Morgunblaðið - 01.04.2004, Page 49

Morgunblaðið - 01.04.2004, Page 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 49 varst ekki búin að stoppa lengi þeg- ar ég var komin með varalit og naglalakk, rosalega flott. Á vissu árabili var fastur liður hjá okkur systrum að fara 17. júní ferð til Reykjavíkur og þá var dekrað við okkur á alla kanta, og auðvitað varð að taka þátt í öllum hátíðarhöldun- um fara í skrúðgöngu og sjá forset- ann, þetta var ómissandi og þú sást til þess að við misstum ekki af þessu. Alltaf var mikill samgangur á milli heimila ykkar systkinanna og er enn og höfum við öll notið góðs af því fyrr og síðar. Ég átti mitt annað heimili hjá ykkur Halla á framhalds- skólaárunum og hef nú eiginlega lit- ið á það sem svolítið mitt eftir það ásamt hinum tveimur þ.e. í sveitinni hjá mömmu og svo mitt eigið. Þetta var góður tími á öruggum stað, þú varst í nuddnáminu á þessum tíma og það var dásamlegt að fá að vera tilraunadýr þegar þú æfðir handtök- in. Þú hefur alltaf verið til taks og alltaf verið tilbúin að hjálpa í einu og öllu og gott hefur verið að leita til þín. Það er ómetanlegt hversu vel þú reyndist mér t.d. þegar ég gekk með Kötlu Rún og að sjálfsögðu eftir að hún kom í heiminn, þegar fyrstu merki um að hún væri að leggja af stað í heiminn, þá varst þú mætt ásamt hálfri fjölskyldunni til að hjálpa til ráðleggja og hugsa um mig, síðan varstu að sjálfsögðu frammi á gangi og beiðst eftir að fá fréttir af fæðingunni. Þú varst nefni- lega alltaf fyrst á svæðið ef eitthvað bjátaði á eða ef eitthvað gleðilegt gerðist til að taka þátt í sorgum og gleði og leggja þitt af mörkum til að hjálpa og reyna að bæta líða viðkom- andi. Alveg einstök kona. Margar gleðistundir höfum við mæðgur átt í Vatnsholtinu í öllum matarboðunum og skemmtilegheit- unum en það var fastur liður að kalla hópinn saman helstu um hverja helgi við nutum góðs af því. Elsku frænka, kærar þakkir fyrir allt, þú varst hjá mér frá mínum fyrstu stundum og við vorum saman á þínum síðustu. Guð geymi þig, þín Valgerður Solveig. Elsku Jóhanna frænka. Engin orð fá því lýst hve vænt okkur systrunum þykir um þig. Þú hugsaðir svo vel um alla í fjölskyld- unni, þú varst kletturinn sem vissir allt og var alltaf hægt að leita til þín sama hvað var. Þú hefur ætíð verið eins og okkar þriðja amma, þótti okkur vænt um það. Það var topp- urinn á Reykjavíkurferðum þegar við vorum yngri að stoppa hjá Jó- hönnu og Halla og fá kaffi og kökur, og ekki má gleyma servéttunum sem við söfnuðum, þú áttir nóg af þeim. Jóhanna Lóa er svo stolt af því að vera nafna þín, þið áttuð tvær saman nafnið Jóhanna Sigurbergsdóttir. Drífa á þér mikið að þakka þegar hún var veik. Þú komst til hennar á hverjum degi, nuddaðir tásurnar og sagðir henni að vera dugleg að hreyfa sig og borða svo lungun yrðu heil á ný. Þegar mamma og pabbi voru í útlöndum sastu hjá henni og þá vissu þau að hún væri í góðum höndum. Það eru svo margar góðar minn- ingar sem við eigum um þig elsku Jóhanna og erum við mjög þakklátar fyrir að hafa fengið að sjá þig í síð- asta skiptið nokkrum dögum fyrir andlát þitt. Þú ljómaðir öll og skrif- aðir til okkar að við værum að láta drauma þína rætast með menntun okkar. Jóhanna í hárgreiðslunni og Drífa í Húsó. Þegar Drífa sagðist ætla að reyna að fara í Hússtjórn- arskólann í haust klappaðir þú og brostir breitt. Því miður gat Jó- hanna Lóa aldrei klippt þig eins og þú hafðir beðið hana um. Þú varst mikil hetja í augum okk- ar gegnum veikindin þín og við vit- um að núna líður þér miklu betur og mun hann afi okkar taka á móti þér á betri stað. Elsku frænka, hvíl þú í friði. Elsku