Morgunblaðið - 14.03.2004, Page 39

Morgunblaðið - 14.03.2004, Page 39
Kópavogskirkja: Fjölskyldu- og æsku- lýðsguðsþjónusta kl. 11.00. Börn úr 5. bekk Kársnesskóla syngja undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur kórstjóra. Krakk- ar úr barna- og æskulýðsstarfi kirkjunn- ar taka virkan þátt í guðsþjónustunni. Undirleik annast Örn Ýmir Arason sem spilar á kontrabassa, Þorkell Helgi Sig- fússon sem leikur á selló, Viktor Árna- son og Páll Palomares spila á fiðlur. Messa kl. 14.00. Fermingarbörn og for- eldrar þeirra eru hvött til þátttöku en fundur verður með þeim í Borgum eftir messu. Séra Ingþór Indriðason Ísfeld predikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti. Félagar úr kór Kópavogs- kirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Guðmundur Ómar Óskars- son. Sr. Ægir. Fr. Sigurgeirsson. Háteigskirkja. Eldri borgarar. Fé- lagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Skráning í síma 511 5405. Árbæjarkirkja. Kl. 20 Lúkas, æsku- lýðsfélag Árbæjarsafnaðar, með fundi í safnaðarheimilinu. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9-17 í síma 587 9070. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk kl. 20. Mánudagur: Æsku- lýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20. Bessastaðasókn. Sunnudagaskólinn er í sal Álftanesskóla kl. 11. umsjón með sunnudagaskólanum hafa Krist- jana og Ásgeir Páll. Allir velkomnir. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnu- dag kl. 19.30. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða- smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir. Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601. Í dag er samkoma kl. 14.00. Freddie Filmore frá Bandaríkjunum er gestaprédikari. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir 1-6 ára og 7-12 ára á samkomutíma. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Allir eru hjartanlega vel- komnir. Nánari upplýsingar á www.ke- fas.is. Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 16:30. Ræðumaður Glenn Kaiser. Gospelkór Fíladelfíu leiðir í söng. Fyr- irbæn í lok samkomu. Barnakirkja á sama tíma. Miðvikudaginn 17. mars kl. 18:00-20:00 er fjölskyldusamvera með léttri máltið, kl. 20:30 eru lofgjörð- artónleikar með Glenn Kaiser - miða- salan er hafin. Fimmtudaginn 18. mars kl. 15:00 er samvera eldri borgara. Allir eldri borgarar velkomnir. Fimmtu- daginn 18. mars kl. 20:30 eru blues- tónleikar með Glenn Kaiser, miðasalan er hafin. Bænastundir alla virka morgna kl. 06:00. filadelfia@gospel.is www.gospel.is Safnaðarstarf KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MARS 2004 39 KÆRI lesandi. Ég vil byrja þennan þátt með því að bjóða þér gleðilegt gróðurár og þakka kærlega liðin ár. Við höf- um verið samferða hér á síðum Morgunblaðsins í áratugi og þeir eru margir sem hafa komið að Blómi vikunnar fyrir hönd Garð- yrkjufélags Íslands á þessu tímabili og von- andi að svo verði enn um sinn. Það er alls ekki ótímabært að hefja pistlaskrifin því það er allt komið á fleygiferð í garðinum. Við erum stundum að kveina yfir að við séum á mörkum hins byggilega heims, það ætti eiginlega eng- inn að búa á þessu skeri, hér sé myrkur hálft árið og hitinn fari varla nokkurn tímann yfir frostmark. Ef þetta er rétt þá er eins og gróðurinn viti ekki af því, að minnsta kosti ekki garða- gróðurinn. Veturinn er misjafnlega langur þótt ekki sé það svo sam- kvæmt almanakinu, fyrsti vetr- ardagur og fyrsti sumardagur eru á sínum vissa stað. Það er oft erf- itt að fastsetja hvenær haustinu lýkur eða vorið byrjar, en ef mig misminnir ekki því meira, þá voru blómstrandi stjúpur úti í garði 15. nóvember og 15. febrúar voru bæði vetrargosar og krókusar blómstrandi í garðinum mínum. Það