Morgunblaðið - 01.04.2004, Síða 18
ERLENT
18 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MÆÐUR kínverskra stúlkna
stunduðu það í eina tíð að reyra
fætur dætra sinna til að tryggja að
þær teldust vænlegt kvonfang. Nú
gerist það á hinn bóginn æ algeng-
ara að ungar konur panti sér tíma
hjá lýtalækni og láti eiga við augn-
lokin, til að augun sýnist kringlótt-
ari en þau ella eru; nokkuð sem nú
þykir mjög eftirsóknarvert hjá
ungum konum í Kína.
Þegar Tao Fenfang var ung
stúlka þá spáði hún ekki mikið í út-
litið. Það einfaldlega tíðkaðist ekki
á þeim tíma í Kína, hugmynda-
fræði kommúnismans réð ríkjum
og það þótti til marks um úrkynjun
og hégóma Vesturlandabúa hversu
mjög þeir veltu fyrir sér útliti sínu.
Nú er öldin önnur. Tvítug dóttir
Tao, Chen Yingli, lýkur senn
tækninámi og heldur út á vinnu-
markaðinn, markað þar sem al-
gengt er að menn velti mikið fyrir
sér útliti fólks og ímynd. Í Kína nú-
tímans – þar sem hagvöxtur fer
vaxandi og millistéttin stækkar
ört, sem aftur hefur í för með sér
að æ fleiri spá mikið og spekúlera í
tískuvörum og öðru þess háttar –
gerist æ algengara að konur fari
til lýtalækna.
„Samfélagið er mun opnara en
það var og útlit manns skiptir æ
meira máli,“ segir Tao sem starfar
sem öryggisvörður. Eiginmaður
hennar vinnur í verksmiðju og
saman hafa þau tekjur upp á um
175 þúsund ísl. krónur á ári. Þau
hafa ákveðið að eyða átta þúsund
krónum svo dóttir þeirra, Chen,
geti undirgengist augnaðgerðina
fyrrnefndu hjá lýtalækni í
Shanghai.
„Við teljum að þessi aðgerð sé
góð fjárfesting fyrir dóttur okkar.
Ef þú lítur vel út þá færðu betri
meðferð,“ segir Tao.
Nú er hægt að undirgangast
meðferðina – sem felst í því að
nokkur spor eru saumuð í augnlok
kvenna – á um tíu þúsund stöðum í
Kína, að því er fram kemur í op-
inberum tölum. Tala lýtalækna-
stöðva í Peking einni og sér hefur
hoppað úr 57 um mitt síðasta ár í
meira en 100 í dag. Flestar aðgerð-
irnar eru framkvæmdar á Lýta-
læknasjúkrahúsinu í Peking,
stærstu stofnun sinnar tegundar í
Kína, en þar
framkvæma
læknar dag-
lega um fimm-
tíu lýtaaðgerð-
ir. Þetta eru
um það bil tvö-
falt fleiri að-
gerðir en fyrir
þremur árum
og þrisvar sinnum fleiri aðgerðir
en voru framkvæmdar árið 1999,
að sögn Chens Huanran, læknis við
spítalann. Andlitslyftingar, fitusog
og augnaðgerðir; allt eru þetta al-
gengar aðgerðir í dag.
Fyrir fjörutíu árum, þegar lýta-
lækningadeildin við sjúkrahúsið
var tekin í notkun, einbeittu menn
sér að því að laga útlit fólks sem
lent hafði í bruna eða í slysum,
hermanna sem barist höfðu í Kór-
eustríðinu eða fólks sem fæddist
með útlitsgalla. Þannig var það í
gegnum alla menningarbyltinguna,
það þótti smáborgaraháttur í Kína
að hugsa mikið um útlitið. Núna
eru sjúkrastofur spítalanna not-
aðar til að koma silíkonígræðslum,
innfluttum frá Bandaríkjunum,
fyrir í brjóstum kvenna sem hafa
ráð á því að eyða 175 þúsund ísl.
krónum í að-
gerðina.