Halli, Unnur, Valgarð, Didda og fjölskyldur, hugur okkar er hjá ykkur. Ég horfi á ljóssins loga sem lýsir í hugskot mitt og sé á björtum boga brosandi andlit þitt. (Snjólaug Guðmundsdóttir.) Drífa Mjöll og Jóhanna Lóa Sigurbergsdætur. Elsku Jóhanna frænka, nú ert þú dáin og farin til afa, nú getið þið passað hvort annað. Takk fyrir allt sem við gerðum saman, manstu einu sinni þegar þú varst að passa mig og ég vildi bara leika mér og nennti ekkert að fara að sofa, þá bara slökktir þú öll ljósin í íbúðinni svo ég varð að fara að sofa því ég sá ekkert. Sniðug. Svo áttir þú alltaf íspinna í frystinum sem við fengum alltaf eft- ir matinn. Svo var eitt sniðugt hjá þér, þú vildir ekki að mamma skammaði mig heima hjá þér, hún gat bara gert það heima hjá okkur en samt helst ekkert, ha, ha, þetta var sko gott. Ég er svolítil skotta og ekki alltaf stillt en þér fannst það allt í lagi. Takk fyrir hvað þú varst alltaf góð við mig. Knús og kreist. Þín Katla Rún. Kæra frænka mín, að leiðarlokum þínum í þessu lífi langar mig að senda þér þakkir og hlýju fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og mína, sem þú í raun gerðir fyrir alla sem í kringum þig voru. Ef eitthvað var að, einhver sár eða sjúkur í fjöl- skyldunni varst þú ávallt nærri og stuðningur þinn og ró var sem manns dýrasta djásn. Elsku frænka, ég veit að þú vilt ekkert lof eða dýrð en ef einhver á það skilið frá mér þá ert að þú. Alla tíð gegnum súrt og sætt varst þú ávallt skammt undan og veittir okk- ur ómetanlega aðstoð. Hvort sem var í gleði og fögnuði eða í veikind- um og erfiðleikum, aðstoð sem aldrei fæst fullþökkuð. Að lokum segi ég, kæra fjölskylda, öll höfum við misst mikið á ekki löngum tíma en eftir lifir minning um yndislega konu sem gaf mikið og veitti mikið af sér til okkar allra sem mun aldrei gleymast. Elsku Halli og frændsystkini, missir okkar allra er stór en stönd- um sterk eftir, því mín trú er að frænka mín hefði óskað þess helst. Takk fyrir mig og mína. Sigurbergur. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum.) Þinn frændi Sumarliði Páll Sigurbergsson. Jóhanna frænka hefur verið hluti af fjölskyldu okkar systra og tilveru frá fyrstu tíð. Hún var systkinabarn á við móður okkar og mikil vinkona, en báðar áttu þær uppruna að rekja að Haukatungu í Kolbeinsstaða- hreppi og víðar þar um sveit. Jóhanna var ákaflega frændrækin og hlý manneskja og hafði einstak- lega áreynslulausa og þægilega nær- veru. Hún var alla tíð til staðar þeg- ar á þurfti að halda og veitti liðsinni hvort heldur var á gleðistundum eða þegar erfiðleikar steðjuðu að. Hún bjó yfir ríkum hæfileikum og vilja til að hjálpa öðrum og fórum við systur og fjölskyldur okkar ekki varhluta af þeim gæðum. Jóhanna naut virðing- ar og trausts samferðarmanna sinna og mest þeirra er þekktu hana best. Hún var nærgætin og hógvær kona en þó ákveðin um þau málefni sem vöktu áhuga hennar og hún vildi leggja lið. Hún sparaði aldrei neina fyrirhöfn ef verða mætti öðrum til liðsinnis eða líknar og kunni þá list að sýna aðgát í nærveru sálar, en umhyggja hennar var einstök. Börn fundu strax þá nærgætni sem bjó í fasi Jóhönnu frænku, því enginn var settur hjá eða gleymdur þar sem hún var annars vegar. Reglusemi og myndarskapur hvers konar hefur ráðið ríkjum í Vatnsholtinu og þar hefur verið gott að koma og njóta hvort heldur hefur verið veraldlegra eða andlegra veit- inga hjá þessari samhentu fjöl- skyldu, en þau hjón, Jóhanna og Halldór, hafa oftast verið nefnd í sama orðinu þegar um er rætt. Fölskvalaus og einlæg glaðværð hefur ríkt í þessu húsi, þar sem vilji og þörf til að gefa og hjálpa hefur verið ríkari