Morgunblaðið - 01.04.2004, Síða 30
AKUREYRI
30 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vorum að fá í sölu sérlega glæsilegt og
vel staðsett nýlegt 310 fm einbýli með
séríbúð í kjallara. Húsið er í Skjólunum og
skiptist þannig: aðalhæðin er með stof-
um, eldhúsi, þvottahúsi, gestawc og
innb. bílskúr. Efri hæðin er með sjón-
varpsholi, 4 góðum herbergjum, baðher-
bergi og suðursvölum. Kjallarinn er í dag
séríbúð með sérinngangi, en einnig inn-
angengt. Stofa, eldhús, herbergi og bað
ásamt miklum geymslum. Fallegur garður
með sólpalli og skjólveggjum. Vandað hús á eftirsóttum stað.
Uppl. gefur Ólafur B. Blöndal. Sími 6-900-811. Verð 50 millj.
Frostaskjól - Einbýli
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200 533 4200
eða 892 0667
GRENSÁSVEGUR 50
Til leigu vandað skrifstofuhúsnæði í lyftu-
húsi, alls 760 fm á tveimur hæðum. Gott
aðgengi fyrir fatlaða. Næg bílastæði
Dalbrekku 28 • Kópavogi • S. 564 1451 • modurast.is
Frábærar, fjörugar og fjölbreyttar
ævintýraferðir fyrir útskriftarhópa
og alla sem vilja upplifa ævintýr
Upplýsingar í síma 562-7700
www.travel-2.is
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
Engihjalli 25 - 4ra herb.
Þorbjörn Pálsson sölufulltrúi Sími 520 9555
898 1233 thorbjorn@remax.is RE/MAX
Heimilisfang: Engihjalli 25
Stærð: 97 fm
Byggingarár: 1981
Áhvílandi: 7,8 milljónir
Verð: 13,8 milljónir
Stórglæsileg, vel viðhaldin og mik-
ið endurnýjuð, 97 fm á þriðju hæð.
Tvennar svalir í góðu húsi með frá-
bæru útsýni og húsverði. Sér-
geymsla í kjallara. Þvottahús á
hæðinni. Frystigeymsla. Stutt í alla
þjónustu, grunnskóla, leikskóla,
gæsluvelli. Þessi fer fljótlega.
LEIKKLÚBBURINN Saga frum-
sýnir í kvöld leikritið „Hamslaus“,
en þar er um að ræða verk sem fé-
lagar í klúbbnum sömdu sjálfir í
samvinnu við leikstjórann, Laufeyju
Brá Jónsdóttur.
Jóhanna Vala Höskuldsdóttir, sem
gerði garðinn frægan í Idol-
stjörnuleitinni á liðnum vetri, fer
með aðalhlutverkið í sýningunni,
leikur Kristínu Njálsdóttur, höf-
uðpersónu verksins.
Alls taka 8 leikarar þátt í sýning-
unni og taka þeir að sér að túlka alls
15 hlutverk með leik, söng og dansi.
Vala segir að Sögufélagar hafi unnið
við það hörðum höndum í rúmlega
hálft ár að semja handritið og koma
sýningunni upp ásamt leikstjóra sín-
um. Nú er komið að frumsýningu og
allt klárt. Verkið segir hún fjalla um
alvöru fólk með alvöru tilfinningar,
þar sem húmor, ástir og sorgir eru
við stjórnvölinn, að ekki sé minnst á
lostann sem oft sé fyrirferðarmikill
meðal mannfólksins.
„Þetta verk fjallar um stelpu,
Kristínu Njálsdóttur og sagan hefst í
raun áður en hún fæðist og svo er
henni fylgt eftir allt þar til yfir lýk-
ur, hún deyr,“ sagði Vala. Svo háttar
til í leiknum, að sölumenn sjá um að
útvega börnum foreldra og er þá að
sjálfsögðu allt kapp lagt á að þeir
séu sem bestir og flottastir. „Í raun-
inni selur þessi stúlka sálu sína til að
komast til bestu foreldra í heimi, en
líf hennar verður þrátt fyrir það
ekki bara endalaus hamingja,“ segir
Vala og bætir við að leikurinn fjalli
um sorglega þætti tilverunnar, en á
skemmtilegan hátt. „Það er mikið
um dans og það eru sagðir brand-
arar, við reynum að hafa létt yfir
þessu, þótt umfjöllunarefnið sé al-
varlegt.“
Hún segir það góða og gefandi
reynslu að hafa fylgt þessari per-
sónu, Kristínu í marga mánuði, „og
lána henni líkama minn og tilfinn-
ingar, svo hún geti lifnað við og sagt
áhorfendum ótrúlega sögu sína.“
Alls verða fimm sýningar á verk-
inu, frumsýningin í kvöld kl. 20,
föstudagskvöldið 2. apríl kl. 21 og
svo á sunnudag, þriðjudag og mið-
vikudag í næstu viku kl. 20. Sýnt er í
Ketilhúsinu við Kaupvangsstræti.
Leikklúbburinn Saga frumsýnir frumsamið verk
Hamslaus í Ketilhúsinu
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Sömdu sjálf: Félagar í Leikklúbbnum Sögu frumsýna í kvöld nýtt verk.
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Frumsýning: Alvöru fólk með alvöru tilfinningar í Ketilhúsinu.
LEIKFÉLAG Dalvíkur er 60 ára um
þessar mundir og sýnir af því tilefni
nýtt íslenskt leikrit, „Svarfdæla
sögu“, eftir Hjörleif Hjartarson og
Ingibjörgu Hjartardóttur. Leikritið
er byggt á samnefndri Íslend-
ingasögu og fjallar um ástir og mein-
leg örlög Klaufa berserks og Ingveld-
ar fagurkinnar. Þrettán leikarar taka
þátt í leiknum en auk þeirra Karlakór
Dalvíkur eins og hann leggur sig og
flytur hann tónlist sem stjórnandinn,
Guðmundur Óli Gunnarsson, hefur
samið sérstaklega af þessu tilefni.
Leikstjóri sýningarinnar er Ágústa
Skúladóttir. Leikurinn er settur upp
sem grímuleikur og hefur mikið verið
lagt upp úr hönnun leikmyndar, ljósa
og búninga. Ljósahönnuður er Pétur
Skarphéðinsson, Íris Ólöf Sigurjóns-
dóttir hannaði leikbúninga, um leik-
mynd sá Dagur Óskarsson og hljóð-
hönnun var í höndum Harðar
Valssonar. Sýnt er í Ungó á Dalvík.
Svarfdæla saga á
Dalvík
Ítalskt og rússneskt | Ítölsk og rúss-
nesk stemning verður allsráðandi
þegar strengjakvartett flytur tónlist
eftir ítalska óperutónskáldið Rossini
og Rússana Glier og Prokofiev í
Deiglunni á morgun, laugardaginn 3.
apríl kl. 16.
Þórir Jóhannsson leikur á kontra-
bassa, Hlíf Sigurjónsdóttir og Sig-
urlaug Eðvaldsdóttir á fiðlur og Örn-
ólfur Kristjánsson á selló.
Efnisskráin er fjölbreytt og
spannar tímabilið frá dögum Rossini
og fram á miðbik síðustu aldar.
Tónleikarnir eru samstarfsverk-
efni menningardeildar Akureyrar-
bæjar og Félags íslenskra tónlistar-
manna. Aðgöngumiðar verða seldir
við innganginn.