Morgunblaðið - 18.03.2004, Side 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 10 boccia, kl.
13 myndlist.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–12.30
bókband, kl. 9.30
boccia, kl. 10.30–10.55
helgistund, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13–16.30 smíð-
ar og handavinna, kl.
13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–16
bókband.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað og
postulín, kl. 13 handa-
vinna.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Aðstoð við
böðun og glerskurður
kl. 9–16.30, leikfimi kl.
10–11, sönghópurinn
kl. 13.30, dans kl.
15.15.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 13
föndur og handavinna.
Bingó kl. 15.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellsbæ, Hlað-
hömrum, kl 13–16
föndur og spil, kl.
12.30–15.30 tréskurð-
ur, kl. 13.30–14.30 les-
klúbbur, kór eldriborg-
ara, æfingar kl. 17–19.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Bingó í Gjá-
bakka kl. 13.30.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ.Glerbræðsla
kl. 10, tai chi kl. 12,
karlaleikfimi kl. 13.10,
málun kl. 13, búta-
saumur kl. 13.15,
hljómsveit kl. 15 í
Garðabergi. Félagsvist
í Garðaholti kl. 19.30 á
vegum Kvenfélags
Garðabæjar.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli.
Opnað kl. 9, vídeókrók-
urinn opinn, pútt í
Hraunseli kl. 10–11.30,
leikfimi í Bjarkarhúsi
kl. 11.20, tangódans kl.
11, glerskurður kl. 13,
bingó kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Brids kl. 13, félagsvist
kl. 20.
Gerðuberg, félags-
starf. Kl. 10.30 helgi-
stund, frá hádegi spila-
salur og vinnustofur
opnar, m.a. silkimálun.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handav, kl.
9.05 og 9.55 leikfimi, kl.
9.30 glerlist, keramik,
kl. 10.50 róleg leikfimi,
kl. 13 gler-og postulín,
kl. 20 gömlu dansarnir,
kl. 21 línudans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 9.05 og kl.
9.55 leikfimi, kl. 9
myndlistahópur, kl. 10
ganga, kl. 13 birds, kl.
13–16 handa-
vinnustofan opin.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, perlu-
saumur, kortagerð og
hjúkrunarfræðingur,
kl. 10 boccia, kl. 11
leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–13 bútasaumur, kl.
10–11 boccia, kl. 13–16
hannyrðir, kl.13.30–16
félagsvist.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun sundleikfimi
í Grafarvogslaug kl.
9.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 sam-
verustund og leir.
Vesturgata. Kl. 9.15–
12 bað, kl. 9.15–15.30,
handavinna, kl. 9–10
boccia, kl. 10.15–11.45
enska, kl. 13–14 leik-
fimi, kl.13–16 kóræf-
ing, kl.10.30 fyr-
irbænastund.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9.30 gler-
skurður, perlusaumur
og morgunstund, kl. 10
boccia, kl. 13 hand-
mennt og bridge.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Opið kl.
9–14. Kl. 9.15 leikfimi,
kl. 10–12 verslunin.
Þórðarsveigur 1-5
Grafarholti. Kl. 13.30
opið hús, bingó kl. 14.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK Spil-
ar í Gullsmára 13.
Skráning kl. 12.45. Spil
hefst kl. 13
Félag áhugamanna
um íþróttir aldraðra.
Leikfimi í Bláa salnum
kl. 11.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Kiwanisklúbburinn
Geysir, Mosfellsbæ.
Spilakvöld í Kiw-
anishúsinu kvöld kl.
20.30
Sjálfsbjörg, Hátúni 12.
Kl. 19.30 skák.
Kvenfélag Kópavogs
aðalfundurinn er í
kvöld kl. 20 að Hamra-
borg 10.
Samtök lungnasjúk-
linga Fræðslufundur
veður að Síðumúla 6 kl.
20. .
Ný dögun, Fræðslu-
fundur í safnaðarheim-
ili Háteigskirkju kl.
20–22.
Í dag er fimmtudagur 18. mars,
78. dagur ársins 2004. Orð dags-
ins: En oss hefur Guð opinberað
hana fyrir andann, því að andinn
rannsakar allt, jafnvel djúp Guðs.
(I.Kor. 2, 10.)
Davíð Guðjónsson skrif-ar pistil í Deigluna
um hryðjuverkin í Madr-
íd og kosningarnar í kjöl-
farið.
Skelfileg hryðjuverk íMadríd í síðustu viku
virðast hafa haft úr-
slitaáhrif á spænsku
þingkosningarnar,“ skrif-
ar Davíð. „Lýðflokknum,
flokki Aznars fráfarandi
forsætisráðherra, var
fyrir kosningarnar spáð
sigri en nú er ljóst að
sósíalistar hafa unnið
stórsigur undir forystu
Jose Luis Rodriguez
Zapatero. Það skal ósagt
látið hvort Aznar og frá-
farandi ríkisstjórn hafi
notfært sér hryðjuverkin
í pólitískum tilgangi en
hitt er ljóst að búið er að
senda hryðjuverkamönn-
um heimsins skilaboð:
Hryðjuverk geta skilað
„árangri“. Ef svo hræði-
lega má að orði komast.
