Morgunblaðið - 01.04.2004, Page 46
MINNINGAR
46 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
INNGANGUR
A
ndið léttar, því í dag
er alþjóðadagur
gabbsins. Ekki al-
þjóðadagur kvenna,
(hús)bænda eða
hjúa, hvað þá sannleikans. Nei,
dagurinn er helgaður ákveðinni
tegund af stríðni sem býr innra
með öllum, jafnt konum sem köll-
um, fátækum og ríkum, grönnum
og feitum, háum og lágum. Slag-
orðið er: Grípið tækifærið og
gabbið!
Hér verður rýnt í heimspeki,
siðfræði og sálfræði gabbsins og
tilraun gerð til að svara spurning-
unni: Hvert er gildi gabbsins í
samfélaginu?
MEGINMÁL
Í dag má draga á (asna)
eyrunum – án þess að verða að
þurfa að svara
fyrir það. Apr-
ílgabbið er sér-
stök tegund af
gríni og er í
raun ævagam-
all leikur; að
gabba náung-
ann til að fara erindisleysu. Það
krefst hugvits að semja trúverð-
uga fléttu.
Fíflið er valið og því talið trú
um að það eigi að gera eitthvað.
Dæmi: Sendli í fyrirtæki er af-
hentur miði frá efnalaug og sagt
að fara út í fatahreinsum og ná í
föt forstjórans og flýta sér með
þau til hans (eða hennar). Sendill-
inn hleypur af stað og fær leð-
urdress afhent, stígvél og svipu.
Sendillinn verður undrandi á
þessum þokkafulla búningi for-
stjórans, en tekst ekki að leggja
saman tvo og tvo og flýtir sér með
fötin á fund forstjórans og segir:
„Hér eru fötin sem þú baðst um“.
Forstjórinn starir á hann augna-
blik en áttar sig síðan á því að
sendillinn hefur verið látinn
hlaupa fyrsta apríl og skellir upp
úr. Fólk sem fylgdist með kemur
úr skúmaskotunum og skemmtir
sér óborganlega. Sendillinn blóð-
roðnar, fyllist skömm og reiði, og
er að því kominn að segja upp og
rjúka út – en tekst að yfirvinna þá
tilfinningu og hlær með.
Nákvæmlega þannig er eig-
inlegt aprílgabb: Að láta einhvern
hlaupa!
Tilfinningar fíflsins (April Fo-
oĺs Day) eru rannsóknarefni:
Þegar gabbið afhjúpast, blygðast
það sín og hætta er á að það
hlaupi í fýlu. Á þessu andartaki
kemur í ljós hvort hinn blekkti
stenst þrautina: Ef hann fer í
fýlu, þá fellur hann á prófinu, en
ef hann hlær með þá stenst hann
prófið.
Heimspeki aprílgabbsins er því
um að bera sigurorð af reiðinni og
að virða rétt annarra til láta mann
hlaupa erindisleysu þennan dag.
Raunin er að standa andspænis
öðrum sem fíflið, sem jafnvel allir
hafa tekið þátt í að blekkja. Fólk
veltist um af hlátri og dregur dár
– en í stað þess að rjúka út móðg-
að(ur) og skella dyrum: Að taka
bara fullan þátt í gleðinni!
Fyrsti apríl er í raun stór-
merkilegur dagur og á rætur að
rekja til þess að Evrópubúar fyrri
alda fundu vorgleðina koma í
kroppinn – og námu með anda
sínum að veturinn var á und-
anhaldi. Nýársdagur fyrri alda
var um vorjafndægur í lok mars
og var fyrsti apríl gjarnan ærsla-
dagur alþýðunnar (sjá fróðleik
um 1. apríl í Saga daganna eftir
Árna Björnsson).
Fólk hélt áfram að finna stríðn-
ina losna úr læðingi um þessi
mánaðamót, jafnvel þótt nýárs-
dagur hefði verið fluttur til 1. jan-
úar. Náttúran skiptir um ham
(árstíð) og fram sprettur löngun
til að stríða og sletta ærlega úr
klaufunum.
