Morgunblaðið - 01.04.2004, Page 62

Morgunblaðið - 01.04.2004, Page 62
UMRÆÐAN 62 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Á ÍSLANDI er veikindatíðni nokkru minni en á hinum Norð- urlöndunum og er það vel. En hve áreiðanlegur er þessi sam- anburður? Mismunandi forsendur geta legið að baki. Ástæðan getur meðal annars legið í því að ekki er vel haldið utan um veikindaskráningu hér á landi og sér- staklega þá skiptingu milli styttri og lengri veikinda. Forsendur veikindadaga eru aðr- ar á Norðurlöndum. Þar greiða ríkin að hluta eða öllu leyti kostnað af veik- indadögum og tengist oft réttindum og skyldum á vinnu- markaðinum. Því er ekki alltaf raunhæft að bera saman veikindadaga sem árangursmælingu á milli landa. Erfitt getur verið að meta raun- verulegan kostnað atvinnurekanda af veikindaforföllum og þá sér- staklega í langtímaveikindum sem er oft falinn eða vanmetinn kostn- aðarþáttur innan veggja vinnu- staða. Í langvinnum veikindum hleypir upp kostnaðinum að það þarf að dreifa verkefnum á aðra, ráða afleysingafólk og setja aðra inn í málin sem er ekki nauðsyn- legt í styttri veikindum. Raunverulegur veikindakostnaður Raunveruleg útgjöld atvinnurek- anda vegna veikindadaga eru mun meiri en launakostn- aðurinn einn segir til um. Það að missa starfsmann úr vinnu t.d. í mánuð kostar vinnuveitandann helmingi hærri upp- hæð en þann sem nemur launum starfs- mannsins. Ofan á launin leggjast launa- tengd gjöld og einnig sá kostnaður sem felst í stjórnun, af- leysingastarfsmanni, álagi á starfsfólk, tap- aðri þekkingu, þjálfun nýs starfs- fólks og vannýtt húsnæði svo eitt- hvað sé tínt til. Þessi kostnaður getur numið helmingi hærri upp- hæð en launin segja til um. Ekki er heldur reiknað með margfeldis- áhrifum alvarlegra veikinda á aðra starfsmenn. Fjölskylda og vinir verða undir álagi sem eykur streitu, þeir þurfa oftar að taka sér frí frá vinnu sem getur svo leitt að lokum til veikinda þeirra og enn meiri fjarveru frá vinnu. Reiknilíkan um veikindakostnað má sjá á heimasíðu Solarplexus ehf. www.solarplexus.is. Langvarandi veikindi Hjarta- og æðasjúkdómar eru helsta dánarorsök í vestrænum ríkjum. Í nýrri skýrslu Hagstof- unnar um dánarorsakir árið 1999 á Íslandi kemur í ljós að blóðrás- arsjúkdómar eru langalgengasta dánarorsökin á Íslandi eða 42%. Veikindi af þessu tagi taka langan tíma. Margir vinnudagar tapast á ári vegna þeirra og skapar það álag á vinnustaðinn, fyrir utan það andlega og líkamlega álag sem skapast fyrir einstaklinginn sjálf- an og fjölskyldu hans. Hver er ávinningur heilsu- farsmælinga? Til að draga úr hjarta- og æða- sjúkdómum er einfalt að fram- kvæma reglulegar og einfaldar mælingar á blóðþrýstingi, blóðfitu, blóðsykri og líkamsfitu. Þessi leið er bæði einföld og ódýr og er jafn- framt besta leiðin til að koma í veg fyrir hjarta- og æðasjúkdóma. Regluleg ráðgjöf og heilsufars- mælingar á vinnustöðum eru ekki flóknar í framkvæmd, ódýrar og snúast fyrst og fremst um að greina áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma og ekki síst gera einstaklinga meðvitaða og ábyrga um eigin heilsu. Heilbrigð- ismenntað starfsfólk fer út á vinnustaðina með fræðslu, mælir á staðnum og sendir þá áfram til læknis sem þurfa nánari skoðun. Þetta færist mjög í vöxt og hefur vakið mikla ánægju starfsfólks og stjórnenda. Aukin vitundarvakning og vellíðan á vinnustað Reynslan hefur sýnt okkur sem við þetta starfa, að heilsufarsmæl- ingar sem þessar auka vitund- arvakningu einstaklinga