Fyrsta verk Zapatero,verðandi forsætisráð-
herra Spánar, var að til-
kynna brottflutning
spænskra hermanna frá
Írak og setur það spurn-
ingarmerki við staðfestu
hinna staðföstu þjóða í
Íraksstríðinu og barátt-
unni gegn hryðjuverkum.
Það er að mati pistlahöf-
undar afar gagnrýnisvert
hjá verðandi þjóð-
arleiðtoga að staðfesta
mátt hryðjuverka með
þessum hætti.
Þó svo að Zapatero hafistefnt að því að kalla
spænska hermenn heim
frá Írak að loknum kosn-
ingum virðist alger
óþarfi að gera það með
þessum hætti strax að
kosningum liðnum. Í
raun má segja að hann sé
lýsa því yfir að al Kaída
hafi knúið spænsku þjóð-
ina til uppgjafar í bar-
áttu hinna staðföstu
þjóða.
Sósíalistaflokkurinnvar reyndar með það
á stefnuskrá sinni fyrir
kosningar að kalla her-
menn heim frá Írak og
því nokkuð ljóst hvað
myndi gerast ef flokk-
urinn sigraði. En með út-
spili sínu virðist Zapat-
ero hafa fallið í sömu
gildru valdagræðgi og
Aznar, að notfæra sér
hryðjuverkin til póli-
tískra vinsælda. Það
finnst pistlahöfundi
smána fórnarlömb árás-
anna og senda afleit
skilaboð frá hinum vest-
ræna heimi.
Það skal tekið fram aðþessi skoðun pistla-
höfundar hefur ekkert að
gera með afstöðu hans til
Íraksstríðsins eða bar-
áttu hinna staðföstu
þjóða gegn hryðjuverk-
um. Hvort sem menn eru
með, eða á móti þeim að-
ferðum sem er beitt, er
ljóst að hryðjuverka-
mönnum hefur verið gef-
inn tónninn og Zapatero
hefur sett Evrópubúa í
mun meiri hættu en áður
var, Íslendinga þar með
talda.“
STAKSTEINAR
Hryðjuverk geta skilað
„árangri“
Víkverji skrifar...
Víkverji dvaldi um tíma í Þýska-landi og keypti sér þar bíl og
ferðaðist töluvert á honum þar. Það
kom Víkverja nokkuð á óvart að Þjóð-
verjar, sem almennt eru taldir nokk-
uð frekir í samskiptum sínum við
annað fólk, reyndust ákaflega tillits-
samir og greiðviknir ökumenn, voru
fljótir að hliðra til fyrir öðrum og
hleypa þeim inn á akreinar. Virtist
vera eins konar allsherjarsam-
komulag um að ökumenn legðu sitt af
mörkum til þess að umferðin gengi
vel fyrir sig. Í bæjunum og borgunum
voru Þjóðverjarnir röskir ökumenn
sem ekki ber að leggja að jöfnu við
hraðakstursmenn. Menn voru röskir
af stað á ljósum og tiltölulega fljótir
að koma sér upp í leyfilegan öku-
hraða. Væri bíll að koma inn á ak-
braut af annarri akrein var und-
antekningarlaust hliðrað fyrir
honum.
x x x
Það var því Víkverja nokkurt áfallað fara að aka aftur heima á Ís-
landi þar sem hver ók með sínu nefi.
Röskleikinn var ekki sá sami og
Þýskalandi, menn oft lengi af stað og
lengi að ná leyfilegum umferðarhraða
á hverjum stað og undantekning að
hliðrað væri til fyrir öðrum ökumönn-
um, raunar stundum stigið á bensínið
til þess eins að koma í veg fyrir að
annar ökumaður kæmist inn á akrein.
Ekkert samkomulag virtist vera um
að reyna að láta umferðina ganga
hratt og vel fyrir sig eins og í Þýska-
landi. Eitthvað finnst Víkverja þetta
þó hafa lagast þótt óliðlegheit séu
daglegt brauð í íslenskri umferð-
armenningu.
