Morgunblaðið - 01.04.2004, Page 22
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Opið bréf til mömmu | Fréttirnar til
fólksins er heiti á fréttabréfi sem Hólma-
víkurhreppur heldur úti. Þar birtast hefð-
bundnar fréttir af at-
burðum úr lífi fólksins
í sveitarfélaginu, svo
sem af öskudeginum,
og tilkynningar og
upplýsingar frá sveit-
arfélaginu. Einnig
annað efni, til dæmis
bréf frá lesendum.
Í marsblaðinu var
til dæmis birt grein
sem bar yfirskriftina Opið bréf til mömmu.
Þar nýtir Lilla þennan vettvang til að senda
móður sinni kveðju, sagðist ekki hafa haft
peninga fyrir frímerki í vasanum þegar hún
hugðist senda bréfið. Með þessu segist Lilla
einnig geta sparað bensínið við að heim-
sækja móður sína til að spyrja hana auglitis
til auglitis um heilsuna og hvað annað væri
að frétta.
Ætli ekki megi vænta svars frá móð-
urinni í aprílhefti fréttabréfsins?
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Fleiri fuglar á ferð | Farfuglarnir eru
farnir að bunkast inn til Eyja, eins og komist
er að orði í frétt á vef Náttúrustofu Suður-
lands í gær. Í fyrradag mátti sjá um 30 lóur
innan um búpeninginn suður á eyju. Tjald-
urinn er svo áberandi meðfram öllum Of-
anleitishamri. Í gærmorgun og fyrradag
voru stórir gæsahópar í oddaflugi yfir
Heimaey en ekki stoppuðu gæsirnar þar, ef
frá eru taldar grágæsirnar tvær sem iðulega
sjást á túnunum við Brekkuhús á vorin.
Afi pissar | Í kvöld verður frumflutt á
Hallormsstað leikritið Afi pissar, eða fé-
lagsráðgjafi kemst í feitt í beinni, eftir Jón
Guðmundsson, tónlistarkennara og aðstoð-
arskólastjóra.
Leikstjórn er í höndum Jóns Gunnars
Axelssonar og Sigurlaugar Gunnarsdóttur
og leikarar eru nemendur Grunnskólans í
Hallormsstað.
Uppfærslan er hluti af árshátíð Nem-
endafélagsins Bjarka í Hallormsstað-
arskóla og sjá nemendur sjöunda til tí-
unda bekkjar um undirbúning. Sýningin
hefst kl. 20 í íþróttahúsinu og verður að
venju boðið upp á veitingar að sýningu
lokinni.
Efnt verður til af-mælishátíðar 10.til 17. júlí í sumar í
tilefni af því að þrjátíu ár
eru liðin frá því Skeið-
arárbrú var tekin í notkun
og Hringvegurinn opnaðist
fyrir umferð almennings.
Á samfélagsvef Horna-
fjarðar kemur fram að af-
mælis brúarinnar verður
minnst með ýmsu móti.
Haft er eftir Ragnari
Frank Kristjánssyni, þjóð-
garðsverði í Skaftafelli, að
safnað verði heimildum um
framkvæmdina, meðal
annars myndum. Þá verð-
ur vatnadrekinn, sem not-
aður var við árnar á sand-
inum frá 1961 til 1973 og í
tengslum við brúar-
framkvæmdirnar, tekinn í
notkun á ný, þó á annan
hátt sé, en búið er að
hressa upp á útlitið. Þá
verður vígð göngubrú og
gamalt hesthús sem stend-
ur rétt ofan við Bölta-
bæinn.
AFMÆLI
Blönduós | Félagsmið-
stöðin Skjólið, sem er sam-
komustaður ungs fólks á
Blönduósi, fékk fyrir
skömmu að gjöf vandað
heimabíó. Gjöfin var keypt
fyrir tekjur af trúbadora-
kvöldi sem Veisluþjón-
ustan ehf. og KH hf. á
Blönduósi stóðu fyrir á
Hótel Blöndu eigi alls fyrir
löngu. Krakkarnir í 8., 9.
og 10. bekk í Grunnskól-
anum á Blönduósi veittu
þessari gjöf viðtöku og
þökkuðu fyrir sig, sum að
þjóðlegum sið og kysstu
hina örlátu gefendur.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Heimabíó í Skjólið
Í hvalasafninu á Húsa-vík er gamall flens-arahnífur sem Hall-
dór Blöndal notaði þegar
hann vann í Hvalstöðinni.
Á nýafstöðnu hagyrð-
ingakvöldi á Húsavík orti
Halldór:
Ef hvalbáturinn öslar inn
og Ásbjörn nær í hnífinn minn
vita skaltu vinurinn
að vaknar í mér flensarinn.
