóttir. Sóknar- prestur. AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskólinn kl. 11 . Arna Valsdóttir sér um list- vísindasmiðju fyrir börn og foreldra. Messa kl. 14. Sr. Guðmundur Guðmunds- son, sr. Svavar A. Jónsson og Valgerður Valgarðsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Sr. Jón A. Baldvinsson vígslubiskup á Hólum predikar. Kór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Björns Steinars Sólbergssonar. Kaffitónleikar Kórs Akureyrarkirkju eftir messu. Æðruleysismessa kl. 20.30. Sr. Elínborg Gísladóttir og sr. Magnús G. Gunnarsson. Arna Valsdóttir, Eiríkur Bóas- son og Stefán Ingólfsson sjá um tónlist- ina. Kaffi í Safnaðarheimili að lokinni messu. Allir velkomnir. GLERÁRKIRKJA: Messa og barnasam- vera kl. 11.00. sr. Gunnlaugur Garðars- son þjónar. Organisti Hjörtur Steinbergs- son. Jóhann Þorsteinsson flytur hugleið- ingu og kynnir starf Gídeonfélagsins. VILLINGAHOLTSKIRKJA Í FLÓA: Messa kl. 13:30. Vænst er þátttöku fermingar- barna og aðstandenda þeirra. Organisti Eyrún Jónasdóttir. Eftir messu verður aðalsafnaðfundur. Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf. Kristinn Ág. Friðfinnsson. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Kl. 11 sunnudagaskóli, kl. 16.30 bænastund, kl. 17 almenn samkoma. LJÓSAVATNSPRESTAKALL: Þorgeirskirkja : Sameiginleg guðsþjón- usta þriggja prestakalla (Grenjaðarstaða-, Laufáss- og Ljósavatnsprestakalls) verður sunnudaginn 14. mars kl. 14. Sameigin- legur kór prestakallanna syngur,– sr. Gylfi Jónsson prédikar, og sr. Þorgrímur Daní- elsson og sr. Pétur Þórarinsson þjóna fyrir altari. Safnaðarfólk úr þessum prestaköll- um er hvatt til að sæka messuna. Kyrrðar- stund mánudagskvöldið 15. mars kl. 20. SVALBARÐSKIRKJA: Kyrrðarstund sunnu- dagskvöldið kl. 21. LAUFÁSPRESTAKALL: Munið sameigin- legu messuna í Þorgeirskirkju á sunnu- daginn kl. 14. ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Messa kl. 11.00. Altarisganga. Sr. Skírnir Garðars- son. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sóknarprestur. BRÆÐRATUNGUKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.00. Sóknarprestur. SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11, unglinga- kór kirkjunnar sér um sönginn, sunnu- dagaskólinn á sama tíma. Léttur hádeg- isverður að messu lokinni. Aftansöngur á föstu þriðjudaginn 16. mars kl. 17.30. Morguntíð sungin þriðjudag til föstudags kl. 10, kaffisopi á eftir. Foreldrasamvera miðvikudag kl. 11, æskulýðsfundur mið- vikudag kl. 20. HVERAGERÐISKIRKJA: Kl. 14:00 Fundur með fermingarbörnum og foreldrum. Kl. 20:00 Tónleikar Kirkjukórs Hveragerðis- og Kotstrandarsókna flytur fjölbreytta kirkjutónlist m.a. Lofsönginn „Ég vil hefja upp augu mín“ eftir Sveinbjörn Svein- björnsson, „Heyr, ó Drottinn“, helgisöng eftir Felix Mendelssohn-Bartholdy, og fleiri verk. Stjórnandi er Jörg E. Sondermann. Einsöngvari með kórnum er Margrét Bóas- dóttir og flytur hún einnig nokkur einsöngsverk. Julian Edward Isaacs leikur með á píanó. MOSFELLSKIRKJA í Grímsnesi: Föstu- messa með altarisgöngu á miðvikudag kl. 20.30. Sr. Arngrímur Jónsson og sr. Guð- mundur Óli Ólafsson annast messugerð- ina ásamt