Morgunblaðið - 18.03.2004, Page 26

Morgunblaðið - 18.03.2004, Page 26
AUSTURLAND 26 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Efnalaug og fataleiga Garðabæjar Garðatorgi 3 • 565 6680 • www.fataleiga.is Ný sending af brúðarkjólum til leigu og sölu Yfir 30 hugmyndir að skemmtilegum gjöfum á www.oddi.is HP Compaq nx9005 A2500+ fartölva 149.900 kr. iRiver MP3 spilari Vönduð heyrnartól fylgja 23.900 kr. Vers lun Odda • Hö fðabakka 3 • 110 Reyk j av í k • S ím i 515 5105 www.oddi.is Vandaður Deskjet 5150 heimilis- og ljósmyndaprentari í kaupbæti! OD DI H ÖN NU N K 70 76 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s Djúpivogur | Um helgina var opnuð ný versl- un á Djúpavogi. Verslunin er til húsa þar sem Essó var áður með sjoppu og bensínaf- greiðslu en nú hafa þau Klara Bjarnadóttir og Ómar Enokson keypt húsnæðið og hafið rekstur. Ómar er rafvirki og hefur starfrækt fyrirtækið Raflost undanfarin tvö ár og flutti hann verkstæðið einnig í sama hús. Í versluninni er hægt að fá allar helstu raf- magnsvörur, gjafavörur, föt og fleira. Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir Flytja viðskiptin í nýtt húsnæði: Klara Bjarnadóttir og Ómar Enoksson. Raflost Djúpivogur | Í síðustu viku voru fjögur ungmenni á vegum Al- þjóðlegra ungmennaskipta í heimsókn á Djúpavogi. Gestirnir eru svokallaðir skiptiliðar á veg- um AUS, sem er Íslandsdeild al- þjóðlegra samtaka ICYE – Int- ernational Christian Youth Exchange. ICYE er starfandi í yfir þrjá- tíu löndum í öllum heimsálfum og er markmið samtakanna að stuðla að friði milli einstaklinga og þjóða og vinna gegn for- dómum. Hristi hressilega upp í skólastarfinu Signý Óskarsdóttir er kennari við Grunnskóla Djúpavogs og hefur séð um að skipuleggja þessar heimsóknir, en þetta er í þriðja sinn sem gestir á vegum AUS heimsækja Djúpavog. „Vorið 1999 kom upp sú hug- mynd í grunnskólanum að hrista hressilega upp í skólastarfinu og fá til okkar gesti frá öðrum lönd- um,“ sagði Signý í samtali við Morgunblaðið. „Í samráði við AUS skipulögðum við vikuheim- sókn fjögurra skiptiliða, sem tóku þátt í Veraldarviku í skól- anum, og tókst heimsóknin svo vel að nú er þetta að verða fast- ur liður í skólastarfinu.“ Fóru til Íslands til að prófa eitthvað nýtt Í síðustu viku komu svo fjórir skiptiliðar á Djúpavog og tóku þeir þátt í daglegu skólastarfi alla vikuna. Kennarar nutu að- stoðar þeirra í samfélagsfræði, tungumálakennslu, íþróttum, myndmennt og fleiru og höfðu allir gaman af. Fréttaritari settist niður með mánuði og líkaði afar vel við staðinn. Á meðan þau voru á Djúpavogi skoðuðu þau m.a. fiskvinnsluhús, safn Ríkarðs Jónssonar í Löngu- búð, stunduðu sundlaugina og fóru í gönguferðir. Í lok vikunnar héldu þau svo hvert í sína áttina til að takast á við ný verkefni. hafa valið að fara til Íslands til að kynnast landi og þjóð og prófa eitthvað nýtt. Francisco sagðist hafa valið Ís- land vegna þess að fáir veldu að fara þangað en hann undirbjó dvölina í heilt ár áður en hann kom. Hann hefur verið á Borg- arfirði eystra síðastliðna sjö þeim