Morgunblaðið - 01.04.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.04.2004, Blaðsíða 10
Morgunblaðið/Golli Bjarni Haukur Þórsson hjá 3 Sagas og Pálmi Kristinsson, framkvæmda- stjóri Smáralindar. Þættirnir Á framabraut nutu mikilla vinsælda á árum áður. Söngleikurinn FAME verður settur upp í Smáralind í sumar. VETRARGARÐINUM í Smáralind verður breytt í leikhús í sumar og munu 750–800 manns geta sótt hverja sýningu af söngleiknum Fame sem taka á til sýninga um miðjan júní. Sýningin er samvinnuverkefni Smáralindar, 3 Sagas og Norður- ljósa. Smáralind útvegar húsnæðið, en töluverðar breytingar þarf að gera á Vetrargarðinum til að hægt sé að halda uppi sýningum á söng- leik, 3 Sagas sér um listræna og faglega hlið uppsetningarinnar og Norðurljós koma að markaðs- og tæknimálum. Í tilkynningu frá Smáralind segir meðal annars að með þessum breyt- ingum verði til húsnæði sem skapa muni spennandi tækifæri til að setja upp stórsýningar á borð við Fame. Að sögn Bjarna Hauks Þórs- sonar, leikstjóra Fame og eins eig- enda 3 Sagas, taka um 20 leikarar, söngvarar og dansarar þátt í sýn- ingunni, bæði þekkt og óþekkt and- lit. Hann vill ekki gefa upp nöfn að- alleikara en segir þau verða kynnt innan fárra daga. Hann segir æf- ingar ekki hafnar en að áætlað sé að frumsýning á Fame verði á tíma- bilinu 15.–25. júní. Stefnt sé að því að sýna í júní, júlí, ágúst og sept- ember. Söngleikurinn Fame er byggður á samnefndri óskarsverðlauna- mynd frá áttunda áratugnum og fjallar um líf nemenda í listaskóla. Í kjölfar velgengni myndarinnar fylgdu sjónvarpsþættir sem nutu mikilla vinsælda og voru m.a. sýnd- ir í Sjónvarpinu. Söngleikurinn sjálfur var frumfluttur í Stokk- hólmi árið 1992. Eins og því er lýst af þeim sem setja söngleikinn upp hérlendis sýnir hann „væntingar, sigra og vonbrigði, áhuga og hæfileika nem- enda sem koma frá mismunandi bakgrunni og menningarheimum, sem sækja um skólann og vinna síð- an hörðum höndum í fjögur ár þar til þeir útskrifast. Ástarævintýri eiga sér stað, vinátta verður til og grunnskilaboð sögunnar um réttar og rangar leiðir eiga erindi við æsku nútímans.“ Söngleikurinn Fame í Smáralind Allt að 800 geta séð hverja sýningu FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ FIMM þingmenn Samfylkingarinn- ar hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um að Alþingi skipi nefnd til að undirbúa löggjöf sem tryggi nauðsynlegt gagnsæi og ritstjórnarlegt sjálfstæði á fjöl- miðlamarkaði á Íslandi. „Nefndin athugi hvernig hægt sé að tryggja almenningi hlutlægar grundvallar- upplýsingar um eignarhald á fjöl- miðlum og rekstur þeirra,“ segir í tillögugreininni. „Hún taki afstöðu til þess hvort gera eigi slíka upplýs- ingagjöf að skilyrði við veitingu út- varpsleyfis þannig að upplýsingarn- ar séu uppfærðar reglulega og liggi alltaf fyrir.“ Þá er lagt til að nefndin athugi hvernig hægt sé að stuðla að sem mestu sjálfstæði ritstjórnar gagn- vart eigendum fjölmiðla. Hún skoði jafnframt hvort siðareglur um sam- skipti eigenda og ritstjórnar geti komið að haldi og hvort heppilegt væri að gera slíkar reglur að skil- yrði útvarpsleyfis. „Nefndin taki við þessa athugun mið af lögmætum hagsmunum þeirra sem að fjölmiðli standa og gæti jafnvægis milli gagnsæis á fjölmiðlavettvangi ann- ars vegar og hins vegar viðskipta- frelsis og viðskiptaleyndar, per- sónuverndar og verndar heimilda- manna.