„Vestræn
menning nýtur
viðurkenningar
hjá ungu fólki í
dag,“ segir Cao
Yilin, yfirmaður
lýtalæknadeild-
ar stórs spítala
í Shanghai. „Það lítur á brjóst sem
tákn fyrir kvenleika, brjóstalaus
kona er ekki álitin kona að fullu og
öllu leyti.“
Og eiginlega má segja að
brjóstaígræðslur séu orðnar stöðu-
tákn, sönnun þess að viðkomandi
hafi efni á að veita sér ýmsan mun-
að í lífinu. „Í dag fordæmir enginn
þetta sem kapítalisma,“ segir Cao.
„Það er þannig í Kína í dag að sá
sem á peninga er talinn hafa
ástæðu til að vera stoltur.“
Kínverskur sósíalismi
í andlitslyftingu
The Washington Post/Peter S. Goodman
Chen Yingli, ásamt móður sinni, Tao Fenfang, nýkomin úr augnaðgerð á
lýtalækningaspítalanum í Shanghai.
’Við teljum að þessiaðgerð sé góð fjárfest-
ing fyrir dóttur okkar.
Ef þú lítur vel út þá
færðu betri meðferð.‘
Shanghai. The Washington Post.
Vestræn útlits-
dýrkun hefur
skotið rótum
TÍU blökkumenn í Bandaríkjunum,
afkomendur þræla frá Afríku, ætla
að höfða skaðabótamál á hendur
breska tryggingafélaginu Lloyd’s og
tveimur bandarískum fyrirtækjum
fyrir að hafa hagnast á þrælasölunni.
Afkomendur þrælanna hafa ráðið
þekktan lögfræðing í Bandaríkjun-
um, Edward Fagan, til að höfða
skaðabótamálið. Fagan knúði sviss-
neska banka til að greiða gyðingum
skaðabætur að andvirði 90 milljarða
króna vegna fjármuna sem nasistar
stálu af fórnarlömbum sínum.
Fagan segir að þrælahaldið valdi
afkomendum þrælanna enn þjáning-
um. Þeir hafa lagt fram niðurstöður
DNA-rannsókna sem þeir segja
sanna að þeir séu afkomendur þræla
er fluttir voru með skipum frá Afríku
til Bandaríkjanna. Einn þeirra
kveðst hafa undir höndum skjal sem
sýni að skipið, sem flutti forfeður
hans, hafi verið tryggt hjá Lloyd’s.
Auk tryggingafélagsins ætla af-
komendur þrælanna að höfða mál
gegn bandaríska fyrirtækinu Fleet-
Boston Financial Corp., sem sakað
er um að hafa hagnast á þrælaversl-
uninni, og tóbaksfyrirtækinu RJ
Reynolds, sem þeir segja að hafi
keypt þræla til að vinna á tóbaks-
ekrum. Þeir krefjast a.m.k. tveggja
milljarða dollara í skaðabætur.
$
.
'
!!"!#$%"&
'(!)
*"+* $!
+ ,!
*
,"!
, ,
+,
,
= +&
,"! ! /
01
&0,( 0
C ! 10,
C% 0 !(,
(0
,0 (
%
D0 , -3&E(
-,
( 00=
0<
-3&!&
C 3,
(-3
F& ,
$ (
4
-
*
GG
0,0<
0,
0)
D 0 -(
,-6
0! ,: ;
0! ,
,
4( ,
, +,
D( ! 1
+
"@9
"@9B
"@
"@A@
"@8
"@8
"@8>
"@@@
<& ''3 #-&!23
HI !1 (5'5)(,
J / )0 &,<' ! ,! % '
K' % (1 # 0#
4 ', ? / +) 2&
# !6#) ? / 6&
)/# 0-? /
)( &'&!! !
"5="B56 "@56 ">56
40 '6?0 0-
'&!! )( &' .' +&' .
@5!">5 '!!+
3 '6' +&
&--# ">56$!!+
L/! #& +3 =
'6.">560'
? / ,%0'#
0.!! * ! #
'!!+
,"!
1,1,' .' +&!$0 !& %0-
!2 0M!.!! )& 5
K' 899- ,, ) ? # - ,
! #,I! I-#!'& 5
1 2& &- '< '2 & *
# & #&10#)0
!"""#
"$
%$
!
&%!
!"" '
!
()*+,-. Afkomendur
þræla höfða mál
gegn fyrirtækjum
New York. AFP.