en að þiggja og aldrei spurt um endurgjald. Árlega hafa þau Jóhanna og Halldór ásamt börn- um, tengdasyni og barnabörnum haldið aðventuboð í desember fyrir stórfjölskylduna þar sem veisluborð hafa svignað undan fágætum kræs- ingum og þannig lagt sitt af mörkum til að viðhalda fjölskylduböndum og frændsemi. Á hverju ári færði Jóhanna hverri okkar eina rós á afmælisdegi látinn- ar móður okkar og það brást ekki heldur nú, aðeins örfáum dögum fyr- ir andlátið og er lýsandi dæmi um tryggð hennar. Jóhanna mun í engu hafa kviðið því sem framundan var. Hún var trúuð kona og jákvæð og hélt jafn- vægi sínu, glaðværð og bjartsýni fram í andlátið og lét engan bilbug á sér finna. Við systur og fjölskyldur okkar kveðjum Jóhönnu frænku með mikl- um söknuði og vottum Halldóri og fjölskyldu dýpstu samúð. Minningin um frænku okkar og vinkonu mun lifa með okkur um ókomin ár. Guðríður, Helga Björg og Ásta Vala. Jóhanna frænka er dáin. Nú er hún farin í sitt hinsta ferða- lag, ferðalag sem við reyndar öll munum fara í fyrir þann merkilega hlut að hafa fengið að fæðast og lifa. Jóhanna var frá Haukatungu og þar ólst hún upp, þar sem hún fékk góðan grunn fyrir lífsgöngu síma. Þroskuð og fullmótuð kona fluttist Jóhanna frá Haukatungu til Reykja- víkur með Halldóri sínum, þar sem þau stofnuðu sitt fyrirmyndar heim- ili. Þangað var ávallt gott að koma jafnt á gleðistundum sem á erfiðum tímum, fyrir það er erfitt að þakka því að henni þótti það allt svo sjálf- sagt. Jóhanna var gædd miklum mann- kostum, kona sem hafði mikla og góða nærveru. Hún var fæddur stjórnandi og fór vel með þá hæfileika sína, hún fékk þá guðsgjöf að vinna við það starf sem hún var fædd í, það er að segja að hjúkra og hjálpa öðrum, og ekki síst við dauðans dyr og eru margir í ævilangri þakkarskuld fyrir hennar starf. Veikindi Jóhönnu komu með mikl- um krafti sem hún tók með miklu æðruleysi og reisn, enda vissi hún líklega best sjálf í hvað stefndi, banalega hennar tók fljótt af, enda líklegast er sú stund öllum stundum sælust þegar maður sofnar þreyttur. Megi Guð styrkja ykkur öll og styðja í þessari miklu sorg. Einar O. Pálsson og fjölskylda. Jóhönnu kynntist ég fyrir nokkr- um árum þegar hún starfaði sem sjúkraliði og nuddari á krabba- meinsdeild Landspítala við Hring- braut. Í starfi sínu umvafði hún nær- stadda með ást og hlýju. Slík var manngæska Jóhönnu við okkar fyrstu kynni og ætíð síðan. Þegar frá leið hittumst við á hennar fallega heimili þar sem rætt var um litróf lífsins og tilverunnar. Samskiptin færðu mér áframhaldandi styrk til andans og efnisins. Jóhanna var sönn vinkona. Himnafaðirnn verður ekki svikinn af liðstyrk hennar. Ég sendi aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Jóhönnu Sig- urbergsdóttur. Sigríður Stefánsdóttir. Þegar fyrstu krókusarnir stungu sér upp úr moldinni þennan hlýja vetrardag fyrir utan eldhúsgluggana okkar Jóhönnu þá ók hún með Hall- dóri sínum í síðasta sinn frá heimili þeirra í Vatnsholtinu. Hún var á leiðinni á sjúkrahúsið. Nú skyldi reynt til þrautar í barátt- unni við vágestinn. Jóhanna bar mikla umhyggju fyr- ir sjúklingum sínum og vann eins lengi og kraftar hennar leyfðu. Þegar ég spurði hana eitt júní- kvöld fyrir nokkrum árum hvernig henni tækist að höndla þjáningar sjúklinga sinna þá sagðist hún fá hvíld með því að vinna eftir kvöld- vaktirnar í garðinum. Á sumarkvöld- um sat hún oft á svölunum fram á nótt og naut ilmsins af gróðrinum. Hún var náttúrubarn með sterka skaphöfn og góða kímnigáfu. Þegar veikindi hennar ágerðust kom að því að hún gat ekki meir. Hún var að þrotum komin. Hún hætti að vinna um síðustu áramót. Fjölskylda