Morgunblaðið - 18.03.2004, Qupperneq 16
ERLENT
16 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fjaðurskæri
Eirberg
hjálpartæki og heilbrigðisvörur
Stórhöfða 25 • eirberg.is • 569 3100
ÓÁNÆGJA með Bandaríkjastjórn
og stefnu hennar hefur aukist á því
ári, sem liðið er frá innrásinni í Írak.
Nokkuð hefur þó dregið úr andúðinni
í ríkjum múslíma þótt hún sé hvergi
meiri en þar. Kemur þetta fram í ár-
legri könnun um afstöðu umheimsins
til Bandaríkjanna.
„Niðurstöður könnunarinnar eru
dapurlegar,“ sagði Andrew Kohut hjá
Pew-rannsóknamiðstöðinni í Wash-
ington en jafnvel í Bretlandi, nánasta
bandalagsríki Bandaríkjanna, hefur
stuðningurinn við stefnu Bandaríkja-
stjórnar minnkað mikið eða úr 75%
2002, 70% 2003 og í 58% nú. Kom
þetta meðal annars fram á fréttavef
BBC, breska ríkisútvarpsins, í gær.
Raunar hefur stuðningur við
stefnu Bandaríkjastjórnar aukist í
ríkjum múslíma þótt andúðin sé
hvergi meiri en þar. Nú hafa 45%
Tyrkja „mikla andúð“ á Bandaríkj-
unum en 68% fyrir ári; 50% Pakist-
ana á móti 71% fyrir ári; 67% Jórdana
á móti 83% og 46% Marokkómanna
en 53% í fyrra.
Fram kemur í Pew-könnuninni, að
þessi andúð muni halda áfram að
kynda undir árásum á Bandaríkja-
menn.
Bin Laden vinsæll
meðal múslíma
Madeleine Albright, fyrrverandi
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði, að könnunin sýndi miklar
áhyggjur af utanríkisstefnu Banda-
ríkjanna um allan heim og sérstak-
lega í múslímskum ríkjum.
Meðal múslíma er mikill stuðning-
ur við hryðjuverkaforingjann Osama
bin Laden og einnig við sjálfsmorðs-
árásir í Ísrael og á Bandaríkjamenn í
Írak. Þá veldur það áhyggjum, að
jafnvel í Tyrklandi, sem sækist eftir
aðild að Evrópusambandinu, styður
31% sjálfsmorðsárásir á Bandaríkja-
menn og aðra vestræna menn í Írak.
Á sama máli eru 70% Jórdana, sem
hafa þó verið taldir tiltölulega hóf-
samir.
„Þetta er hrollvekjandi lesning,“
sagði Kurt Campbell hjá CSIS,
Rannsóknastofnun í herfræði- og al-
þjóðamálum.
Treysta ekki
Bush og Blair
Það er þó ekki aðeins, að mikil gjá
sé á milli Bandaríkjamanna og músl-
íma, heldur líka milli Evrópu og
Bandaríkjanna. Var könnunin gerð í
febrúar, fyrir hryðjuverkin í Madríd,
og þá kom í ljós, að stuðningur Evr-
ópumanna við hryðjuverkastríð
Bandaríkjamanna hafði minnkað.
57% Frakka og 49% Þjóðverja töldu,
að Bandaríkjamenn gengju allt of
langt, og George W. Bush Banda-
ríkjaforseti og Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, voru sakaðir um
að hafa logið til um ástæður Íraks-
innrásarinnar.
82% Þjóðverja og 78% Frakka
treysta nú Bandaríkjastjórn verr en
fyrir innrásina og margir telja, að það
hafi verið olíuhagsmunirnir og löngun
Bandaríkjamanna í heimsyfirráð,
sem hafi ráðið för. Það skýrir að ein-
hverju leyti, að 90% Frakka og 70%
Þjóðverja vilja, að Evrópusambandið
verði öflugt mótvægi við Bandaríkj-
unum.
