Morgunblaðið - 07.05.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 124. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
BYGGIR ME‹ fiÉR
ALLT FYRIR
PALLINN
Í BYKO
Hugleiknar
kleinur
Siggi lendir í ýmsum uppákomum
í tengslum við bakkelsið | Listir
Lukkudýr
félaganna
Lukkudýr setja svip sinn á komandi
knattspyrnusumar | Daglegt líf
Fólkið í dag
Fólkið fer með kærastann í Góða hirð-
inn Kossar og Kraftwerk Kaffi
Lífið í Barcelona Vikan Fjársjóðir
FJÁRFESTINGAR vegna stóriðju
og áframhaldandi vöxtur einka-
neyslu eru tvær helstu ástæður
þess hagvaxtar sem fjármálaráðu-
neytið býst við að verði á næstu ár-
um, en ráðuneytið spáir því í nýrri
þjóðhagsspá sinni að hagvöxtur
verði 4,5% á þessu ári og 5% á því
næsta. Þessi nýja spá er talsvert
hærri en sú síðasta sem gefin var út
í janúar sl. en þá var reiknað með að
hagvöxtur í ár yrði 3% og hagvöxt-
ur árið 2005 yrði 3,5%.
Í þjóðhagsspánni nú hafa efna-
hagshorfur tímabilsins 2007–2010
breyst og ekki er lengur gert ráð
fyrir niðursveiflu í efnahagslífinu í
kjölfar þess að stóriðjufram-
kvæmdum lýkur árið 2007. Ráðu-
neytið sér því ekki fyrir endann á
hagvaxtarskeiðinu næstu 5–6 ár.
Eftir að fjármálaráðuneytið hafði
sent þjóðhagsspá sína frá sér í gær
birti Seðlabankinn tilkynningu um
væntanlega 0,2% hækkun stýri-
vaxta sem markar upphafið á vaxta-
hækkunarferli bankans til að
stemma stigu við þenslu og verð-
bólgu.
„Okkur finnst að framvindan síð-
an [17. mars þegar Peningamál
komu út] hafi verið þannig að það
væri rétt að stíga þetta skref núna.
Þetta er mjög varfærið skref,“ segir
Birgir Ísleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri.
Hann segir að það sem gerst hafi
síðan 17. mars sé að miklar bólgur
séu í öllum tölum sem nú sjáist; í
tölum um einkaneyslu, eftirspurn
og í eignaverði.
Aukinn viðskiptahalli
Fjárfestingar vegna stóriðju-
framkvæmda eru enn sem fyrr
taldar meginskýring hagvaxtar
næstu ára samkvæmt þjóðhagsspá
fjármálaráðuneytisins og munu
þær einnig skýra aukinn viðskipta-
halla sem fer hæst í 100 milljarða
króna á árunum 2005–2006. Önnur
skýring hagvaxtarins er talin
áframhaldandi vöxtur einkaneyslu,
sem einnig mun auka viðskiptahall-
ann.
Vaxtahækkunin kemur greining-
ardeildum bankanna ekki á óvart
og býst t.d. greiningardeild Íslands-
banka við annarri vaxtahækkun
fljótlega. „… mjög líklega mun önn-
ur vaxtahækkun bankans koma
innan þriggja mánaða. Að öllum lík-
indum verður sú hækkun lítil eða
allt að 0,3%. Greining ÍSB spáir því
að bankinn muni með þessum hætti
stíga smá skref en nokkuð ört á
næstu misserum. Líklegt er að
stýrivextir bankans verði 7,5% inn-
an næstu 18 mánaða en vextir bank-
ans verða eftir hækkun nú 5,5%.“
Ný þjóðhagsspá gerir ráð fyrir auknum hagvexti á næstu árum
Spáð 4,5% hagvexti í ár
Seðlabankinn hækkar stýrivexti
sína um 0,2% í næstu viku
Hagvaxtarskeið/12
ÞAÐ kann að reynast nauðsyn-
legt að halda þjóðaratkvæða-
greiðslu í Færeyjum um Evrópu-
málin samþykki Danir stjórnar-
skrársáttmála Evrópusambands-
ins sem að öllum líkindum verður
tilbúinn í sumar.
Þessa dagana er um það rætt í
Færeyjum hvaða þjóðréttarlegu
afleiðingar það muni hafa fyrir
Færeyinga ef Danir samþykkja
stjórnarskrársáttmála ESB í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Færeyjar
eiga ekki aðild að ESB en eru í
ríkjasambandi við Dani, sem eiga
aðild að ESB. Óvíst þykir hvaða
afleiðingar það muni hafa fyrir
Færeyjar ef forræði ýmissa mála,
sem Danir hafa séð um fyrir Fær-
eyinga, flyst til Brussel, þar sem
höfuðstöðvar ESB eru.
Jóannes Eidesgaard, lögmaður
Færeyja, gerði þessi mál að um-
talsefni í ræðu sem hann hélt ný-
verið í Danmörku og Høgni Hoy-
dal, sem er þingmaður fyrir
Þjóðveldisflokkinn og því sjálf-
stæðissinni, hefur sagt að líklega
þurfi að halda þjóðaratkvæði.
