Morgunblaðið - 01.04.2004, Blaðsíða 32
AUSTURLAND
32 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Egilsstaðir | Þótt eldri borgarar á
Egilsstöðum séu flestir hættir að
vinna á hinum almenna vinnu-
markaði, hafa þeir síður en svo
lagt árar í bát.
Leikfimihópur þeirra mætir
tvisvar í viku í leikfimi í íþrótta-
húsið á Egilsstöðum, þar sem
Katrín Gísladóttir stjórnar æfing-
um.
„Andinn er góður í hópnum og
aðdáunarvert hvað fólkið er glatt
og jákvætt; það er „no grumpy
old people“ á Héraði segir Katrín,
sem hefur stjórnað þessari leik-
fimi í fjögur ár.
Þróttmikið starf
Strax í byrjun, fyrir fjórum ár-
um, voru þátttakendur, sem eru
flestir á aldrinum 60 til 87 ára,
milli 30 og 40 talsins. Nú í vetur
mæta þátttakendurnir, nær 50
manns, á æfingarnar tvisvar í
viku.
Auk þess að stunda leikfimina
grimmt fer þessi hópur saman út
að borða þrisvar á vetri, þar sem
haldið er uppi kvöldvökustemn-
ingu.
Einnig er þróttmikið starf í Fé-
lagi eldri borgara á Héraði, sem
verður tuttugu ára í ár og hefur
aðstöðu á neðstu hæðinni í „Jóns-
húsi“ að Miðvangi 22 á Egils-
stöðum.
Á vegum félagsins, sem ætlar
að halda aðalfund sinn nú í viku-
lokin, er fjölbreytt starfsemi, svo
sem handavinna, dans, blandaður
kór og opin kvöld einu sinni í
mánuði, þar sem spiluð er fé-
lagsvist, bingó og haldin
skemmtikvöld.
Eldra fólkið á Héraði kallar ekki allt
ömmu sína þegar kemur að leikfiminni
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Og lyfta! Heldri borgarar á Egilsstöðum stunda leikfimi tvisvar í viku sér til heilsubótar hjá Katrínu Gísladóttur.
Breiðdalshreppur | Í fundargerð
hreppsnefndar frá 24. mars hefur
verið gefið út það álit að sameining
sveitarfélaga verði að hafa mjög aug-
ljósa kosti í för með sér, svo sem
bætta þjónustu og eflingu atvinnulífs.
Segir jafnframt að „sameining á
ekki að vera markmið í sjálfu sér
heldur á hún að verða til þess að
styrkja og efla sveitarfélög. Nokkurt
jafnræði verður einnig að vera með
þeim sveitarfélögum sem sameinast.
Tvö eða fleiri fátæk og smá sveit-
arfélög verða ekki eitt stórt og öflugt
við sameiningu. Samgöngur verða að
vera góðar innan hins sameinaða
sveitarfélags. Sé talið að sami árang-
ur náist með samvinnu sveitarfélaga,
þá er það ekki síðri kostur en samein-
ing. Við sameiningu verður að setja
skýr markmið og ákveða á hvern hátt
á að ná þeim markmiðum. Afar brýnt
er að auka rannsóknir á því hvort
sameining sveitarfélaga sé betri kost-
ur en sameining.“
Sameining
eða samvinna
Fellahreppur | Í Fellabæ er verið að hefj-
ast handa um byggingu 500 fermetra fjöl-
notasalar. Verður hann byggður við hús
þar sem fyrir er safnaðarheimili sókn-
arinnar og mun hýsa þjónusturými og
íþróttasal. Byggt verður stálgrindahús og
er það Tréiðjan Einir sem sér um fram-
kvæmdina. Heildarkostnaður er áætlaður
um 70 milljónir króna og reiknað með að
hægt verði að taka húsið í notkun fyrir
næstu áramót.
Skortir land undir lóðir
Fellahreppur hefur leigt aðstöðu í
Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum fyrir
skólaíþróttir fram að þessu og segir Jens
Pétur Jensen, sveitarstjóri Fellahrepps, að
byggingin muni koma til með að styrkja
skólastarfið í Fellahreppi og spara tals-
verðan akstur milli Egilsstaða og Fella-
bæjar.