“ Fyrsti flutningsmaður er Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Mikil umræða Í greinargerð segir að miklar umræður hafi orðið um þróunina á íslenska fjölmiðlamarkaðnum að undanförnu og að þar hafi einkum borið á áhyggjum af einokun og fá- keppni. Undir lok greinargerðar- innar segir síðan. „Flutningsmenn telja hins vegar ekki heppilegt að setja sérstök lög um að takmarka eignarhald á íslenskum fjölmiðlum, umfram þau ákvæði samkeppnis- laga sem eiga við um fjölmiðla rétt eins og annan rekstur. Með tak- mörkun á eignarhaldi væri þrengt að fjölmiðlarekstri og starfsum- hverfi í þeirri atvinnugrein settar sérstakar skorður hvað varðar að- gang að fjármagni. Þetta er í samræmi við niður- stöðu nefndar sem þáverandi menntamálaráðherra, Björn Bjarnason, skipaði um endurskoð- un á útvarpslögum árið 1996 en í nefndinni sátu Tómas Ingi Olrich, formaður, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, Páll Magnússon og Ásdís Halla Bragadóttir.“ Að síð- ustu segir að flutningsmenn telji að með skýrum lagareglum um gagnsæi og ritstjórnarlegt sjálf- stæði megi ná betri árangri án þess að skerða rekstrarskilyrði fjöl- miðlafyrirtækjanna. Óheppilegt að takmarka eignarhald á fjölmiðlum Morgunblaðið/Sverrir JÓHANNA Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi í gær að Per- sónuvernd kannaðist ekki við að hafa verið á móti tillögum rík- islögreglustjóra þess efnis að í fjarskiptalögum verði ákvæði um lágmarks varðveislu gagna um fjarskiptaumferð svo lög- regla geti upplýst brot á Netinu. Jóhanna vitnaði til fréttar Stöðvar 2 kvöldinu áður og sagði að Guðmundur Hallvarðs- son, formaður samgöngunefnd- ar Alþingis, hefði þar ranglega sagt að ágreiningur hefði verið milli lögreglu og Persónuvernd- ar um vörslu slíkra gagna. Guðmundur vísaði ásökunum Jóhönnu um ósannsögli á bug og ítrekaði að nefndin myndi fara yfir tillögu ríkislögreglu- stjóra í dag, fimmtudag. Guðmundur sagði í gær að bæði minnihluti og meirihluti nefndarinnar hefðu á sínum tíma skilað nefndaráliti þar sem ekki hefðu verið gerðar athuga- semdir við 42. gr. fjarskipta- lagafrumvarpsins, en sú grein gerir ráð fyrir því að gögnum um fjarskiptaumferð notenda skuli eytt eða gerð nafnlaus þegar þeirra er ekki lengur þörf. Sakar þing- mann um ósannsögli PÁLL Magnússon, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, segir í pistli á heimasíðu sinni að markaðsátak ís- lensks lambakjöts í Bandaríkjunum undir merkjum Áforms hafi mis- heppnast. Samkvæmt tölum Hag- stofunnar hafi einungis 56 tonn af fersku lambakjöti verið flutt út til Bandaríkjanna á síðasta ári, en ekki 200 tonn eins og framkvæmda- stjóri Áforma hefði haldið fram. Páll gerir einnig að umtalsefni nýlega skýrslu IMG Deloitte fyrir Áform og segir að athygli veki að tvær meginforsendur í skýrslunni standist ekki. Annars vegar sé því haldið fram að 90 tonn af lamba- kjöti hafi verið flutt til Bandaríkj- anna á síðasta ári, en samkvæmt tölum Hagstofunnar hafi útflutn- ingur til Bandaríkjanna á lamba- kjöti numið 72 tonnum og þar af séu 56 tonn ferskt lambakjöt, en Áform selji eingöngu ferskt kjöt. Hins vegar komi fram að kostnaður við söluna sé 9,5 milljónir kr. og sé beinn kostnaður Áforma vegna út- flutningsins um 17% af skilaverði til afurðastöðvar. Í samtölum við viðmælendur hafi komið fram að þetta hlutfall sé mjög hátt. Síðan segir Páll: „Í reynd er þetta hlutfall mun hærra því í ljós hefur komið að launakostnaður framkvæmdastjóra Áforma er ekki reiknaður til kostn- aðar við markaðssetninguna. Að- eins beinn útlagður kostnaður. Þá virðist ekki lagt mat á annan stuðn- ing við verkefnið sem nemur nokkrum milljónum á króna á hverju ári. Upp úr stendur að tvær meginforsendur skýrslunnar standast ekki. Sölutölur eru taldar hærri en raun ber vitni og kostn- aður lægri en eðlilegt getur talist.