Morgunblaðið - 01.04.2004, Qupperneq 74
ÍÞRÓTTIR
74 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
SKÍÐI
Skíðamót Íslands
Á Ísafirði fer fram 10 km ganga karla 17–19
ára, 15 km ganga karla 20 ára og eldri og 5
km ganga kvenna 17 ára og eldri.
Stigamót í svigi
Alþjóðlegt stigamót, FIS, í svigi karla og
kvenna fer fram á Siglufirði.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni karla, Intersportdeildin,
fyrsti leikur í úrslitum:
Stykkishólmur: Snæfell – Keflavík......19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni kvenna, RE/MAX-deildin,
fyrri leikir í 8 liða úrslitum:
Ásgarður: Stjarnan – Grótta/KR.........19.15
Ásvellir: Haukar – FH ..........................19.15
Hlíðarendi: Valur – Víkingur ...............19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppnin
Neðri deild karla, C-riðill:
Fífan: Afturelding – HK .......................19.15
HANDKNATTLEIKUR
Frakkland – Ísland 29:24
Lorient, Frakklandi, vináttulandsleikur,
miðvikudaginn 31. mars 2004.
Mörk Íslands: Snorri Steinn Guðjónsson 5,
Róbert Gunnarsson 2, Arnór Atlason 2,
Guðjón Valur Sigurðsson 2, Gylfi Gylfason
2, Einar Hólmgeirsson 2, Logi Geirsson 2,
Vignir Svavarsson 2, Ásgeir Örn Hall-
grímsson 1, Einar Örn Jónsson 1, Dagur
Sigurðsson 1, Róbert Sighvatsson 1, Ragn-
ar Óskarsson 1, Rúnar Sigtryggsson.
Varin skot: Björgvin Gústavson 5, Guð-
mundur Hrafnkelsson 5.
KNATTSPYRNA
Albanía – Ísland 2:1
Qemal Stafa-leikvangurinn í Tirana, Alban-
íu, vináttulandsleikur, miðvikudagur 31.
mars 2004.
Mörk Albana: Adrian Alaj (42.), Alban
Bushi (74.)
Mark Íslands: Þórður Guðjónsson (64.)
Lið Albaníu: Foto Strakosha (Elion Leka
46.) – Elven Beqiri, Geri Cipi, Adrian Aliaj
(Edmond Kappllani 46.) – Besnik Hasi,
Ervin Skela (Altoin Haxhi 61.), Altin Lala,
Klodian Duro (Ardit Beqiri 79.), Edvin
Murati (Hneri Ndreka 88.) – Florian Myr-
taj (Elion Lika 46.), Igle Tare (Alban Bushi
73.).
Lið Íslands: Árni Gautur Arason – Ívar
Ingimarsson, Ólafur Örn Bjarnason, Pétur
H. Marteinsson – Bjarni Guðjónsson (Arn-
ar Þór Viðarsson 59.), Brynjar Björn Gunn-
arsson, Jóhannes Karl Guðjónsson (Gylfi
Einarsson 79.), Þórður Guðjónsson, Indriði
Sigurðsson (Kristján Örn Sigurðsson 85.) –
Marel Baldvinsson (Veigar Páll Gunnars-
son 59.), Heiðar Helguson (Hjálmar Jóns-
son 85.)
Markskot: Albanía 13 (7), Ísland 8 (4).
Horn: Albanía 11, Ísland 5.
Rangstaða: Albanía 3, Ísland 3.
Gul spjöld: Alban Bushi (82.).
Rauð spjöld: Engin
Dómari: Paolo Beritni frá Ítalíu.
Áhorfendur: Um 12.000.
Vináttuleikir
Moldavía – Aserbajdsjan ........................ 2:1
Dadu 40. (víti), 65. – Gurban Gurbanov 20.
–4.000.
Egyptaland – Trinidad/Tobago.............2:1
Treika 59., Halim 64. – Stern John 79. –
5.000.
Eistland – Norður-Írland ........................0:1
- David Healy 45. – 3.000.