sóknarpresti. Sr. Rúnar Þór Egilsson. ÁSSÓKN Í FELLUM: Kirkjuselið. Sunnu- dagskóli kl. 11:00. Kvöldmessa kl. 20:30. VALÞJÓFSSTAÐARSÓKN: Barnasamvera í Valþjófsstaðarkirkju kl. 15:00. SKEIÐFLATARKIRKJA Í MÝRDAL: Æsku- lýðs- og fjölskylduguðsþjónusta, kl. 14:00. Almennur söngur - létt kirkjuskóla- lög o.fl. Sögustund og mynd afhent. Undir- leikari verður Kristín Björnsdóttir organ- isti. Verum dugleg að mæta til kirkju og sýnum í verki að við styðjum starfið í litlu sveitakirkjunni okkar. Sr. Haraldur M. Kristjánsson sóknarprestur. MÖÐRUVALLAKLAUSTURSKIRKJA: Æskulýðs- og fjölskylduguðsþjónusta verður kl. 11:00 Sólveig Halla Kristjánsdóttir cand.theol. frá Lönguhlíð predikar. Mikill og skemmtilegur söngur fyrir alla fjölskylduna. munu ásamt tíu til tólf ára starfinu færa kirkjunni gjafir. Þannig að það er margt spennandi og skemmtilegt sem mun gerast í Ár- bæjarkirkjunni á sunnudaginn 14. mars kl. 11.00. Ekki má gleym að Rebbi refur kemur og hefur eflaust frá mörgu að segja eins og alltaf. Viljum við í kirkjunni hvetja for- eldra, afar og ömmur og alla þá sem gaman hafa af líflegu starfi kirkj- unnar að koma og eiga notalega stund. Á eftir er boðið upp á rjúk- andi heitt kaffi og ávaxtasafa og meðlæti. Kvöldvaka í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði MANNRÉTTINDI eru yfirskrift kvöldvöku á morgun kl. 20. Af því tilefni mun Jóhanna K. Eyjólfsdóttir frá Íslandsdeild Amn- esty International koma í heimsókn og tala til viðstaddra. Lesið verður úr ritgerðum fermingarbarna þar sem þau m.a. ræða vonbrigði sín og kvíða vegna atburða víða um heim – en einnig mikilvægi vonarinnar. Að venju er tónlist í höndum Arnar Arnarsonar, tónlistarstjóra kirkj- unnar. Barnakórar og bandarísk hljómsveit í fjölskyldumessu FJÖLSKYLDUMESSA er í Lang- holtskirkju á sunnudag kl. 11. Séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir mess- ar og organisti er Jón Stefánsson. Tveir af barnakórum kirkjunnar syngja, Kór Kórskóla Langholts- kirkju undir stjórn Bryndísar Bald- vinsdóttur og Graduale Futuri und- ir stjórn Hörpu Harðardóttur. Einnig leikur 60 manna sinfónísk blásarasveit frá River Falls háskól- anum í Wisconsin undir stjórn dr. Kristin Tjornehoj. Hljómsveitin heldur einnig tónleika í kirkjunni sunnudagskvöld kl. 20. Stoppleikhópurinn og Hans klaufi í Seltjarnarneskirkju Í fjölskylduguðsþjónustu sunnudag- inn 14. mars kl. 11 verður Hans klaufi eftir H.C. Andersen sýndur í leikgerð Stoppleikhópsins. Leikararnir Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir eru vel kunn fyrir frábæran leik sinn í þeim barnaleikritum sem þau hafa sýnt hér í kirkjunni, síðast í febrúar slóu þau í gegn með Ósýnilega vininn. Enn á ný eiga þau góðan sprett með þessari nýju leikgerð á Hans klaufa. Barnakór Seltjarnarness syngur falleg lög undir stjórn Vieru Manà- sek organista. Verið öll hjartanlega velkomin! Bjargarkaffi í Óháða söfnuðinum Á sunnudaginn kemur 14. marz kl. 14.00 verður hin árlega kaffisala kvenfélagsins eftir fjölskylduguðs- þjónustu í Óháða söfnuðinum til styrktar líknarsjóði safnaðarins, Bjargarsjóði. Við orgelið hefur verið bætt við tveimur nýjum röddum – úr 6 í 8 – það tekið í gegn og