á eigin heilsu og auka vellíðan á vinnu- stað. Þetta verður til þess að það dregur úr skammtímafjarvistum sem rekja má til vanlíðunar vegna t.d. háþrýstings og til lengri tíma má líta á þetta sem forvarnarstarf til að draga úr veikindakostnaði. Langoftast finnast einhverjir einstaklingar í áhættuhópi á hverjum vinnustað og hægt hefur verið að grípa inn í og forða ein- staklingum frá veikindum. Ef gripið er inn í strax er auðvelt að laga ástandið. Eftir því sem ástandið verður langvinnara og verra verður erfiðara að grípa inn í og oftar en ekki er þá þörf á mun dýrari, flóknari og tímafrek- ari aðgerðum. Heilsufarsmæling- arnar hafa alltaf leitt til ánægju og mikillar umræðu á vinnustaðn- um og vitundarvakningar starfs- fólks um eigin heilsu og ábyrgð. Heilsufarsmælingar sem ein lausn í forvarnarstarfi og stefnu fyrirtækisins Starfsfólkið er auður fyrirtækisins og að því þarf að hlúa. Erlendar rannsóknir og niðurstöður kann- ana gerðar af Solarplexus sýna það að fyrirbyggjandi starf, meðal annars af þessu tagi, skilar sér í bættri líðan og ánægju í starfi. Stöðugt fleiri fyrirtæki og stofn- anir sjá hag sinn í að bjóða starfs- fólki sínu upp á heilsufarsmæl- ingar fyrir þá sem þess óska ár hvert. Heilsufarsmælingar af þessu tagi sem ein af lausnum er lýtur að forvarnarstarfi fyrirtækja, þarf að vera hluti að stefnu fyrirtækis í almennum heilbrigðis- og öryggis- málum starfsmanna. Slíkt er allra hagur. Af hverju heilsufarsmælingar sem for- varnarþátt innan veggja vinnustaða? Lovísa Ólafsdóttir skrifar um heilsufar ’Starfsfólkið er auðurfyrirtækisins og að því þarf að hlúa.‘ Lovísa Ólafsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Solarplexus. UNDANFARIN ár hefur farið fram sameining spítalanna hér í Reykjavík. Margir höfðu efasemdir um að rétt væri að standa þannig að málum heilbrigðisþjónustunnar. Það hefur hins vegar gerst að þró- un í læknisfræði hefur orðið mjög ör og þörf fyrir bráðalegudeildir hefur farið minnkandi. Sívaxandi hluti þjónustunnar fer fram á dag- deildum og þar hefur komið til sögu ný tækni og miklar framfarir. Þessi þróun hefur því komið á móti sívaxandi þörf fyrir heilbrigð- isþjónustu af ýmsu tagi. Sameining spít- alanna hlaut því að koma til fyrr eða síð- ar. Það er ekki sama hvernig sameining svo stórra og flókinna fyrirtækja sem spít- alar eru fer fram. Það þarf mikinn und- irbúning og kostar miklar breytingar á aðstöðu, skipulagi og fleiru. Markmiðið er að ná fram hagræð- ingu í rekstri og fag- legum styrkleika. Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar er ljóst að hagræðing hefur ekki náðst. Það kemur engum sem til þekkir á óvart þar sem það er reynsla víða erlendis frá að ekki næst hagræðing nema hægt sé að flytja meginstarfsemina á einn stað. Kostnaður af sameiningarferl- inu er orðinn töluverður. Ef það sem ríkið greiddi Reykjavíkurborg fyrir þau mannvirki sem það yf- irtók er talið með, má gera ráð fyr- ir að þessi kostnaður sé á bilinu 3–4 milljarðar króna. Staða Land- spítala virðist því vera sú að mjög nauðsynlegt sé að færa líkamlega bráðaþjónustu á einn stað og sam- eina þar dýrustu þjónustudeild- irnar, þ.e. skurðstofur, gjörgæslu, myndgreiningu og rannsókn- arstofur. Það er alger forsenda þess að hagræðing náist í rekstri. Talið er að sú hagræðing gæti numið 1–1,5 milljörðum króna á ári þannig að eftir miklu er að slægj- ast. Hugmyndir fyrrverandi heil- brigðisráðherra sem staðfestar hafa verið af núverandi heilbrigð- isráðherra sem stefna