Morgunblaðið - 01.04.2004, Qupperneq 25
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 25
Hafnarfjörður | Lokahnykkurinn í
stóru upplestrarhátíðinni, sem hefur
nú verið haldin um land allt, fór fram
á þriðjudag þegar krakkar úr 7.
bekkjum úr Hafnarfirði og af Álfta-
nesi kepptu í upplestri í Hafnarborg.
Segja má að vagga keppninnar sé
í Hafnarfirði, en þar fór fram fyrsta
hátíðin af þessu tagi fyrir átta árum.
Nú er keppnin haldin á 32 stöðum
um allt land og krakkarnir hafa mik-
inn áhuga á því að taka þátt í henni,
segir Ingibjörg Einarsdóttir, skrif-
stofustjóri skólaskrifstofu Hafn-
bókarhluti, eitt af sex ljóðum og að
lokum lesið eitt ljóð að eigin vali.
Las ljóð eftir föður sinn
Í fyrsta sæti var Helga Braga-
dóttir, Engidalsskóla, sem las brot
úr bókinni Hjalti kemur heim, ljóð
eftir Þuríði Guðmundsdóttur og ljóð
eftir föður sinn, sr. Braga J. Ingi-
bergsson. Í öðru sæti var Marteinn
Hörður Kristínarson, Hvaleyr-
arskóla, og í því þriðja var Ragn-
heiður Vernharðsdóttir í Álftanes-
skóla.
arfjarðar, sem stjórnaði hátíðinni.
„Þetta gekk alveg frábærlega vel.
Þetta var stórglæsileg hátíð með 240
manns í salnum og mjög fínum les-
urum sem verða sífellt betri og
betri,“ segir Ingibjörg. „Það hefur
aukist metnaðurinn í skólunum,
þekkingin á verkefninu, menntun
kennara til að kenna þennan þátt
móðurmálsins hefur aukist og við
höldum stöðugt fleiri og fleiri
fræðslufundi og námskeið.“
Upplestrarhátíðirnar fylgja
ákveðnu mynstri þar sem lesinn er
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lásu upp: Alls tóku 16 krakkar úr 7. bekk grunnskóla í Hafnarfirði og Álftanesi þátt í upplestrarhátíðinni.
Síðasta stóra upplestrarkeppnin
Grafarvogur | Fjallað var um um-
sókn um leyfi til veitinga léttvíns og
bjórs á veitingahúsinu Sportbitan-
um í Egilshöll í Grafarvogi á fundi
borgarráðs á þriðjudag, og var mik-
ill ágreiningur um umsóknina. Málið
verður rætt í borgarstjórn í dag.
Alls greiddu fjórir fulltrúar leyf-
isveitingunni atkvæði sitt en þrír
voru henni andvígir, og gengu at-
kvæðin þvert á flokkalínur. Leyfið
var veitt til eins árs með ákvæði um
að það yrði endurskoðað ef sótt yrði
um á ný. Rætt var um málið í tæpa
klukkustund, og að lokum samþykkt
tillaga um að leyfisveiting yrði heim-
iluð. Einnig var samþykkt tillaga
borgarstjóra um að fela íþrótta- og
tómstundaráði og félagsmálaráði að
meta hvort endurskoða þyrfti máls-
meðferðarreglur borgarráðs með
tilliti til áfengisveitinga í og við
íþróttamannvirki.
Tveir af fulltrúum R-listans, þau
Árni Þór Sigurðsson og Björk Vil-
helmsdóttir, greiddu atkvæði gegn
leyfisveitingunni, og það gerði einn-
ig Guðrún Ebba Ólafsdóttir Sjálf-
stæðisflokki. Fylgjandi leyfisveit-
ingunni voru Alfreð Þorsteinsson og
Stefán Jón Hafstein, fulltrúar
R-listans, og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson og Hanna Birna Krist-
jánsdóttir Sjálfstæðisflokki.
Íþróttir og áfengi ekki saman
Ólafur F. Magnússon, áheyrnar-
fulltrúi F-lista í borgarráði, segist
algerlega andvígur leyfisveitingunni
og að áfengisneysla fari ekki saman
við íþrótta- og æskulýðsstarfsemi.
Ólafur segir menn aðallega hafa ver-
ið ósammála um hvort ákvarðanir
um leyfisveitingar sem þessar væru
samkvæmar sjálfum sér. Bent var á
að sala áfengis væri leyfð í golfskál-
um og í nýju laugunum í Reykjavík.
