Morgunblaðið - 01.04.2004, Síða 1
SYNOPTIK, stærsta gler-
augnaverslanasamsteypan í Dan-
mörku, krafðist þess í gær, að Jyl-
lands-Posten
stöðvaði birt-
ingu greina um
gífurlega
álagningu í
gleraugna-
verslunum en
þær munu birt-
ast í næsta ein-
taki af neytendatímaritinu Der-
hjemme, fylgiriti blaðsins.
Lögmaður samsteypunnar fór
fram á það fyrir rétti í Árósum,
að greinarnar um álagninguna
yrðu bannaðar þar sem þær
snertu viðskiptaleyndarmál og
myndu því skaða hagsmuni Syn-
optik. Á það var ekki fallist. Sagði
frá þessu á fréttavef Jyllands-
Posten.
Leyndarmálið, sem Derhjemme
segir frá, er það, að gler í gler-
augu kosti 300 kr. danskar, 3.555
ísl. kr., út úr búð og er þá ísetning
ekki innifalin. Innkaupsverðið er
hins vegar aðeins 16 d. kr., tæp-
lega 190 ísl. kr., eða 18 sinnum
minna.
Hefur niðurstöðunni þegar ver-
ið fagnað sem sigri fyrir tjáning-
arfrelsið og neytendur en Peter
Scheuer Jensen, framkvæmda-
stjóri Synoptik, segir, að ekki hafi
verið reynt að hindra tjáningar-
frelsið, bara verja viðskiptaleynd-
armál og sambandið við birgja.
Leyndar-
málið var
álagningin
STOFNAÐ 1913 91. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Safnar aðal-
hlutverkum
Íslenskur aðalbassi óperuhússins í
Regensburg vekur athygli | Listir 34
Viðskipti | Pharmaco verði leiðandi á heimsvísu Skiptar skoðanir
á aðalfundi SVÞ Tilboðsmarkaður með stofnfé SPRON Úr verinu |
Borðum um 0,2% af þorskaflanum Lækkandi skilaverði mætt
Viðskipti og Úr verinu í dag
VERÐMÆTI þess afla sem frystur var úti
á sjó á síðasta ári var um 20,5 milljarðar
króna. Það er um 15% samdráttur frá árinu
2002, samkvæmt tölu Hagstofu Íslands.
Verðmæti sjófrysts þorsks var um 5,5
milljarðar í fyrra sem er 24% minna verð-
mæti en árið 2002. Þá nam verðmæti sjó-
frystrar ýsu um 1,6 milljörðum króna og
dróst saman um nærri þriðjung.
Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og
fiskimannasambands Íslands, segir að
lægra aflaverðmæti þýði samsvarandi
lækkun í launum sjómanna. „Afkoma sjó-
manna er undir þessu komin. Það á sér-
staklega við um sjófrystinguna, því þar eru
laun sjómanna beintengd markaðsverði af-
urðanna. Fyrir þessu hafa sjómenn barist
og eru þannig tilbúnir til að taka á sig lækk-
un í tekjum þegar markaðsaðstæðum hagar
þannig. Þeir njóta þess síðan þegar vel
gengur. Þetta er hlutur sem menn verða að
sætta sig við ætli þeir að vera sjómenn á Ís-
landi,“ segir Árni.
Verðmæti/C1
Lægri laun
sjómanna
ÍRASKIR vegfarendur sýna fagnaðarlæti er þeir
fylgjast með jeppa brenna á götu í bænum Fallujah í
gær. Í bílnum og öðrum til voru fjórir bandarískir
verktakar sem týndu lífi er árás var gerð á þá úr
launsátri. Mannfjölda dreif að og eftir að hafa horft
á lík hinna myrtu brenna drógu viðstaddir tvö þeirra
eftir götunum, sigri hrósandi, misþyrmdu þeim og
hengdu upp í nærliggjandi brú. „Þetta eru hryllileg-
ar árásir, framdar af mönnum sem eru að reyna að
hindra framgang lýðræðisins,“ sagði Scott McClell-
an, talsmaður Hvíta hússins, er hann fordæmdi fyrir
hönd Bandaríkjastjórnar árásina og aðra árás nærri
Bagdad í gærmorgun sem kostaði fimm bandaríska
hermenn lífið. /14
Reuters
Mannskæðar árásir í Írak
DÍSILOLÍAN verður um fjórum
krónum ódýrari en 95 oktana bensín-
ið þegar þungaskattskerfið hefur
verið lagt niður og olíugjald tekið
upp í staðinn, eins og gert er ráð fyr-
ir í frumvarpi fjármálaráðherra. Lík-
legt er talið að dísilbílum muni fjölga
á kostnað bensínbíla verði frumvarp-
ið að lögum en Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra segir þungaskatts-
kerfið hamla gegn framförum í
bifreiðanotkun og hvetja til óhag-
sendur eigi við. Fjármálaráðherra
segir áformað að frumvarpið verði
lögfest í vor og að lögin taki gildi um
áramótin.
„Þetta er þjóðþrifamál sem getur
ekki beðið lengur. Við erum með
meingallað þungaskattskerfi sem að
hluta til hefur verið úrskurðað ólög-
mætt af samkeppnisyfirvöldum,“
segir Geir.
