Morgunblaðið - 01.04.2004, Page 48

Morgunblaðið - 01.04.2004, Page 48
MINNINGAR 48 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is ✝ Jóhanna Guðríð-ur Sigurbergs- dóttir fæddist í Reykjavík 19. sept- ember 1933. Hún lést á LSH í Foss- vogi 23. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Sigur- bergur Dagfinnsson, stýrimaður og bóndi í Haukatungu, f. á Eyjólfsstöðum við Suðurgötu í Reykja- vík 27. júní 1899, d. í Haukatungu 24. október 1954, og Valgerður Pálsdóttir húsfreyja, f. í Haukatungu 8. júlí 1901, d. í Reykjavík 25. febrúar 1959. Bróðir Jóhönnu Guðríðar var Páll, f. 10. apríl 1937, d. 10. maí 2002, og uppeldissystir Guðríður Ásta, f. 29. apríl 1930. Hinn 19. nóvember 1960 gift- ist Jóhanna Guðríður Halldóri Helgasyni frá Gröf í Eyja- og Miklaholtshreppi, f. 1. ágúst 1933. Börn Jóhönnu Guðríðar og Halldórs eru: 1) Valgarð Sigur- bergur, f. 26. maí 1961 og 2) Unnur, f. 20. nóvember 1965, gift Jökli Höjgaard Sigurjóns- syni, f. 20. maí 1964, og eru börn þeirra a) Halldór Páll, f. 1997, og Ólafur Sigurjón, f. 2001. Fyrir átti Halldór dótturina Kristjönu, f. 11. ágúst 1956, gift Svani Aðalsteins- syni, f. 1. júlí 1954, og eru börn þeirra a) Stefán Jóhann, f. 1978, í sambúð með Írisi Bjarnadóttur, f. 1978 og eru börn þeirra Brynjar Steinn, f. 1999, og Kristjana Freydís, f. 2001, og b) Agnes, f. 1983, í sambúð með Birgi Tryggvasyni, f. 1982. Jóhanna Guðríður fluttist ung með foreldrum sínum að Hauka- tungu í Kolbeinsstaðahreppi og bjó þar uns hún giftist og fluttist til Reykjavíkur aftur 1961. Jó- hanna Guðríður sinnti fjölskyld- unni og menntaði sig seinna á lífsleiðinni til sjúkraliðastarfa, síðar lærði hún svæðanudd og starfaði við það hin síðari ár, að mestu á krabbameinsdeild LSH við Hringbraut. Útför Jóhönnu Guðríðar fór fram í kyrrþey. Engin orð fá lýst hugrenningum mínum á þeirri stundu sem nú er runnin upp. Það að kveðja móðir snertir hverja taug, hverja hugsun og hverja sýn. Minningabrotin hrannast upp, hvort sem er í leik eða í gleði. Fjölskyldan, samheldni og trúnaður gagnvart sjálfum sér og öðrum voru henni mikilvæg gildi. Gleðin yfir vel unnu, kærleiksríku starfi veitti henni einnig ómetanlega lífsfyllingu og var í raun hennar önn- ur lífsuppspretta. Hún var sterk kona sem lét sig það varða sem í kringum hana var, hún hafði mótaða lífssýn og setti hag annarra ofar sín- um eigin. Í mínum huga verður vandfyllt það skarð sem nú hefur myndast í stórum fjölskylduhópi en sú dýr- mæta minning sem hún skilur eftir um meðlíðan og hluttekningu með samborgurunum, óbilandi kjark og sterka trú er það göfuga leiðarljós sem aldrei verður unnið á. Orð, hvorki mörg né mikil, munu nokkru sinni lýsa móður minni en til- finningarnar og gildin sitja eftir. Merkisberinn er fallinn frá en leið- arljósið lifir. Í þraut til krafta þinna átt þú með kæti að finna, það stærsta tak þarf sterkast bak, en stórt er best – að vinna. Ef tæpt er fyrir fótinn og fátt um vina hótin þá sjá þinn mátt. Í sorg þú átt þig sjálfan, það er bótin. Því fjær sem heims er hyllin er hjarta Guðs þér nær. Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á veg- um mínum. (Sálm. 119.) Valgarð S. Halldórsson. Elsku mamma mín, nú ert þú far- in frá okkur. Síðustu dagar hafa liðið eins og í draumi og ég bíð eftir að vakna og heyra röddina þína. Nú hefur mig svo ótal oft vantað mömmuna með svörin, mömmuna sem ráðlagði, mömmuna sem vissi hvað átti að gera næst, mömmuna sem hélt utan um hópinn. Þú hugsaðir alltaf fyrst um okkar velferð og síðan um sjálfa þig, og varst alltaf til staðar. Manstu þegar Halli Palli minn fæddist, þú varst á vakt en skaust til okkar Jökuls í