„Hér verður betri þjónusta auk þess sem
nýta má salinn til ýmissa annarra hluta.“
Jens segir að fyrir liggi að fara í gatna-
gerðarframkvæmdir í Fellabæ, við Skóla-
brún, þar sem rísa á íbúðarhúsnæði og við
Iðjusel sem er í iðnaðarsvæðinu. Þá er orð-
ið brýnt fyrir hreppinn að kaupa land, því
töluverð eftirspurn er nú eftir lóðum í bæn-
um að sögn Jens, en óhægt um vik þar sem
lítið er orðið um lausar lóðir innan bæj-
arins til bygginga.
„Við horfum til norðurs, til lands sem
Ekkjufellssel á og höfum verið í viðræðum
við þá aðila um nokkurt skeið“ segir Jens.
„Við erum búin að vinna þéttbýlisskipulag
og ef ekki semst um verð þarf sjálfsagt að
fara í eignarnám. Þetta ferli á eftir að taka
töluverðan tíma á hvorn veginn sem fer og
við hefðum þurft að vera búin að þessu.“
Uppbygging í Fellahreppi
Neskaupstaður | Sundlaugin í Nes-
kaupstað hefur verið opin í allan
vetur í fyrsta sinn síðan um miðja
síðustu öld.
Lengi vel bauð umhverfi laug-
arinnar ekki upp á að opið væri yfir
hörðustu vetrarmánuðina, en í
fyrra voru gerðar töluverðar end-
urbætur á keri og umhverfi laug-
arinnar sem hafa gert þessa vetr-
aropnun mögulega.
Þessar framkvæmdir voru kær-
komin andlitslyfting fyrir sund-
laugina sem fagnaði sextíu ára af-
mæli á síðasta ári.
Að sögn Benedikts Sigurjóns-
sonar, forstöðumanns íþróttamann-
virkja í Fjarðabyggð, verður upp-
byggingu sundlaugarinnar haldið
áfram á þessu ári, en þá er fyr-
irhugað að byggja nýja búnings-
aðstöðu austan við laugina.
Fastagestir eru að vonum glaðir
yfir vetraropnuninni og sammála
um að það sé allt annað líf að hafa
opið allan ársins hring. Þá er þetta
mikil og góð breyting fyrir þá sem
æfa sund hjá Þrótti í Neskaupstað,
en nú geta þeir í fyrsta sinn verið í
sundformi og tekið þátt í mótum
allan ársins hring.
Aðspurður aðsókn sagði Bene-
dikt að alltaf mætti bæta aðsókn en
menn væru þó sammála um að yfir
köldustu vetrarmánuðina hafi hún
verið betri en búist var við.
Sundlaugin í Neskaupstað opin allan ársins hring
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Allt annað líf: Fastagestir á laugardagsmorgnum láta líða úr sér í pottinum.
Í fyrsta
sinn í
fimmtíu ár
Egilsstaðir | Nemendur við
Menntaskólann á Egilsstöðum
héldu nýverið opna daga í skól-
anum. Þeir Guðmundur Ingi
Úlfarsson og Kjartan Svanur
Hjartarson segja slegið á létta
strengi þessa daga í stað hefð-
bundins skólahalds. „Hátíðin
er orðin árviss viðburður í fé-
lagslífi skólans og heppnaðist
hún í alla staði vel og eru bæði
nemendur og kennaralið skól-
ans hæstánægðir með árang-
urinn,“ segja þeir Guðmundur
og Kjartan. Meðal þess sem
fengist var við á opnu dögunum
má nefna laufléttar íþrótta-
greinar, námskeið í listum og
líkamsrækt, náttúrulífs-
athugun og matreiðslukeppni.
Sigurlaug syngur
fegurst fljóða
Guðmundur og Kjartan
segja Söngkeppni ME, Bark-
ann, sem haldin var viku fyrir
opnu dagana einnig hafa
heppnast frábærlega. „Keppn-
in fór fram fyrir fullu húsi
áhorfenda þar sem Sveppi og
Auddi af PoppTíví áttu stóran
þátt í að skemmta fólki.
Fjöldi nemenda tók þátt í
henni en Sigurlaug Jónsdóttir,
ung snót frá Fellabæ, varð sig-
urvegari keppninnar og verður
fulltrúi ME í Söngkeppni Fé-
lags framhaldsskólanema sem
verður haldin 3. apríl nk. í
Kaplakrika í Hafnarfirði.“
Þrælvanir í kokkaríinu: Vask-
ir menntskælingar takast á við
brauðbakstur.