stillt upp á nýtt, og settar hurðir fyrir framan píp- urnar til þess að stjórna tónstyrkn- um. Verður orgelið tekið í notkun við þessa fjölskyldumessu eftir breytingarnar. Munu Margrét Grét- arsdóttir og Ari Gústavsson syngja tvísöng við undirleik Peter Máté orgelleika ásamt kór safnaðarins. Eru börn og unglingar sérstak- lega hvött til þess að koma í fjöl- skylduguðsþjónustuna, sem og aðr- ir vitaskuld líka. Freddie Filmore í Fríkirkjunni Kefas SUNNUDAGINN 14. mars verður Freddie Filmore gestaprédikari í Fríkirkjunni Kefas við Vatnsenda- veg. Freddie Filmore er stofnandi og forstöðumaður Freedom Min- istries, kirkjunnar í Apopka í Flór- ídafylki Bandaríkjanna. Hann er með þætti á sjónvarpsstöðinni Omega og einkennist þjónusta hans af gleði og einlægni í Drottni Jesú. Boðið verður upp á fyrirbænir í lok samkomu. Eiginkona hans, Carroll Filmore, er með í för og hefur hún átt sérlega gott með að þjónusta til kvenna. Samkoman hefst kl. 14.00 og eru allir hjartanlega velkomnir. Tvískipt barnastarf er fyrir 1–6 ára og 7–12 ára á samkomutíma. Kaffi og samfélag eftir samkomu. MESSUR/KIRKJUSTARF Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, HÖGNI ÁGÚSTSSON, Hrafnistu, Reykjavík, lést á Hrafnistu fimmtudaginn 4. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir kærleiksríka umönnun. Ágústa Högnadóttir, Eyjólfur Ólafsson, Elín Ingibjörg Eyjólfsdóttir, Júlíus Helgi Eyjólfsson, Svala Huld Hjaltadóttir og Katrín Lilja Júlíusdóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR PÁLMASON jarðeðlisfræðingur, Miðleiti 1, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu- daginn 11. mars. Ólöf B. Jónsdóttir, Magnús Atli Guðmundsson, Guðrún Torfhildur Gísladóttir, Jón Pálmi Guðmundsson, Þórhildur Lilja Ólafsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HÚNBOGI ÞORLEIFSSON húsasmíðameistari, Hólagötu 41, Ytri-Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðviku- daginn 10. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Einarína Jóna Sigurðardóttir, Hannveig Valtýsdóttir, Páll Hlöðversson, Ragnhildur Húnbogadóttir, Karl Tryggvason, Áslaug Húnbogadóttir, Þorleifur Húnbogason, Guðný Húnbogadóttir, Halldóra Húnbogadóttir, Árni Ingi Stefánsson, Sólrún Henriksdóttir, Skúli Jóhannsson, Ásgeir Húnbogason, Guðbjörg Ásbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, BRAGI JÓNSSON húsasmíðameistari frá Mörk, Vestmannaeyjum, lést á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 11. mars. Sigríður Bragadóttir, Kjartan Lilliendahl, Jón Trausti Bragason, Kristín Laufey Reynisdóttir, Tómas Bragason, Sigrún Edda Sigurðardóttir, Hermann Kristinn Bragason, Jóhanna Þorsteinsdóttir og barnabörn. Eiginmaður minn, bróðir, mágur og frændi, JÓN ÁRNASON bóndi og harmónikuleikari, Syðri-Á, Ólafsfirði, lést að kvöldi miðvikudagsins 10. mars. Útför hans fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 20. mars kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Ólafsfjarðarkirkju og Krabbameinsfélgið. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Ingi Viðar Árnason, Katrín Sigurðardóttir, Árni Helgason, Sigurbjörg Ingvadóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.