hvert sinn sem þú áttir lausa stund og varst okkur stoð og stytta í þess- ari nýju lífsreynslu okkar. Við viss- um að þig langaði til að vera við- stödd fæðinguna, hafðir verið viðstödd þegar Stefán Jóhann og Agnes fæddust, og þig langaði til að vera viðstödd í þetta skipti líka en þú baðst ekki um það – vildir ekki vera fyrir. Þegar leið að fæðingu og þú ætlaðir að drífa þig báðum við þig að fara ekki, og þú fékkst tár í augun yfir að fá að vera með – en veistu mamma, við þurftum svo á þér að halda og eins og ég sagði eftir á, það var frábært að hafa þig. Alla nóttina sast þú svo með ömmudrenginn þinn í fanginu, nuddaðir á honum tásurn- ar og sást um að við öll þrjú svæfum vel og fengjum góða hvíld – en þú hafðir ekki áhyggjur af þér sem varst búin að vera að vinna allan daginn – nei, við gengum fyrir, og þetta var yndislegur sólarhringur sem við fjögur áttum saman á fæð- ingardeildinni, og við höfum oft sagt að þarna hafir þú nuddað og strokið í Halla Palla þá ró sem hann býr yfir enn þann dag í dag. Þegar Óli Sigurjón fæddist kom ekkert annað til greina en að þú yrð- ir með okkur aftur. Og þú brást ekki kallinu frekar en fyrri daginn, varst komin við fyrstu hringingu og fylgd- ir okkur til enda. Manstu mamma, þegar ljósmóðir rétti Jökli skæri til að klippa á naflastrenginn og Jökull benti henni á þig og sagði nei, nú klippir hún, ég klippti síðast. Þú hélst þig til hlés og vildir ekki taka þetta stóra hlutverk af pabbanum en lést undan að lokum og klipptir með tárin í augunum. Á eftir fékk Óli Sig- urjón líka sínar strokur og nudd og þú lagðir þarna grunninn að hans framtíð. Þú hafðir ákveðnar skoðanir á hlutunum, kenndir okkur að segja okkar skoðun, vera hreinskilin, heið- arleg og sjálfum okkur trú. Þú gafst okkur gott veganesti út í lífið, vega- nesti sem ég á eftir að kenna strák- unum mínum og þannig munu lífs- skoðanir þínar lifa í mínu hjarta og í hjarta ömmustrákanna þinna. Þú kenndir okkur nauðsyn þess að standa saman, sýna samheldni og láta okkur hlutina varða, vera í sam- bandi þó við hefðum ekkert erindi og síðast en ekki síst að halda utan um hvert annað. Það sýndi sig vel nú í vikunni að þessu fræi hefur þú nú þegar sáð í hjarta Halla Palla, þegar hann kom til mín og sagði: „Mamma, við söknum öll ömmu svo mikið, en við skulum bara vera saman og halda utan um hvert annað því þá verður allt betra.“ Þú varst alltaf skrefinu á undan okkur, varst búin að hugsa næsta skref og byrjuð að velta fyrir þér hvað tæki við. Þegar við fengum að vita að MND-sjúkdómurinn væri farinn að hrjá þig, og komum heim á eftir, fórst þú inn í herbergi, sóttir þér bók, réttir okkur hana og sagðir að þarna gætum við lesið allt um sjúkdóminn, þú varst búin að sjúk- dómsgreina þig áður en þú fórst í rannsóknirnar. Þegar leið að enda- lokunum óskaðir þú eftir fjölskyldu- fundi með lækninum og hjúkrunar- fræðingnum, þú vildir ekki vera viðstödd því þú vildir tryggja að gætum spurt um það sem okkur lá á hjarta. Þú sást um aðbúa okkur und- ir þessa stund eins og þín var von og vísa. Þú varst búin að búa þig undir stundina og þú varst búin að búa okkur undir stundina. Það er nota- legt að lesa núna í bókinni þinni þar sem þú skrifaðir að þú elskaðir okk- ur öll svo mikið, og veistu mamma, við elskum þig líka svo óskaplega mikið og munum gera um ókomna framtíð. Mig langar til að koma á framfæri þakklæti til alls starfsfólksins á B2 á LSH í Fossvogi, mamma var svo ánægð með alla þá hjúkrun og um- hyggju sem þið veittuð henni. Einn- ig langar mig að þakka öllum aðilum í MND-teymi LSH, og Guðnýju sjúkraþjálfara fyrir frábæra aðstoð, án stuðnings ykkar hefði síðastliðið