FRÁFARANDI forstjóra Hita-
veitu Middelfart á Fjóni og fyrr-
verandi stjórnarformanni þess
fyrirtækis hefur verið stefnt fyrir
rétt vegna meintrar misnotkunar
á fjármunum þess, en það er í eigu
sveitarfélagsins. Snýst kæran
fyrst og fremst um Íslandsferð
mannanna tveggja, Knuds Warn-
ecke og Troels Jacobsen, og eig-
inkvenna þeirra, sem kvað hafa
kostað 91.000 danskar krónur,
andvirði rúmlega einnar milljónar
ísl. kr. Var greint frá þessu í dag-
blaðinu Fyens Stiftstidende.
Útgjöldin vegna ferðarinnar
munu hafa verið greidd til baka
eftir að þau komust í hámæli, en
það breytir engu um brotið, sem
nú hefur verið kært. Það var
óbreyttur viðskiptavinur hitaveit-
unnar sem kom málarekstri gegn
stjórnendunum tveimur af stað er
hann kvartaði opinberlega yfir því
hve þeir eyddu miklu í innkaup á
áfengi fyrir risnufé hitaveitunnar.
Stefnt vegna Íslandsferðar
STARFSFÓLK skandinavíska flug-
félagsins SAS, sem í síðustu viku
sættist á launalækkun og afnám
fjölmargra fríðinda og lagði þannig
sitt af mörkum til að forða félaginu
frá gjaldþroti, lét í gær í ljós megna
óánægju með að forstjóri félagsins,
Jörgen Lindegaard, skyldi hafa
fengið 25% launahækkun á síðasta
ári.
Áður en SAS komst að samkomu-
lagi við starfsfólkið 24. mars sl. stað-
hæfði Lindegaard að starfsmenn
ættu einskis úrkosti, ef þeir vildu
ekki að félagið færi á hausinn. Þeir
yrðu að sætta sig við lækkun launa
og minni fríðindi. Þannig sam-
þykktu til dæmis danskar flugfreyj-
ur hjá félaginu að laun þeirra lækk-
uðu að meðaltali um 12% og
vinnuskylda þeirra ykist um 30%, og
flugmenn gengust inn á sex pró-
senta launalækkun, frystingu kaup-
aukagreiðslna og lægri risnu.
Bent var á, þegar samkomulagið
náðist, að Lindegaard og aðrir
stjórnarmenn hefðu gengið á undan
með góðu fordæmi og lækkað eigin
laun um tíu prósent frá og með síð-
ustu áramótum. En sænska dag-
blaðið Dagens Nyheter upplýsti aft-
ur á móti í gær, að á síðasta ári hefði
Lindegaard fengið 10,4 milljónir
sænskra króna í laun, eða sem svar-
ar 98,8 milljónum íslenskra króna,
sem væri 25% meira en hann fékk
árið þar á undan.
„SAS sagði að forstjórinn hefði
lækkað í launum um tíu prósent og
gengið þannig á undan með góðu
fordæmi. En nú kemur í ljós, að
hann sýndi ekki gott fordæmi vegna
þess að í rauninni hækkaði hann í
launum. Þetta er óréttlætanlegt og
ekki stórmannlegt,“ sagði Nicolas
Fischer, fulltrúi dönsku flugliða-
samtakanna, í samtali við Dagens
Nyheter.
Stjórn flugfélagsins fullyrðir aft-
ur á móti að ekkert sé við málið að
athuga. „Yfirstjórn okkar ákvað að
lækka laun sín um 10% frá og með
1. janúar 2004. Hafi Lindegaard
fengið launahækkun, og ég get ekki
staðfest að svo hafi verið, þá var það
2003, og forsendurnar voru
ákveðnar 2002. Þetta á sér langa
sögu,“ sagði talsmaður SAS, Bertil
Ternert, við fréttastofuna AFP.
Stéttarfélag sænskra hlaðmanna,
sem er eina stéttarfélagið sem ekki
hefur enn samið við SAS, sagði að
það væri svívirðilegt ef laun stjórn-
enda félagsins hækkuðu á sama
tíma og þeir krefðust lækkunar
launa almennra starfsmanna. „Ef
þetta er satt þá er það algert
hneyksli,“ sagði talsmaður stéttar-
félagsins, Per Winberg, við AFP.
Starfsfólk SAS ósátt við
launahækkun yfirmanns
Reuters
Stokkhólmi. AFP.