Morgunblaðið - 14.03.2004, Page 41

Morgunblaðið - 14.03.2004, Page 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MARS 2004 41 ✝ Júlíana Árna-dóttir fæddist í Bjarneyjum á Breiðafirði 27. ágúst 1924. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 29. febrúar síðastliðinn. Júlíana giftist 14.8. 1950 Magnúsi Ingj- aldssyni, f. 13.10. 1915, d. 29.12. 2002, og eignuðust þau sjö börn. Þau eru: 1) Guðrún Eygló, f. 1.11. 1945, maki Haf- liði Jónsson, f. 26.3. 1946. 2) Ragnheiður Árný, f. 23.1. 1947, d. 3.11. 1993. 3) Bergþór, f. 27.1. 1950, maki Helga Hákonar- dóttir, f. 21.10. 1951, 4) Inga, f. 18.4. 1952, d. 27.6. 1986. 5) Sigríð- ur, f. 29.6 1953, d. 5.3. 2002, maki Auð- unn Sigurjónsson, f. 24.8. 1948. 6) Ingv- eldur Jóna, f. 26.12. 1957, maki Mattías Hannesson, f. 11.12. 1961, d. 23.2. 2002. 7) María, f. 6.7. 1960, d. 9.1. 2001. Barna- börnin eru 22 og barnabarnabörnin eru orðin 34. Júlíana og Magnús bjuggu allan sinn bú- skap í Reykjavík, lengst af á Klepps- vegi 76, en einnig í Furugerði 1, og nú síðast á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför Júlíönu var gerð frá Foss- vogskirkju 10. mars síðastliðinn. Þá hefur hún elskuleg amma mín kvatt þetta jarðneska líf. Amma var mjög dugleg kona í alla staði, eignaðist átta börn, sem segir nú sitt, hún vann myrkranna á milli og sat um nætur við saumavélina og saumaði ýmislegt fyrir börnin, s.s. föt, dúkkur og fleira. Heimili hennar var ávallt til fyrirmyndar, því amma vildi hafa allt í röð og reglu. Hún kenndi mér margt og þykir mér mjög vænt um að hafa verið skírð í höfuðið á henni því mikið leit ég upp til hennar og var alltaf mikill sam- gangur á milli heimila okkar bæði þegar ég var lítil stelpa og einnig þegar ég var sjálf komin með börn og heimili. Á svona stundu koma ótal minn- ingar upp í hugann, minningar sem eru mér svo mikils virði og skemmti- sögur af afa og ömmu sem aðeins þeir sem þau þekktu skilja og geta hlegið að. Efst í huganum eru öll ferðalög okkar saman, meðal annars ferðin til Hollands, sem var óborg- anleg, mikið hlógum við í þeirri ferð og erum enn að hlæja þegar við hugsum til baka. Spilakvöldin á Kleppsveginum voru líka eitthvað sem við sem þar vorum munum aldr- ei gleyma því þar var mikið hlegið. Ég vil nú trúa að amma Mæja og mamma sitji þarna í efri hæðum og spili yatsy og hlæi eins og þær voru vanar og þeir sem þær þekktu vita að það var enginn smáhlátur. Svona vil ég muna þær, þessar mikilvæg- ustu konur í mínu lífi, þær sem kenndu mér allt og voru mér allt. Ég veit vel að þær eru mjög ánægðar og líður öllum vel, en það er svo erfitt að sjá á eftir þeim. Amma var mjög falleg kona og klæddist fínum fötum, ég man þegar ég var lítil og amma kom í heimsókn í nýjum fallegum pels með skart og nýlagt hárið, að mér fannst að hún hlyti að vera drottning, svo fín var hún. Amma sat mjög oft við eldhús- gluggann á Kleppsveginum og horfði út á sjóinn, hún vissi nákvæmlega hvenær skipin sigldu í eða úr höfn- inni, hún elskaði sjóinn og að vera úti í náttúrunni hvort sem var í tjaldútil- egu eða að veiða, já veiðitúrarnir eru nokkuð sem aldrei gleymist, því yf- irleitt gerðist eitthvað sem seinna var mikið hlegið að. Já minningarnar eru margar sem munu lifa um ókom- in ár, sögurnar hef ég til að segja mínum börnum og einnig til að verma hjörtu okkar sem sitjum eftir og syrgjum. Elsku amma, ég á þér ótalmargt að þakka, jólakökuuppskriftina með súkkulaðibitunum sem þið Mæja bökuðuð svo oft sem börnin mín fá nú að njóta, öll aðfangadagskvöldin sem við spiluðum fram á nótt, allir jóladagarnir sem þú hélst fjölskyldu- boð. Þakka þér fyrir allt þetta og svo miklu miklu meira sem ég geymi fyr- ir mig sjálfa. Þín nafna Júlíana. Elsku amma mín, þá hefur þú loksins fengið hvíldina, eftir erfiðan tíma þessi síðustu ár. Þú þurftir að horfa á eftir afa og tveimur dætrum þínum á sama tíma og sjúkdómurinn rændi þig minninu smám saman. Þegar við systurnar komum að heimsækja þig í Sóltún, þín síðustu ár, varstu alltaf glöð að sjá okkur þó að þú vissir ekki hverjar við værum, né hvað við hétum, þú vissir að við værum þínar. Í þessum heimsóknum spiluðum við stundum við þig, þá ljómaðir þú alveg, þér fannst svo gaman, og þótt að ég vissi ekki alveg hvaða spil við værum að spila var það allt í lagi, það var bara nóg að horfa á þig. Úr æsku minni á ég margar minn- ingar um þig, amma mín, öll ferða- lögin og veiðitúrana, jólaboðin á Kleppsveginum, Hollandsferðina og margt fleira sem við brölluðum sam- an. Blessuð sé minning þín, amma mín, og hafðu þökk fyrir allt. