Morgunblaðið - 18.03.2004, Síða 1
Leitin að
Angelu Shelton
Hún var beitt kynferðislegu ofbeldi
og er óhrædd að segja frá því | Fólk
Viðskipti og Ver í dag
Viðskipti | Fréttir Stjórnarhættir fyrirtækja Fjármál
Fyrirtæki á verðlaunapalli Hugbúnaður Úr verinu |
Landið og miðin Saltfiskur Fiskverð Bryggjuspjall
ÓLAFUR Elíasson hefur hafnað tillögu
frá Tate Modern um að sýning hans,
„Verkefni um veðrið“ í túrbínusal safnsins,
verði framlengd en hún hefur staðið síðan
15. október sl. Sýningum mun því ljúka 21.
mars nk., en gífurleg aðsókn hefur verið að
sýningunni.
Í samtali við blaðið International Herald
Tribune segist Ólafur ætla að taka sér
nokkurra mánaða frí frá vinnu til að melta
árangurinn undanfarið, en auk sýningar í
Tate Modern hefur hann sýnt í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu, Astrup
Fearnley-safninu í Ósló, á Feneyjatvíær-
ingnum og víðar.
Ólafur segir tímann eftir að sýningu lýk-
ur alveg jafnáhugaverðan og tímann sem
sýningin er uppi, þar sem þá sé hún orðin
minning í huga þeirra sem hana upplifðu
og þar með breytist merking hennar.
Ólafur vill
ekki ílengjast
í Tate-safni
FJÖLVEIÐISKIPIÐ Baldvin Þorsteinsson er
nú á leið til Noregs í slipp. Gert er ráð fyrir að
skipið komi til Noregs á föstudag eða laug-
ardag. Baldvin Þorsteinsson EA 10 komst á
flot aðfaranótt miðvikudags eftir umfangs-
miklar björgunaraðgerðir í Meðallandsfjörum
undangengna viku. Þegar ljóst var orðið að
Baldvin var laus af strandstað réðu björg-
unarmenn og -konur í fjörunni sér vart fyrir
kæti, enda flestir orðnir þreyttir eftir mikla
vinnu. Ekki þurfti að losa olíu úr skipinu til að
létta það fyrir björgun af strandstað./34
Landhelgisgæslan/JónPáll Ásgeirs
Frækileg björgun Baldvins Þorsteinssonar
SÆNSKA akademían tilkynnir í
dag að Guðbergi Bergssyni hafi
hlotnast norrænu bókmenntaverð-
launin. Verðlaunin hafa verið veitt
árlega frá 1986 og þykja einn mesti
heiður sem norrænum rithöfundi
geta hlotnast og eru gjarnan nefnd
Norrænu nóbelsverðlaunin. Ákvörð-
unin um veitingu verðlaunanna er
tekin af allri akademíunni, þeim
sextán einstaklingum sem einnig
veita Nóbelsverðlaunin. Verðlaunin
afhendir Horace Engdal fram-
kvæmdastjóri akademíunnar við há-
tíðlega athöfn að viðstöddu fjöl-
menni í húsakynnum akademíunnar
síðar á þessu ári. Verðlaunaféð
nemur 250 þúsund sænskum krón-
um.
Guðbergur
fær verðlaun
Sænsku aka-
demíunnar
AÐ minnsta kosti tuttugu og átta
manns biðu bana og fjörutíu og
einn til viðbótar særðist þegar
sprengja sprakk við hótel í Bagdad,
höfuðborg Íraks, síðdegis í gær.
Ekki var vitað hvort um sjálfs-
morðsárás var að ræða en talið var
að flestir gesta hótelsins væru
arabar. Maður sem lifði tilræðið af
sagði þó að þar hefðu búið bæði
Bandaríkjamenn og Bretar.
Sprengingin varð í bæjarhluta
Bagdad sem nefnist Karrada. Hót-
elið sem um ræðir heitir Mount
Lebanon. Töldu talsmenn Banda-
ríkjahers víst að um bílsprengju
hefði verið að ræða. Ralph Baker,
ofursti í Bandaríkjaher, sagði Vest-
urlandabúa meðal látinna og þá
hermdu fréttir að nokkrir Egyptar
hefðu beðið bana.
Ár liðið frá innrásinni í Írak
Mount Lebanon-hótelið var eitt
af svokölluðum „auðveldum“ skot-
mörkum í Bagdad, þ.e. öryggisvið-
búnaður var ekki mjög mikill, m.a.
var þar ekki sérstakur varnarvegg-
ur úr steinsteypu sem er við inn-
gang flestra þeirra bygginga sem
hýsa Vesturlandabúa.
Sprengingin í gær var afar öflug
og skildi eftir sig sjö metra breiðan
og næstum fjögurra metra djúpan
gíg. Fimm minni byggingar í ná-
grenninu skemmdust illa og þá
voru átta bifreiðar ónýtar. Mikill
reykur steig til himins eftir spreng-
inguna og illa gekk að slökkva elda
í nærliggjandi húsum og trjám.