Í framhaldi af því orti Jón
Kristjánsson:
Steypireyðinn skoða skal,
skemmtilegur er hann,
en ef að Halldór hittir á hval
heimtar’ann að skera’ ann.
Hagyrðingar hreyktu sér
af þingeyskum uppruna
sínum og Jón var einn
þeirra:
Varla skjátlast okkur oft.
Okkur hlotnaðist vit og kraftur,
víst er að þingeyskt þrýstiloft
þýtur um salinn fram og aftur.
Halldór Blöndal rifjaði
upp í þessu samhengi að
reðursafnið væri á Húsa-
vík:
Þá sem fyllir þingeyskt loft
þeir munu aldrei láta sig;
í Reðursafni sjást þeir oft
svona til að máta sig.
Þingeyskt loft
pebl@mbl.is
TALSVERT líf er enn í gömlu
höfninni í Reykjavík. Þar landa
togarar og smærri fiskiskip.
Ekki er vitað hvernig aflabrögð-
in voru hjá Ágústi RE 61 en ljóst
er að skipverjanum lá margt á
hjarta þegar bátnum var siglt
inn til hafnar í Reykjavík í fyrra-
dag. Ágúst er einn af gömlu góðu
trébátunum sem enn eru í notk-
un enda orðinn liðlega þrítugur.
Hann er gerður út á net.
Auk fiskiskipanna er líf í
kringum ferðaþjónustuna í
gömlu höfninni og siglingafólk.
Þar geymir fólk skútur og
skemmtibáta. Öllu stærri skip,
skemmtiferðaskip í ferðum um
norðurhöf, hafa þar viðkomu. Þá
eru mikil umsvif við hvalaskoð-
unarbátana en vertíð þeirra
hefst senn. Þeir sigla út á miðin
með ferðamenn á þriggja tíma
fresti frá morgni til kvölds.
Morgunblaðið/RAX
Líf í gömlu höfninni
Sjómennska
ÁKVEÐIÐ hefur verið að ráða Ragnheiði
Thorlacius lögfræðing í stöðu fram-
kvæmdastjóra Fjölskyldumiðstöðvar
Sveitarfélagsins Árborgar. Ráðning henn-
ar var samþykkt með sjö atkvæðum á fundi
bæjarstjórnar á dögunum en tveir fulltrú-
ar sátu hjá.
Ragnheiður tekur til starfa eftir um það
bil mánuð. Hún starfar sem aðstoðarmaður
dómara við Héraðsdóm Suðurlands.
Tuttugu umsóknir bárust um starfið
þegar það var auglýst. Auk Ragnheiðar
voru umsækjendur þessir: Anna Fríða
Bjarnadóttir, Brynja Magnúsdóttir, Eyj-
ólfur Magnússon Scheving, Gísli Þór Ein-
arsson, Guðbjörg Arnardóttir, Guðrún
Thorsteinsson, Halldór Hlöðversson,
Helga Guðrún Loftsdóttir, Hilmar Þór
Hafsteinsson, Ingi Geir Hreinsson, Krist-
inn Stefán Einarsson, Kristinn Reimars-
son, Kristjana Sigmundsdóttir, María
Kristjánsdóttir, Ómar R. Banine, Sigríður
Ólafsdóttir, Sigríður Hrefna Jónsdóttir,
Sigurður Jónsson og Solveig Björk Svein-
björnsdóttir.
Ráðin fram-
kvæmdastjóri
Fjölskyldu-
miðstöðvar
NÝ sunnlensk sjónvarpsstöð hefur útsend-
ingar í kvöld klukkan 20. Er það Skjásýn
sem verður á dreifikerfi Sunnu.
Skjásýn tók til starfa í marsmánuði með
því að taka á leigu eina sjónvarpsrás hjá
Sunnlenskri fjölmiðlun ehf. Ætlunin er að
vera með afþreyingar- og skjáauglýsinga-
sjónvarp á Suðurlandi. Það mun nást með
örbylgjuloftnetum víða um Suðurland og
uppsveitir, að því er fram kemur á vef
Skjásýnar.
Að því er fram kemur á vef sjónvarps-
stöðvarinnar, skjasyn.tk, standa feðgarnir
Júlíus Sveinsson framkvæmdastjóri og
Sverrir Júlíusson dagskrár- og auglýsinga-
stjóri að fyrirtækinu.
Útsendingar stöðvarinnar eru allan sól-
arhringinn en dagskrárefni sent út öll
laugardags- og sunnudagskvöld frá klukk-
an 20.30, þar á meðal fréttir, kvikmyndir
og beinar útsendingar.
Skjásýn með
sjónvarp fyrir
Sunnlendinga
♦♦♦