“ Páll segir einnig að alls hafi verið flutt út 2.253 tonn af lambakjöti á síðasta ári og aðeins 72 tonn hafi farið til Bandaríkjanna. „Það ætti því að vera nokkuð ljóst, eftir margra ára markaðsstarf sem kost- að hefur ríkissjóð um 200 milljónir króna, að þetta séu misheppnuð áform. Til Færeyja voru flutt út 443 tonn af lambakjöti á síðasta ári eða sex sinnum meira magn en til Bandaríkjanna. Það ætti nú að gefa mönnum ákveðnar vísbendingar. Hvað aðferðarfræðina varðar má einnig hafa verulegar efasemdir um að rétt sé að verki staðið. Frá árinu 1997 hefur verið einblínt á einn kaupanda í Bandaríkjunum, Whole Foods matvælakeðjuna. Í dag er það í raun eini kaupandinn í Bandaríkjunum,“ segir ennfremur. Aðstoðarmaður viðskiptaráðherra um sölu lambakjöts Misheppnað átak INGVAR Gíslason, útflutningsstjóri Norðlenska, segir að fyrirtækið hafi flutt út 80 tonn af fersku unnu lamba- kjöti á síðasta ári til Bandaríkjanna og einhver mistök hafi átt sér stað varðandi skráningu útflutningsins hjá Hagstofunni. Hann sagði einnig að 184 tonn af óunnu dilkakjöti hafi þurft til þess að framleiða þessi 80 tonn af unnu kjöti, þegar gagnrýni Páls Magnússonar var borin undir hann. Ingvar sagði að í fyrsta lagi seldi Áform ekkert lambakjöt. Norðlenska seldi lambakjöt og væri í tengslum við þennan kaupanda í Bandaríkjun- um. Áform væri átaksverkefni um sölu á lambakjöti og væri á fjárlögum hjá ríkinu og sinnti fleiri verkefnum en bara sölu á lambakjöti. Varðandi tölur um útflutning á lambakjöti væri alveg ljóst að samkvæmt sölutölum og tollskýrslum sem þeir hefðu í höndunum hefðu áttatíu tonn verið flutt út til Ameríku á síðasta ári af fersku unnu lambakjöti frá Norð- lenska. Hann væri búinn að vera í sam- bandi við Hagstofuna vegna þessa þar sem tölurnar stemmdu ekki og það væri alveg ljóst að einhvers stað- ar í ferlinu hefðu mistök átt sér stað. Ingvar sagði einnig að í þessari umræðu væri gjarnan talað um ígild- istonn. Þannig hefði þurft 184 tonn af dilkakjöti til þess að framleiða þessi 80 tonn af unnu lambakjöti, þar sem varan væri mikið unnin, úrbeinuð og fleira til þess að flytja sem verðmæt- asta afurð á markað í Bandaríkjun- um. Útflutningurinn hefði aukist ár frá ári og áætlanir væru um að flytja út 110-120 tonn af unninni vöru í ár. Brúttótölur í skýrslunni Gunnar Jóhannesson, rekstrarráð- gjafi hjá IMG Deloitte, sem vann skýrsluna fyrir Áform, sagði að- spurður um gagnrýni Páls að skýr- ingin á að tölum um útflutning bæri ekki saman væri að hluta til sú að ein sending Norðlenska hefði verið rangt skráð sem frosið kjöt. Einnig hefði komið í ljós að allar útflutnings- skýrslur Norðlenska hefðu ekki skil- að sér til Hagstofunnar. Loks væru þær tölur sem þeir væru með í skýrslunni brúttótölur með umbúð- um og öðru slíku, en auðvitað hefði verið réttara að vera með nettótölur sem væru rúm 80 tonn. Spurður um þá gagnrýni að launa- kostnaður framkvæmdastjóra Áforms hefði ekki verið tekinn með í útreikningi á kostnaði við útflutning- inn, sagði Gunnar, að þeir hefðu sleg- ið á hver sú hlutdeild væri samkvæmt þeim verkefnum sem hann væri að vinna. Segja mætti að þau væru þrí- þætt, útflutningur til Bandaríkjanna, sambærilegur útflutningur til Dan- merkur og þróunarverkefni hvað varðaði lífræna ræktun. Hugsanlega mætti bæta fimm milljónum króna við kostnaðinn á ári. Fluttu út 80 tonn af fersku lambakjöti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.