Getur valdið Banda-
ríkjastjórn erfiðleikum
„Var það ekki einmitt þetta, sem
Bandaríkjastjórn vildi? Að önnur ríki
óttuðust hana?“ spyr Albright en
Patrick Cronin hjá CSIS, sem var í
stjórn Bush fyrir Íraksstríð, segir, að
tilgangurinn með því hafi verið að
vara ýmsa vandræðamenn við. Al-
bright svarar því og segir:
„Það er ágætt, að óvinirnir skuli
óttast okkur en er það svo gott þegar
vinir okkar gera það líka?“
Afleiðingar vaxandi andúðar á
Bandaríkjastjórn geta orðið þær, að
erfiðara verði fyrir hana en áður að fá
önnur ríki til liðs við sig. Með könn-
unina í huga muni stjórnmálamenn í
öðrum löndum ekki hætta á það.
Aukin óánægja með
Bandaríkjastjórn
Árleg viðhorfs-
könnun sýnir þó,
að dregið hefur
úr andúðinni í
ríkjum múslíma
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, kom í gær fram á
blaðamannafundi í Kabúl með Ha-
mid Karzai, forseta Afganistans. Po-
well var þar í stuttri heimsókn í gær
og skýrði frá því að Bandaríkja-
stjórn hygðist tvöfalda aðstoðina við
Afganistan í ár. Hún á að nema alls
2,2 milljörðum dala, andvirði rúmra
150 milljarða króna. Powell viður-
kenndi þó síðar, að ekki væri í raun
um aukningu að ræða. Upphæðin
hefði verið samþykkt á Bandaríkja-
þingi í nóvember og því væri fremur
um að ræða formlega tilkynningu
um aðstoðina.
Efnt verður til ráðstefnu í Berlín í
þessum mánuði með þeim ríkjum,
sem mest leggja af mörkum til að-
stoðarinnar við Afganistan, og er bú-
ist við, að þá muni Bandaríkin, Bret-
land, Þýskaland og Japan heita að
leggja fram níu milljarða dollara, um
630 milljarða ísl. kr. Afganir telja sig
hins vegar þurfa meira en 1.900
milljarða kr. næstu sjö árin.
Powell skoraði ennfremur á afg-
anskar konur að taka þátt í fyrstu
forseta- og þingkosningunum í Afg-
anistan eftir fall talibanastjórnarinn-
ar sem bannaði konum að stunda
nám eða vinna utan veggja heimilis-
ins. Kosningarnar áttu að fara fram í
júní en margir telja að þeim verði
frestað um einn eða tvo mánuði.
Powell hélt svo til Pakistans og
kvaðst fagna aðgerðum Pakistana
gegn liðsmönnum al-Qaeda við
landamærin að Afganistan. A.m.k.
39, þar af fimmtán pakistanskir her-
menn, biðu bana í átökum sem bloss-
uðu upp á svæðinu í fyrradag.
Reuters
Powell boðar
aukna aðstoð
við Afganistan
"#
$$%&'()"
*
+
#
'
#
#$
%
&
'
( '
'
'
'
)
'
*%' )
'
!
! "
#$
+ $!,-"
!./01--/
+ $!,2"
!"0!.2-
+ $!,,"
%
&
' $
//01"/
"0 "
1""0-""
-!2 0...
Genf. AFP.
um tígra í minjagripi. Fulltrúar
náttúruverndarsamtakanna fundu
tígurminjagripi í 20% þeirra versl-
ana sem þeir skoðuðu í Indónesíu. Í
skýrslunni kemur fram að slíkir
minjagripir eru einnig seldir til
annarra ríkja í Asíu.
Tvær undirtegundir tígrisdýra í
Indónesíu, Balí-tígurinn og Jövu-
tígurinn, hafa þegar dáið út.
