Morgunblaðið - 01.04.2004, Side 13

Morgunblaðið - 01.04.2004, Side 13
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 13 OPIÐ TIL KL. 21 Í KVÖLD OPIÐ ALLA HELGINA FRÁ KL. 10-16 Veiðihornið - Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Veiðihornið - Síðumúla 8 - sími 568 8410 Sendum samdægursMunið gjafabréfin 1. apríl - ótrúlegt en satt Árlegir apríldagar Veiðihornsins hefjast í dag Nýjar vörur - Mögnuð tilboð - Frábært verð Scierra MBQ öndunarvöðlur 18.900. - Vortilboð aðeins 15.120. Scierra Blackwater Pro með tösku 34.900. - Vortilboð aðeins 27.920. Simms Freestone vöðlur 21.900. - Vortilboð aðeins 18.690. ProLogic Max4 Camo öndunarvöðlur með stígvélum 21.500. - Vortilboð aðeins 17.200. Ron Thompson Lagoon neoprenvöðlur 10.995. - Vortilboð aðeins 7.995. Ron Thompson Classic Pro vöðlur með tösku 12.995.- Vortilboð aðeins 9.845. Scierra Tundra vöðlur 18.995.- Vortilboð aðeins 15.195. ProLogic Max4 Camo vöðlur 16.800.- Vortilboð aðeins 13.440. Norinco haglabyssa, 3" pumpa, 28" hlaup, ólarfestingar og 3 þrengingar 32.500. - Vortilboð aðeins 24.800. Viðurkenndir og traustir byssuskápar. Verð frá 21.900. Sjá nánar á www.veidihornid.is. Nú geymir þú skotvopn ekki lengur undir rúmi. Góður fermingapakki: Scierra Avalanche fluguveiðisett. Stöng í 3 hlutum, „large arbour“, hjól með diskabremsu, lína, baklína, taumur og DVD diskur með kastkennslu. Aðeins 24.800 fyrir allt þetta. Mikið úrval af fluguhjólum. Okuma diskabremsuhjól frá 3.750. Okuma spinnhjól frá 2.995. Ron Thompson fluguveiðisett frá 10.999 Ron Thompson kaststöng og hjól frá 2.999 S ci er ra M B Q ön d un ar vö ðl ur R on Th om p so n La go on ne op re nv öð lu r R on Th om p so n C la ss ic P ro ne op re nv öð lu r S ci er ra Tu nd ra ne op re nv öð lu r P ro Lo gi c M ax 4 C am o ne op re nv öð lu r S ci er ra B la ck w at er P ro S im m s Fr ee st on e P ro Lo gi c M ax 4 C am o ÞREMUR dögum áður en George W. Bush sór embættiseið sinn sem forseti Bandaríkjanna kom Colin Powell fyrir þingið og útlistaði megináherslur sínar sem nýr utanríkisráðherra. Voru þær í 10 liðum en hann nefndi aldrei al-Qaeda-hryðjuverka- samtökin á nafn. Þessi staðreynd hefur nú verið rifjuð upp, í kjölfar útgáfu bókar Richards Clarke, Against All Enemies, en Clarke var einn æðsti yfirmaður hryðjuverka- baráttunnar í tíð fjögurra for- seta, þ.á m. George W. Bush. Í bókinni gagnrýnir Clarke Bush- stjórnina harðlega fyrir andvara- leysi gagnvart al-Qaeda en hún neitar því og hefur reynt að gera Clarke tortryggilegan. Colin Powell sagði á sunnudag í viðtali við CBS-sjónvarpsstöð- ina, að 20. des- ember 2000 hefði hann rætt hryðju- verkaógnina á fundi með Clarke og sér- fræðingum FBI og CIA, alríkislögregl- unnar og leyniþjónustunnar. Er Powell kom fyrir þingið mánuði síðar nefndi hann aldrei al-Qaeda og brást ekki við þegar Sam Brownback, öldungadeild- arþingmaður repúblikana, kall- aði Afganistan „sumarbúðir hryðjuverkamanna“. Nefndi hann landið aðeins þegar hann tók undir áhyggjur Barböru Boxer, öldungadeildarþing- manns demókrata, af hlutskipti kvenna þar. Nefndi ekki al-Qaeda