Trond frá Noregi, Maur- eene frá Úganda, Francisco frá Costa Rica og Elenu frá Spáni í lok vikunnar og spurði þau út í heimsóknina. Þau hafa verið mis- lengi á Íslandi, Elena og Trond voru nýkomin en Maureene og Francisco hafa verið lengur. Öll eiga þau það sameiginlegt að Úganda, Spánn, Noregur og Costa Rica mætast á Djúpavogi Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir Þau ákváðu að fara á framandi slóðir: Maureene er frá Úganda (lengst til vinstri á myndinni), Trond frá Noregi, Signý Óskarsdóttir kennari og stjórnandi verkefnisins, Elena frá Spáni og Francisco frá Costa Rica. Egilsstaðir | Kaupfélag Héraðs- búa hefur dregið sig út úr áform- um um opnun öflugrar matvöru- verslunar í verslunar- og þjónustumiðstöðinni Molanum á Reyðarfirði. Undirbúningur að byggingu miðstöðvarinnar hefur staðið síðustu mánuði og var KHB meðal þeirra aðila sem stóðu að viljayfirlýsingu um verk- Reyðarfirði frá grunni og horfi menn til lóðar sem félagið á í bænum, en þar stendur núver- andi verslun KHB á Reyðarfirði. Sé gengið út frá um 600 fermetra verslunarrými, auk lagers. Hann segir stefnt að því að opna mat- vöruverslun á Reyðarfirði fyrir næstu jól. 1.000 fermetra pláss í verslunar- miðstöðinni, fremur en að leigja þar aðstöðu. KHB lét meta kostnaðarmun á því að flytja inn í Molann eða reisa sjálft verslun annars staðar í bænum og reynd- ist síðari kosturinn miklu mun hagstæðari. Gunnlaugur segir nú byrjað að hanna verslunarhúsnæði KHB á efnið á liðnu hausti. Leita nú byggingaraðilar Molans til ann- arra verslunarkeðja um aðkomu að verslunarmiðstöðinni. Gunnlaugur Aðalbjarnarson kaupfélagsstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að Kaupfélagið teldi allt of kostnaðarsamt að taka þátt í byggingunni, en félag- ið hafði tekið þá afstöðu að kaupa KHB dregur sig út úr byggingu verslunarmiðstöðvar á Reyðarfirði ♦♦♦ Reyðarfjörður | Reyðarál hefur tilkynnt bæjarráði Fjarðabyggðar að upphafi fram- kvæmda við álver í Reyð- arfirði verði flýtt. Er sú niðurstaða fengin í kjölfar jarðfræði- og jarðtækni- rannsókna á lóð fyrirtæk- isins, sem benda til að mun meiri jarðvegsskipti þurfi að fara fram en menn gerðu ráð fyrir. Er nú áætlað að jarðvegsskipti á álverslóðinni hefjist í júní næstkomandi, eða mun fyrr en reiknað var með. Flýta framkvæmd- um á álverslóð L.ung.A. | Úrslit hafa verið tilkynnt í hönn- unarsamkeppni um merki L.ung.A, listahá- tíðar ungs fólks á Austurlandi. Aðalgeir A. Jónsson varð hlutskarpastur og sendi hann inn tillögu að merki í þremur litaútgáfum. Hlýtur hann í verðlaun 50 þúsund krónur. Forsvarsmenn L.ung.A sýna allar innsendar tillögur á Höfn, Egilsstöðum og í Fjarða- byggð á næstu vikum. L.ung.A 2004 verður haldið á Seyðisfirði dagana 12. - 17. júlí n.k. og eru þátttakendur í listahátíðinni á aldr- inum 15 til 25 ára. Undirbúningur er kominn á fullan skrið og stendur til að bjóða upp á námskeið, sýningar, tónleika og fleira. Nán- ari upplýsingar um listahátíðina má fá á vefn- um www.sfk.is/lunga/index.htm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.