Morgunblaðið - 01.04.2004, Side 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
UNGUR einsöngvari kom fram á tón-
leikum í Langholtskirkju í gærkvöldi
þegar hinn ellefu ára gamli Ísak Rík-
harðsson söng einsöng með Kammer-
kórnum Vox academica og Háskóla-
kórnum við undirleik kammersveitar-
innar Jón Leifs Camerata undir stjórn
Hákonar Leifssonar. Á efnisskrá voru
þrjú verk, Christ lag in Todes Banden
eftir J.S. Bach, nýlegt verk eftir Báru
Grímsdóttur við ljóð Williams Blakes
sem nefnist Night og Chichester
Psalms eftir Leonard Bernstein, en
Ísak söng einsöng í síðast talda verk-
inu. Þetta er í annað sinn sem Ísak
syngur einsöngshlutverkið í viðkom-
andi verki því hann flutti það með
Schola cantorum á tónleikum sl. vor.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ungum
einsöngv-
ara fagnað
SKÍÐAMÓT Íslands var sett í gær á Ísafirði
með keppni í sprettgöngu. Lögð var 80
metra braut úr ískrapa og snjó á Silfurtorgi
og er það í fyrsta sinn sem það er gert.
Tveir og tveir keppendur renndu sér saman
og komust tuttugu efstu í úrslit. Sá sem lenti
í 20. sæti keppti við þann sem var í fyrsta
sæti og svo koll af kolli þar til úrslit voru
kunn. Hinn heimskunni norski skíða-
göngumaður, Thomas Alsgaard, tók þátt í
göngunni en hann keppir sem gestur á
mótinu. Markús Þór Björnsson, skíðakappi
úr Önundarfirði, bar sigur úr býtum í sprett-
göngunni eftir harða keppni við Ólaf Th.
Árnason frá Ísafirði.
Að sögn Marzellíusar Sveinbjörnssonar,
sem sæti á í göngunefnd skíðamótsins, var
ákveðið að færa sprettgönguna niður í bæ til
að setja meiri svip á mótið. Vegna snjóleysis
í Tungudal er keppt í alpagreinum á Siglu-
firði en keppt er í norrænum skíðagreinum á
skíðasvæði Ísfirðinga í Skarðsengi. Mótið
stendur fram á laugardag.
Til að undirbúa gönguna varð að keyra
bílhlöss af ískrapa úr ísverksmiðju bæjarins
á Silfurtorg í hjarta bæjarins og snjór síðan
borinn ofan á sem sóttur var upp í fjall.
Sprettganga í hjarta bæjarins
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Mikið kapp var í skíðamönnum á Silfurtorgi á Ísafirði þegar þeir stukku af stað í sprettgöngu á tilbúnum snjónum.
UMFERÐARMERKI
trufla víða útsýn ökumanna
þar sem þau eru ekki stað-
sett rétt að sögn Ólafs K.
Guðmundssonar, stjórnar-
manns í Landssambandi ís-
lenskra akstursíþrótta-
félaga, en hann flutti í gær
fyrirlestur á ráðstefnu um
hönnun umferðarmann-
virkja. Segir hann merki oft
byrgja ökumönnum sýn við
gatnamót og vegamót og
huga þurfi mun betur að
staðsetningu þeirra.
Ólafur segir ennfremur
að orsakirnar séu fyrst og
fremst hugsunarleysi. Sam-
ræmingu vanti í merkingar, þær
séu breytilegar frá einu sveitarfé-
lagi til annars og oft virðist tilgang-
urinn með merkingum ekki nægi-
lega skýr.
Í erindi Ágústs Mogensen, fram-
kvæmdastjóra Rannsóknarnefndar
umferðarslysa, kom fram að milli 80
og 90% banaslysa í umferðinni sem
nefndin rannsakar ár hvert verði í
dreifbýli. Um helmingur þeirra
slysa sem nefndin rannsakar er út-
afakstur og segir Ágúst umhverfi
hafa áhrif á hversu alvarlegar af-
leiðingarnar verða. Flestir árekstr-
ar verða í þéttbýli og þannig verða
86% umferðarslysa þar sem ein-
göngu verður tjón á eignum í þétt-
býli en 14% í dreifbýli. Ágúst segir
að eftir því sem slysin verði alvar-
legri aukist hlutur dreif-
býlisins.
