Morgunblaðið - 01.04.2004, Side 55
á verstu mögulegu aðstæðum sem
upp kunna að koma, þar sem jafn-
framt verður að gera ráð fyrir að
erfðavísar sem sleppa út í umhverf-
ið geti fjölgað sér. „Kerfisbundin
afmörkun“ verði að fela í sér skrif-
aðar reglur um aðgreiningu, þjálfun
starfsmanna, ákvæði um festu í
starfsmannahaldi til að tryggja var-
anlega afmörkun, staðlaðar starfs-
aðferðir, reglulegar úttektir óháðs
eftirlitsaðila til að tryggja gegnsæi,
og reglubundnar innri úttektir og
úrbætur á skipulagi. Í skýrslunni
segir að „eigi kerfisbundin afmörk-
un að virka er nauðsynlegt að til
grundvallar liggi strangar laga-
reglur sem feli í sér eftirlit og
heimild til að beita viðurlögum“. Þá
er einnig lagt til að þróuð verði
auðgreinanleg merki og sýnatöku-
aðferðir til að auðvelda vöktun eb-
lífvera í umhverfinu. Minnt er á að
vöktun sé „viðbót við afmörkun og
kemur ekki í staðinn fyrir hana“.
Lagt er til að erfðabreytingar verði
gerðar þannig úr garði að mjög
auðvelt verði að greina eb-efni í
umhverfinu þannig að eftirlits-
aðilum verði kleift að annast vöktun
og úttektir á áhrifaríkan hátt.
Erfðabreytt á Íslandi
– hvernig?
Ef leyfð yrði ræktun erfðabreyttra
lyfjaplantna hér á landi er næstum
óhjákvæmilegt að þær mengi mat-
væli sakir þess veðurfars sem hér
er og þess hvernig landbúnaður er
upp byggður. Hvernig munu ís-
lenskir bændur rækta hlið við hlið
eb-lyfjaplöntur og ekki-erfðabreytt-
ar („náttúrulegar“) afurðir til fóð-
urs og manneldis, og ala jafnframt
á öruggan hátt búfé til kjöt- og
mjólkurframleiðslu, allt á sömu
jörðinni? Trúir því nokkur maður
að komið verði í veg fyrir að ís-
lenska rokið eða fjölmennir flokkar
farfugla sem hér hafa viðdvöl dreifi
eb-fræi og uppskeruleifum, eða að
hin mikla úrkoma blandi erfða-
breyttum efnum í gróðurmold,
grunnvatn og ár?
Í bandarísku rannsóknarskýrsl-
unum er lagt til að aðferðum við
ræktun eb-lyfjaplantna verði breytt
þannig að þær geti ekki mengað
matvæli (mengunarmörkin verði á
núlli) og að þær verði aðeins leyfð-
ar í tegundum sem ekki eru not-
aðar til manneldis.
Taki Íslendingar ekki mið af
þessum niðurstöðum, geta þeir
samt vænst þess að afmörkun
erfðabreyttra lyfjaplantna takist
hér á landi með aðferðum sem mis-
tókust í Bandaríkjunum?
Höfundur er sjálfstætt starfandi
ráðgjafi.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 55
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík alltaf á sunnudögumFERÐALÖG
Mikið úrval af flottri gjafavöru frá ASA
Laugavegi 63• (Vitastígsmegin) • sími 551 2040Silkitré og silkiblóm
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
39
41
03
/2
00
4
High Peak Pocatello 60L
Góður 60 l poki með stillanlegu
baki, regnyfirbreiðslu, mörgum
hólfum og festingum.
8.990 kr.
Nanoq Santana 65 L
4.990 kr.
Nanoq Nomad 55 L
7.990 kr.
Jamis Ranger SX
Frábært fjallahjól.
6061 álstell.
SR M300 framdempari.
Shimano Tourney TX30 afturskiptir.
Til í rauðu og svörtu.
25.990 kr.
Einnig til án dempara (stálstell)
19.990 kr.
High Peak Frasier
3ja manna braggatjald með fortjaldi.
Stöðugt í vindi. Límdir saumar
Þyngd 5,9 kg.
11.990 kr.
Nanoq Pamir 3ja manna
7.990 kr.
Nanoq Pamir 4ra manna
9.990 kr.
Buffalo Phoenix V-2
Vandaður poki úr bestu efnum.
Þyngd 1.830 g.
Mesta kuldaþol -13°C.
9.990 kr.
Mountain Eagle
4.990 kr.
Nanoq Compact plus
7.990 kr.
...tilboð
Fermingar...