ALÞJÓÐLEG náttúruvernd-
arsamtök hafa varað við því að
hætta sé á að ein af undirteg-
undum tígrisdýra, Súmötru-
tígurinn, deyi út ef yfirvöld í
Indónesíu grípi ekki til ráðstafana
til að stöðva ólöglegar veiðar á
tígrunum og „stjórnlausa“ eyði-
leggingu á kjörlendi þeirra, regn-
skógunum.
Um 50 tígrar hafa verið veiddir
á Súmötru á ári hverju frá 1998
þótt bannað hafi verið að veiða
dýrin, að því er fram kom í nýrri
skýrslu náttúruverndarsamtak-
anna World Wildlife Fund (WWF)
og International Union for the
Conservation of Nature (IUCN).
Aðeins um 400-500 tígrar lifa nú í
náttúrunni á Súmötru, einni af
stærstu eyjum Indónesíu.
„Súmötru-tígurinn er í mikilli út-
rýmingarhættu,“ sagði Susan Lieb-
erman, talsmaður WWF. Skýrslu-
höfundarnir fordæma „vægðarlaus
dráp“ á dýrunum vegna mikillar
spurnar eftir skinni, klóm og tönn-
Indónesar
hvattir til
að bjarga
tígrunum
BANDARÍSKIR ættfræðigrúsk-
arar hafa nú grafið upp stað-
reyndir um ættir og frændgarð
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta sem telja má víst að séu hon-
um ekki alls kostar að skapi. Til
frændgarðs hans telst meðal ann-
arra demókratinn John Kerry,
mótframbjóðandi Bush í forseta-
kosningunum sem framundan
eru. Þeir eru skyldir í níunda lið.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sókna þessara á ættum Bush,
sem birtar voru á vef bandarísks
áhugamannafélags um ættfræði
og vitnað er til í frásögn á frétta-
vef þýzka fréttatímaritsins Der
Spiegel, teygja þær anga sína
víða. Meðal skyldmenna Bush
megi telja þekktar persónur á
borð við Walt Disney, skapara
Disney-veldisins, Hugh Hefner
Playboy-kóng, Díönu prinessu og
leikarann knáa og karlmannlega
Clint Eastwood.
Og semsagt: þeir Bush og
Kerry eru frændur, þótt lítið fari
sjálfsagt fyrir ættræknislegum
vináttuhug á milli þeirra. Á ís-
lenzkan mælikvarða telst skyld-
leiki í níunda lið að vísu ekki ýkja
mikill, en á bandarískan mæli-
kvarða telst hann hins vegar allr-
ar athygli verður. Því má segja
að hér sannist enn hið forn-
kveðna: frændur eru frændum
verstir.
Frændurnir Bush og Kerry
KerryBush
GORDON Brown, fjármálaráðherra
Bretlands, dró upp bjarta mynd af
bresku efnahags-
lífi er hann lagði
fjárlögin fyrir
þingið í gær. Fjár-
lagahallinn er
samt umtalsverð-
ur.
Brown spáði
því, að hagvöxtur
yrði á bilinu 3 til
3,5% á þessu ári
og næsta en
nokkru minni
2006. Sagði hann, að núverandi hag-
vaxtarskeið væri það lengsta í sögu
Bretlands í 200 ár.
Fram kom hjá fjármálaráðherran-
um, að fyrirhugað væri að fækka op-
inberum starfsmönnum um 40.000 á
næstu árum og flytja önnur 13.500 op-
inber störf frá London og út á lands-
byggðina. Opinberar lántökur munu
aukast og nú stefnir í, að Bretar brjóti
reglur Evrópusambandsins um leyfi-
legan fjárlagahalla en miðað er við, að
hann sé ekki meiri en 3% af lands-
framleiðslu. Bretar eiga þó enga of-
anígjöf í vændum vegna þess, að þeir
eru ekki aðilar að myntbandalaginu.
Bjart fram-
undan seg-
ir Brown
London. AFP.
Brown með fjár-
lagatöskuna.