Undir það hefur Kaj Johannessen,
þingmaður Sambandsflokksins,
sem er fylgjandi sambandinu við
Danmörku, tekið, skv. Sósíalurin.
„Það verður að spyrja færeysku
þjóðina áður en nokkur ákvörðun
er tekin,“ sagði hann.
Þjóðaratkvæði um Evrópumál?
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti af-
tók með öllu í gærkvöldi að Donald Rums-
feld varnarmálaráðherra myndi víkja úr
ríkisstjórn vegna illrar meðferðar banda-
rískra hermanna á föngum í Írak. „Rums-
feld ráðherra hefur þjónað ættjörð sinni
vel,“ sagði Bush. „Hann er mikilvægur
liðsmaður stjórnar minnar og hann mun
sitja áfram í stjórn minni,“ bætti hann við.
Forsetinn staðfesti hins vegar að hann
hefði ávítað Rumsfeld fyrir að hafa ekki
greint honum frá málinu áður en það
komst í hámæli.
Bush baðst í fyrsta skipti afsökunar á
illri meðferð á föngum í Írak á frétta-
mannafundi sem hann hélt með Abdullah
Jórdaníukonungi í Washington í gær.
Hann sagði að Bandaríkjamönnum væri
„ómótt“ vegna ljósmynda þar sem sjá má
hvar bandarískir hermenn niðurlægja
íraska fanga í Abu Ghraib-fangelsinu í út-
jaðri Bagdad.
40 Írakar féllu í Najaf
Bandaríkjaher náði á sitt vald helstu
stjórnarskrifstofum í borginni Najaf í Írak
eftir harða bardaga í gær en þar hafa
vopnaðir fylgismenn sjítaklerksins Moqt-
ada al-Sadrs haft öll völd undanfarnar vik-
ur. Bandaríkjamenn áætla að um 40 fylg-
ismenn al-Sadrs hafi fallið í átökunum. Þá
biðu fimm óbreyttir borgarar og einn
bandarískur hermaður bana þegar bíl var
ekið að mörkum græna svæðisins svokall-
aða, sem Bandaríkjamenn ráða í miðborg
Bagdad, og hann þar sprengdur í loft upp.
Tuttugu og fimm manns til viðbótar særð-
ust í sprengingunni.
The Washington Post
The Washington Post birti í gær áður
óséðar myndir af illri meðferð á Írökum.
Bush til
varnar
Rumsfeld
Washington, Najaf, Bagdad. AP.
Bush forseti/14
STJÓRNVÖLD í Búlgaríu for-
dæmdu í gær dauðadóm yfir fimm
búlgörskum hjúkrunarfræðingum
og einum palestínskum lækni sem
dómstóll í Líbýu felldi fyrr um dag-
inn. „Þessi dómur er út í hött, það
skortir allar sannanir,“ sagði Anton
Stankov dómsmálaráðherra. Dóm-
urinn hefur vakið hörð viðbrögð
víða um heim.
Mannréttindasamtök halda því
fram að Líbýustjórn hafi skáldað
ákærurnar á hendur fólkinu upp til
að breiða yfir slæman aðbúnað að
sjúkrahúsum í landinu. Og dr. Luc
Montagnier, Frakkinn sem átti þátt
í því að alnæmi var greint á sínum
tíma, sagði fyrir rétti að hreinlæt-
isskortur á Benghazi-sjúkrahúsinu
hefði líklega valdið því að sjúklingar
smituðust af HIV. Þessum rökum
hafnaði hins vegar sérstök sérfræð-
inganefnd líbýskra lækna.
Sakborningarnir hafa setið í
varðhaldi undanfarin fimm ár. Þeir
sögðu fyrir rétti að játningar þeirra
í málinu hefðu verið þvingaðar fram.
Lýstu þeir sig saklausa af öllum
ákærum. Skv. lögum í Líbýu verður
úrskurðinum sjálfkrafa áfrýjað.
Reuters
BÚLGÖRSKU hjúkrunarfræðingarnir Nasia Stoich-
eva, Zdravko Georgiev, Valia Chervenyashka, Valent-
ina Siropoulu, Snezana Dimitrova og Kristina Valch-
eva í réttarsalnum í gær. Dómstóll í Líbýu dæmdi þau
og palestínskan lækni í gær til dauða fyrir að hafa
smitað meira en 400 sjúklinga á barnaspítala í Bengh-
azi viljandi af HIV-veirunni en hún veldur alnæmi. Alls
hafa 43 barnanna, sem fólkið var sakað um að hafa
smitað af HIV-veirunni, nú dáið af völdum alnæmis en
ákæruvaldið taldi að fólkið hefði verið að reyna að
finna lækningu gegn alnæmi þegar það sprautaði sjúk-
linga sína með HIV-veirunni. Til viðbótar var búlg-
arskur læknir dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar.
Níu Líbýumenn voru hins vegar sýknaðir.
Umdeild-
ur dauða-
dómur
Trípóli, Benghazi. AFP, AP.
Sögð hafa smitað börn viljandi af HIV