Þó Þjóðverjar væru kurteisir og
liðlegir í umferðinni brugðust þeir oft
illa við ef menn fóru ekki að hinum al-
mennu skráðu eða óskráðu reglum í
umferðinni. Víkverji var t.d. ótrúlega
fljótur að læra að
aka ekki á vinstri
akrein á fjölbrauta
vegum eins og hrað-
brautum en eins og
menn vita er enginn
hámarkshraði á
þeim í Þýsklandi;
Víkverji var að taka
fram úr á hraðbraut
og var kominn í
150–160 kílómetra
hraða og ætlaði í ró-
legheitum að sigla
fram úr langri röð bíla á hægri ak-
rein. Kemur þá stór og mikill Benz á
enn meiri hraða og var sá ökumaður
lítt ánægður með að Víkverji væri í
hægakstri á vinstra helmingi. Á um
160 km hraða ók hann alveg í skottið
á Víkverja, svo lá við að stuðararnir
snertust, lagðist á flautuna og blikk-
aði ljósum í gríð og erg. Þannig lærði
Víkverji að vinstri akrein er til fram-
úraksturs eða hraðari aksturs eftir
atvikum. Aðeins lítill hluti íslenskra
ökumanna virðist gera sér grein fyrir
þessari mikilvægu reglu en það skap-
ar stórhættu með því að óþolinmóðir
ökumenn neyðast til að stunda hrað-
aksturssvig a milli akreina.
Disney-stundin
hjá Sjónvarpinu
HVAÐ er með þessa
Disney-stund sem Sjón-
varpið sýnir á föstudögum?
Þeir auglýsa myndina fyr-
ir alla fjölskylduna og svo
sitja yngstu meðlimir henn-
ar fyrir framan skjáinn og
skilja hvorki upp né niður.
Þegar ég kem heim eftir
langa vinnuviku þrái ég
ekkert annað en að fá að
setjast niður með fjöl-
skyldu minni og horfa á
smá sjónvarp eða slappa af.
Börnin þrá það líka, þau
eru líka þreytt, og þau
mega oft vaka aðeins leng-
ur á föstudögum.
Disney-stundin er mjög
vinsæl á mínu heimili en
það eru aldrei teiknimyndir
eða neitt sem höfðar til
yngstu áhorfendanna,
þannig að þeir flosna upp
við skjáinn og í staðinn fyr-
ir Disney-stund verður til
baráttu stund.
Sjónvarpið byrjaði vel á
þessari stund með því að
sýna teiknimyndir á borð
við Pöddulíf og sitthvað
fleira í þeim dúr en nú eru
það einungis myndir frá
1965, sem eru margar
ágætar og allt það, en mest
er ég hissa á að Sjónvarpið
sé bara ekki með Disney-
stund frá 1905 og þá fengju
þeir myndirnar örugglega
ókeypis.
Ég vil líka benda á að
sumar Disney-myndirnar
eru alls ekki fyrir ung börn,
því oft eru atriði í þeim sem
eru vafasöm! Þannig að
fjölskyldustund á bara alls
ekki við.
Hafið þetta í huga.
Barnafólk! Endilega takið
undir með mér.
Áhorfandi.
Dýrahald
Pési er týndur
PÉSI er 12 vikna kisu-
strákur, sem er hvítur og
grábröndóttur og með
grátt trýni. Hann stalst út
frá Óðinsgötu 24a (á bakvið
Hótel Holt) í Reykjavík að-
faranótt sunnudags 14.
mars og hefur ekki sést síð-
an. Hann er ólarlaus og
ómerktur. Þeir sem vita um
Pésa eru beðnir að hringja í
síma 824 4864.
Kettlingar fást gefins
YNDISLEGIR svartir og
hvítir tveggja mánaða kett-
lingar, einn högni og ein
læða, fást gefins á gott
heimili. Eru kassavanir og
snyrtilegir. Uppl. í síma
554 6138 eða 898 9554.
Páfagaukurinn Pési
er týndur
PÁFAGAUKURINN Pési
(gári) slapp út síðdegis á
laugardag frá Flókagötu
(105 Rvík). Hann er hvítur
með ljósbláa bringu og smá
svart í vængjum og á kolli.
Hann er mjög gæfur. Finn-
andi vinsamlega hafi sam-
band í síma 866 8246 eða
551 8119 eftir kl. 18.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 gata í Reykjavík, 8
vænn, 9 blóðsugan, 10
fag, 11 ákveð, 13 fífl, 15
höfuð-
fata, 18 klaufdýr, 21
reyfi, 22 opum, 23 falla,
24 flakkaði.
LÓÐRÉTT
2 minnist á, 3 dreitillinn,
4 líkamshlutann, 5 snag-
inn, 6 espa, 7 vendir,
12 í uppnámi, 14 sjáv-
ardýr, 15 snjókorn, 16
nafnbót, 17 vesælan,
18 bál,
19 megnið, 20 sefar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 berja, 4 gætin, 7 gengi, 8 rekju, 9 rúm, 11
reim, 13 enni, 14 ósinn, 15 flór, 17 nefs, 20 uns, 22 tjóns,
23 veldi, 24 aftri, 25 reisa.
Lóðrétt: 1 bógur, 2 rengi, 3 akir, 4 garm, 5 tekin, 6
nauti, 10 úfinn, 12 mór, 13 enn, 15 fitla, 16 ómótt, 18
efldi, 19 seiga, 20 usli, 21 sver.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html