Siðfræði aprílgabbsins er í
þágu gleðinnar. Ekki má klekkja
á náunganum eða snúa á hann
með illt í huga. Velsæmismörk
gabbsins eru því skýr og greini-
leg: Fólk er ekki narrað eða
hlunnfarið – og gabbið er ekki ill-
kvittið, heldur góðlátlegt. Gabbið
getur verið snúið en einstaklingar
eru ekki dregnir á tálar, tældir
eða vélaðir. Fólk fær bara (rang-
ar) upplýsingar sem það hefur
möguleika á að efast um.
Sá sem hleypur fyrsta apríl
getur dregið lærdóma af gabbinu:
Að vera ekki of auðtrúa og muna
eftir að það er hollt að efast á
stundum. Einnig að leggja betur
stund á gleðina.
Sálfræði aprílgabbsins er að vel
heppnað gabb losar um
spennuna, þannig að vetrarham-
urinn sprettur af líkamanum og
hann engist um úr hlátri. Apr-
ílgabbið hefur af þessum sökum
staðist þyngstu þrautir aldanna,
myrkur, drunga og alvarleika.
Enginn ætti að taka sig svo alvar-
lega að hann hafni þessum merka
degi.
Aprílfíflið er öfundsvert, það
fann reiðina og skömmina renna
af sér og (vor)gleðina ná völdum í
líkama og sál. Það gekk fram af
hengifluginu og í fallinu var hróp-
að: „Fyrsti apríl.“ Og eina leiðin
til að bjargast er að hlæja.
NIÐURSTAÐA
Í snöggri samantekt má segja
að kostir aprílgabbsins séu
þrennskonar:
1. Sálfræði: Aprílgabbið er vor
sálarinnar. Það er bilið á milli
vetrar og sumars. Vorið losnar
úr læðingi við kröftugt gabb.
2. Heimspeki: Fíflið þarf að
standast hrekkinn, dyggðin er
að velja gleðina í stað fýlunnar.
3. Siðfræði: Aprílgabbið er hrekk-
ur sem er reistur á gæsku en
ekki illgirni.
Stök villa varpar ljósi á allt hitt
sem er rétt. Það var sennilega
villa sem knúði manneskjuna
fyrst til að pæla í hvað gæti verið
satt. Fyrsti apríl er í sama dúr,
hann er gabbdagurinn sem er vís-
bending um að allir hinir dagarnir
séu ekki grín. Gildi gabbsins fyrir
samfélagið er: Að vera dagur
gleðinnar.
UMRÆÐA
Fyrsti apríl er tímamót í daga-
talinu; ný byrjun, nýtt upphaf.
Hann er dagurinn til að slíta af
sér veturinn og til að taka fram
strigaskóna. Dagurinn til að stilla
hugann á næstu afrek – eftir að
hafa hlaupið fyrsta apríl öðrum til
óblandinnar ánægju – og eftir að
hafa gabbað aðra.
Heimspeki
gabbsins
Í tilefni af fyrsta apríl verður rýnt í
heimspeki, siðfræði og sálfræði gabbsins
og tilraun gerð til að svara rannsókn-
arspurningunni: „Hvert er gildi gabbs-
ins fyrir samfélagið?“
VIÐHORF
Eftir Gunnar
Hersvein
guhe@mbl.is
✝ Kristín Björns-dóttir fæddist í
Saurbæ í Kolbeinsdal
29. desember 1909.
Hún lést í Hróars-
keldu í Danmörku
28. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Ragnheiður
Sigríður Þorláks-
dóttir, f. 5.6. 1874, d.
15.2. 1957, og Björn
Hafliðason, f. 13.9.
1869, d. 24.8. 1937.