ár verið mun erfiðara en raun varð á. Elsku mamma mín, það er komið að leiðarlokum í bili. Ég veit að nú eruð þið Palli saman á ný, bróðir þinn sem þú saknaðir svo mikið og þú misstir svo mikið þegar hann fór. Ég veit að þið vakið yfir okkur frændsystkinunum, styðjið okkur og styrkið í okkar verkefnum, hér eftir sem hingað til. Sól þín hvarf burt en þú ert kyrr, í þinni vernd ég er sem fyrr. Þú sérð mig er ég sofna nú, við sæng mína þá vakir þú. (KVI.) Takk fyrir allt það sem þú varst mér, gerðir fyrir mig og kenndir mér. Við hittumst síðar, þín Unnur. Elsku amma okkar, þú sem kenndir okkur svo margt og leið- beindir okkur í svo mörgu. Það er það skemmtilegasta í heimi að fá að vera hjá ykkur afa, fá að kúra í hol- unni þinni, sitja og spjalla við þig, skoða steinana, mála sama, fara saman í sunnudagaskólann og svo ótal, ótal margt fleira. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og allt sem þú kenndir okkur. Við kveðjum þig elsku amma með bæninni sem þú kenndir okkur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Elsku amma okkar – við skulum passa hann afa, því nú vitum við að þú átt alltaf eftir að passa okkur, vera í hjartanu okkar og hlusta á okkur þegar við tölum við þig. Elsku Amma okkar, við söknum þín öll. Þú verður alltaf besta amma í heimi. Þínir ömmudrengir Halldór Páll og Ólafur Sigurjón. Elsku besta amma. Nú ertu farin en þú munt ávallt vera í hjarta mínu. Sjúkdómurinn sem þú fékkst var ekki beint sjúk- dómur fyrir þig, því þú lagðir mikið upp úr samskiptum á milli fólks og hringdir einungis til þess eins að heyra í manni orðið þann daginn. Það voru líka ófáar stundirnar sem við sátum saman við borðstofuborðið heima í Vatnsholti og spjölluðum um lífið og tilveruna þó að umræðuefnið hafi aðallega verið um okkar kær- komna starf sem sjúkraliði, hjúkrun, næringargildi og svoleiðis. Enda var ekki hægt að finna betri stað til að búa á meðan á skólanum stóð því þú passaðir mikið upp á að ég borðaði næringarríkan mat og að ég gæfi mér góðan tíma til þess að læra. Svona smáatriði hugsaðir þú alltraf um. Elsku besta amma, þú sem varst svo mjúk og góð, hvílir nú í friði. Þín ömmustelpa Agnes. Kveðja frá samstarfsfólki Þú hefur verið gjöful, góð, grætt þá sjúku af meinum, það er gott að safna í sjóð sæmdarverkum einum. Því er björt og blómum stráð brautin minninganna og nafn þitt hreinum heiðri skráð í hjörtum þúsundanna. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Með hlýju og hjartans þökk kveðj- um við Jóhönnu okkar og þökkum henni samfylgdina, samstarfið og vináttuna. Fyrir hönd starfsfólks lyflækn- ingasviðs II Landspítala háskóla- sjúkrahúss sendum við ástvinum Jó- hönnu innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Kristín og Nanna. Elsku frænka mín, enn á ný þarf litla fjölskyldan frá Haukatungu að takast á við sorgina og nú eftirsjá eftir yndislegri frænku. Að sitja hér og reyna að pára niður nokkrar línur til þín er erfitt því minningarnar streyma fram en erfitt reynist að koma þeim á blað. Þessar minningar mun ég geyma í huga mér um ókomna tíð og rifja upp þegar ég minnist þín. Eitt af því sem ekki gleymist er biðin langa þegar von var á ykkur öllum í sveitina og ég nýfarin að lesa. Ekki átti frænka að missa af þeim gleðitíðindum og vor- uð þið varla komin inn þegar við lok- uðum okkur inn í litla herberginu inni á gangi, sem þá var herbergi okkar systra, og ég las fyrir þig í Gagn og gamni og mikið varstu ánægð og stolt af mér, en það er eitt- hvað sem þú hefur alltaf verið dug- leg við, það er að styrkja mann og styðja með fallegum orðum. Reykja- víkurferðirnar voru æði spennandi og vorum við