eru þessi litlu vorblóm sem mér finnast alveg ómissandi í garðinn. Það eru þau sem hvísla að okkur að vorið sé á næsta leiti, bara að bíða enn nokkrar vikur þá komi betri tíð með blóm í haga og á meðan skuli þau lífga upp á til- veruna. Langsamlega flest þeirra blóma, sem eru fyrst á ferðinni síðvetrar eða snemmvors, ganga undir safn- heitinu laukar. Þetta er þó meira en lítið villandi; það er líka til ætt- kvíslin laukar, sem heitir Allium á latínu, og til að mynda krókusar og vetrargosar, túlipanar og páskaliljur eru alls ekki af lauka- ættkvíslinni en eru þó kannske fyrst og fremst þær plöntur, sem við eigum við þegar við tölum um lauka svona almennt. Til að bíta höfuðið af skömminni eru þessi blóm, sem oftast eru fyrstu boð- berar vorsins, alls ekki kölluð vor- laukar heldur haustlaukar. Vor- laukar eru dalíur, gladíólur og begóníur, svo nokkuð sé nefnt. Orðið haustlaukar vísar til þess að þessir „laukar“ eru settir niður á haustin og þola ágætlega að bíða í moldu þótt frost sé og snjór, en um leið og Vetur konungur fer að láta nokkurn bilbug á sér finna, spretta upp hvítir, gulir, ljósbláir eða lillabláir blómflekkir. Fyrstu krókusarnir geta verið á ferðinni um miðjan febrúar þótt það sé nú frekar undantekning, en þeir síðustu eru að blómstra um miðjan maí. Krókusar eru upp- runalega fjallaplöntur og vaxa villtir í Suður-Evrópu, austur um Litlu-Asíu, alveg austur í Íran. Það eru líklega til 70–80 mismunandi tegundir af krókusum, en við ræktun hafa fengist fram fjölmörg afbrigði og blendingar. Þeir krók- usar, sem mest eru ræktaðir hér á Íslandi, eru tiltölulega stórblóma afbrigði af vorkrókus, Crocus vernus, sem stundum er líka kall- aður garðakrókus. Það eru hins vegar ýmsir villikrókusar, sem eru fyrstir á ferðinni, eins og trygg- ðakrókus, C. chrysanthus, eða balkankrókus, C. tommasinianus. Þessir villikrókusar eru smávaxnir en oft enn skrautlegri en þeir stór- blóma. Það er ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með vexti krókusanna. Fyrst koma upp úr mold- inni ljósgrænir broddar og smám saman sést að þetta eru blöðin, líkust grasstráum í laginu, en með mjög ein- kennandi, hvíta rönd eftir endilöngu miðju blaðinu. Fljót- lega kemur líka ann- ar broddur í ljós, það er sjálft blómið, sem er umlukið mjög ljósri himnu, meðan það er að ryðjast upp úr moldinni. Ef það kemur frostakafli um það leyti sem krókusarnir eru að líta dagsins ljós, stoppa þeir bara í rólegheitum og bíða eftir að hlýni á ný, þessi hvíta himna er nánast eins og dúnsæng utan um blómið. Það er hins vegar verra ef það kemur langur frostakafli eftir að blómið er fullsprungið út, þá er hætt við að illa fari, þótt plöntusaf- inn sé nánast eins og frostlögur. Krókusblómið er dálítið sér- stakt, blómblöðin eru sex en ekki sérstök bikarblöð og krónublöð. Hjá villikrókusunum er ytri hlið blómblaðanna oft öðru vísi á litinn en sú innri, þannig að blómið virð- ist skipta litum eftir veðri, því það opnar sig í sólskini og er lokað í dimmviðri. Það eru þó ekki allt blómið sem kemur upp úr mold- inni, eins og við eigum yfirleitt að venjast, egglegið er neðanjarðar. Hjá krókusum er skordýrafrjóvg- un algengust; ákveðnar tegundir af býflugum sjá um þann þátt máls- ins, a.m.k. í útlöndunum. Ef sólin lætur hins vegar ekki sjá sig getur farið svo að flugurnar komist alls ekki að og þá grípur krókusinn til sjálffrjóvgunar. Þetta segja þeir í blómabókunum. Hvernig sem því er farið þá þroskast fræið og þeg- ar það er fullþroska hefur fræ- hirslan náð að vaxa upp úr mold- inni. Ég var lengi að átta mig á að þetta væri raunverulega fræhirsla, ekki vísir að nýju blómi. Einhvern tímann ætla ég að safna krók- usfræi og prófa að sá til þeirra, en fræsáning er þó ekki