hennar var henni allt. Sjaldan hef ég kynnst eins samheld- inni fjölskyldu. Öll laugardagskvöld var borðað saman, farið saman í ferðalög innan lands sem utan, og ég hef grun um að engar stærri ákvarðanir hafi ver- ið teknar án samþykkis Jóhönnu. Hún hafði stórt hjarta jafnt fyrir fjölskyldu sína og aðra þá sem á því þurftu að halda. Nú þegar þessi eftirminnilega kona hefur kvatt er gott að minnast þess að í þessum sjálfumglaða og eigingjarna heimi er enn til fólk sem hugsar meira um aðra en sjálfan sig og fórnar sér fyrir að lina þjáningar og sorg meðbræðra sinna. Jóhönnu Sigurbergsdóttur verður því sárt saknað af mörgum. Við Þorsteinn og börnin okkar þökkum hlýju og vinsemd í okkar garð. Ásthildur S. Rafnar. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga’ og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín, sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (Hallgrímur Pétursson.) Ég bið algóðan Guð að varðveita og vernda elsku Jóhönnu, um leið og ég þakka henni af hjarta hennar kærleika og ómetanlega hjálp í minn garð. Elsku Halldór, börnin ykkar, tengdabörn og barnabörn, ég bið Guð að varðveita ykkur og gefa ykk- ur styrk í sorg ykkar og söknuði. Guð varðveiti ykkur öll. Samúðarkveðja, Ragnheiður Oddsdóttir. Fallin er frá uppáhaldsfrænka mín hún Jóhanna. Margar eru minn- ingarnar og margar eru þakkirnar. Jóhanna var frænka hans pabba míns og oft var sagt að margt væri líkt með okkur, já og ekki leiddist mér það nú. Ég man alltaf eftir því hvað það var gott að fá þau Halla upp í Borgarnes þegar Óli bróðir dó, þvílíkur styrkur sem það var og gott að hafa þau á þessum erfiða tíma í lífi okkar. Ekki eru nema tæp tvö ár síðan bróðir hennar lést á heimili sínu í Haukatungu og pabbi fimm mánuðum seinna úr krabbameini. Já þá var gott að eiga hana Jóhönnu að, og hvað hún reyndist pabba vel alltaf að gá að honum. Ég man eftir því að eitt sinn í þessum veikindum hans lá hann inni á Landspítala á deildinni hennar Jóhönnu og ég spurði pabba hvort allt væri í lagi, hann svaraði jú á meðan hún Jóhanna mín er hér er ég í góðum málum. Þvílík kona, því- líkur kraftur og styrkur sem hún bjó yfir. Takk elsku frænka fyrir að hafa verið ávallt til taks, takk fyrir að hafa haldið um okkur á dánarstund hans pabba og huggað okkur. Nú er komið að kveðjustund að sinni, en ég skal reyna að standa við loforð sem ég gaf þér inni á spítala fyrir nokkr- um dögum þar sem við áttum ógleymanlega stund saman. Hafðu þökk fyrir þessi 35 ár sem við þekkt- umst og allar stundirnar. Þú varst gull af manni og algjör hetja sem þú sýndir í veikindum þínum. Elsku Halldór, Valgarð, Unnur, Didda, tengdabörn og barnabörn, megi allir heimsins englar þerra tár ykkar á þessum erfiðu tímum. Ég er stolt af að hafa verið frænka hennar Jóhönnu. Minning hennar lifir með mér um ókomna tíð. Guð blessi ykk- ur öll. Ásta Guðrún Pálsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI PÁLMARSSON hljóðfærasmiður, Nóatúni 28, Reykjavík, lést á líknardeild Landakotsspítala miðviku- daginn 24. mars. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. apríl kl. 13.30. Guðbjörg Ágústa Björnsdóttir, Salbjörg Ágústa Bjarnadóttir, Björn Andrés Bjarnason, Sigurbjörg Hjörleifsdóttir, Ingvar Þór Bjarnason, Cathrine Bjarnason, Hrefna Birgitta Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Áskær stjúpfaðir minn og bróðir, PÉTUR PÁLSSON, Skálahlíð, áður Tungötu 39, Siglufirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 30. mars. Birgir Steingrímssson, Gunnar Pálsson, Páll Pálsson, Gísli Pálsson, Jóhannes Pálsson, Sigrún Hansdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.