yfirleitt búnar að pakka viku fyrir brottför, slík var eftirvæntingin að koma til ykkar því við vissum að dekrað yrði við okkur í hvívetna og alltaf var endað á búða- ferð þar sem keyptar voru gjafir fyr- ir mömmu og pabba. Ég man þegar ég var lítil stelpa þá fannst mér ég eiga svo fína og fallega frænku og sérlega mjúka og hlýja, snyrtibudd- an með alla sína dulúð, rúllurnar, há- hæluðu skórnir og klútarnir þínir. En skór hafa einmitt ávallt verið eitt af áhugamálum okkar kvennanna í ættinni og var ég afar glöð um dag- inn þegar ég var erlendis og fékk þau skilaboð frá þér að það væri allt- of lítið að kaupa bara tvenn pör, ég yrði að kaupa tvenn í viðbót. Og auð- vitað var það fyrsta sem ég gerði þegar heim kom að fara til þín að sýna þér eitt parið sem ég hafði keypt og voru dálítið Jóhönnulegir. Ekki eru allir jafnheppnir og við systkinin að eiga tvenna foreldra en ég held að við höfum öll systkinin lit- ið á ykkur sem okkar aðra foreldra og er það án efa samheldni ykkar pabba að þakka. Ef einhver uppá- koma var í fjölskyldunni voruð þið komin með það sama til að hjálpa til og njóta samvista með okkur sama hvort var í gleði eða sorg. Að þið Halli hafið tekið okkur systurnar til ykkar í heil fjögur ár meðan við luk- um framhaldsskólanámi fæst seint fullþakkað og varð til að böndin urðu enn sterkari og Vatnsholtið okkar annað heimili. Þangað hefur alltaf verið gott að kíkja inn og mér finnst ég alltaf vera komin heim þegar ég kem til ykkar. Það sýnir kannski samheldni ykk- ar pabba að þú skulir nú tæpum tveimur árum eftir andlát hans vera komin til hans og ömmu og afa og allra hinna sem kvatt hafa okkur undanfarin ár. Og veit ég að vel hef- ur verið tekið á móti þér og eflaust eruð þið pabbi farin að tuktast að- eins eins og ykkur var einum lagið. Ég veit ekki hvað það var en þegar ég kom í eitt skiptið til þín um dag- inn sýndirðu mér litla sögu í bók sem sagði meira en þúsund orð og fékk mig til að hugsa betur um það hvert lífið stefndi. Ég held þú hafir verið eins og svo oft áður að búa mig undir það sem koma skyldi og styrkja mig gagnvart þeim aðstæðum sem við stöndum nú frammi fyrir. Mér finnst erfitt að þurfa að sætta mig við að þið pabbi séuð bæði farin svona ung og með stuttu millibili en ég þakka fyrir að eiga svona yndislega og samheldna fjölskyldu sem er ykkur pabba, mömmu og Halla að þakka. Fjölskyldan er það dýrmætasta sem maður á og því hafið þið alið okkur upp í og ég veit að þessi gildi munum við systkinin halda í heiðri. Mig langar að þakka þér að leið- arlokum, elsku frænka, fyrir allt sem þú varst mér, kenndir mér og gerðir fyrir mig. Hafðu kæra þökk fyrir allt og allt. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku Halli, Didda, Valgarð, Unna og fjölskyldur, megi góður Guð styrkja okkur öll í þessum mikla missi en eftir lifir minning um elsku- lega frænku. Halldóra Ágústa Pálsdóttir. Margar gamlar og góðar, nýjar og ljúfar minningar renna í gegnum huga minn á þessum tímamótum Jó- hanna frænka, systir pabba, sterka stoðin í ættinni og mamma og amma nr. 2 er fallin frá og margs er að minnast og þakka fyrir. Æskuminningarnar þegar von var á þér í heimsókn í sveitina eru æði margar, alltaf varð að taka til í kommóðunni og sýna svo frænku stolt árangur erfiðisins, alltaf varst þú jafn hissa og glöð. Svo voru haldnar stórveislur í búinu með alls kyns drullukökum fagurlega skreyttum með sóleyjum, fíflum og öðru nærtæku og þú komst í heim- sókn í kaffi og smakkaðir á öllum kræsingunum og spjallaðir. Svo var snyrtibuddan þín spennandi, þú JÓHANNA GUÐ- RÍÐUR SIGUR- BERGSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.