Morgunblaðið - 01.04.2004, Qupperneq 75
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 75
„ÞAÐ hefði kannski verið skyn-
samlegra að bakka og draga aðeins
úr hraðanum eftir að við jöfnuðum
en við vorum mjög ákafir og vildum
skora annað mark. Með því að
sækja á svona mörgum mönnum þá
buðum við ákveðinni hættu heim og
það var því ansi súrt að láta þá
skora annað mark,“ sagði Ólafur
Örn Bjarnason sem stjórnaði öft-
ustu vörn íslenska liðsins.
„Mér fannst við vera komnir með
góð tök á leiknum þegar við jöfn-
uðum. Fyrri hálfleikurinn var ekki
nógu góður hjá okkur. Það gekk
illa að koma boltanum í spil og við
vorum ragir að biðja um boltann
enda vorum við hálfhræddir við
völlinn sem var ósléttur. En þetta
var miklu betra hjá okkur í seinni
hálfleik og úr því sem komið var þá
hefði ég viljað fá jafntefli. Með að-
eins meiri ró og skynsemi hefðum
við getað varið jafnteflið en það er
alltaf gott að vera vitur eftir á.“
Varnarleikurinn ágætur
Spurður hvernig honum hafi
fundist varnarleikurinn ganga
sagði Ólafur; „Þeir fengu eitthvað
af færum og það var verst þegar við
gáfum þeim tækifæri til að komast í
stöðuna maður á móti manni. En á
heildina litið fannst mér varn-
arleikurinn ganga ágætlega og það
má ekki gleyma því að við þrír vor-
um að spila saman í fyrsta skipti,“
sagði Ólafur Örn.
„Við urðum fullákafir
eftir jöfnunarmarkið“
FÓLK
DAVID Healy tryggði Norður-Ír-
um sinn fyrsta sigur í sextán leikjum
er hann skoraði sigurmark gegn
Eistlendingum í Tallinn, 1:0. Þetta
er annað markið sem framherji
enska 1. deildarliðsins Preston
North End skorar í síðustu tveimur
landsleikjum liðsins. Sem kunnugt
er eiga N-Írar heimsmet í því að
koma knettinum ekki í netið en liðið
lék samfellt í 1,298 mínútur án þess
að skora en Healy skoraði gegn
Norðmönnum í Belfast þar sem liðið
tapaði 4:1.
MARTIN Andresen tryggði Norð-
mönnum 1:0 sigur í Belgrad gegn
Serbíu/Svartfjallalandi en Black-
burn-leikmaðurinn skoraði eina
mark leiksins úr vítaspyrnu á 76.
mínútu. Darko Kovacevic úr liði
heimamanna var vísað af leikvelli á
61. mínútu.
GRÍÐARLEG spenna var fyrir
viðureign liðanna þar sem forseti
knattspyrnusambands Serbíu/
Svartfjallalands var myrtur á dög-
unum og fengu leikmenn norska
landsliðsins ekki að hreyfa sig í borg-
inni án þess að vera með lífverði sér
við hlið. Þetta er fimmti leikurinn í
röð sem Norðmenn vinna undir
stjórn Åge Hareide frá því að hann
tók við liðinu af Nils Johan Semb.
GRIKKIR lögðu Svisslendinga að
velli á Krít, 1:0. Vassilis Tsartas
skoraði sigurmark Grikkja, sem hafa
leikið 15 leiki í röð án taps. Hann
nýtti ekki vítaspyrnu fyrr í leiknum.
MARK frá Íranum Robbie Keane
á síðustu stundu í Dublin, tryggði Ír-
um sigur á Tékkum, 2:1. Írar stöðv-
uðu sigurgöngu Tékka, sem höfðu
ekki tapað 21 leik síðan í nóvember
2001. Á þessu tímabili unnu þeir 15
leiki, gerðu sex jafntefli og skoruðu
55 mörk.
SVÍAR héldu upp á 100 ára af-
mæli sænska knattspyrnusam-
bandsins með því að leggja Englend-
inga að velli í Gautaborg, 1:0. Zlatan
Ibrahimovic skoraði sigurmarkið.
Svíar hafa leikið ellefu leiki í röð við
Englendinga án þess að tapa fyrir
þeim – töpuðu síðast 1968 er Eng-
lendingar voru heimsmeistarar.
Englendingar voru betri aðilinn í
fyrri hálfleik og áttu þá tvö skot þar
sem knötturinn hafnaði á stöng –
fyrst frá Wayne Rooney og síðan
Owen Hargreaves. Sænski mark-
vörðurinn Andreas Isaksson varði
þá einnig vel skot frá Rooney.
FRAKKAR náðu ekki að setja
heimsmet með því að leggja Hol-
lendinga í Amsterdam – og vinna
sinn fimmtánda leik í röð. Þeir urðu
að sætta sig við markalaust jafntefli
og eiga því metið, fjórtán sigurleiki í
röð, með Áströlum og Brasilíu-
mönnum.