Malta – Finnland...................................... 1:2
Michael Mifsud 90. – Aleksei Yeremenko
51., Jari Litmanen 86. – 1.432.
Slóvenía – Lettland ..................................0:1
- Maris Verpakovskis 36. – 1.500.
Serbía-Svartfjallal. – Noregur ...............0:1
- Martin Andresen (vítasp.) 76. – 6.000.
Búlgaría – Rússland.................................2:2
Dimitar Berbatov 13., 57. – Dmitri Sychev
10., 20. – 15.000.
Makedónía - Úkraína ...............................1:0
Stavrevski 25. – 16.000.
Króatía – Tyrkland ..................................2:2
Sokota 2., Sma 76. – Biryol 73., Atan 78. –
12.000.
Lúxemborg – Bosnía ...............................1:2
Daniel Huss 87. – Zvjezdan Misimovic 61.,
Elvir Bolic 71. – 2.000
Grikkland – Sviss......................................1:0
Vassilis Tsartas 57. – 21.000.
Ungverjaland – Wales..............................1:2
Krisztian Kenesei 18. vítasp. – Jason Kou-
mas 20., Robert Earnshaw 76. – 10.000.
Írland – Tékkland ....................................2:1
Ian Harte 52., Robbie Keane 90. – Milan
Baros 81. – 42.000.
Slóvakía – Austurríki...............................1:1
Marek Mintal 72. – Roland Kollmann 90. –
4.520.
Þýskaland – Belgía...................................3:0
Kevin Kuranyi 45., Dietmar Hamann 55.,
Michael Ballack 81. – 46.143.
Pólland – Bandaríkin...............................0:1
DaMarcus Beasley 25. – 12.000.
Svíþjóð – England ....................................1:0
Zlatan Ibrahimovic 54. – 40.464.
Holland – Frakkland................................0:0
47.000.
Skotland – Rúmenía.................................1:2
James McFadden 56. – Christian Chivu 37.,
Daniel Pancu 50. – 20.433.
Portúgal – Ítalía .......................................1:2
Nuno Valente 5. – Christian Vieri 40.,
Fabrizio Miccoli 75. – 20.000.
Spánn – Danmörk.....................................2:0
Fernando Morientes 23., Raul 60. 19.000.
Túnis – Fílabeinsströndin .......................0:2
- Didier Drogba 34., 63. – 7.000.
Undankeppni HM
Suður-Ameríka
Argentína – Ekvador .............................. 1:0
Hernan Crespo 60.
Staðan:
Argentína 5 3 2 0 10:3 11
Paraguay 4 3 0 1 8:6 9
Brasilía 4 2 2 0 7:5 8
Uruguay 4 2 1 1 11:8 7
Chile 5 2 1 2 7:6 7
Venesúela 4 2 0 2 3:6 6
Perú 4 1 2 1 6:4 5
Ekvador 5 1 1 3 3:4 4
Bólivía 5 1 0 4 5:12 3
Kólumbía 4 0 1 3 2:8 1
Fjögur efstu liðin komast á HM 2006,
fimmta lið fer í aukaleiki við þjóð frá Eyja-
álfu.
Canela-bikarinn
Æfingamót í Canela á Spáni:
Fylkir – Valur .......................................... 3:0
Eyjólfur Héðinsson 37., 74., Albert Brynjar
Ingason 77.
Fram – FH .................................................1:2
Viðar Guðjónsson 76. – Atli Viðar Björns-
son 34., Emil Hallfreðsson 68. (vítasp.), Atli
Viðar Björnsson. Rautt spjald: Ingvar
Ólafsson, Fram, 80. – tvö gul spjöld.
Staðan:
Fylkir 2 1 0 1 3:1 3
Fram 2 1 0 1 2:2 3
Valur 2 1 0 1 4:4 3
FH 2 1 0 1 3:5 3
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Philadelphia – Golden State ................ 95:71
Milwaukee – Indiana............................ 95:86
Dallas – Cleveland............................ 126:109
Denver – Seattle ............................... 124:119
LA Lakers – New Orleans ................ 107:88
SKÍÐI
Skíðamót Íslands
Keppni í sprettgöngu á Silfurtorgi í
miðbæ Ísafjarðar:
Sex stúlkur tóku þátt í keppni kvenna og
varð Elsa Guðrún Jónsdóttir, Ólafsfirði,
sigurvegari í keppni við Jónu Lindu Karls-
dóttur, Ísafirði, í úrslitum. Auður Yngva-
dóttir, Ísafirði, fékk brons.