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (Valdimar Briem.) Svanlaug Auðunsdóttir. JÚLÍANA ÁRNADÓTTIR Elsku systir mín, nú hefur þú kvatt okkur tímabundið. Þú tókst þínum veik- indum með því æðru- leysi og dug sem þér einni var lagið. Þó ég viti að leiðin hafi oft á tíðum verið ansi þungfær hafðir þú ekki mörg orð um það, fórst frekar í hlut- verk Pollýönnu. Ég er svo lánsöm að hafa átt þig fyrir stóru systur mína, þú gast alltaf minnt mig á það góða í mér þegar ég sá það ekki á erfiðum stundum. Mörg eru leyndarmálin sem við spjöllum betur um seinna, svo ekki sé minnst á verslunarferðina sem ég, þú og Kolla mágkona okkar eigum eftir að fara í. Það verður gert með stæl þegar við hittumst allar þrjár. Elsku systir, ég veit að þú kemur til með að syngja í englakórnum í þínum nýju heimkynnum. Í þann kór ætla ég líka er við hittumst á ný, þú tekur kannski frá pláss fyrir mig við hlið þér. Þá verðum við aftur syngj- andi saman eins og í gamla daga. Við erum mörg sem syrgjum nú yndislega móður, dóttur, systur, ömmu, mágkonu, frænku og vin. Megi ljósið lýsa okkur í sorginni. Systir mín, ég kveð þig, þar til við hittumst að nýju. Þín systir, Sigríður Björnsdóttir. BRYNDÍS BJÖRNS- DÓTTIR BIRNIR ✝ Bryndís Björns-dóttir Birnir fæddist í Reykjavík 11. júní 1951. Hún lést á krabbameins- deild Landspítalans við Hringbraut 4. mars síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Kópavogs- kirkju 11. mars. Gráttu ekki af því ég er dáin ég er innra með þér alltaf þú hefur röddina hún er í þér hana getur þú alltaf heyrt þegar þú vilt. Þú hefur andlitið líkamann ég er í þér þú getur séð mig fyrir þér þegar þú vilt allt sem er eftir af mér er innra með þér þannig erum við alltaf saman. (Þýð. V. D.) Elsku Bryndís. Það er vissulega yndisleg tilfinning að eiga góðan vin. Og að hafa fengið að kynnast þér og öllum þeim mannkostum sem þú hafðir að geyma gerir mig vonandi að betri manneskju. Ég mun ávallt geyma minningu þína í hjarta mínu og vináttu þína í huga mínum. Þín Kolbrún Jónsdóttir. Þau ljós sem skærast lýsa þau ljós sem skína glaðast þau bera mest birtu en brenna líka hraðast. Og fyrr en okkur uggir, fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllu sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi kjósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Guð geymi þig í ljósinu. Þín frænka, Thelma, Bandaríkjunum. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAUKUR TRYGGVASON, Sæbóli, Dalvík, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 6. mars, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju þriðjudaginn 16. mars kl. 13.30. Þuríður María Hauksdóttir, Sigurgeir Söebech, Gunnlaug Jóhannesína Hauksdóttir, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Stella Bára Hauksdóttir, Gunnar Gunnarsson, Hjördís Sigurbjörg Hauksdóttir, Pálmi Björnsson, Bryndís Anna Hauksdóttir, Stefán Georgsson, Sigurjóna Hauksdóttir, Ólafur Georgsson, Kristín Elsa Hauksdóttir, Coloníal W. Robinson, Hallfríður Jóna Hauksdóttir, Haraldur Gunnþórsson, Hafliði Jón Hauksson, Pálína Hauksdóttir, Billi Ronald Lee, Þórir Magnús Hauksson, Þórunn K. Sigurðardóttir, afa- og langafabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and- lát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELÍNAR DAVÍÐSDÓTTUR, Dalbraut 18, Reykjavík. Hafsteinn Guðbjörnsson, Maj-Brit Kolbrún Hafsteinsdóttir, Hilmar Guðbjörnsson Sveinbjörg Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Við sendum öllu því góða fólki, stofnunum, félögum og samtökum, innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vinarhug og stuðning vegna andláts og útfarar ástkærrar dóttur okkar, systur og barnabarns, LINDU GUÐJÓNSDÓTTUR, Dunhaga 11, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Ellen Ólafsdóttir, Guðjón Kárason, Ólöf Ása Guðjónsdóttir, Hulda Ólafsdóttir, Ólafur Sveinsson, Lillý Ása Kjartansdóttir. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR (Hædí) JÓHANNESDÓTTIR, Hjallaseli 49, Reykjavík, verður jarðsungin frá Seljakirkju mánudaginn 15. mars kl. 13.30. Þráinn Arinbjarnarson, Ágústa H. Þráinsdóttir, Jónas Guðmundsson, Sigríður K. Þráinsdóttir, Elías Bj. Jóhannsson, Margrét J. Þráinsdóttir, Torfi K. Karlsson, ömmubörn og langömmubörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN KARLSSON, Lerkigrund 3, Akranesi, lést sunnudaginn 7. mars síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju þriðju- daginn 16. mars kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd. Stella Eyrún Clausen, Arinbjörg Clausen Kristinsdóttir, Röðull Bragason, Sigurbaldur Kristinsson, Halldóra Halla Jónsdóttir, María Kristinsdóttir, Jón Bjarni Gíslason, Kolbrún Belinda Kristinsdóttir, Óskar Gunnar Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.