JENS Lehmann, markvörður Ars-
enal, varði nokkrum sinnum vel í
marki Þjóðverja, sem lögðu Belga
að velli í Köln, 3:0.
Leikur íslenska liðsins var kafla-skiptur. Það var ákveðin
hræðsla, hik og skortur á sjálfstrausti
sem einkenndi leik
Íslendinga í fyrri
hálfleik en í síðari
hálfleik varð breyting
til batnaðar. Liðið
færði sig framar á völlinn, menn voru
meira í því að bjóða sig og tilbúnir til
að fá knöttinn og fyrir vikið kom allt
önnur áferð á leik liðsins samanber í
fyrri hálfleik.
Eftir að glókollurinn Igle Tare átti
skot rétt framhjá íslenska markinu á
12. mínútu munaði minnstu að Þórði
Guðjónssyni tækist að skora tveimur
mínútum síðar. Þórður gerði vel í að
stinga sér í gegnum albönsku vörnina
en á elleftu stundu tókst varnarmanni
Albana að bægja skoti Þórðar frá á
markteig í horn. Þetta var í raun eina
færi Íslendinga í fyrri hálfleik. Alb-
anar hertu róðurinn eftir þetta færi
Þórðar og Tare var hársbreidd frá því
að skora á 16. mínútu en Pétur Mar-
teinsson bjargaði skalla hans af mark-
línu. Íslensku leikmönnunum gekk
illa að halda knettinum innan liðsins
og hreyfingin á mönnum án boltans
var lítil og þar að leiðandi voru fáir
aðrir möguleikar en að senda langar
sendingar fram völlinn upp á von og
óvön.
Heiðar Helguson og Marel Bald-
vinsson höfðu úr litlu að moða í
fremstu víglínu en þeir reyndu samt
eftir fremsta megni að koma pressu á
varnarmenn Albana.
Albanar náðu forystunni á 42. mín-
útu. Adrian Aliaj náði að leika knett-
inum inn í teiginn og hnitmiðað skot
hans utarlega úr vítateignum steinlá
neðst í bláhorninu án þess að Árni
Gautur Arason kæmi vörnum við. Áð-
ur en markið leit dagsins ljós var búið
að liggja mikið á íslensku vörninni
sem tókst að bægja hættunum frá allt
þar til Aliaj náði að skora. Tare var
heppinn að fá ekki reisupassann mín-
útu síðar. Eftir viðskipti hans og
Brynjars Björns sparkaði Tare í
Brynjar en ítalski dómarinn sem
greinilega sá atvikið lokaði augunum
og dæmdi ekki neitt.
Íslendingar gerðu engar breyting-
ar á liði sínu í hálfleik öfugt við Albana
sem gerðu þrjár breytingar. Til að
byrja með var smá vandræðagangur
á íslenska liðinu og í tvígang komust
Albanir í upplögð færi snemma hálf-
leiksins. Fyrst varði Árni Gautur
mjög vel með úthlaupi þegar Skela
var kominn í gott færi og skömmu síð-
ari bjargaði Ívar Ingimarsson meist-
aralega þegar Tare var að búa sig
undir að þruma á markið, einn og
óvaldaður gegn Árna Gauti rétt utan
markteigs. Annað mark Albana virt-
ist liggja í loftinu en eins og hendi
væri veifað snarsnerist gangur leiks-
ins. Íslensku leikmennirnir stöppuðu í
sig stálinu og innkoma Veigars Páls á
59. mínútu hleypti svo sannarlega
nýju lífi í leik liðsins. Veigar var fljót-
ur að minna á sig en hann hafði ekki
verið inná nema í fimm mínútur þegar
hann lagði upp jöfnunarmarkið fyrir
fyrirliðann Þórð Guðjónsson. Veigar
vann boltann af varnarmanni Albana,
lék á félaga hans og sendi á Þórð sem
átti ekki í erfiðleikum með að skora.
Mikið kapp hljóp í íslenska liðið við
þetta mark, kannski of mikið þegar til
baka er litið, en með smá heppni
hefðu Íslendingar geta skorað tvö
mörk til viðbótar skömmu eftir mark
Þórðar. Eftir laglega sókn þar sem
Veigar og Indriði léku sig í gegnum
vörn Albana munaði hársbreidd frá
því Þórður kæmist í úrvalsfæri og á
70. mínútu fékk Veigar Páll gott færi
en ósléttur völlur gerði það að verk-
um að hann náði ekki að stýra knett-
inum rétta boðleið. Engu að síður átti
hann góða tilraun en markvörður
Albana varði með naumindum.
Albönum var brugðið og ákaft
studdir af áhorfendum náðu þeir að
að skora sigurmarkið á 75. mínútu.
Albanir náðu skyndisókn gegn fálið-
aðri vörn Íslands og eftir fína fyrir-
gjöf frá hægri náði varamaðurinn
Alban Bushi að skjóta sér fram úr Ív-
ari Ingimarssyni og skalla boltann í
netið. Síðustu 10 mínúturnar gerðist
fátt.
