Morgunblaðið - 18.03.2004, Side 33
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 33
ANNA Rakel Róbertsdóttir, nemi
á listnámsbraut Borgarholtsskóla,
bar sigur úr býtum í hönn-
unarkeppni, sem Stúdentaferðir
stóðu að og efndu til í samstarfi
við listnámsbrautir á framhalds-
skólastigi. Alls skiluðu 72 nem-
endur verkum í keppnina frá fimm
framhaldsskólum. Úrslitin voru til-
kynnt sl. fimmtudagskvöld í Lista-
safni Reykjavíkur og voru verkin
þá jafnframt til sýnis. Þema
keppninnar var stúdentaferðir og
dæmdi sérstök dómnefnd út frá
frumleika og notagildi, en verkin
endurspegluðu m.a. auglýsinga- og
markaðsefni, fatnað og innanhúss-
arkitektur. Í dómnefnd sátu: Finn-
ur P. Fróðason innanhússarkitekt,
Guðmundur Oddur Magnússon
grafískur hönnuður og Ólöf Jak-
obína Ernudóttir húsgagna- og
innanhússarkitekt.
Þemað stúdentaferðir, Verk
Önnu Rakelar, var í formi auglýs-
ingaherferðar fyrir ljósvakamiðla
og blöð. Í mati dómnefndar segir
að hugsunin að baki verkefninu
hafi verið mjög góð, verkið hafi
státað af bestu grafísku hönn-
uninni, verið einfalt, en samt með
ákveðinni dulúð. Jafnframt segir
að verkefnið sé vel framkvæm-
anlegt og eigi vel við Stúd-
entaferðir, sem líklega komi til
með að nota efniviðinn í auglýs-
ingaskyni að einhverju marki.
Sigurvegarinn hlaut í verðlaun
flug til Mílanó og átján daga sum-
arnámskeið í júlí í sumar í lista- og
hönnunarháskólanum NABA eða
Nuova Accademia Di Belle Arti,
sem staðsettur er í menningar- og
listaborginni Mílanó. Skóli þessi
býður upp á fjögurra ára listanám
til BA-gráðu, eins árs nám og
sumarnámskeið. Vel útfærð hönn-
un á bakpoka, sem dómnefnd þótti
einkar hentugur til ferðalaga, lenti
í öðru sæti keppninnar, en höf-
undur þess verks var Snorri Valdi-
marsson, nemi í Iðnskólanum í
Reykjavík. Í þriðja sæti lenti svo
Ragnheiður Ragnarsdóttir, nemi í
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
fyrir hugmynd sína að bolla.
Námsleiðir erlendis
„Ástæðuna fyrir þessari keppni
má rekja til þess að við hjá Stúd-
entaferðum erum að vekja athygli
á því að við aðstoðum ungt fólk,
sem vill fara í nám erlendis. Stúd-
entaferðir eru í samstarfi við há-
skóla og sérskóla víða um heim
svo sem á Ítalíu, Spáni, Sviss,
Bandaríkjunum, Bretlandi og
Ástralíu. Lögð er áhersla á skóla
með langa reynslu og traustan
bakgrunn. Stúdentaferðir vinna
náið með samstarfsaðilum sínum
og geta því veitt greinargóðar upp-
lýsingar og ráðgjöf um námsleiðir,
sem einfalda kann allt umsókn-
arferli, sem við aðstoðum einnig
við, en allir skólarnir eru við-
urkenndir af Lánasjóði íslenskra
námsmanna,“ segir Hulda Stef-
ánsdóttir, sölu- og markaðsstjóri
Stúdentaferða.
HÖNNUN|72 framhaldsskólanemar tóku þátt í samkeppni
Auglýsingar, bakpoki og bolli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Auglýsingaherferð: Anna R. Róbertsdóttir úr Borgarholtsskóla lenti í 1. sæti.
join@mbl.is
800 7000 - siminn.is
Frábær þráðlaus
ISDN sími.
1.980
Léttkaupsútborgun
Swissvoice Eurit 525
og 1.000 kr. á mán.
í 12 mán.
Verð aðeins: 13.980 kr.
980
Léttkaupsútborgun
Panasonic 410
og 750 kr. á mán.
í 12 mán.
Verð aðeins: 9.980 kr.
• Drægni 50 til 300 metrar.
• Rafhlaða: Allt að 8 klst. í tali/
80 klst. í bið.
• Allt að 5 notendur á einum síma (MSN).
• Númerabirting, endurval og símaskrá.
• Styður alla helstu ISDN sérþjónustu.
• Tengja má allt að 5 aukahandtæki
við hverja móðurstöð.
• Hægt að hringja innanhús á milli handtækja.
ÞRÁÐLAUSIR SÍMAR
á frábæru verði
50% afsláttur af stofngjöldum og fleiri fríðindi
• 50% afsláttur af stofngjaldi heimasíma; aðeins 1.950 kr. í stað 3.900 kr.
• 50% afsláttur af stofngjaldi ISDN heimasíma; aðeins 3.450 kr. í stað 6.900 kr.
• Frítt að breyta úr venjulegum heimasíma í ISDN; 0 kr. í stað 3.900 kr.
• Allir viðskiptavinir Símans fá Þína hringingu og aukanúmer frítt í 6 mánuði.
Tilboðin gilda til 31. mars.
50% AFSLÁTTUR
af stofngjaldi heimasíma
• Rafhlaða: Allt að 10 klst. í tali/160 klst. í bið.
• Númerabirting, endurval, símaskrá og skammval.
• Skrá má allt að 6 handtæki við hverja móðurstöð.
• Innanhússímtal milli handtækja mögulegt.
• 20 mismunandi hringitónar.
• Stilla má hljóðstyrkinn í hlust á þrenna vegu.
• Stilla má styrk hringingar í handtækinu í 6 vegu.
• Fjórar mögulegar stillingar á hringistyrk móðurstöðvar.
VOR OG
SUMAR
2004
KYNNING Á NÝJUSTU LITUNUM
Sérfræðingar Kanebo kynna nýju vor- og sumarlitina í dag
fimmtudag, föstudag og laugardag í Hagkaup Smáralind.
Förðunarfræðingur Kanebo býður upp á förðun.
Snyrtisérfræðingur verður með húðgreiningartölvu og veitir
faglega ráðgjöf og húðgreiningu. Smárlind