aðal fjölg- unarleið krókusa. Það að mynda blómin og blöðin eins og krókusar gera krefst mikillar orku og krók- ushnýðið visnar upp þegar líður á sumarið, þannig að sama hnýðið getur ekki blómstrað aftur að sumri. En náttúran sér um sig. Nýir smálaukar myndast ofan á gamla hnýðinu. Því er mikilvægt að leyfa blöðunum að vaxa þótt blómguninni sé lokið. Því aðeins getur nýja hnýðið þroskast nægi- lega til að blómstra að ári. Þegar laufið er farið að visna er hins veg- ar um að gera að fjarlægja það, nú er hnýðið lagst í dvala og liggur rólegt í moldinni og bíður eftir betri tíð með blóm í haga næsta vor. Villikrókusar Vorkrókus – C. vernus og tryggðakrókus – C. chrys. VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r 506. þáttur S.Hj. Málefni samkyn- hneigðra rædd í kvöldmessu NÚ ER komið að kvöldmessu mars- mánaðar í Laugarneskirkju. Að venju er það kór Laugarneskirkju sem leiðir safnaðarsönginn undir stjórn Gunnars Gunnarssonar og við undirleik djasskvartetts hans sem skipaður er Sigurði Flosasyni á saxófón, Matthíasi MD. Hemstock á trommur og Tómasi R. Ein- arssyni á kontrabassa, auk Gunn- ars sem leikur á píanó. Að þessu sinni mun sóknarpresturinn sr. Bjarni Karlsson prédika og útskýra nánar sannfæringu sína hvað varð- ar málefni samkynhneigðra í sam- félagi okkar, byggða á orðum Bibl- íunnar og trúnni á Jesú. Meðhjálp við guðsþjónustuna annast Sig- urbjörn Þorkelsson. Að messu lok- inni verður boðið til fyrirbæna við altarið auk þess sem messukaffi verður reitt fram í safnaðarheim- ilinu. Unnt verður að skrá netföng þeirra sem vilja fá prédikun kvölds- ins senda, til aflestrar og íhugunar. Seinni hluti Yfirprentunin þrír á fimmaura frímerki frá 1882, sem gerð var 1897, vakti mikla athygli, þegar hún kom út. Í síðasta frímerkja- þætti, 11. þ.m., var fjallað um ný- stárlega kenningu, sem Þór Þor- steins hefur sett fram um raunverulega þörf þessarar yf- irprentunar. Þegar á árinu 1897 kom upp sá orðrómur, að Ditlev Thomsen, einn umsvifamesti kaupmaður á Íslandi og jafnframt frímerkja- kaupmaður, hefði haft náin af- skipti af yfirprentun þessari, að sjálfsögðu á bak við tjöldin og í gróðaskyni. Um þennan orðróm vitna ýmis ummæli í frímerkja- blöðum á Norðurlöndum og í Þýzkalandi. Þau komu fram þegar á árunum 1898 og 99, aðeins nokkrum mánuðum eftir yf- irprentunina. Þeirra er getið í bók minni, svo að lesendur geta kynnt sér þau þar. Það er því ógerlegt að sniðganga umsagnir þessara manna, sem munu hafa verið við- skiptavinir Thomsens og trúlega einnig persónulegir kunningjar hans. Þór virðist vefengja ummæli hins nýja póstmeistara, Sigurðar Briems, og eins yfirmanns póst- mála á Íslandi, Magnúsar Steph- ensens landshöfðingja. Ljóst er, að Þór virðist ekki þekkja, hversu ís- lenzkir embættismenn voru strangir í allri embættisfærslu á þessum árum, bæði gagnvart sjálf- um sér og ekki síður gagnvart undirmönnum sínum. Af því að það „passar ekki við“ hugmynd Þórs, segir hann umbúðalaust: „Flest bendir því til þess að aðrar ástæð- ur hafi legið að baki þörfinni fyrir yfirprentunina þrátt fyrir yfirlýs- ingar Póstmeistara og Landshöfð- ingja.“ Ég segi, að það þurfi mikla djörfung til að ganga í berhögg við skrif æðstu embættismanna ís- lenzkra póstmála innanlands á þeim tíma, sem yfirprentunin átti sér stað. Það þarf þó ekki að vera ósamrýmanlegt, að raunverulegar ástæður að baki þörfinni fyrir yf- irprentunina hafi verið aðrar en embættismennirnir þekktu. Von- andi þarf því ekki að skilja orð Þórs svo, að hann geri beinlínis ráð fyrir, að hér hafi verið farið með vísvitandi ósannindi í blekking- arskyni. Yfirprentunin gat vits- kuld ekki farið fram nema með leyfi landshöfðingja, sem var æðsti yfirmaður póstmála í landinu. Yfirprentunin fór