„Jafnvel þó það sé hægt að finna
einhverskonar hliðstæðu þá vil ég
ekki slaka á með þessa hluti. Mér
finnst þróunin frekar vera sú að það
fari vaxandi að það sé ölvun í
tengslum við íþróttaleiki. Þess
vegna ber frekar að sporna við því,
og það að leyfa áfengisveitingar í
Egilshöll, þar sem klárlega fer fram
heilmikið æskulýðs- og íþróttastarf,
finnst mér einfaldlega ekki í lagi,“
segir Ólafur.
Tillögu borgarstjóra, um að metið
verði hvort endurskoða þurfi reglur
borgarinnar, segir Ólafur jákvæða.
Hann segir nauðsynlegt að hafa
samræmi í leyfisveitingum. Hann
vill þó ekki ganga svo langt á þessu
stigi málsins að leggja til að golf-
skálum verði bannað að veita áfengi.
Sú ákvörðun verði að bíða þar til
niðurstöður úr endurskoðun regln-
anna verða komnar. Hann leggur
áherslu á að við endurskoðun reglna
verði gerður skýr greinarmunur á
æskulýðs- og íþróttastarfi íþrótta-
félaga annars vegar og áfengisveit-
ingum hins vegar.
Greinir á um vínveitingar
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
n
m
1
1
8
2
5
/ sia
.is
f. 10–12
Frönsk súkkulaðikaka
150 g fínn strásykur (og
sykur til að strá í formið)
275 g súkkulaði með 70%
kakóinnihaldi, brytjað
175 g ósaltað smjör,
skorið í bita
10 ml vanilludropar
5 egg, rauður og hvítur
aðskildar
40 g hveiti, sigtað
ögn af salti
flórsykur til skreytingar
þeyttur rjómi
Forhitið ofninn í 170°C (gas 3).
Smyrjið vel klemmuform
(24 sm)og stráið að innan
með sykri, bæði botn og hliðar.
Bræðið súkkulaðið, smjörið og
sykurinn (geymið 3 msk. /
45 ml)í potti við lágan hita.
Takið pottinn af, hrærið vanillu-
dropunum saman við og látið blönduna kólna lítillega.
Þeytið eggjarauðurnar saman við súkkulaðiblönduna,
þeytið hverja rauðu vel. Hrærið hveitið síðan saman við.
Þeytið eggjahvíturnar hægt með rafmagnsþeytara í skál
þar til þær eru froðukenndar. Aukið hraðann, bætið við
saltinu og þeytið þar til mjúkir toppar myndast. Stráið
yfir afganginum af sykrinum og stífþeytið. Þeytið einn
þriðja af hvítunum saman við súkkulaðiblönduna;
blandið síðan afganginum gætilega saman við. Hellið
blöndunni varlega í formið og bankið létt í það til að
hleypa út loftbólum.
Bakið kökuna í u.þ.b. 35-45 mín. þar til hún er vel hefuð
og rís aftur ef létt er snert við yfirborðinu með fingur-
gómi. Hvolfið kökunni á grind, fjarlægið hliðar formsins
og látið hana kólna alveg. Fjarlægið botn formsins.
Sáldrið flórsykri yfir kökuna og setjið hana á disk.
Berið fram með þeyttum rjóma.
Virðulegt og fallegt steinhús í hjarta borgarinnar. Húsið var allt endurnýjað fyrir nokkrum árum á
vandaðan og smekklegan hátt og skiptist í þrjár hæðir og kjallara, samtals um 500 fm. 1. og 2. hæð
eru 140 fm hvor, 3. hæðin 100 fm og kjallari er 140 fm. Þrjár íbúðir eru í húsinu og sérinngangur í
hverja þeirra. Rósettur og gifslistar í loftum. Svalir út af efstu hæð, fallegt útsýni yfir borgina. Nýjar
lagnir og nýtt hitakerfi. 6 sér bílastæði fylgja eigninni. Bílskúrsréttur.
Húsið hentar t.d. fyrir stórfjölskyldu eða margs konar fyrirtæki, t.d. tannlækna, lögfræðinga
eða gistiheimili.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Ingólfsstræti 12
Eign sem býður upp á ýmsa
möguleika.
Nánari upplýsingar veittar
á skrifstofu.