Þau bjuggu í Saurbæ
í Kolbeinsdal í
Skagafirði, og síðar í
Kolkuósi. Systkini Kristínar eru
Jóhannes, f. 1901, lést barn að
aldri, og Haflína, f. 1905, fyrrum
húsfreyja í Kolkuósi, ekkja eftir
Sigurmon Hartmannsson.
Hinn 20. nóvember 1943 giftist
Kristín Georg Oluf Lüders, f. 21.3.
1909, d. 16.6. 1965. Dætur þeirra
eru tvær: 1) Jóhanna Ragnheiður
skrifstofumaður, f. 21.8. 1944, bú-
sett á Friðriksbergi í Kaupmanna-
höfn. Maður hennar Henning
Smith. Börn þeirra Leif, f. 1963,
Erling, f. 1965, og Lillian, f. 1967.
2) Rut danskennari, f. 16.4. 1947,
rekur brúðarkjólaleigu, búsett í
Hróarskeldu. Maður hennar Sör-
en Thomsen. Rut var áður gift Jan
Schmidt, börn þeirra eru John
Georg, f. 1972, og Sussí, f. 1975.
Langömmubörnin eru fimm.
Kristín ólst upp hjá foreldrum
sínum í Saurbæ í Kolbeinsdal.
Ung stundaði hún
nám við unglinga-
skólann á Hólum í
Hjaltadal og síðar
við Húsmæðraskól-
ann á Blönduósi. Í
Danmörku dvaldi
hún við nám og störf
í um þrjú ár, lærði
fatasaum og vann að
saumum fyrir versl-
unarhúsið Rosen-
berg í Kaupmanna-
höfn. Eftir
heimkomuna réðst
hún til starfa á heim-
ili Kristjáns Sig-
geirssonar.
Er Kristín gifti sig var hún
heimavinnandi framan af en hóf
síðan störf við niðursuðuverk-
smiðjuna ORA í Kópavogi við
stofnun hennar, og starfaði þar
um árabil. Kristín og Georg voru
landnemar í Kópavogi þar sem
þau byggðu sér lítið hús á Kárs-
nesbraut 37 árið 1944 en reistu
síðan stærra hús er varð Kársnes-
braut 101.
Árið 1975 flytur Kristín alfarin
til Danmerkur, þar bjó hún lengst
af ein í eigin íbúð í skjóli og með
hjálp dætra sinna, uns hún fór
haustið 2002 á hjúkrunarheimili í
Hróarskeldu.
Bálför Kristínar fór fram 6.
febrúar. Minningarathöfn verður
í Kópavogskirkju í dag og hefst
hún klukkan 13.30.
Kristín móðursystir mín lést á
hjúkrunarheimili í Borchgade í
Hróarskeldu hinn 28. janúar sl. eftir
stutta legu, 94 ára að aldri. Þar dvaldi
hún frá í október 2002. Hún var borin
og barnfædd í Skagafirði og ólst upp
með foreldrum sínum og systur í
Saurbæ í Kolbeinsdal. Á þeim árum
fyrir daga vélvæðingar er öll vinna
var líkamlegt erfiði og fólk stóð
blautt í fæturna við heyvinnu, mó-
tekju og skepnurag voru tækifæri fá
til náms eða ferðalaga. Mun hugur
hennar hafa staðið til þess að mennt-
ast. Á Hólum í Hjaltadal kynntist hún
frænku sinni Karlottu Jóhannesdótt-
ur og saman fóru þær til Danmerkur
til náms og starfa. Frá Hólum átti
hún góðar minningar, kynntist þar
mörgu ungu fólki er horfði björtum
augum til framtíðar. Á heimili lækn-
ishjónanna Braga Ólafssonar og Sig-
ríðar Jónsdóttur á Hofsósi starfaði
hún í um þrjú ár. Þar vann hún jöfn-
um höndum á heimilinu og aðstoðaði
lækninn við læknisverk á stofunni.
Eftir heimkomuna frá Danmörku
réðst hún til starfa hjá Kristjáni Sig-
geirssyni, er rak verkstæði og hús-
gagnaverslun við Laugaveg.