þegnir olíugjaldinu og verður dísil-
olía til þeirra lituð og þannig
aðgreind frá gjaldskyldri olíu. Ráð-
herra segist telja að frumvarpið
muni ekki leiða til hækkunar á flutn-
ingskostnaði, a.m.k. ekki umtals-
verðrar.
Að mati fjármálaráðuneytisins
verða dísilknúnar fólksbifreiðar nú
álitlegri fyrir einstaklinga og skatt-
lagning dísil- og bensínbíla sam-
ræmd þannig að sömu rekstrarfor-
kvæmni í eldsneytisnotkun. „Nýja
kerfið er þannig hugsað að það hvetji
fólk til að nota sparneytnari bíla og
dísilbíla sem þar að auki eyða minna
og ódýrara eldsneyti. Það er auðvit-
að þjóðhagslega hagkvæmt,“ segir
Geir.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir
sérstöku kílómetragjaldi á ökutæki
sem eru yfir tíu tonn að ásþyngd.
Þeir sem til þessa hafa verið und-
anþegnir þungaskatti verða undan-
Dísilbílar álitlegri kostur
Líklegt að dísilknúnum/42
MARSMÁNUÐUR sem leið var sá hlýjasti
síðan 1964, en meðalhitinn í Reykjavík var
rétt tæp fjögur stig á Celsius, sem er yfir
meðallagi venjulegs aprílmánaðar. Með-
alhiti venjulegs marsmánaðar er að sögn
Trausta Jónssonar veðurfræðings í kring-
um frostmark.
Trausti segir marsmánuð sem leið vera
tuttugasta og fjórða mánuðinn í röð með
hita yfir meðallagi. Hann segir þessi hlý-
indi mögulega bera því vitni að Íslend-
ingar njóti nú góðs af almennt hlýnandi
veðurfari í heiminum. Reyndar var snjór á
suðvesturhorninu síðasta dag mánaðarins
og kunnu krakkarnir í Breiðholtsskóla að
meta það.
Morgunblaðið/Heiðar Þór
Hlýjasti mars
síðan 1964
RÁÐHERRAR olíuframleiðslu-
ríkjanna í OPEC komu sér í gær
saman um að draga úr framleiðslu
um eina milljón fata á dag og skelltu
þar með skollaeyrum við áskorun-
um, ekki sízt frá Bandaríkjamönn-
um, um að fresta ákvörðuninni, en
slík frestun hefði verkað gegn þeirri
hækkun olíuverðs sem vart hefur
orðið að undanförnu.
Olíumálaráðherrar OPEC-
ríkjanna 11 ákváðu á fundi í höf-
uðstöðvum samtakanna í Vínarborg
að halda fast við ákvörðun tekna í
Alsír 10. febrúar sl., um að minnka
daglegt framleiðsluhámark niður í
23,5 milljónir fata frá og með 1. apr-
íl. Skorað hafði verið á ráðherrana
að fresta þessari ákvörðun þar sem
olíuverð hefur ekki verið hærra í 13
ár.
En ráðamenn OPEC-ríkjanna
óttast að eftirspurn á norðurhveli
jarðar fari hríðlækkandi með vorinu
og þeir verði að grípa til ráðstafana
nú til að hamla gegn verðfalli.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti lýsti vonbrigðum með ákvörð-
unina í gær.
OPEC-rík-
in draga úr
framleiðslu
Olíuverð helzt hátt
Vínarborg. AFP.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, lagði í gær-
kvöld fram endanlega áætlun sína
um sameiningu Kýpur, er lokafrest-
ur rann út sem fulltrúum þjóðar-
brotanna tveggja á Kýpur hafði
verið gefinn til að koma sér saman
um slíka áætlun. Sagði Annan að
SÞ-áætlunin yrði borin undir þjóð-
aratkvæði á báðum hlutum eyjar-
innar hinn 24. apríl, viku áður en
Kýpur fær formlega aðild að Evr-
ópusambandinu, ESB.
„Tíma samningaumleitana er
reynzt unnt að koma inn í áætlunina
tryggingum fyrir brottflutningi
tyrknesks herliðs og ákvæðum um
að allir Kýpur-Grikkir, sem þving-
aðir voru til flótta frá heimilum sín-
um á svæðinu sem Tyrkir hertóku
fyrir 30 árum, gætu snúið aftur.
Annan sagðist gera sér grein fyr-
ir að áætlunin kæmi ekki til móts
við öll sjónarmið. En hann tryði því
að hún væri viðunandi málamiðlun.
Hafni annað hvort þjóðarbrotið
áætluninni mun aðeins gríski hlut-
inn ganga í ESB 1. maí.
lokið. Tími er kominn fyrir ákvarð-
anir og efndir,“ sagði Annan í sviss-
neska orlofsbænum Bürgenstock,
þar sem lokaviðræðulotan fór fram.
Kýpur-Tyrkir sáttari
Fulltrúar tyrkneska minnihlut-
ans voru fljótir til að lýsa stuðningi
við áætlunina og staðfestu að þeir
myndu sjá til þess að atkvæða-
greiðslan færi fram meðal Kýpur-
Tyrkja. Fulltrúar Grikklands og
Kýpur-Grikkja höfðu áður lýst von-
brigðum yfir því að ekki hefði
Kosið um Kýpur-
áætlun SÞ 24. apríl
Fuerigen í Sviss. AP.
♦♦♦
♦♦♦