fram í nóv- ember 1897, þ.e. nokkrum mán- uðum áður en farið er að fara veru- lega ofan í skil dánarbús Finsens og skil Hannesar Ó. Magnússonar við það og póstsjóðinn. Þau urðu ekki endanleg fyrr en 1898. Þá skulum við vera minnug þess, eins og Þór hefur staðfest, að Eyjólfur, tengdafaðir Hannesar, fær tvo virðulega borgara í Reykjavík til að greiða með sér skuld tengda- sonarins við póstsjóðinn. Hvor- ugur þeirra var frímerkja- kaupmaður, svo að vitað sé – nema þá Sigurður Kristjánsson bóksali í einhverjum mæli. Þessir menn hafa ekki ætlazt til umbunar af hálfu póstyfirvalda. Þeir gerðu fjölskyldu Eyjólfs einungis greiða með þessum hætti. Þá er það dánarbú Finsens póst- meistara og skuldaskil þess og fjölskyldunnar við póstsjóðinn. Þau hafa farið fram með öðrum hætti en skil Hannesar, setts póst- meistara frá marz 1897, og að öll- um líkindum á annan veg en Þór Þorsteins telur sig hafa vitneskju um. Fram kom, að skuld dánarbús- ins við póstsjóð var kr.13.587,92. Þetta var mjög veruleg fjárhæð á þeim tíma. Engu að síður var hún að fullu greidd árið 1899, að því er Þór segir. Virðist það hafa orðið á ótrúlega skömmum tíma. En var skuldin hugsanlega greidd af þeim hagnaði, sem yfirprentunin þrír færði kaupmönnum, eins og Þór hyggur? Slíkt er fráleitt, þegar grannt er skoðað. Almennt er talið, að yfirprentuðu arkirnar hafi verið 136 x 100 og frímerkin þá verið 13.600. Söluverð allra arkanna á pósthúsinu í Reykjavík hefur þá numið 408 krónum eða um 0,3% af skuld dánarbúsins. Sú upphæð hefur þess vegna ekki hossað hátt við uppgjör búsins, ein og sér. Ég hef enga trú á, að það brask, sem komst fljótlega á með þrír-merkin, allt upp í 20 kr. fyrir einstök af- brigði prentunarinnar, hafi skilað sér til dánarbús Finsens. Aðrir menn högnuðust á þvi, eins og fljótlega kom í ljós. Ef við skoðum umhverfi ekkjunnar í gamla póst- húsinu við Austurvöll, er önnur skýring miklu nærtækari og raun- verulegri en hugmynd Þórs. Marie Kristine, ekkja Finsens, var af merkri embættismannaætt, dóttir Þórðar háyfirdómara Jónassens og systir Jónasar Jónassens land- læknis. Er ég ekki í vafa um, að fjölskylda hennar, ekki sízt Jón- assen landlæknir, og nánustu vinir hafi aðstoðað hana á marga lund við andlát manns hennar og þá ekki sízt í fjárþröng hennar. Hér var því ekki þörf á „spek- úlasjónsútgáfu“ frímerkja til þess að rétta við fjárhag Finsensfjöl- skyldunnar. Þór Þorsteins ýjar að því, að póstyfirvöld hafi gefið samþykki til þessarar yfirprentunar. Að mínum dómi er þessi getgáta einnig frá- leit. Þarf ekki annað en minna á ummæli landshöfðingja á Alþingi 1893, þegar fram kom tillaga um nýja frímerkjaútgáfu í gróðaskyni, sbr. Ísl. frím.,172. bls. Hann var með öllu andvígur tillögunni og gat ekki dulið fyrirlitningu sína á þess- ari útgáfustarfsemi og taldi, að Al- þingi eða fjárveitingavaldið gæti ekki „verið þekkt fyrir að brúka þess háttar fjárhagslega pretti“. Ég spyr þess vegna lesendur að lokum: Dettur nokkrum manni í hug, að landshöfðingi hafi breytt skoðun sinni fjórum árum eftir 1893 og leyft yfirprentunina þrír í brasktilgangi, jafnvel til þess að bjarga fjármálum Finsensfjöl- skyldunnar? Þessu hefur hann svarað sjálfur með ofangreindum orðum sínum. Hvað er þá eftir á bak við yf- irprentunina þrír? Því hef ég svar- að í bók minni fyrir aldarfjórðungi eins vel og þá var kostur, það er þýzki konsúllinn, Ditlev Thomsen, eins og flestir frímerkjamenn vissu raunar þegar á árunum 1897 og 98. Ég vona, að þessar athugasemd- ir mínar við fullyrðingum Þórs Þorsteins um þrír-yfirprentunina 1897 nægi til þess að sýna, hversu haldlausar þær eru, þegar grannt er skoðað. Yfirprentunin þrír FRÍMERKI Jón Aðalsteinn Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.