Íslenska liðið hafi ekki kraft til að
ógna albanska markinu að ráði og í
annað skipti í jafnmörgum leikjum
töpuðu Íslendingar fyrir Albönum
með minnsta mun.
„Eins og leikurinn þróaðist þá hefði
ég viljað sjá að við héldum stiginu. Við
vorum í vandræðum í fyrri hálfleik.
Sendingarnar á milli manna gengu
illa en við náðum engu að síður að
skapa hættur með löngu sendingun-
um. Menn voru ekki nógu rólegir á
boltanum og ástæðan fyrir því að við
við héldum ekki boltanum innan liðs-
ins var sú að menn voru einfaldlega í
felum. Þar með átti maðurinn með
boltann í vandræðum því hann átti
enga möguleika á losa sig við hann.
Við tókum á þessu í leikhléinu og það
var allt annar bragur á liðinu í síðari
hálfleik. Þá þorðu menn að fá boltann
og þar með opnuðust ýmsir mögu-
leikar. Við náðum að jafna og fengum
fínt færi strax á eftir og á þessum
tímapunkti fannst mér við hafa leik-
inn í okkar höndum allt þar til annað
mark þeirra kom,“ sagði Logi Ólafs-
son landsliðsþjálfari við Morgunblað-
ið eftir leikinn.
Árni Gautur verður ekki sakaður
um mörkin. Hann varði vel í þrígang
og stóð fyrir sínu. Aftasta varnarlínan
hafði í nógu að snúast og í heildina séð
stóð hún sig ágætlega. Ívar Ingimars-
son og Ólafur Örn Bjarnason gerðu fá
mistök og Pétur Marteinsson stóð
þeim ekki langt að baki. Brynjar
Björn Gunnarsson var feikilega dug-
legur og átti sinn besta landsleik í
langan tíma, sérstaklega í síðari hálf-
leik. Þórður Guðjónsson átti fína
spretti og var ávallt hættulegur fram
á við en bróðir hans Jóhannes var í
barningi aftarlega á miðsvæðinu og
hefur oft leikið betur. Vængmennirn-
ir Indriði Sigurðsson og Bjarni Guð-
jónsson voru í erfiðum hlutverkum.
Þeir leystu það þokkalega en Indriði
átti framan af í stökuðu vandræðum
með sprækan kantmann Albana.
Marel Baldvinsson var lítið í boltan-
um en vann engu að síður vel og bar-
áttujaxlinn Heiðar Helguson hélt
varnarmönnum Albana við efnið allan
leikinn. Heiðar barðist eins og ljón
sem endranær og vann flest návígi en
var óheppinn á stundum að komast í
gegnum vörnina. Veigar Páll og Arn-
ar Þór Viðarsson komu frískir inn af
bekknum en þegar á heildina er litið
spilaðist leikurinn eins og reiknað var
með. Eins og gefur að skilja var
ákveðin tilraunastarfsemi hjá lands-
liðsþjálfurunum Ásgeiri og Loga í
leiknum í gær og vonandi læra leik-
menn af þeim mistökum sem þar voru
gerð og bæta ofan á það sem vel var
gert. „Við fáum fjóra leiki til viðbótar
til að slípa hópinn saman. Auðvitað
var margt sem ekki var í lagi í þessum
leik enda langt um liðið síðan síðasti
leikur var og að auki vorum við að
prófa okkur áfram. Við getum von-
andi bætt við það sem við gerðum í
dag. Við hefðum verið sáttir að fara
héðan með eitt stig og það var synd og
skömm að þeir skyldu skora annað
markið. Við létum teygja okkur út úr
stöðunum þegar það kom og í alþjóð-
legum fótbolta er mönnum refsað fyr-
ir slíkt.“
Ljósmynd/ALNA photo
Ólafur Örn Bjarnason, varnarmaður íslenska landsliðsins, í baráttu við framherjann Ervin Skela.
Tap í Tirana
GÓÐUR síðari hálfleikur íslenska landsliðsins dugði því miður ekki
til að ná stigi gegn Albönum í Tirana í gærkvöld. Albanar, sem hafa
verið ósigrandi á heimavelli í þrjú ár, höfðu betur, 2:1. Úrslit sem í
sjálfu sér verða að teljast nokkuð sanngjörn en eins og leikurinn
þróaðist í síðari hálfleiknum var súrt að Albönum tækist að skora
sigurmarkið stundarfjórðungi fyrir leikslok eftir að Þórði Guðjóns-
syni hafði tekist að jafna metin.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar frá
Tirana
Góður síðari hálfleikur dugði ekki til gegn Albönum
BRÆÐURNIR frá Akranesi –
Þórður, Bjarni og Jóhannes
Karl Guðjónssynir léku í byrj-
unarliði Íslands gegn Albaníu
í Tirana og jöfnuðu þar með
árangur KR-bræðranna Harð-
ar, Bjarna og Gunnars Fel-
ixsona, sem léku saman í leik
1963 gegn áhugamannalands-
liði Englands í Wimbledon,
0:4.
Bræðurnir
léku saman