ríkisstjórn- arinnar er að byggja nýjan spítala sunnan Hringbrautar. Á þeim grundvelli var ákveðið að byggja hús fyrir starfsemi barnadeildar við Hringbraut eftir að samein- ingin var ákveðin. Það hefur verið ljóst frá upphafi að þessi stefna var mjög óraunsæ. Talað var um að það þyrfti að byggja um 85–90 þús- und fermetra. Sam- kvæmt núverandi heil- brigðisráðherra gæti kostnaður orðið 30–40 milljarðar króna. Ástandið í þjóðfélaginu vegna mikilla fram- kvæmda á öðrum svið- um myndi heldur ekki leyfa svo miklar fram- kvæmdir á næstu ár- um. Væri þessi leið farin myndi það vafa- laust taka á annan ára- tug áður en starfsemin gæti hafist að fullu á einum stað og þar af leiðandi myndu miklir fjármunir tapast. Aðrar hugmyndir hafa komið fram um lausn mála. White- arkitektar hafa skoðað lóðina norðan Hring- brautar en hún er of lítil til þess að koma að fullu gagni við að leysa málin. Auk þess er mjög erfitt að tengja núverandi byggingar við nýbygg- ingar. Ráðgjafar frá fyrirtækinu Ementor í Kaupmannahöfn komu með ákveðna tillögu um lausn málsins fyrir 3–4 árum. Eftir að hafa skoðað alla núverandi aðstöðu sameinaðs spítala var niðurstaða þeirra að hagkvæmasta og fljót- virkasta lausnin væri sú að líta á lóðir við Hringbraut og í Fossvogi sem eina lóð. Til að ná hagkvæmni sem fyrst væri nauðsynlegt að sameina alla líkamlega bráða- starfsemi í Fossvogi. Þar eru bestu legudeildir sem til eru á landinu fyrir um 250–300 sjúklinga sem auðvelt væri að laga og uppfylla flestar kröfur sem til þeirra þarf að gera. Þar er einnig hægt að nota áfram núverandi aðstöðu skurðstofu, röntgendeildar og jafn- vel gjörgæsludeildar og tengja þar við nýja byggingu fyrir þann hluta þessarar starfsemi sem nú fer fram á Hringbraut. Byggja þarf legudeildir til þess að hægt sé að flytja skurðdeildir og lyfjadeildir í Fossvog en kvensjúkdómadeildir og barnadeildir kæmu í kjölfarið. Áfram verði ýmis starfsemi við Hringbraut t.d. geðdeild, end- urhæfingadeild, ýmsar rann- sóknadeildir og háskólastarfsemi. Reynslan mun síðan leiða í ljós hvaða aðra starfsemi væri nauð- synlegt að flytja í Fossvog. Það skiptir engu máli fyrir hlut- verk Landspítala sem há- skólastofnunar hvort hún er stað- sett í Fossvogi eða við Hringbraut. Fossvogur er mun meira mið- svæðis með tilliti til þess hvar íbú- ar höfuðborgarsvæðisins búa og starfa. Það má ekki gleyma því að árlega skipta heimsóknir á spít- alann mörg hundruð þúsundum. Lóðin í Fossvogi er mun stærri og auðvelt að koma þeim byggingum sem þörf er fyrir með góðum tengslum við núverandi byggingu. Tenging við umferðaræðar er góð og ekki þarf að eyða milljörðum í að flytja slíkt mannvirki eins og til stendur að gera við Hringbraut. Hugsanlega þarf að byggja nálægt 30 þúsund fermetra og kostnað við þessa framkvæmd má gróft áætla 10–12 milljarða króna og ef rétt reynist að sú hagræðing næst, sem að ofan er getið, er hér um eina hagkvæmustu framkvæmd sem völ er á í þjóðfélaginu að ræða. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum hefur ríkisstjórnin ekki viljað skoða þessa leið. Nú á að fara að færa Hringbraut og það kostar hátt í tvo milljarða króna. Ef sú framkvæmd er eingöngu fyr- ir Landspítann er ljóst að hér er hreinlega verið að sóa miklum fjár- munum til einskis. Má ekki spara 20–30 milljarða? Ólafur Örn Arnarson skrifar um heilbrigðiskerfið Ólafur Örn Arnarson ’Það er ekkisama hvernig sameining svo stórra og flók- inna fyrirtækja sem spítalar eru fer fram. ‘ Höfundur er læknir. ÉG