Morgunblaðið - 14.03.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.03.2004, Blaðsíða 25
ur hafi aukist og samkeppnin vaxið, en það taki tíma hjá fyrirtækjum að breyta vinnubrögðum sínum. Pálmi tekur sem dæmi að afar margir tali í farsíma undir stýri á bíl þrátt fyrir að það sé bannað með lögum, en ekkert sé gert í því. Eftir einhver ár, þegar lögin verði búin að vera lengi í gildi og fáir tali í farsímana við akst- ur, þá verði þeir fáu sem brjóti af sér sektaðir. Hraður vöxtur eigin fjár Fengs Spurður um eignamyndun Fengs, og þar með hans sjálfs sem á meiri- hluta félagsins, segir Pálmi að Feng- ur hafi gengið mjög vel. Eigið fé Fengs hafi farið úr um 500 milljón- um króna þegar hann keypti félagið í um 2.500 milljónir króna nú. Eins og komið var inn á hér að framan eiga félög Pálma stóra hluti í fjölda fyrirtækja, og auk þeirra sem þegar hafa verið nefnd má geta Innn hugbúnaðarhúss og Mjallar-Friggj- ar. Þetta hefur gerst á örfáum árum og Pálmi er spurður að því hvernig hann fari að því að fjármagna öll þessi kaup. „Ég ætla ekki að upplýsa nákvæmlega hvernig ég fer að þessu, en þegar eigið féð vex úr 500 milljónum í 2.500 er greinilegt að hagnaður hefur myndast. Ef þú skoðar Flugleiðabréfin, en þau við- skipti eru opinber, þá greiddi ég um 300 milljónir króna fyrir þau og þau eru 1.100 milljóna króna virði í dag. Þarna eru 800 milljónir í hagnað. Hagnaður af Kaldbaksbréfunum er um 400 milljónir króna og þarna eru komnar 1.200 milljónir króna bara af þessum tveimur skráðu félögum. Svo hef ég verið lengi að selja og kaupa,“ segir Pálmi og segir að Fengur hafi selt töluvert af fasteign- um á síðasta ári fyrir um 600 millj- ónir króna, en félagið sé ekki lengur í fasteignaviðskiptum. Fjármögnun Fengs Spurður að því hvort hann hafi einnig fjármagnað fjárfestingar sín- ar með erlendum lántökum segir Pálmi að Fengur sé ekki mjög skuld- sett félag og hann sé sjálfur mjög íhaldssamur þegar komi að svona hlutum. Hann segir að Skeljungur sé svolítið sérstakur í þessu tilliti. „Sú fjárfesting er svo stór að maður dregur það fjármagn ekkert undan koddanum. Þar þarf þess vegna að taka lán fyrir kaupunum,“ segir Pálmi og þar var það KB banki, við- skiptabanki Pálma og seljandi Skelj- ungs, sem fjármagnaði kaupin. Spurður um umræðuna um erlend lán í tengslum við yfirtökur félaga segist Pálmi ekki sjá nein rök gegn þeim. Það séu eignir á móti lánun- um, þær fari vaxandi en gleymist í umræðunni. Lántakan sé líka vegna útrásar íslenskra fyrirtækja á er- lenda markaði og fyrirtækjum á borð við Baug og Bakkavör hafi orð- ið mjög vel ágengt á því sviði, sem sé mjög jákvætt fyrir Ísland. Pálmi er að lokum spurður að því hvernig hann fari að því að finna tíma til að sinna öllum þeim fjöl- breytilegu verkefnum sem hann er í, en hann segir að það sé ekki vanda- mál. Þetta sé meira spurning um að halda áhuganum og skipuleggja tím- ann. „Ég er alveg tilbúinn að byrja snemma og vinna langan vinnudag,“ segir Pálmi, sem kvæntur er Höllu Rannveigu Halldórsdóttur, sem starfar hjá hugbúnaðarhúsinu Innn. Saman eiga þau fjögur börn og seg- ist Pálmi líka þurfa að finna sér tíma frá amstri dagsins til að sinna fjöl- skyldunni. haraldurj@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MARS 2004 25 Styrkir eru veittir til öryrkja til hagnýts náms, bóklegs eða verklegs, svo og til náms í hvers konar listgreinum. Einnig er heimilt að styrkja þá sem vilja hæfa sig til starfa í þágu þroskaheftra. Umsóknum skal skila til Öryrkjabandalags Íslands, Hátúni 10, Reykjavík fyrir 30. apríl nk. Allar nánari upplýsingar gefa Guðríður Ólafsdóttir í vinnusíma 530 6700 Arnþór Helgason í vinnusíma 530 6700. Styrkjunum verður úthlutað 10. júní. Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur. Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur Umsóknir um styrki. Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.