Talsmaður íraska framkvæmda-
ráðsins, Hamid al-Kefai, kenndi al-
Qaeda-hryðjuverkasamtökunum
um ódæðið og sagði að Írak þyrfti á
hjálp alþjóðasamfélagsins að halda
við að ráða niðurlögum „óvina
mannkynsins“. Eitt ár er á laug-
ardag liðið frá árás Bandaríkja-
manna á Írak og mikil hætta er tal-
in á því að hryðjuverkamenn láti til
skarar skríða af því tilefni. Tals-
maður Bandaríkjaforseta ítrekaði
hins vegar í gær að ekki yrði hvikað
frá því markmið að koma á lýðræði,
frelsi og stöðugleika í Írak.
Öflug bílsprengja sprakk fyrir framan hótelbyggingu í Bagdad
Tuttugu og átta
manns biðu bana
Reuters
Slasaður maður borinn úr rústum
hótelsins sem var vettvangur
hryðjuverksins í Bagdad í gær.
Enn eitt hryðjuverkið
250 manns til viðbótar slösuðust í
átökunum í gær, þ.á m. hátt í 20
liðsmenn KFOR, fjölþjóðahers Atl-
antshafsbandalagsins, sem reynt
höfðu að halda stríðandi fylkingum
aðskildum. Útgöngubanni var lýst
yfir í Mitrovica í gærkvöldi en gíf-
urleg spenna er nú hlaupin í sam-
skipti Albana og Serba í Kosovo.
Aðdragandi átakanna í gær var
með þeim hætti að á mánudag var
átján ára gamall serbneskur dreng-
ur særður í skothríð í útjaðri
Serbaþorpsins Caglavica, skammt
sunnan við Pristina. Á þriðjudag
drukknuðu síðan þrjú albönsk börn
í ánni Ibar í Mitrovica – en Albanar
búa öðrum megin árinnar og Serb-
ar hinum megin – og hermdu fréttir
að Serbar hefðu borið ábyrgð á
dauða þeirra. Varð þetta til þess að
allt fór í bál og brand í Mitrovica en
sambúð Albana og Serba hefur
lengi verið afar erfið í borginni.
Hörð átök
í Kosovo
Mitrovica, Pristina. AFP.
ÁTTA Albanir og tveir Serbar biðu bana í óeirðum í borginni Mitrovica í
norðurhluta Kosovo í gær en þetta er mesta mannfall í Kosovo frá því í
febrúar 2001 þegar ellefu Serbar biðu bana í sprengjutilræði.
AFAR ófriðlegt var um að litast í
Caglavica, sunnan við Pristina, í
gær. Tveir íslenskir starfsmenn
Sameinuðu þjóðanna, Birgir Guð-
bergsson og Birgir Elíasson, búa í
þorpinu Lpalje-Selo sem er fast við
Caglavica. Morgunblaðið náði tali
af þeim fyrrnefnda á skrifstofu
hans í Pristina og sagði hann ekk-
ert ama að þeim nöfnum. Birgir
sagði hins vegar algerlega út úr
myndinni að hann færi heim til sín
í gærkvöld, hann hefði gert ráð-
stafanir og fengi inni hjá Íslend-
ingum í Pristina.
„Ég þurfti að fara í þorpið mitt
áðan, fór á skotheldum bíl inn í
þorpið, þurfti að ná í hluti þar. Þá
voru allavega þrjú hús brennandi.
Það stóðu allir fyrir utan, fólkið
var mjög hrætt,“ sagði Birgir.
Íslendingar
óhultir
VERÐ á steinbít á fiskmörkuðum landsins
hefur lækkað um rúm 50% frá áramótum
og um nærri 70% á tæplega fimm mánaða
tímabili. Meðalverð ársins er 72,89 krónur
og hefur lækkað mjög frá upphafi árs, var
104,16 krónur í janúar en er tæp 51 króna
það sem af er marsmánuði. Á síðasta ári
fór steinbítsverðið hæst í nóvember eða
165,72 krónur. Meðalverðið hefur því
lækkað um nærri 115 krónur á rúmlega 4
mánaða tímabili. /C1
70% lægra
steinbítsverð
SAMTÖK sem lýstu á hendur
sér ábyrgð á ódæðinu í Madríd
á Spáni í síðustu viku hyggja
ekki á frekari hryðjuverk á
Spáni í bili heldur segjast þau
ætla að gefa nýjum valdhöfum
í landinu ráðrúm til að standa
við gefin loforð um að kalla alla
spænska hermenn frá Írak.
Þetta kemur fram í yfirlýs-
ingu frá Abu Hafs al-Masri-
samtökunum frá því í gær.
Ekki er vitað hvort mark er á
henni takandi en margir telja
Abu Hafs al-Masri ekki hafa
haft bolmagn til að fremja
ódæði eins og það í Madríd.
Hryðju-
verk
afboðuð?
Dubai, Kaíró. AFP, AP.
♦♦♦
Bagdad. AP.
STOFNAÐ 1913 76. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is