Sextán karlmenn mættu til leiks og varð
Magnús Þór Björnsson, Ísafirði, sigurveg-
ari – vann Ólaf Th. Árnason, Ísafirði, í úr-
slitum. Jakob Einar Jakobsson, Ísafirði,
fékk brons.
ÍSHOKKÍ
Heimsmeistaramót 18 ára liða, 2. deild A, í
Ungverjalandi.
Ísland – Belgía ..........................................4:3
Daníel Eiríksson skoraði þrjú mörk og
Gauti Þormóðsson sigurmarkið þegar 1.46
mín. voru til leiksloka.
Íslenska liðið tapaði fyrsta leiknum fyrir
Hollandi 11:1.
Í DAG
VEIGAR Páll Gunnarsson, leikmaður með Stabæk, átti
góða innkomu í síðari hálfleik. Hann frískaði mikið upp
á leik íslenska liðsins í síðari hálfleik. Jöfnunarmarkið
sem Þórður skoraði kom eftir fínan undirbúning Veig-
ars og ekki mátti miklu muna að honum tækist að skora
sjálfur skömmu síðar. „Ég ætlaði bara að setja boltann í
hornið en boltinn skoppaði illa á ósléttum vellinum sem
gerði það að verkum að ég náði ekki stýra honum. Á
betri velli hefði ég örugglega skorað í þessari stöðu.
Sárt að ná ekki jafntefli
Það var sárt að ná ekki í það minnsta jafntefli, en alb-
anska liðið er mjög sterkt og ekki skrýtið að því skuli
hafagengið svona vel á heimavelli sínum. Ég fann mig
vel þegar ég kom inn á. Ég hef mikinn metnað fyrir því
að halda mér í landsliðinu og því er mikilvægt að nýta
hvert tækifæri velsem gefst. Það var verst að mér
skyldi ekki takast að skora en ég vil kenna vellinum þar
um,“ sagði Veigar Páll.
„Ójafna kom í veg
fyrir að ég skoraði“
Ljósmynd/ALNA photo
Heiðar Helguson, framherji landsliðsins, var
að venju harður í horn að taka í baráttunni um
knöttinn gegn Albönum í Tirana.
Það er verst að hafa tapað þess-um leik sem verður eftirminni-
legur fyrir mig, bræður mína og
fjölskyldu. Við höf-
um beðið eftir þessu
augnabliki ansi lengi
og það var því mjög
gaman að fá að spila
saman. Þetta var
stór dagur hjá fjölskyldunni og
stórum áfanga náð. Það var gaman
að skora í 50. leiknum en verst að
það skyldi koma í tapleik,“ sagði
Þórður Guðjónsson við Morgun-
blaðið.
Þórður sagðist ekki hafa verið
sáttur við leik liðsins í fyrri hálfleik.
„Við vorum of rólegir en takmarkið
var fyrst og fremst að hugsa vel um
vörnina sem við ætlum okkur að
gera í útileikjunum. Við gerðum of
lítið að að spila boltanum innan liðs-
ins í fyrri hálfleik en í þeim síðari
var allt annað uppi á teningnum.
Við náðum þá mörgum góðum
sóknum og eftir að við jöfnuðum
fannst mér við vera nær því að
komast yfir heldur en þeir. Þegar á
heildina er litið var ég sáttur við
margt í okkar leik. Við erum að
byrja upp á nýtt en Albanarnir
spiluðu gegn Svíum í síðasta mán-
uði svo þeir hafa ákveðið forskot.