Fram kom á ráðstefn-
unni að Vegagerðin hefur
um 140 milljónir króna á
þessu ári til að ráðast í lag-
færingar á varasömum
stöðum á þjóðvegakerfinu
og segir Rögnvaldur Jóns-
son vegamálastjóri að æski-
legt væri að fá meira fé til
slíkra aðgerða. Vegamála-
stjóri segir fjármuni þessa
m.a. notaða til að setja eyjar
og hringtorg við gatnamót,
setja upp viðvörunarljós við
einbreiðar brýr eða lagfæra
skurði. Segir hann Vega-
gerðina nú vera að taka út umhverfi
vegakerfisins með það fyrir augum
að áætla kostnað við aðgerðir til að
gera vegi og umhverfi þeirra örugg-
ara. „Stundum þarf ekki mikið til,
fjarlægja einstaka stein, moka ofan
í skurði og ýmislegt sem má gera til
að lagfæra,“ segir vegamálastjóri.
Merkingar geta
truflað útsýni
Helmingur umferðarslysa er útafakstur
Mikill hraði/12
Merkingar eru of oft í sjónlínu ökumanna eins og
þetta skilti sem skyggir á stóran jeppa með kerru.
VALGERÐUR Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra sagði á að-
alfundi Samtaka verslunar og
þjónustu í gær að margir í
viðskiptalífinu hegðuðu sér
eins og kálfar sem hleypt er
út á vori. Var hún að vísa til
þess að gífurlegar breytingar
hefðu orðið á íslensku við-
skiptaumhverfi síðustu árin.
Valgerður sagði áhyggjur
sínar lúta að fimm þáttum. Í
fyrsta lagi að hagræðing væri
ekki alltaf drifkraftur breyt-
inga heldur valdabarátta; að
flókið net samsteypna minnk-
aði gagnsæi og gerði yfirsýn
erfiðari; að stjórnunarhættir
væru ekki eins og best yrði á
kosið; að samsteypur gætu
knúið fram óeðlilega lágt verð
í krafti stærðar og í fimmta
lagi að bankar væru farnir í
krafti afls að sækja hraðar
fram í atvinnulífinu en eðli-
legt gæti talist.
Viðskiptaráðherra
á aðalfundi SVÞ
Eins og
kálfar
á vori
Skiptar skoðanir/2C
ÞÓRÐUR Guðjónsson
skoraði eina mark Ís-
lands í 2:1 tapleik liðsins
í vináttulandsleik gegn
Albaníu sem fram fór í
Tirana í gær. Bræður
Þórðar, þeir Bjarni og
Jóhannes Karl, voru
einnig í byrjunarliði Ís-
lands en slíkt hefur ekki
gerst frá árinu 1963, er
bræðurnir Bjarni, Gunnar og Hörður Fel-
ixsynir léku saman gegn áhugamannalands-
liði Englendinga í Wimbledon.
Þórður var jafnframt fyrirliði í fyrsta
sinn á sínum ferli en hann lék sinn 50. lands-
leik í Tirana í gær.
Þórður skoraði
í bræðraleik
Þórður Guðjónsson
Landsleikurinn/75
HINN kunni banda-
ríski tónlistarmaður
Bruce Springsteen
er staddur hérlendis
um þessar mundir í
boði Björgvins Hall-
dórssonar. Að sögn
Björgvins er
Springsteen hér til
að skoða landið en
einnig til að hljóð-
rita með honum dúett fyrir næstu plötu
Björgvins.
Springsteen vill nota tækifærið á meðan
hann er hér til að kynnast íslenskum aðdá-
endum sínum og þakka um leið fyrir hlý-
legar móttökur með því að halda eina
órafmagnaða tónleika, sem verða á Nasa í
kvöld. „Hann ætlar að renna yfir ferilinn,
enda hefur hann ekki spilað fyrir Íslend-
inga áður,“ segir Björgvin.
Bruce Spring-
steen á Íslandi
Springsteen/80
Morgunblaðið/Eggert
♦♦♦