get ekki orða bundist eftir að hafa gripið niður í þriggja binda rit- verk þeirra Örlygs Hálfdanarsonar, Magnúsar Kristinssonar og Árna Björnssonar sem ber heitið Úr torf- bæjum inn í tækniöld. Hér er á ferð- inni stórvirki af þeim toga að ein- stætt verður að teljast og fágætur viðburður í annars blómlegri flóru íslenskrar bókaútgáfu. Rætur þessa verks teygja sig suður á Þýskaland þar sem rit- stjórinn Magnús Kristinsson nú er bú- settur og til þýskra ferðalanga og fræði- manna sem lögðu leið sína aftur og aftur til Íslands á árunum milli stríða, vel búnir til myndatöku og upp- teiknana af íslensku þjóðlífi og gagn- munum þess tíma. Þetta voru þeir Hans Kuhn, Reinhard Prinz, Bruno Schweizer og Erich Consemüller, þá ungir og ótrauðir og vakti ferðamáti þeirra mikla athygli landans. Tengsl þessara manna voru misjafnlega náin, en tveir þeirra kvænt- ust íslenskum konum, náðu full- komnu valdi á íslensku máli og héldu tengslum við land og þjóð langt fram eftir 20. öld. Frá Þjóðverjunum er kominn meirihluti þeirra yfir 2000 ljósmynda sem prýða bækur þessar, margar hverjar af bestu gæðum og í heild einstakar heimildir um land og þjóð á árunum milli stríða. Það sama má segja um uppdrætti og ljós- myndir af um 400 nytjamunum sem Hans Kuhn safnaði og varðveittir eru á Museum für Völkerkunde í Hamborg. Tilkoma þessa ritsafns er nánast reyfarakennd ef litið er til þeirra at- burða sem komu Örlygi og Magnúsi á sporið og þess samstarfs sem síðar tókst með þeim um útgáfuna. Hvor um sig hafði byrjað að spinna þræði að ritum sem byggðu á gögnum þýsku ferðalanganna en það er síðan fyrir stórhug og elju Örlygs sem út- gefanda að úr verður sú heild sem hér liggur fyrir í þremur bindum. Ít- arleg umfjöllun Árna Björnssonar þjóðháttafræðings um íslenskt mannlíf milli stríða sem er meg- inefni 1. bindis tengir það sem á eftir kemur saman í eina heild þannig að úr verður saga um tímabil sem lengi hefur legið hjá garði og notið tak- markaðrar athygli hér- lendis. Það vekur satt að segja furðu mína að þetta verk skuli ekki hafa þótt nánast sjálf- kjörið til verðlauna á síðasta ári, að þeim bókum ólöstuðum sem þá hlutu viðurkenningu. Með þessu stór- fenglega ritverki hafa þeir sem að því komu átt hlut að björgun menningarverðmæta sem mörg hver hefðu ella farið forgörðum eða verið hulin komandi kynslóðum. Nægir þar að nefna heimildagildi ljósmynda, myndtexta og viðtala við fólk sem margt hefur horfið af vettvangi á þeim tíma sem liðinn er frá því byrjað var að efna í út- gáfuna. Örlygur Hálf- danarson hefur bjargað mörgu í hús af svip- uðum toga á löngum ferli sem útgefandi. Nægir þar að minna á úrval úr verkum Daniels Bruun undir heitinu Íslenskt þjóðlíf í þúsund ár sem út kom fyrir hálfum öðrum áratug og ritsafnið Landið þitt Ísland. Sá sem þetta ritar gleymdi sér í nokkra daga yfir þessu síðasta stór- virki Bókaútgáfunnar Arnar og Ör- lygs. Þess er að vænta að margir leiti í þann brunn sem hér bíður þeirra sem hafa áhuga á að tengja saman nútíð og fortíð, landið og sög- una. Ég held fátt eigi betur heima í höndum ungmenna en þetta nútíma- lega og skemmtilega safn frá veröld sem var en sem liggur ótrúlega skammt að baki í árum talið. Menningarlegt stórvirki Hjörleifur Guttormsson skrifar um bókaútgáfu Hjörleifur Guttormsson ’Með þessustórfenglega rit- verki hafa þeir sem að því komu átt hlut að björgun menn- ingarverð- mæta…‘ Höfundur er fyrrverandi alþing- ismaður og ráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.