Kynntist hún þar mannsefni sínu,
dönskum manni, Georg Oluf Lüders,
er starfaði þar. Hann var húsgagna-
smiður. Georg var glæsimenni, hár
og svipfríður, fallega eygður og sam-
an voru þau glæsilegt par svo eftir
var tekið. Þeim hjónum voru andleg
mál hugleikin og leituðu margir til
þeirra um fyrirbænir. Hjá þeim var
gott að dvelja. Í litla húsinu á Kárs-
nesbraut voru fermetrarnir fáir en
hjartarými þess meira.
Þau voru glaðsinna samhent hjón
er áunnu sér traust og vináttu
margra. Dýravinir voru þau einlægir
og eru mér minnisstæðir hundarnir
þeirra, hvað þeir voru vel vandir og
siðaðir.
Eina vísu læt ég hér fylgja, en
frænka mín sagði mér að þessum lín-
um hefði verið að sér hvíslað.
Angraðu aldrei þá aumustu mús
ei heldur fuglinn sem hvergi á sér hús.
Ef sýnið þið dýrunum vinsemd og vörn
verðið þið lángefin hamingjubörn.
Ávallt var henni Skagafjörðurinn
kær og heimaslóðirnar í Kolbeinsdal
og Hjaltadal. Á hverju ári kom hún
norður og dvaldi hjá systur sinni í
Kolkuósi. Fékk þá gjarnan lánaðan
hest og heimsótti sína fyrrum ná-
granna á Skriðulandi í Kolbeinsdal,
þau Kristínu og Kolbein. Eru til fá-
gætar myndir frá þessum ferðalög-
um í dalinn. Afar kært var með þeim
systrum og héldu þær ávallt góðu
sambandi með bréfaskriftum. Við
systurnar minnumst góðra gjafa er
hún hafði meðferðis í norðurferðum,
leikföng margskonar og sælgæti, er
fáséð var á þeim tíma, sumt keypt í
Kaupmannahöfn, bollastell handmál-
að er í minni eigu alveg óskemmt.
Þetta voru sparileikföng. Á Kársnes-
braut 101 höfðu þau ráðist í að byggja
einbýlishús, þótti mér unglingnum
það höll líkast. Ekki auðnaðist þeim
að eiga þar heimili lengi því Georg
veiktist áður en smíði þess var að
fullu lokið og lést í júní 1965. Á Kárs-
nesinu átti hún marga vini og kunn-
ingja. Samstarfsfólk í niðursuðu
ORA og nágrannar héldu vináttu-
sambandi með bréfaskriftum og sím-
tölum eftir að hún flutti utan. Komið
er að kveðjustund. Við systurnar
kveðjum kæra frænku hinstu kveðju
og þökkum af alhug allar samveru-
stundir á langri leið. Minning um
mæta konu lifir, megi ljós friðar og
kærleika lýsa henni á Drottins braut.
Margrét Sigurmonsdóttir.
Óðum fækkar rosknu Íslendingun-
um í Danmörku, sem við hjónin
þekktum og heimsóttum á árum okk-
ar í Jónshúsi. Nú var það Stína
frænka í Hróarskeldu, burtkölluð á
nítugasta og fimmta aldursári. Bréfin
hennar með fagurri rithöndinni hætt
að berast og Roskilde orðin óper-
sónulegur sögustaður dómkirkjunn-
ar og víkingaskipanna, en ekki kærr-
ar frænku.
Foreldrar Kristínar, Björn Haf-
liðason og Ragnheiður Þorláksdóttir,
bjuggu fyrst á Fjalli í Kolbeinsdal, en
fluttu að Saurbæ, þar sem dætur
þeirra, Haflína Marín og Kristín, ól-
ust upp. Björn var annar tveggja
sona Hafliða Jónssonar og ráðskonu
hans, Marínar Björnsdóttur frá
Brekkukoti í Hofsstaðasókn. Marín
lést 1879 og fór þá drengurinn 10 ára
að aldri til Kristínar móðursystur
sinnar og manns hennar, Gísla Sig-
urðssonar, að Neðra-Ási í Hjaltadal.