á nafn Washington. AP. Colin Powell ÞÝZKA skemmtiferðaskipið „Frederic Chopin“ sem hér sést á ánni Vislu með gamla miðbæ pólsku höfuðborgarinnar Varsjár í bak- grunni, er fyrsta lúxusskemmti- ferðaskipið sem þangað siglir frá því Pólland opnaðist fyrir slíkri ferðamennsku eftir fall járntjalds- ins. Siglt er upp Vislu frá ósum hennar í hafnarborginni Gdansk/ Danzig. Um 60% miðanna í þessar sigl- ingar í ár hafa að sögn útgerð- arinnar þegar verið seldir, aðallega til þýzkra og bandarískra ferða- manna sem setja miðaverðið ekki fyrir sig, en það er allt að 2.500 evr- ur eða um 220.000 krónur. AP Siglt upp ána Vislu NÝJUM áfanga var í gær náð í rann- sókninni á hryðjuverkunum sem framin voru í Madríd 11. marz sl. er rannsóknardóm- arinn Juan Del Olmo fyrirskip- aði að Marokkó- maður, sem hafði verið sleppt úr haldi, skyldi handtekinn á ný og gaf út fyrstu alþjóðlegu hand- tökuskipanirnar á hendur fimm sakborningum til við- bótar. Er tilkynnt var um alþjóðlegu handtökuskipanirnar voru nöfn hinna eftirlýstu ekki látin uppi, en sam- kvæmt heimildum spænskra fjöl- miðla heitir einn þeirra Abdelkim Mejjati og er Marokkómaður. Böndin berast að marokkóskum öfgahópi Mejjati er talinn vera einn for- sprakka öfgasamtakanna Bardaga- hóps marokkóskra íslamista (MICG), sem talinn er hafa staðið að baki sprengjutilræðum í marokkósku hafnarborginni Casablanca í fyrra, en í henni létu 45 manns lífið, m.a. fjórir Spánverjar. Að sögn marokkósku leyniþjónustunnar varði Mejjati þremur dögum í Madríd skömmu fyr- ir sprengjutilræðin þar 11. marz, sem kostaði 191 manns lífið og særði 1.900. Á þriðjudag sagði spænski innan- ríkisráðherrann Angel Acebes það líklegt að MICG bæri ábyrgðina á ódæðinu, sem spænska stjórnin sak- aði basknesku aðskilnaðarsamtökin ETA fyrst um að hafa framið. Marokkósk yfirvöld hafa upplýst að liðsmenn MICG, þar á meðal meintir leiðtogar hópsins, Nouredine Nfia og Salahedine Beyaich, hafi hlot- ið þjálfun í þjálfunarbúðum al-Qaeda- samtaka Osama bin Ladens í Afgan- istan á tímabilinu 1999 til 2001. Talsmenn dómsmálayfirvalda til- kynntu annars í gær, að Del Olmo dómari hefði fyrirskipað að Aughar Fouad El Morabit, Marokkómaður sem látinn var laus snemma þriðju- dags eftir fimm daga yfirheyrslur lög- reglu, skyldi handtekinn á ný. Raf- magnsverkfræðineminn El Morabit var handtekinn suður af Madríd í síð- ustu viku, en hann hafði deilt íbúð með Basel Ghayoun, manni með sýr- lenzkt ríkisfang sem talinn er hafa verið einn af tíu mönnum sem komu fyrir sprengjunum sem sprungu í fjórum nærlestum sem komu inn til Madrídar árla dags 11. marz. Sam- kvæmt heimildum spænskra blaða fundust fingraför El Morabits í íbúð annars meints tilræðismanns um það leyti sem hann var látinn laus. Nítján manns í haldi Með endurhandtöku El Morabit eru nú 19 manns í haldi í tengslum við rannsóknina og eiga 14 þeirra þegar yfir höfði sér margfaldar ákærur fyrir morð og aðild að hryðjuverkum. Hinir fimm sæta enn yfirheyrslum. Fimm alþjóðahand- tökuskipanir á Spáni Madríd. AFP, AP. Angel Acebes

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.