Ég held að þessi úrslit séu ekkert
til að skammast sín fyrir. Við get-
um lært mikið af þessum leik og
hann sýnir okkur að við getum ekki
beðið með það fram til síðari hálf-
leiks að spila boltanum og halda
honum innan liðsins. Það var stress
í mönnum í fyrri hálfleik enda var
völlurinn hættulegur og við pöss-
uðum okkur á því að gera ekki mis-
tök.“
„Spilum vonandi
oftar saman“
„Ég er hundfúll að hafa tapað
leiknum því að mínu mati áttum við
skilið í það minnsta jafntefli. Mér
fannst ósanngjarnt að Albanarnir
skyldu ná fram sigri því við vorum
mun betri en þeir í seinni hálfleik
og í stöðunni 1:1 fengum við tvö fín
færi til að skora. Kannski vorum
við of ákafir í því að ætla að knýja
fram sigur því við gleymdum okkur
aðeins í varnarleiknum og var um-
svifalaust refsað fyrir,“ sagði Jó-
hannes Karl Guðjónsson við Morg-
unblaðið.
Það hefur nú verið svolítið sér-
stakt að spila með tveimur bræðr-
um sínum í landsliðinu?
„Það var mjög gaman og vonandi
að það verði oftar. Það er frábært
að þetta skuli hafa gerst en ég leit
auðvitað á þá sem hverja aðra með-
spilara í liðinu. Upp á ferilinn að
gera er þetta auðvitað mjög
skemmtilegt og við komum líklega
aldrei til með að gleyma þessum
leik þó svo hann hafi tapast,“ sagði
Jóhannes Karl.
Stór dagur hjá
fjölskyldunni
Í FYRSTA skipti í rúm fjörutíu ár léku þrír bræður í byrjunarliði ís-
lenska landsliðsins þegar Þórður, Bjarni og Jóhannes Guðjónssynir
voru í liðinu sem atti kappi við Albana í gærkvöld. Bræðurnir frá
Akranesi munu sjálfsagt muna eftir þessum leik um ókomin ár og
þá sérstaklega Þórður Guðjónsson. Þórður lék í gærkvöldi sinn 50.
landsleik og af því tilefni var hann fyrirliði landsliðsins í fyrsta skipti
og hann skoraði eina mark Íslands, sitt 13. á landsliðsferli sínum.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar frá
Tirana
Ljósmynd/ALNA photo
Byrjunarlið Íslands: Heiðar Helguson, Ólafur Örn Bjarnason, Marel Baldvinsson, Ívar Ingimars-
son, Brynjar Björn Gunnarsson, Pétur Marteinsson. Neðri röð frá vinstri: Bjarni Guðjónsson, Jó-
hannes Karl Guðjónsson, Árni Gautur Arason, Þórður Guðjónsson fyrirliði, Indriði Sigurðsson.
Bræðurnir Þórður, Bjarni og Jóhannes í byrjunarliði
FRAKKINN Emmanuel Petit segir
að það sé ekki nóg fyrir Chelsea að
kaupa dýra leikmenn í löngum röð-
um til þess að vinna titla og raunar
þykir honum Roman Abramovich
hafa farið of djarflega í þær sakir
síðan hann keypti félagið á síðasta
ári. Það sé alls ekki nóg að kaupa
sterka leikmenn, velgengni byggist
fyrst og fremst á traustum grunni
sem síðan sé hægt að byggja ofan á.
Þetta segir Petit m.a. í viðtali við
France Football.
Petit segist standa heilshugar við
bakið á Claudio Ranieri knatt-
spyrnustjóra sem vinni við erfiðar
aðstæður. „Skuldinni fyrir öllu því
sem miður fer hjá Chelsea er skellt á
Ranieri. Ég vorkenni honum en ber
um leið mikla virðingu fyrir honum
og störfum hans.“
Vill vera áfram í London
Petit, sem lék áður með Arsenal,
sem seldi hann til Barcelona og það-
an kom hann til Chelsea, hefur mik-
inn hug á að vera áfram í Englandi
og þá í London. Hann er sagður
tilbúinn til að leika með Tottenham,
Fulham eða Charlton.
Petit ekki ánægður