Mun hann hafa viljað sýna fóstru
sinni þakklætisvott með því að láta
yngri dóttur þeirra hjóna bera Krist-
ínarnafnið, en þær þá alnöfnur. For-
eldrar Ragnheiðar Þorláksdóttur
voru Þorlákur Einarsson, bóndi á
Vatnsleysu, og seinni kona hans Rut
Guðmundsdóttir. Ragnheiður var tal-
in fríð sýnum og greind rausnarhús-
freyja, trygglynd og kunni flestum
konum betur að njóta góðhesta og fá
þá til að leggja fram kosti sína, eins
og Kolbeinn Kristinsson á Skriðu-
landi kemst að orði.
Gísli og Kristín í Neðra-Ási voru
foreldrar móðurafa míns sr. Sigur-
björns Ástvaldar og voru því Kristín
og mamma þremenningar. Kristín
var í vist og dvöl í Ási í Vesturbænum
í Reykjavík á ungum aldri og naut
þess ævinlega að segja frá þeim
skemmtilega tíma. Marín amma
hennar var talin frábær mannkosta-
kona, eins og segir í Skagfirskum
æviskrám, og á sú lýsing einnig vel
við um sonardótturina. Hún var
tryggur vinur, skrifaðist á við frænd-
ur og kunningja hér heima fram á síð-
asta ár, gestrisin og hreinskilin og
bar með sér hressilegan skagfirskan
blæ. Alltaf var jafn ánægjulegt að
heimsækja hana, hvort sem var á
Kársnesbrautina í hinum unga Kópa-
vogskaupstað eða í framandlegu um-
hverfinu danska, en til Danmerkur
fór hún á eftir dætrum sínum nokkr-
um árum eftir að Georg maður henn-
ar lést. Georg Lüders var danskur,
ættaður öðrum þræði frá Austurríki,
suðrænn yfirlitum, glaðlyndur og
vinsæll.
Kristín átti indælt heimili í Hróars-
keldu, þar sem ég vitjaði hennar oft,
ekki síst á leið til sonarfjölskyldunnar
í Bringstrup; stundum með pabba
eins og í gamla daga í dýralækninga-
ferðum, stundum jafnvel með kjark-
lítil ungmenni í skólaferð. Hún var
nýflutt á glæsilegt dvalarheimili í
miðbæ Hróarskeldu, þegar ég heim-
sótti hana síðast í fyrrasumar. Hún
sat þar reist á sófanum sínum með
bunka af umslögum, sem hún klippti
frímerkin af til ágóða fyrir hjálpar-
starf í Afríku, enn að hjálpa og hugsa
um aðra, gera gagn. Fylgdist með at-
burðum á Íslandi, bæði í sorg og
gleði.
Dætur Kristínar og tengdasynir
sátu hjá henni, er hún lést að morgni
miðvikudagsins 28. janúar sl. Fékk
hún hægt andlát og friðsælt, enda
trúði hún alla tíð staðfastlega á fram-
haldslífið. Lýsir það vel yfirvegun
hennar og einlægri trú, að hún gat
sannað þeim, sem efast, að látinn lifir.
Hugur minn er bundinn henni í
þakklæti fyrir samverustundirnar
heima og erlendis og allar fallega
skrifuðu kveðjurnar. Guð blessi
minningar dætranna tveggja og fjöl-
skyldna þeirra.
Guðrún L. Ásgeirsdóttir.
KRISTÍN BJÖRNS-
DÓTTIR LÜDERS
MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds-
laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er
minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist)
eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að til-
greina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima-
síma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi
Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgun-
blaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrif-
uðum greinum.
Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar
og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um
foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi,
mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir hádegi á
föstudegi.
Birting afmælis- og
minningargreina