Með opinn huga á
galopnum dögum
Neskaupstaður | Óskar Hrafn Ólafsson og Jeff
Clemmensen hafa nýlega stofnsett fyrirtækið
Nesk ehf. í húsakynnum Mjólkursamlagsins í
Neskaupstað, sem var aflagt árið 2001.
Þar er nú unnið að vöruþróun, framleiðslu og
sölu á sojavörum, m.a. sojamjólk, tofu og soja-
skyri, ásamt annarri framleiðslu í samvinnu við
fyrirtækin Fagvörur í Hafnarfirði og Austur-
bakka í Reykjavík. Fram til þessa hefur enginn ís-
lenskur framleiðandi verið fyrir þennan ört
stækkandi markað sem sojavörumarkaðurinn er.
Það er mjólkurtæknifræðingurinn Jeff Clemm-
ensen sem nú hefur snúið sér að þróun á sojavör-
um, en áður hefur hann þróað nýjar vörur á ís-
lenskan mjólkurvörumarkað. M.a. var hann
frumkvöðull að framleiðslu á fljótandi vöffludeigi í
fernum, súrmjólk með bragðefnum í lítrafernum,
AB-C mjólk með bragðefnum og drykkjarjógúrt
undir nafninu Tumi.
Fullunnið í neytendapakkningar
á Hellissandi
Að sögn Jeffs er framleiðsluferill sojaafurða að
mörgu leyti sambærilegur hefðbundinni mjólkur-
framleiðslu. Hann segir að lykilhugmyndin sé sú
að framleiða ferska vöru fyrir íslenskan markað,
en fram að þessu hafa innfluttar sojavörur að
mestu verið G-vörur. Jeff segist vilja framleiða
heilsusamlega vöru fyrir íslenskan markað án
mjólkurpróteins.
Sojaafurðirnar eru ýmist framleiddar úr lífrænt
ræktuðum og óerfðabreyttum sojabaunum eða úr
lífrænu sojamjólkurdufti. Nú þegar er hafin til-
raunaframleiðslu á tofu og með stuttum fyrirvara
er hægt að hefja framleiðslu á sojamjólk. Tofuið
hefur verið flutt á Hellissand þar sem það er unnið
í neytendapakkningar, m.a. sem tilbúnir réttir og
selt í verslunum Hagkaupa á höfuðborgarsvæð-
inu.
Fyrirtækið starfar eins og áður sagði í húsnæði
mjólkursamlags Norðfirðinga, sem lagðist af árið
2001.
Jeff var áhugasamur um að nýta aðstöðu og
tækjakost mjólkursamlagsins til atvinnuskapandi
verkefna í Neskaupstað og eftir töluverða yfirlegu
varð niðurstaðan sú að einbeita sér að framleiðslu
á sojavörum í samvinnu við önnur íslensk fyrir-
tæki. Erfitt hefur reynst að fjármagna verkefnið
og segist Jeff spyrja sjálfan sig hvað verði um alla
þá fjármuni sem fara til nýsköpunar á lands-
byggðinni. „Án aðstoðar frá Sparisjóði Norðfjarð-
ar og aðkomu Óskars Hrafns Óskarssonar, annars
eiganda Nesk ehf., hefði þetta aldrei gengið,“ seg-
ir Jeff.
Ekki nóg með að unnið sé að vöruþróun og
framleiðslu á sojaafurðum hjá Nesk heldur hefur
bakaríið í Neskaupstað nú hafið tilraunafram-
leiðslu á brauði úr sojakjarna sem til fellur við
framleiðslu sojamjólkur hjá Nesk ehf. Sojabauna-
brauðið hefur fengið góðar viðtökur í sölubúð bak-
arísins og væntanlega verður hafin framleiðsla á
brauðinu í verslanir innan tíðar.
Vefur Nesk ehf. er www.soja.is og þar er m.a. að
finna uppskriftir að sojaréttum.
Gamla mjólkurstöðin í Neskaupstað gengur í endurnýjun lífdaganna
Ný íslensk sojavöruframleiðsla
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Hinn danski Jeff Clemmensen einhendir sér nú í
framleiðslu á sojavörum í gömlu mjólkurstöðinni
á Norðfirði.